Morgunblaðið - 03.05.1985, Síða 19

Morgunblaðið - 03.05.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 19 Wright-bræðra minnst við brautina hjá Kitty Hawk Morgunblaöid/Pétur Johnson í þessum skúrum höfðu Wright-bræður aöstöðu þegar þeir smíðuðu fyrstu flugvélina. eftir Pétur Johnson Þann 17. desember 1903 fékk Milton Wright biskup, búsettur í Dayton, Ohio, svohljóðandi skeyti frá sonum sinum Orville og Wil- bur: „fjórar flugtilraunir heppnuð- ust á fimmtudagsmorgni í 21 mílna mótvindi flugtak af jafn- sléttu með vélarafli eingöngu meðalhraði i lofti 31 mílna lengsta flugið 59 sekúndur láttu blöðin vita verðum heima fyrir jól“. Þessi orðsending lét lftið yfir sér enda grunaði fáa að hér væri heimssöguleg frétt. Afrek hafði verið unnið sem valda myndi straumhvörfum í mannlifi hnatt- arins, þurrka út fjarlægðir og opna leiðina til ferðalaga út í him- ingeiminn. Þegar Neil Armstrong lenti á tunglinu áratugum siðar hafði hann meðferðis pjötlu úr fyrstu flugvél þeirra Wright- bræðra. En sem sagt, fregnin um vélknúinn farkost i lofti vakti frekar litla athygli á næstu árum og það má gera ráð fyrir að jafn- vel þá bræður hafi ekki órað fyrir þeirri gjörbyltingu i samgöngum sem koma skyldi. Þegar ofangreint skeyti var sent var Orville 32 ára, fæddur 1871, en Wilbur 36 ára, fæddur 1867. Þeir bræður ólust upp í Dayton, Ohio, og gengu þar i almennan mennta- skóla. Þeir luku ekki prófi og er þar með námsferill þeirra talinn. Þeir stofnuðu reiðhjólaverslun, önnuðust viðgerðir og siðar fram- leiðslu reiðhjóla. Hvorugur bræðr- anna kvæntist, og þeir áttu heim- ili i Dayton til dauðadags. Þess er getið að þeir hafi verið menn lát- lausir, greindir i besta lagi og svo samrýndir að hvorugur mátti af hinum sjá. Samstarf þeirra var jafnan með þeim afbrigðum að svo virtist sem einn vilji og einn ásetningur stæði að baki. Wilbur lést úr taugaveiki 45 ára að aldri, en Orville varð 77 ára, lést 1948. Um aldamótin var vélflug orðin draumsýn ýmissa manna bæði austan hafs og vestan og skapaðist nokkur keppni um það hver fyrst- ur gæti gert hugmyndina að veru- leika. Fyrstu skrefin, máski rétt- ara að segja vængtökin, höfðu þegar lánast með svifflugi. Flug- bakterían hafði altekið þá Wrightbræður og þeir voru sann- færðir um möguleika vélflugs. Þeir létu af reiðhjólaverslun og hagnaðinum af þeirri starfsemi skyldi nú varið til flugtilrauna. Þeir gerðu sér ljóst að fyrsta við- fangsefnið var að ná tökum á svifflugi og fá þannig þefinn af því sem seinna var kallað aerodynam- ics. Veðurfar í heimaborginni Dayton var ekki heppilegt og söfn- uðu bræðurnir því gögnum frá öll- um veðurathugunarstöðvum i Bandarikjunum. Ákjósanlegustu skilyrði töldu þeir vera við Kitty Hawk, lítið þorp á Ytribökkum (Outer Banks) Norður-Karólínu, en svo nefnast sandeyjar á milli Albemarlesundsins og Atlants- hafsins. Suður af Kitty Hawk tek- ur við gróðurlitið flatlendi en sið- an Kill Hills, sandhólar sem ná 100 feta hæð. Þarna dvöldu Wrightbræður i nokkrar vikur á hverju hausti á árunum 1900 til 1903. Þeir þreifuðu sig áfram með flugdrekum og siðan svifflugum. Litil reynsla lá fyrir um viðbrögð farartækis í lofti við sveiflum og duttlungum vinda. En á þessum árum fóru þeir í ótal reynsluflug og um haustið 1902 töldu þeir sig hafa lært nóg til þess að byggja vélknúna flugu og stjórna henni. Síðla árs 1903 mættu bræðurnir enn til leiks á vindblásnum Kill Devil-hæðum. Nú höfðu þeir með- ferðis fyrsta velknúna flugtækið. Þeir höfðu byggt það að öllu leyti sjálfir, skrokkinn, vél og skrúfu. Að morgni þess 17. desember bjó Orville sig til flugtaks, liggj- andi á neðri vængnum. Vélin var á jafnsléttu og nú var sett i gang. Vélin rann hægt áfram og hóf sig á loft. Lengd þessa fyrsta flugs var aðeins 120 fet og stóð í 12 sek- úndur. Lengd fjórða flugsins var 852 fet og tók 59 sekúndur. Sigur- inn var unninn og saga flugsins hafin. Svæðið þar sem flugtilraunir Wrightbræðra fóru fram hefir verið varðveitt að öðru leyti en því sem byggt hefir verið í minningu og til fræðslu um brautryðjenda- starfið sem hér var unnið. Efst á Kill Devil-hæð er stór minnisvarði úr graníti, og mikil vinna hefir verið lögð í að binda jarðveg þessa sögulega sandhóls sem í eina tíð hljóp undan vindum og færði sig um vik frá ári til árs. Á jafnslétt- unni er hringlaga bygging sem geymir líkan af svifflugu og fyrstu flugvélar Wrightbræðra. Þar má jafnframt sjá á veggjum skráða sögu flugsins í máli og myndum. Uti fyrir er graníthella sem staðsetur flugtök. Þá hnullungar númeraðir frá 1 til 4 sem sýna fluglengdir. Tvö endurbyggð tréskýli standa hér. Annað hlifði flugkostinum fyrir veðrum. Hitt er íveruhús þeirra bræðra búið frumstæðustu húsgögnum. Þarna þoldu þeir ágang mývargs og jafn- an var sandur í grautnum. í byrjun aldarinnar var lítil byggð í Kitty Hawk og var allmik- ið fyrirtæki að komast á þennan einangraða stað. I nútimanum er fljótfarið um reisulegar brýr og steypta vegi. Og hvar sem litið er, utan verndaða svæðisins, eru nú sumarhús sóldýrkenda, mörg furðuleg smiði á stultum og kloss- um. Margt er um mótel og hótel, hamborgara- og pyslusjoppur og allt annað sem tilheyrir nútima strandlifi. Dagana 26.-28. april voru mikil hátíðarhöld á Kill Devil Hills i minningu fæðingardags Wilburs Wright 26. april 1867. Þess má einnig geta að sérfræðingar hjá Smithsonian Institute i Washing- ton eru að setja saman og endur- nýja fyrstu flugvél þeirra bræðra. Þessi gamli farkostur á að verða sem nýr þá er hann hóstandi og skröltandi lyfti sér yfir sand- skeiðið og fleygði Wilbur áfram 852 fet. Vegur var lagður i loftið, lengdin skipti ekki máli. Uöfundur er búsettur í Bandaríkj- unum, ekki langt fri Kitty Hawk. Fermingar Ferming í Blönduóskirkju 5. maí kl. 10.30 og 13.30. Prestun Sr. Árni Sigurðsson. Fermd verða: Ágúst Guðbjörn Valsson, Holtabraut 6. Anna Rósa Gestsdóttir, Melabraut 7. Birgitta Matthíasdóttir, Hlíðarbraut 5. Böðvar Sveinsson, Brekkubyggð 30. Gísli Torfi Gunnarsson, Urðarbraut 9. Guðmundur Haukur Gunnarsson, Þverbraut 7. Gyða Sigurbjörg Karlsdóttir, Brekkubyggð 28. Hallbjörn Reynir Hallbjörnsson, Húnabraut 20. Jón Þór Önundarson, Garðabyggð 2. Kristjana Björk Gestsdóttir, Urðarbraut 4. Magdalena Berglind Björnsdóttir, Hlíðarbraut 6. Magnús Guðmundsson, Smárabraut 3. Margrét Sigurfljóð Jörgensen, Tungu. ómar Árnason, Holtabraut 2. Pálmi Þór Ingimarsson, Árholti. Sigríður Vala Vignisdóttir, Brekkubyggð 34. Sigurður Róbert Guðnason, Húnabraut 31. Sigurlaug Sigurjónsdóttir, Urðarbraut 5. Sólborg Una Pálsdóttir, Sauðanesi. Steingrímur Albert Grétarsson, Hnjúkabyggð 27. Svandís Ása Sigurjónsdóttir, Melabraut 13. Tryggvi Karl Hlynsson, Brekkubyggð 17. Tryggvi Kristófer Þrastarson, Meðalheimi. Unnar Árnason, Holtabraut 2. Unnur Brynja Guðmundsdóttir, Skúlabraut 13. Valgeir Sigurðsson, Hlíðarbraut 7. Þorsteinn Ragnar Ólafsson, Sólvangi. Þröstur Ingvason, Brekkubyggð 21. Ferming í Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 5. maí, kl. 11. Prestur: Séra Jón Einarsson. Fermd verða: Einar Kristján Jónsson, Saurbæ. Guðlaug Helga Jónasdóttir, Bjarteyjarsandi. Gunnar Tryggvi Reynisson, Svarfhóli. Jónas Jónasson, Eystra-Miðfelli. Sólrún Jóna Böðvarsdóttir, Þyrli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.