Morgunblaðið - 20.04.1985, Síða 43
43
„Eg er
gull og
gersemi“
Leikfélag Akureyrar gerði
garðinn frægan í Færeyjum
nú ekki alls fyrir löngu, þegar „Ég
er gull og gersemi" var sýnt í
Norðurlandahúsinu í Þórshöfn.
Sveinn Einarsson leikstýrði
verkinu eins og lesendum er ef-
laust kunnugt og um 30 manns frá
leikfélaginu tók þátt í förinni.
Um 500 manns sáu sýningarnar,
en leikritið byggðist að hluta á
sögu Davíðs Stefánssonar, Sólon
Islandus, sem kunnugt er. Lykil-
persónan Sölvi Helgason er ýmist
sá flakkari og listamaður sem
hann var á sínum tíma, eða ungur
myndlistarmaður í dag sem kemur
róti á huga íslenskra borgara í
stofu á Akureyri. Meginþema leik-
ritsins er því hlutskipti lista-
mannsins og samspil listar og
samfélagsins.
Það var töluvert fjallað um sýn-
inguna í fjölmiðlum ytra og okkur
hafa borist nokkrar úrklippur sem
við látum fylgja hér með.
hann kemur til með að verða
ágætur strákurinn.
Þar með var Baldur rokinn í
burtu. Það verður gaman að fylgj-
ast með í dag hvort töfrabrögðin
hafa komið að miklu gagni hjá
þeim félögum Gunnlaugi og
Baldri en eins og getið var í upp-
hafi hér, lýkur rallinu seinnipart-
inn í dag.
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1985
Hvor er hvor?
Keith fær smjörþef af frægöinni ...
Af Jackson-bræðrum...
Michael Jackson stórstjarna í
poppinu heimsótti vax-
myndasafn Madame Tusseaud
fyrir skömmu. Tilefnið var að lok-
ið hafði verið gerð eftirlíkingar af
poppgoðinu og fylgja hér með
nokkrar myndir frá þessu tæki-
færi. Það upplýsist hér með, að
Jackson er sá með sólgleraugun.
Hann lýsti yfir að eftirlíkingin
væri „hnökralaus" og hnipptu þá
gárungar hver í annan og töldu
það sönnun fyrir því að goðið sæi
ekki glóru í gegn um sólgleraugun
sem sögð eru einhver hin svört-
ustu sem um getur. Það vakti
mikla athygli viðstaddra, að Jack-
son fékkst til að taka gleraugun
niður nokkur andartök, slíkt er
geysilega óvanalegt.
Annars er það helst af Michael
að frétta, að hann hefur gert
samning við Geffab-kvikmynda-
framleiðslufyrirtækið um að vera
aðalnúmerið í tveimur kvikmynd-
um á vegum þess. Báðar munu
myndirnar snúast meira og minna
um kosti og snilld Jacksons, hann
mun syngja, dansa og leika, auk
þess að semja lög og texta. Þvkir
mörgum með ólíkindum hvað
Jackson leggur fyrir sig með
hliðsjón af því að pilturinn er tal-
inn hlédrægur með afbrigðum.
Jackson er einn bróðir af mörg-
um og allir eru þeir geysilega
músíkalskir. Einn þeirra er
Jermaine Jackson, sem er að
baksa við sólóferil eins og Michael
bróðir hans. Hefur honum gengið
sæmilega, einkum er hann fékk
hina snoppufríðu Píu Zadora til að
syngja með sér dúett. En frægð
Jermaine og frami hafa þó ekki
verið nema lítið brot af því sem
Michael hefur aflað sér. Um þetta
segir Jermaine: „Michael var rétt-
ur maður að gera rétta hluti á
réttum tíma. Ég gæti allt eins ver-
ið í hans sporum.“
Ef við höldum aftur til vax-
myndasafnsins þar sem við hófum
þennan pistil, þá varð talsvert
uppistand fyrir utan, en það var
auðvitað samankominn mikill
mannfjöldi til að skoða poppgoðið.
Þar í hópi var Keith Preddie, en
hann er nauðalíkur Michael. Ekki
bar á öðru en vinsældir hans væru
síst minni en popparans og þakk-
aði hann það útlitinu. „Nú veit ég
hvernig hann hefur það, þetta er
ekki eftirsóknarvert," stundi hann
móður og másandi eftir að hafa
sloppið úr klónum á æstum að-
dáendum Michaels Jackson.
COSPER
— t*ú segir ad það sé erfitt að afia peninga, en það er ekkert hjá því að eyða
þeim.
★ * 4
★ 4
COUNCfL * * CÖNSlL
Of EUROPE * * * DE L'BJROPE
EVRÓPURÁÐ
auglýsir stöðu
FRAMK VÆMDAST JÓRA
EVRÓPUSJÓÐS ÆSKUNNAR
Ráðning er til tveggja ára. Til greina kemur aö hún veröi framlengd til fimm
ára. Umsækjendur þurfa aö vera yngri en 45 ára og hafa lokiö háskólaprófi.
Krafist er viötækrar reynslu af æskulyösstarfi heima fyrir og á alþjóölegum
vettvangi. Þá er einnig krafist mjög góörar ensku- eöa frönskukunnáttu (og
góörar kunnáttu í hinu tungumálinu).
Qóö laun í boöi. greiöslur vegna fjölskyldu og flutninga.
Umsóknir verða aö hafa borist þann 8. mai 1985. Skrifiö eftir umsóknareyðu-
blööum og frekari upplýsingum.
The Head of Establishment Division. Counsil of Europe
B.P. 431 R6 — F-67006 Strasbourg Cedex.
Stofnfundur
Styrktarfélags Staðarfells
verður haldinn sunnudaginn 21. apríl nk. á Hótel
Loftleiöum kl. 15.
Allir sem hafa áhuga á meðferðarmálum velkomnir.
FJÖLMENNUM!
Undirbúningsnefnd.
Ekta austurlenskt úr
pottunum
hjá Ning
Um helgina
mælum viö
sérstaklega meö:
Lambakjötssneiðar í ostrusósu
m/nýjum ísl. sveppum og vorlauk
og ef þú vilt heldur fiskrétt þá er það
Ný ýsa í tamarindsósu
m/grænmeti og hrísgrjónum
Fjölskyldan reynir austurlenska
matarveislu um helgina
Ódýrt — eftirminnilegt — að maður tali ekki um
bragðgott (ummmm!)
Boröapantanir: s. 46212.
Manðarin
Nýbýlavegi 20
Sími 46212
Tökum aö okkur
veislur
— sendum mat —
„taktu-með-
þér-þjónusta“