Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FQSTUPAG.UR 3. MAÍ, 1985
15
Fyrirlestrar á veg-
um Geðlæknafélagsins
STEFAN Stein, prófessor frá
Cornell-háskóla, flytur í dag fyrir-
lestur, sem hann nefnir „Sállík-
amlegir sjúklingar á miðjum
aldri“ í Hjúkrunarskóla íslands,
segir í fréttatilkynningu, sem bor-
izt hefur frá Geðlæknafélaginu.
Á morgun, laugardag, flytur
Robin Murray, prófessor við Inst-
itute of Psychiatry, University of
London, fyrirlestur: „Tilraun til
flokkunar á geðklofa eftir orsaka-
völdum“. Fyrirlesturinn verður
fluttur í G-álmu 1, Borgarspítala.
Verk eftir Bjarna H. Þórarinsson.
Sýnir í Gallerí Borg
FIMMTUDAGINN 2. maí opnaði
Bjarni H. Þórarinsson sýningu á
olíumálverkum í Gallerí Borg við
Austurvöll.
Bjarni er Reykvíkingur, fæddur
1947, og lauk námi frá Myndlista-
og handíðaskóla íslands 1977 eftir
fjögurra ára nám. Hann starfaði
við Gallerí Suðurgötu 7 á árunum
1977—’81 og er félagi í Nýlista-
safninu, Hagsmunafélagi mynd-
listarmanna, Myndhöggvarafélag-
inu og Félagi íslenskra mynd-
listarmanna.
Bjarni hefur haldið tvær einka-
sýningar til þessa og tekið þátt í
fjölda samsýninga, bæði hérlendis
og erlendis.
Á sýningu Bjarna nú eru 18
verk. Henni lýkur mánudaginn 13.
mái nk.
Piazzale Michelangelo
Vor í Flórens
— frá Bergljótu
Leifsdóttur fréttaritara
Mbl. í Flórens
Nú eru tveir dagar þangað til
sumarið gengur í garð samkvæmt
almanakinu og sjást þess augljós-
lega merki: Gróðurinn farinn að
blómstra, þrátt fyrir vetrarhörk-
urnar, sem geisuðu hérna. Hita-
stigið hefur verið á bilinu 15—25
stig á Celsius frá sl. mánaðamót-
um og Flórensbúar farnir að
sækja strendurnar hérna í ná-
grenninu um helgar.
Ferðamenn flykkjast hingað
eftir því sem hitastigið hækkar.
Það er eins og að ganga i skrúð-
göngu um göturnar hérna, þvílík-
ur er orðinn aragrúinn af ferða-
mönnum og Italimir farnir að
dusta rykið af orðabókum snum:
„Do you speak English?" „Parlez-
vous Francais?" „Sprechen Sie
Deutsch?" heyrist á hverju horni.
Á daginn eru listmálarar fyrir
utan Uffizi-safnið, reiðubúnir að
teikna skopmyndir af vegfarend-
um. Á kvöldin skemmta bakpoka-
ferðalangar á Piazza Signoria.
Nú eru Karl Bretaprins og lafði
Díana hérna á ftalíu í opinberri
heimsókn. Þau komu hingað til
Flórens í gær og fengu Flórensbú-
ar að sjá þau í átta mínútur.
Ekki láta Italir sitt eftir liggja í
sambandi við tískuna. tískuversl-
anirnar eru fullar af nýju sumar-
vörunum. Pastellitir eru nú mest
áberandi. Mikið um rósóttar og
köflóttar flíkur, og einnig eru
strigaskórnir orðnir rósóttir.
Blúndusokkar, klútar og jafnvel
blúndustrigaskór.
fsland hefur þó nokkuð komið
við sögu hér á Italíu undanfarið,
og þá sérstaklega vegna veður-
sældar á Gamla Fróni. Um daginn
voru sýndir tveir þættir um fsland
hérna í sjónvarpinu og vöktu þeir
mikla athygli sökum náttfufeg-
urðar landsins.
Það hefur verið þó nokkuð um
tónleikahald hér í vor, m.a. komu
Joan Armatrading, Jesus Christ
Superstar, America o.fl. í lok
mánaðarins heldur Spandau Ball-
et þrenna tónleika, og í maí kemur
Paul Young, svo það er nóg um að
vera fyrir ungt fólk hérna. Ég bið
að heilsa öllum lesendum og
starfsfólki Morgunblaðsins og
óska þeim gleðilegs sumars.
Flórens 23. apríl ’85,
Bergljót Leifsdóttir.
Núfáumvið
okkur^^B
KaffimM'
ifiA^fcAMP
iin- *
JSf’anoö
HAGKAUP
Skeifunni 15
GRANDOS
GRANDOS
instant express 50 gr.
instant express 100 gr.
instant express 200 gr.
frost þurrkað 50 gr.
frost þurrkað 100 gr.
frost þurrkað 200 gr.
brennt og malað
SUPERA 500 gr.
brennt og malað
FINO 500 gr.
brennt og malað
EXPRESSO 500 gr.
SÍTRÓNUTE 200 gr.
brennt og malað
KLIPPS úrvals kaffi 500 gr.
Kr. 39.90
Kr. 75.90
Kr. 139.90
Kr. 49.90
Kr. 97.90
Kr. 189.90
Kr. 119.00
Kr. 110.00
Kr. 125.00
Kr. 59.90
Kr. 89.90