Morgunblaðið - 03.05.1985, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
98. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fundur leiðtoga sjö iðnríkja hafínn í Bonn:
Mikill ágreiníngur með
Mitterrand og Reagan
Konald Reagan, Bandaríkjaforseti
og Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra Breta, ræddust í gær við í
Gymnich-kastala við Bonn þar
sem Reagan dvelst meAan á heim-
sókn hans stendur í Vestur-Þýska-
landi. Síðar um daginn var settur
fundur leiðtoga sjö helstu iðnrikja
heims utan kommúnistaríkjanna
en formlegar umræður hefjast í
dag.
Bodi, 2. «1. AP.
FTINDUR leið-
toga sjö ríkja,
helstu iðnríkja
Vesturlanda og
Japans, hófst i
Bonn I Vestur-
Þýskalandi í dag.
Ljóst þykir, að
ágreiningur
Frakka og Banda-
ríkjamanna muni
setja sinn svip á
Kohl og fundinn en þá
Mitterrand greinir á um
endurskipulagningu alþjóðlega
gjaldeyriskerfisins og hvenær hefja
skuli viðræður um aukið frelsi í
heimsviðskiptum.
Reagan, Bandaríkjaforseti, átti
í dag viðræður við Helmut Kohl,
kanslara Vestur-Þýskjalands, og
að þeim búnum ræddust þeir við,
Mitterrand, Frakklandsforseti, og
hann. Mitterrand lagði áherslu á,
að fyrirhugaðar viðræður um auk-
ið frelsi i heimsviðskiptum yrðu
að tengjast ráðstefnu um endur-
skipulagningu gjaldeyriskerfisins
og tilraunum til að hafa hemil á
háu og breytilegu gengi dollarsins.
I
I
m
m * m
Símamynd/AP
SamstaAa, hin útlægu samtök verkalýðsins í Póllandi, efndi til Qöl-
mennra mótmæla í ýmsum borgum 1. maí, á hátíðisdegi verkamanna.
Kom til mikilla átaka milli lögreglu og göngumanna í Gdansk, þar sem
þessi mynd var tekin.
Reagan telur hins vegar enga
nauðsyn á þessari endurskipu-
lagningu og vill, að viðræðurnar
um viðskiptafrelsið hefjist
snemma á næsta ári. í því efni
nýtur hann eindregins stuðnings
Vestur-Þjóðverja, Breta og Jap-
ana.
Á fundi sínum með Helmut
Kohl í dag sagði Reagan, að hann
myndi fara til hermannagrafreits-
ins i Bitburg á sunnudag eins og
um hefði verið rætt. í grafreitnum
hvíla um 2.000 hermenn, sem féllu
í heimsstyrjöldunum báðum, og
þar á meðal 49 menn, sem voru í
SS-sveitum Hitlers. Hefur Reagan
verið gagnrýndur mjög fyrir þessa
ferð en hann svarar því til, að yfir
glæpaverk nasista muni aldrei
fyrnast en ferðin sé farin til að
sýna, að bandariska þjóðin og sú
þýska séu nú sáttar og vilji saman
horfa í átt til betri og batnandi
tíðar.
AP/Símamynd
Verkfall sænskra ríkisstarfsmanna skollið á:
Áhrifin alvarlegust
fyrir efnahagslífið
Pólland:
Kuron í þriggja
mánaða fangelsi
Palme sakar ríkisstarfsmenn um að skeyta engu um þjóðarhag
Stohkkólni, 2. duí. Frá MttariUn MbL
EINS og viA hafAi veriA búist hófst verkfall 20.000 ríkisstarfsmanna á
miAnætti í nótt og báru tilraunir sáttanefndar til aA koma í veg fyrir þaA
engan árangur. Talsmenn rikisstjórnarinnar sögAu í dag, aA til aA knýja á um
lausn deihinnar yrði á morgun, fostudag, boAaA verkbann á 100.000 ríkis-
starfsmenn, sem tæki gildi eftir viku.
Varsjá, 2. maí. AP.
JACEK Kuron, kunnasti andófsmaA-
urinn í hópi pólskra andófsmanna,
var í dag dæmdur í þriggja ára fang-
elsi fyrir að hafa tekiA þátt í 1. maf-
göngu, sem SamstaAa gekkst fyrir í
Varsjá.
Jacek Kuron og leiðtogi Sam-
stöðu í Varsjá, Seweryn Jaworski,
voru dæmdir í þriggja mánaða
fangelsi í dag fyrir að hafa tekið
þátt í göngu, sem Samstaða efndi
til f gær á hátíðisdegi verka-
manna. Tóku 15.000 manns þátt i
henni og átti Kuron mikinn þátt í
að hún fór friðsamlega fram.
Þrátt fyrir það var hann handtek-
inn ásamt mörgum öðrum, sem
síðar var sleppt með sektir. Mót-
mælagöngur Samstöðu voru f
fimm borgum a.m.k. en til mestra
átaka kom í Gdansk.
Lögreglumenn komu í gær í veg
fyrir, að Lech Walesa gæti tekið
þátt i göngu Samstöðu í Gdansk
en í dag sagði hann. að kommún-
ískir ráðamenn í Póllandi ættu nú
ekki önnur stjórntæki eftir en
kylfurnar og að átökin í gær
sýndu, að tíminn væri að renna út
fyrir friðsamlega lausn á vanda-
málum þjóðarinnar.
Þótt verkfallið taki aðeins til
hluta ríkisstarfsmanna hefur það
nú þegar haft og mun hafa mikil
áhrif á daglegt líf í Svíþjóð. Al-
mennt flug hefur lagst niður og
truflanir eru á flutningum með
járnbrautum, hluti kennara og
póstmanna er í verkfalli og lög-
reglumenn hafa dregið úr venju-
legu eftirliti. Fyrir sænskt efna-
hagslíf þykir þó vinnustöðvun
tollvarða alvarlegust en hún veld-
ur því, að útflutningur og inn-
flutningur stöðvast að miklu leyti.
Ríkisstarfsmenn halda þvi
fram, að þeir hafi á síðasta ári
dregist aftur úr öðrum launþegum
og vilja fá það bætt með 3%
launahækkun. Á það vill ríkis-
stjórnin ekki fallast en hefur boð-
ið 2% kauphækkun 1. janúar 1986.
Talsmaður ríkisstjórnarinnar
sagði í dag, að hún neyddist úr því
sem komið væri til að gripa tii
verkbannsins en formaður í félagi
ríkisstarfsmanna, Hans Hellers,
sagði, að það myndi lítil áhrif
hafa. „Við getum haldið það út til
næstu kosninga," sagði hann en
þær fara fram í haust.
Utanríkisverslunin var Svíum
hagstæð í fyrra en þó hallaði held-
ur undan fæti eftir því sem á árið
leið. Á fyrsta ársfjórðungi 1984
var tekjuafgangurinn 9,4 milljarð-
ar skr. en ekki nema 1,6 milljarðar
á sama tíma nú í ár. Útflutn-
ingsstöðvunin mun því hafa al-
varleg áhrif á efnahagslífið. í 1.
maí-ræðum sínum létu Olof
Palme, forsætisráðherra, og aðrir
ráðherrar jafnaðarmanna þung
orð falla í garð ríkisstarfsmanna.
Sagði Palme, að engin stétt gæti
látið sem hún hefði engum skyld-
um að gegna við samborgarana og
efnahagslífið í landinu og formað-
ur stærstu vinnuveitendasamtaka
í Svíþjóð, Stig Halm, benti á. að
ýmsar stéttir hefðu samið um
minni launahækkanir í fyrra en
ríkisstarfsmenn.
Réttarhöldin yfir Ame Treholt:
Krafist 20 ára
fangelsisdóms
ÓhIÓ, 2. oui. AP.
LASSE Quigstad, saksóknari,
krafðist þess í dag, aA Arne Tre-
holt yrði dæmdur í 20 ára fangelsi
fyrir njósnastarfsemi en verjendur
hans munu fara fram á, aA hann
verði sýknaður. Hófu þeir loka-
vörnina í dag og mun hún standa
fram í næstu viku.
f lokaræðu sinni krafðist
Quigstad þess, að Treholt yrði
fundinn sekur um öll 40 atriðin í
ákærunm en þar er hann sakað-
ur um að hafa stundað njósnir
fyrir Sovétmenn og íraka allt
frá árinu 1974. Fór hann fram á
hámarksrefsingu, sem er 20 ára
fangelsi samkvæmt norskum
lögum, og að gert yrði upptækt
fé, sem Treholt á í svissneskum
banka, 52.000 dollarar, og 700
þús. nkr., sem eru í banka í Nor-
egi. Sagði Quigstad um Treholt,
að hann væri sá maður, sem
unnið hefði norsku þjóðinni mest
tjón allt frá lokum síðustu
heimsstyrjaldar.
Verjendur Treholts hófu loka-
vörnina í dag og er gert ráð
fyrir, að hún muni standa fram í
næstu viku og ljúka með kröfu
bmhmnm1
Arne Treholt
um, að sakborningurinn verði
sýknaður af öllum ákærum. Að
því loknu munu dómararnir sjö
taka málið til dóms og er hans
að vænta um miðjan mánuðinn.
Víst þykir, að málinu verði
áfrýjað til hæstaréttar hver sem
niðurstaðan verður að sinni.