Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 4

Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 Vinsældalisti rásar 2 „USA for Africa“ enn í fyrsta sæti Vinsældalisti rásar 2 er sem hér segir þessa vikuna: 1(1) We Are the World/USA for Africa 2(2) Wide boy/Nick Kershaw. 3(8) Behind the Mask/Greg Philliganes. 4(4) Some Like It Hot/The Pow- er Station. 5(5) Welcome to the Pleasure Dome/Frankie goes to Hollywood. 6(3) You Spin Me Around (Like a Record)/Dead or Alive. 7(-) The Beast in Me/Bonnie Po- inter. 8(14) Kiss Me (With your Mouth)/Stephen „Tin Tin“ Duffy. 9(19) Look Mama/Howard Jon- es. 10(11) Crasy for You/Madonna. Gísli Blöndal Gísli Blöndal tekur við hjá Veröld hf. GÍSLI Blöndal, sem gegnt hefur starfí fulltrúa framkvæmdastjóra Hagkaups sl. þrjú ár, mun láta af því starfí 1. júní nk. og taka við starfí framkvæmdastjóra Bókaklúbbsins Veraldar hf. af Jóni Karlssyni. Enn er óráðið hver verður eftir- maður Gísla hjá Hagkaup. MorgunblaðiS/Árni Sæberg Hjólaskófía að lesU á trukk inni í aðkomugöngunum að stöðvarhúsi Blönduvirkjunnar. Við gangnamunann í Blönduvirkjun. T.v. á myndinni stendur Per Inge Hendriksen byggingarstjóri Krafttaks við hlið hans Ellert Skúlason ann- ar aðalstjórnandi Krafttaks sf. Fyrir ofan þá sér í stokk sem notaður er til að dæla fersku lofti inn í göngin. Blönduvirkjun: Framkvæmdir Krafttaks sf. eru komnará undan áætlun — þakka góðan árangur ágætri samvinnu milli allra aðila segir Ellert Skúlason hjá Krafttak sf. Framkvæmdir Krafttaks sf. við Blönduvirkjun, sem staðið hafa yfir síðan í haust, hafa gengið vel og er verkið á undan áætlun. Nú hafa verið sprengd rúmlega 800 metra löng aðkomugöng inn í fellið vestan Blöndu og byrjað að sprengja fyrir stöðvarhúsi inn f bergið um 250 metra undir jarðaryfírborði. Verður stöðvarhúsið þrjátíu metrar á hæð en sextíu metra langt Stórvirkar vinnuvélar eru notaðar við verkið en tuttugu starfsmenn eru að jafnaði á svæðinu á vegum Krafttaks. Krafttak sf. var stofnað af voru á ferð við Blönduvirkjun á fyrirtækjunum Ellert Skúlason hf. í Ytri-Njarðvík og Jernbeton as. í Noregi. Leggja fyrirtækin til allar vélar sem notaðar eru við verkið. Er Morgunblaðsmenn dögunum var vinna þar i fullum gangi. Þarna er unnið á tveim vöktum, þannig að unnið er nær samfellt allan sólarhringinn og alla daga nema sunnudaga. „Verkið hefur gengið mjög vel hjá okkur, enda erum við með úrvals mannskap hérna," sagði Ellert Skúlason hjá Krafttaki sf. í samtali við blm. Mbl. „Krafttak hefur sýnt styrk sinn í þessu verki því okkur hefur þegar tek- ist að komast fram úr verkáætl- un, þrátt fyrir tafir sem orðið hafa. Þar á ég við verkfall opin- berra starfsmanna sem skall á rétt eftir að við byrjuðum hér í haust, en það varð til þess að við fengum ekki byggingarefni sem við þurftum. Þá hafa berglögin hér í fellinu reynst lakari en gert var ráð fyrir í útboðsgögnum. Það hefur leitt til þess að við höfum orðið að sprautusteypa í göngunum eftir hverja sprengingu, sem er margfalt oftar en gert var ráð fyrir í útboðsgögnum. Þetta er gert í öryggisskyni, en hér leggj- um við mikla áherslu á að öllum öryggiskröfum sé fylgt til hins ýtrasta. Ég þakka hinn góða árangur okkar hér í vetur fyrst og fremst ágætri samvinnu milli allra að- ila sem að verkinu standa. Allt samstarf og samvinna hefur ver- ið með ágætum, hvort heldur er milli Islendinga og Norðmanna sem hér vinna, eða milli starfsmanna Landsvirkjunar og Krafttaksmanna," sagði Ellert. Morffunblaöið/ Friðþjófur Gcrður Jónasardóttir afhjúpar minnisvaröann sem gerður hefur verið um fööur hennar Jónas Jónsson frá Hrifíu. Minnisvarði Jónasar frá Hriflu afhjúpaður þann 1. maí Halldór E. Sigurðsson fyrrver- andi ráðherra stjórnaði athöfn- inni og ávörp fluttu þeir Stein- grímur Hermannsson forsætisráðherra og Albert Guð- mundsson fjármálaráðherra. MINNISVARÐI Jónasar Jónssonar frá Hriflu var afhjúpaður kl. 10 ár- degis þann 1. maí, en þá voru eitt hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Það var dóttir hans, Gerður, sem afhjúpaði minnisvarðann að við- stöddu fjölmenni. Sláturféiag Suðurlands: Tapaði 10,6 milljón- um kr. á síðasta ári TAP varð á rekstri Sláturfélags Suð- urlands á síðastliðnu ári, annað árið í röð. Þetta kom fram á aðalfundi SS sem haldinn var fyrir skömmu. Rekstrartekjur ársins voru rúmlega 1.381 millj. kr. og höfðu aukist um 28,2% frá fyrra ári. Um 10,6 milljóna kr. halli varð á rekstrinum, eða um 0,8% af rekstrartekjum, en á árinu 1983 var tapið 15 milljónir kr., eða um 1,4% af rekstrartekjum. í ræðu Jóns H. Bergs, forstjóra SS á aðalfundinum kom fram, að gengi einstakra greina í rekstrin- um var misjafnt á árinu. „Afkoma kjötiðnaðar var sæmileg og afkoma slátrunar- og skinnaiðnaðar batn- aði nokkuð frá árinu á undan, en afkoma verslunargreina var óhag- Ferðaskrifstofan Útsýn: Selur 400 sæti til Lundúna á 7900 krónur farseðilinn FERÐASKRIFSTOFAN Útsýn mun á morgun selja 400 sæti til Lundúna á miklum afsláttarkjörum þar sem fargjaldið verður 7.900 krónur fyrir fuliorðna og 4.000 krónur fyrir börn. Eru þessi fargjöld einungis seld í tengslum við aðra þjónustu Útsýnar, þannig að hér er um hhita af stærri pakka að ræða. Einungis FRÍ-klúbbsmeðlimir geta keypt svona fargjaid og verða þeir að staðgreiða það. „Nú bjóðast ferðamönnum sem skipuleggja för sina fyrir- fram hagstæðari fargjöld til Bretlands en áður hafa þekkst, en hér er um einskonar leigu- fluggjöld að ræða,“ sagði Ingólf- ur Guðbrandsson forstjóri Út- sýnar í samtali við blm. Mbl. í gær. Ingólfur sagði að Útsýn hefði fest kaup á 400 flugsætum milli Keflavíkur og Lundúna- flugvallar í sumar, á tímabilinu júní til september, og að fyrsta ferðin yrði farin þann 7. júní nk. og á hálfsmánaðarfresti eftir það. „Forgang að þessum fargjöld- um hafa félagar FRÍ-klúbbsins,“ sagði Ingólfur, „en þeir eru nú um 7.000 að tölu. FRÍ-klúbbur- inn eru samtök neytenda sem vinna að skipulögðu tómstunda-, heilsuræktar- og fræðslustarfi.“ Ingólfur sagði að allir gætu orð- ið meðlimir FRÍ-klúbbsins, og væri þátttökugjald ekkert. Að- eins þyrfti að borga 150 krónur fyrir félagsskírteini. „Gegn staðgreiðslu fargjalds- ins geta farþegar tryggt sér far- gjaldið á þessum hagstæðu kjör- um, sem eru 7.900 krónur fyrir fullorðinn en 4.000 krónur fyrir börn, á aldrinum tveggja til ell- efu ára,“ sagði Ingólfur. Ingólfur lagði áherslu á það i máli sínu að fólk gæti einungis fengið fargjaldið til Lundúna á þessum kjörum i tengslum við kaup á annarri þjónustu ferða- skrifstofunnar. Sagðist hann einkum hafa i huga farþega sem hygðust dvelja tvær vikur eða lengur á Ensku Rivierunni á suð- urströnd Devon, sem hann sagði veðursælasta hluta Bretlands. Ingólfur sagðist eiga von á mikilli örtröð i Ferðaskrifstof- unni Útsýn á morgun, en sala miðanna fer þá fram á tímabil- inu 10 til 16. stæð,“ sagði Jón. Sagði hann að það hefði ekki komið niður á afurða- greiðslum til búvöruframleiðenda, þó afkoma sumra greina hefði ver- ið óhagstæð. SS hefði á árinu stað- ið full skil á meðalgrundvallarverði til framleiðenda og vöxtum eftir- stöðva. Fleiri segja upp á NT UPPSAGNIR starfsmanna dagblaðæ ins NT héldu áfram í gær. Þá sögðu upp þrír blaðamenn — þeirra á meðal Guðmundur Sv. Hermannsson, frétta- stjóri — í beinu framhaldi af uppsögn Magnúsar Ólafssonar ritstjóra, sem lagði fram uppsagnarbréf sitt á stjórn- arfundi útgáfufélagsins Nútímans hf. á þriðjudaginn. Hafa þá báðir frétta- stjórar NT sagt upp störfum. Því hafa alls fjórtán starfsmenn ritstjórnar sagt upp eða verið sagt upp í þessari viku. Sex starfs- mönnum annarra deilda blaðsins var og sagt upp á þriðjudaginn. Auk þessa fólks höfðu tveir aðrir starfsmenn ritstjórnar sagt upp vegna óánægju með útgáfustjórn- ina f byrjun síðasta mánaðar og nokkrir til viðbótar voru á förum áður, skv. upplýsingum starfs- manna. Undanfarna mánuði hefur orðið misbrestur á að starfsfólk á blaðinu fengi greidd laun sín á réttum tíma. Talsverð ókyrrð var meðal blaða- manna NT í síðasta mónuði, sem ekki höfðu fengið greidd útistand- andi laun um nokkurra vikna skeið. Setti Blaðamannafélag íslands því blaðstjórninni það skilyrði, að ef laun yrðu ekki greidd í gær sam- kvæmt samningum myndi félagið krefjast þess að blaðamenn leggðu niður vinnu þar í dag. Til þess kem- ur ekki því laun blaðamanna voru borguð út í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.