Morgunblaðið - 20.04.1985, Síða 51
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 20. APRlL 1985
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14-15
FRÁ MÁNUDEGI
mFöerruDAGS
BréfriUri mælir með að þingmenn fari frekar í leikhús heldur en í kirkju við þingsetningu.
Öllum þeim mörgu, skyldum og vandalausum,
sem með heimsóknum, góðum gjöfum, heilla-
skeytum og mergð blóma, minntust mín í hlý-
hug á 75 ára afmæli mínu 9. apríl sl. þakka
ég af alhug. Allt þetta yljaði mér um hjarta-
rætur. Ég stend því í mikilli þakkarskuld og
bið Guð að launa. Hann blessi ykkur öll um
ókomin ár, „hvort lánað lif oss ber langt eða
skammtu. Lifið heil!
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Nýr heimurklnverskra kræsinga
ÁShanghai framreiðum við fleira en steikt hrisgrjón og vorrúllur.
Shanghai veitingastaðurinn í kjallaranum á Laugavegi 28.
Kirkjan, leikhúsið
og þingmennirnir
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Mér hefur stundum dottið í hug,
hvort ekki væri nær fyrir hina
kjörnu fulltrúa þjóðarinnar — 60
að tölu — að skreppa heldur í leik-
hús við þingsetningu en guðshús,
og skal ég nú reyna að gera grein
fyrir ástæðunni fyrir þessari
hugsun minni.
Þegar maður hugsar út í störf
þessara manna í áraraðir hlýtur
að vakna sú spurning, hvort þessi
hópur sé starfi sínu vaxinn. Ég
verð fyrir mitt leyti að svara þess-
ari spurningu neitandi. Þó skal
það tekið fram, að sem betur fer
eru innan um traustir og góðir
fulltrúar, en eins og máltækið seg-
ir: Það er misjafn sauður í mörgu
fé — og eins mun það eiga við i
sölum Alþingis.
Ég held að það vilji gleymast
hjá þessu fríða föruneyti, þegar
það gengur beint úr kirkju út í
þinghúsið, að breyta eftir því sem
fulltrúi kirkjunnar ber á borð
fyrir þá, a.m.k. gæti maður dregið
þá ályktun þegar maður les og
hlustar á ræður er koma frá al-
þingismönnum. Þess vegna vil ég
benda þeim á að fara heldur í
leikhús og sjá gott leikrit heldur
en í guðshús, enda vill nú líka svo
vel til, að þeir eiga sjálfir leikrita-
höfunda.
Ég er sammála þeim sem halda
því fram, að þingræðið hér á landi
sé ákaflega veikt og jafnvel í
hættu og kemur þar margt til, sem
of langt yrði upp að telja. Það eru
t.d. ekki þjóðhollir alþingismenn
sem fella hverja einustu tillögu
frá andstæðingunum, hversu góð
sem hún er. Þar er engin sann-
girni á ferð, heldur einstefna og
þröngsýni.
Mér finnst eftirtektarvert
hversu ríkisstjórnin er dugleg við
að skipa alls konar nefndir til að
sinna því sem ríkisstjórnin ein á
að sinna. Þetta nefndafargan
kostar þjóðina stórfé og allir vita
hvaðan það fé er tekið — auðvitað
af skattborgurum. Fyrir það fé
sem sparast gæti ef hagur þeirra
lægst launuðu vænkast, til dæmis
ef ríkisstjórnin drægi úr öllum
nefndarskipunum. Einnig hefðu
ráðherrar og þingmenn sjálfsagt
ráð á því að minnka við sig kaupið.
Þeir eru jú alltaf að brýna fyrir
fólki að spara, en eru sjálfir með
4—5 sinnum meira kaup en al-
menningur.
Draga verður verulega úr fram-
kvæmdum a.m.k. næstu tvö árin ef
lækka á skattana og koma á efna-
hagsmálum þjóðarinnar í betra
horf.
Að brynna manni
í gallabuxum
Guðrún og Jónas á Kópareykjum
höfðu samband við Velvakanda og
báðu fyrir orðsendingu til góð-
kunningja síns, Einars Olgeirs-
sonar, hótelstjóra á Hótel Esju.
Hér eru staddir sjónvarpsmenn
frá sænska sjónvarpinu, sem
hingað komu til þess að gera
kvikmynd um íslenzka leikstarf-
semi. Okkur veittist sú ánægja að
þau heimsóttu okkur á Kópareyki
og sl. fimmtudag voru við svo með
þeim í Reykjavík vegna vissra
tengsla við leikhús og leikritun.
Við ætluðum að kveðja þau á
fimmtudagskvöld með því að
bjóða þeim hressingu á barnum á
Hótel Esju, þ.e. Skálafelli.
Við komumst í lyftunni upp á 8.
hæð og áttum þá aðeins eftir stig-
ann upp á þá 9. Þar varð fyrir
okkur ungur maður, sem vildi fá
að athuga samkvæmið, áður en
það færi ofar. Renndi hann augun-
um eftir býfunum á okkur. í hópn-
um var ein kona en henni brá nú
ekkert meira en okkur hinum við
þessar kúnstir. Er hann hafði
þetta gert benti hann á einn Sví-
ann sem var í gallabuxum og til-
kynnti að hann fengi ekki að fara
upp þennan stiga. Þá var gripið til
þess ráðs að Jónas færi upp stig-
ann til þess að sækja glösin og það
sem í þeim átti að vera, en það var
leyfilegt að brynna gallabuxna-
manninum einni hæð fyrir neðan
sjálfan „brunninn". Við brunninn
var þá heldur betur þröng á þingi.
Fólk var þar að glápa á ungar kon-
ur og nýjustu tízku. Jónas komst
þó að skeinknum og þegar hann
ætlaði að fara að panta það sem
þarna átti að kaupa varð hann var
við það, að það var komin óeðlieg
hreyfing á tvo Svíana, sem áttu að
aðstoöa hann við að koma niður á
næstu hæð glösunum. Ástæðan
fyrir þessu var sú, að einhver
þjónanna var stjakandi þeim til og
frá til þess að tízkudömurnar ættu
sem greiðastan gang inn um dyrn-
ar í salinn. Eftir þann viðbótar-
dónaskap ákváð Jónas að hætta
við þetta og við kvöddum þar með
þetta hótel þitt.
Okkur finnst að þú, sem orð-
lagður sjentiimaður og ágætur
hótelstjóri, ættir að koma afsök-
unarbeiðni til þessa fólks, sem
verður á Hótel Sögu fram á
sunnudagsmorgun 21. apríl, en ef
þú nærð ekki til þess áður en það
hverfur aftur heim þá eru hér
nöfnin og heimilisföngin:
Ernst Ödegaard, Sven Rin-
mansg., 1 n.b., 11237 Stockholm.
Benny Wilhelmson, Kungs-
holms Stand 25, S-11226 Stock-
holm.
Carl Torell, Tomtebog 13, 11339
Stockholm.
Annika Levin, Götgatan 44,
S-11621 Stockholm.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til að
skrifa þættinum um hvaðeina, sem
hugur þeirra stendur til — eða
hringja milli kl. 14 og 15, mánudaga
til fðstudaga, ef þeir koma þvf ekki
við að skrifa. Meðal efnis, sem vel
er þegið, eru ábendingar og orða-
skipti, fyrirspurnir og frásagnir,
auk pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn,
nafnnúmer og heimilisföng verða
að fylgja ðllu efni til þáttarins, þó
að höfundar óski nafnleyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér 1
dálkunum.
Aðal-
fundur
Iðju, félags verksmiðjufólks, verður haldinn í Domus
Medica miövikudaginn 24. apríl kl. 5 síödegis.
Dagskrá:
1. Venjuleg aöalfundarstörf.
2. Reglugerð sjúkrasjóös Iðju.
3. Önnur mál.
Endurskoöaöir reikningar félagsins fyrir áriö 1984 liggja
frammi á skrifstofunni.
Stjórn löju.
Ert þú að leita að hillum í stofuna,
barnaherbergið, geymsluna, lagerinn
eða verslunina? Þetta er lausnin.
Cl ipi IL4H I IID
rUnUniLLUn
MYNDIN
Dalshrauni 13 S. 54171
OPIÐ
MÁN.-FIM. 9-18
FÖSTUDAGA 9-19
LAUGARDAGA 10-17
SUNNUDAGA 13-17