Morgunblaðið - 20.04.1985, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1985
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir RICHARD BORDREAUX fréttaskýranda AP
Suður-Ameríka:
Stjórnað í skugga
óþolinmóðrar alþýðu og
kröfuharðra herforingja
FIMM ÁR eru liðin frá því að her í Suður-Ameríku steypti síðast lýðræðis-
lega kjörnum forseta, en víðast hvar hafa herforingjarnir þó selt stjórnar-
taumana í hendurnar á borgurum á ný. Mjög er þó misjafnt hversu algert
vald nýju borgaralegu valdhafarnir hafa í raun því þeir stjórna þrátt fyrir
allt enn í skugga herforingjanna og hersins sem er í eðli sínu eins og
snjóflóð, en það þarf ekki mikið að bregða út af til þess aö snjóflóð fari af
stað. f flestum löndum Suður-Ameríku hafa allt fram til ársins 1979 verið
herforingjastjórnir sem voru að sölsa undir sig völdin á sjötta og sjöunda
áratugnum .
Einu einræðisherrarnir sem
eftir sitja í heimshlutanum,
Pinochet í Chile og Strössner 1
Paraguay, komu til valda fyrr og
eru því ekki í hópi seinni tíma
herforingja sem steyptu hinum
réttkjörnu stjórnum vegna þess
að þeir töldu sig sjálfskipaða til
að uppræta vinstri öfl og leysa
efnahagsvandamálin. Þetta hefur
þeim mistekist og því hafa þeir í
Ijósi almenningsáiitsins faiið
borgurum stjórnina aftur í hend-
ur. En þeir eru ekki langt undan
og hafa enn geysileg áhrif. Þeir
eru í raun eins og ok á stjórnvöld-
um í dag, ef eitthvað bregður út
af, þá er fátt líklegra en að skriða
vaidarána fari aftur af stað.
Stjórnarfarið
Skriðan fór af stað árið 1964 er
herforingjar gripu í taumana í
Brasilíu og á næstu árum settust
herstjórnir að völdum í hverju
landinu af öðru, alls var 10 forset-
um bylt og herinn barðist víðast
við uppreisnartilraunir vinstri
sinna. Herforingjarnir tóku sér
mikil völd, þeir reistu vopnaverk-
smiðjur og efldu herina, mótuðu
utanríkisstefnu, miðstýrðu olíu-
versluninni og menntakerfunum.
Og í Bólivíu var framleiðsla og
útflutningur á kókaíni undir
verndarvæng hersins. Þingmenn
voru reknir heim, stjórnmála-
flokkar voru bannaðir og stjórn-
arandstæðingar, einkum vinstri-
sinnar, voru ofsóttir, pyntaðir,
sendir í útlegð án réttarhalda og
jafnvel myrtir í mörgum tilfell-
um. Verst var ástandið í Argent-
ínu þar sem að minnsta kosti 8961
manns urðu að „hinum týndu“.
Oft var talað um „óvænta hern-
aðarlega íhlutun í einkalíf fólks í
Suður-Ameríku” og þess vegna
eru framfarasporin til lýðræðis á
ný stigin varlega því herforingj-
arnir eru sannarlega tii alls lík-
legir og áhrifamiklir þó ekki séu
þeir lengur æðstu ráðamenn þjóð-
anna. Tökum Uruguay sem dæmi.
1. mars sór Julio Mario Sanguin-
etti forsetaeið og sagði í ræðu við
það tækifæri, að því mætti
treysta að herinn myndi lúta
stjórnarskrá landsins. Þarna sátu
nýskipaðir ráðherrar í nýrri
stjórn og einnig helstu herforingj-
ar Uruguayhers, þar á meðal yfir-
maður heraflans, Hugo Medina.
Nokkrum dögum áður en þetta
gerðist sagði Medina í samtali við
fréttamenn, að yrði gengið of
nærri hernum, kæmi ekkert ann-
að til mála en nýtt valdarán.
Ekki einungis orðin tóm
Víða er ekki látið sitja við orðin
tóm. Að vísu sitja hinar nýju
borgarastjórnir enn að minnsta
kosti, en á mörgum vígstöðvum
glíma stjórnvöld og her um áhrif
og völd og herinn setur sig jafn
vel ofar lögum. Lítum á dæmi:
í Argentínu vinna nú saksókn-
arar að stefnu á hendur níu fyrr-
um herforingjum fyrir þátt þeirra
í „skítuga stríðinu" svokallaða. í
október gerðist það hins vegar, að
fjórir einkennisklæddir menn
brutust inn í skrifstofu dómara og
höfðu á brott með sér skýrslur
hersins um „hina týndu“. Hafa
skýrslurnar ekki sést síðan og
ekki hefur tekist að hafa uppi á
ræningjunum.
I Bólivíu rak nýiega skipaður
forseti, Hernan Siles Suazo, yfir-
mann heraflans eftir að nokkrir
herforingjar ásökuðu hann um að
heimila í laumi vinstri sinnum að
afla sér vopna. Siles rak nýja
herforingjann þremur mánuðum
seinna eftir að sá varð uppvís að
þvi að ætla að steypa Siles af
stóli.
í Kólombíu samdi forsetinn
Belisario Betancur um vopnahlé
við fjórar fylkingar vinstri sinn-
aðra skæruliða og er þess nú
freistað þar í landi að leysa deilu-
málin með því að ræða um þau.
Með því móti dró hann verulega
úr útgjöldum til hervæðingar og
stöðvaði að auki réttarhöld yfir
aðilum sem taldir höfðu verið ör-
yggi landsins hættulegir. Betanc-
ur vinnur ötullega að friðarmál-
um fyrir Mið-Ameríku og stórt
skref í viðleitni hans var að stofna
til stjórnmálasambands við Kúbu.
En það gengur ekki átakalaust,
herforingjarnir eru því andvígir
og því er eins gott fyrir Betancur
að rasa ekki um ráð fram.
í Uruguay samþykktu herfor-
ingjarnir að stofna til almennra
kosninga þegar aimenningsálitiö
var orðið þeim óhagstætt, en þeir
sýndu vald sitt með því að banna
vinsælasta frambjóðandanum að
keppa um forsetastólinn. Og
Sanguinetti, sem kjörinn var,
varð fyrst að ganga að því að
hrófla ekki við yfirmönnum hers-
ins. Herforingjarnir í Ecuador
léku sama leikinn árið 1979.
Sömu vandamálin
Valdapendúllinn sveiflast til og
frá og hefur nú sveiflast til lýð-
ræðiskjörinna forseta og ráð-
herraflokka þeirra. En ástæðan
fyrir því að pendúllinn sveiflaðist
til þeirra er sú, að herforingjarnir
réðu ekki við vandamálin, efna-
hagslíf flestra ríkja Suður-
Ameríku er afar bágborið, verð-
bóiga, erlendar skuldir og at-
vinnuleysi tröllríða þjóðfélögum í
þessum heimshluta. Þessu ætluðu
herforingjarnir að breyta og
þiggja fyrir vikið virðingu og
stuðning almennings. En það varð
ekkert úr því, þeir réðu ekki við
vandamálin. Þau eru því óleyst og
það hjálpar ekki núverandi vald-
höfum að ekki einungis fólkið
krefst skjótra úrlausna, heldur
herforingjarnir einnig og þeir
bíða reiðubúnir að gripa inn í á
ný. Efnahagsástandið hefur orðið
til þess að auka ólguna í löndum
eins og Bólivíu og hvetja skæru-
liða „skínandi stígs“ í Perú til að
kollvarpa kerfinu. Þar af leiðandi
verða forsetarnir nýju að treysta í
vaxandi mæli á herinn til þess að
halda uppi lögum og reglu og gefa
þeim vinnufrið. Ekki treystir það
heldur stöðu þeirra gagnvart
hernum.
Og meira: Herinn fer fljótlega
að vaxa í áliti á ný eftir að hafa
afsalað sér völdum, fólk er fljótt
að gleyma þegar það hefur nýja
menn og valdhafa til að úthella
vonbrigðum sínum yfir vegna lé-
legs stjórnarfars. Raul Lopez
Leyton hershöfðingi og yfirmaður
heraflans í Bólivíu sagði til dæmis
nýlega: „Síðustu dagar herstjórn-
arinnar árið 1982 voru erfiðir. Ef
við voguðum okkur út á götu í ein-
kennisbúningum brást það ekki
að við urðum fyrir aðkasti, fólk
kallaði okkur kúgara, morðingja,
þjófa og ailt hvað eina. Ég barðist
fyrir því að koma hernum frá
völdum og nú sér fólk eins og er,
að stjórnmálamennirnir eru síst
betri en við. Nú er öldin önnur, við
höfum áunnið aftur virðingu
fóiksins, i stað þess að kasta
grjóti í okkur, færir það okkur
blóm. Herinn er eina sterka aflið
sem fyrirfinnst í landinu, það eina
sem fólkið getur treyst þegar erf-
iðleikar steðja að.“
Þessi orð Leyton hershöfðingja
lofa ekki góðu fyrir núverandi
iýðræðisiega kjörna valdhafa, þau
benda til að fólk missi fljótlega
þoiinmæðina ef þeim mistekst að
bæta efnahagslífiö og fieiri
vandamál sem við er að glíma. Og
þeir stjórna í skugga hersins.
Valdataka hersins f Argentínu árið 1978, Leopoldo Snarez varnarmála-
ráðherra hefur veríð handtekinn.
Forseti snæðir poppkorn
Konald Reagan Bandaríkjaforseti með nemendum úr Martin Luther
King jr.-barnaskólanum á fjölleikahússýningu. Forsetinn opnaði sýn-
inguna, sem haldin er í þágu barnamálefna. Að því búnu snaraði
hann sér á áhorfendabekkina og snæddi m.a. poppkorn með börnun-
um.
Frakkar ljúka
smíði nýrrar
gerðar kafbáts
lle Lonpie, KrnkkUndi, 19. aprfl. AP.
FRAKKAR hafa lokið smíði fyrsta af sex kafbátum af nýrri og endurbættri
tegund og mun hernaðarmáttur þeirra aukast til mikilla muna fyrir vikið.
Kafbátur þessi hefur verið nefndur „Inflexible" og verður komið fyrir um
borð eldflaug með sex kjarnaoddum. Þá dregur flaugin lengra en flaugar í
öðrum frönskum kafbátum.
Frakkar eiga fimm kafbáta
búna kjarnorkuvopnum fyrir og
þrír eru stöðugt á hafi úti. Nú
hækkar talan í fjóra. „Þetta eflir
varnar- og sóknarmátt okkar til
mikilla muna,“ sagði Alain Coat-
anea, flotaforingi og sérlegur yfir-
maður kafbátaflotans franska.
„Inflexible" getur hæft hvaða
skotmark sem er í Evrópuhluta
Sovétríkjanna og búast má við því
að Sovétmenn leggi nú enn meiri
áherslu á kröfur sínar um að
kjarnorkuvopn Breta og Frakka
verði talin með í afvopnunarvið-
ræðunum í Genf.
Slegist yfir kvikmynd
um Maríu guðsmóður
Rómaborg, 19. aprn. AP.
TIL ATAKA kom í kvikmyndahúsi í Rómarborg á öðrum degi sýningar á
myndinni „Je vous salue Marie“, sem færir Maríu mey og uppruna Krists í
nútímabúning. 15 hægri sinnaðir öfgamenn ruddust inn i kvikmyndahúsið og
einn þeirra kýldi eiganda hússins svo að stórsá á honum áður en að viðstadd-
ur gátu skakkað leikinn. Voru 15-menningarnir, sem eru allir í samtökum
nýnasista, að mótmæla nútímalegri umfjöllun í kvimyndinni á kristinfræð-
inni.
Kvikmynd þessi, sem leikstýrt
er af hinum kunna Jean Luc
Goddard, var frumsýnd í Frakk-
landi fyrir nokkru og olli miklum
deilum. Maria mey er leikin af fal-
legri ungri leikkonu, sem heitir
Myriem Roussel, og er hún dóttir
bensínstöðvareiganda í myndinni
og barnsfaðir hennar er hafður
leigubílsstjóri. Ungfrú Roussel er
alloft kviknakin í myndinni.
Þessi umfjöllun hefur farið
fyrir brjóstið á mörgum og hávær-
ar raddir hafa verið uppi um „guð-
lastið“. Mennirnir, sem réðust inn
í kvikmyndahúsið, æptu slagorð
gegn myndinni og dreifðu sneplum
með boðskap sínum. Er bíóeigand-
inn hugðist skakka leikinn, byrj-
uðu pústrarnir og síðan áflogin.
Var það ójafn leikur og maðurinn
hlaut talsverða áverka eins og áð-
ur sagði.
Taiwan:
Lífstíðarfangelsi
vegna morðsins á Liu
Taipei, Tahraa, 19. aprfl. AP.
WONG Hsi-Iing, fyrrverandi yfir-
maður leyniþjónustu hersins á Taiw-
an, var í dag dæmdur i lífstíðarfang-
elsi fyrir morð á kínversk-banda-
ríska blaðamanninum Henry Liu.
Tveir aðstoðarmenn Wongs voru
dæmdir í tveggja og hálfs árs fang-
elsi hvor. Áfrýjunardómstóll mun
síðan taka dómsorðið til endurskoð-
unar, samkvæmt lögum Taiwans.
Kona Henry Liu, Helen, hefur
fullyrt, að stjórnmálalegar ástæð-
ur liggi að baki ódæðinu. Stjórn-
völd á Taiwan hafa þvegið hendur
sínar af morðinu.
Henry Liu var fimmtíu og
tveggja ára og starfaði fyrir San
Fransisco Journal, sem er gefið út
á kínversku. Hann hafði ritað all-
margar greinar þar sem hann
gagnrýndi óspart stjórn Taiwans.
Hann var skotinn við heimili sitt í
Kaliforníu þann 15. október sl.