Morgunblaðið - 03.05.1985, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.05.1985, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 3. MAÍ 1985 AP/Símamynd Jóhannes Páll páfi II. undirritar friðarsamning Chile og Argentínu, sem hann hafði milligöngu um, við hátíðlega athöfn í Vatikaninu í gær. Honum á vinstri hönd situr Jaime Del Vallo, utanríkisráðherra Chile, og á vinstri hönd páfa er Dante Caputo, utanríkisráðherra Argentínu. Odæðisverkið í Brussel: Vildu sýna samstöðu með verkalýðnum á 1. maí BniHHcl, 2. maí. AP. WILFRIED Martins, forsætisráðherra Belgíu, sagði f dag, að stjórn sín mundi gera allt sem í hennar valdi er, til að hafa hendur í hári hryðjuverka- mananna, sem komu fyrir sprengju sem sprakk í miðborg Brussel á þriðju- dag og leíddí til dauða tveggja slökkviðliðsmanna. Tólf aðrir særðust. Samtök, sem nefna sig Baráttu- sellur kommúnista, hafa lýst ábyrgð ódæðisverksins á hendur sér. Er þetta í níunda sinn, sem samtök þessi standa að hryðju- verki í Belgíu frá því í október í Fyrsti friðarsamningur Jóhannesar Páls páfa Vatikaninu, 2. mni. AP. FYRSTI friðarsamningurinn, sem Jóhannes Páll páfi 11. hefur milli- göngu um, var undirritaður við há- tíðlega athöfn í kardinálasalnum í Vatikaninu í dag. Með samningnum er endi bundinn á nærri tveggja alda deilur Argentínu og Chile um yfirráð á Beagle-sundi á syðsta tanga Suð- ur-Ameríku. ember í fyrra. Stjórnvöld í Chile og Argentínu féllust síðan á það í mars og apríl á þessu ári. Beagle-sund er um 240 km langt og 5 til 13 km á breidd. Talið er að á sjávarbotninum sé að finna olíu. Páfi hefur ekki haft milligöngu um friðargerð milli ríkja síðan ár- ið 1885, er Leó XXIII. hafði af- skipti af deilum Spánverja og Þjóðverja um yfirráð yfir Karól- ínu-eyjum í Kyrrahafi. fyrra. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í mannlauri bifreið, sem lagt var við höfuðstöðvar Vinnuveit- endasambands Belgíu. Eldur hafði verið borinn að bifreiðinni og sprengjurnar sprungu, þegar slökkviliðsmenn voru að reyna að ráða niðurlögum hans. Miklar skemmdir urðu á byggingum I nágrenninu, og átta hinna slösuðu voru hreingerningarmenn, sem voru að störfum í húsum í grennd. I bréfi, sem Baráttusellur kommúnista, sendu frá sér, segir að sprengjunni hafi verið komið fyrir til að sýna samstöðu með verkalýðnum á alþjóðlegum bar- áttudegi hans. Það hafi ekki verið ætlun samtakanna að drepa fólk. Lögregluyfirvöld í Belgíu telja fullvíst, að tengsl séu á milli Bar- áttusella kommúnista og annarra hópa hryðjuverkamanna í Evrópu, s.s. Rauðu herdeildanna á Ítalíu og Rauða herflokksins í Vestur- Þýskalandi. íranir ráðast á olíuskip Manatna, Bahrain, 2. maí. AP. HERÞOTUR frá íran gerðu í morgun árás með flugskeytum á olíuskip á Persaflóa. Eldur kom upp í skipinu og yfirgaf áhöfnin það. Olíuskip þetta, sem nefnist Nord- ic Trader og er rúmlega 20 þúsund tonn að stærð, er skráð í Líberíu, en í eigu bresks fyrirtækis. Það var á siglingu fyrir norðaustan Qatar þegar árásin var gerð. Irönsku herþoturnar reyndu einnig að hæfa stórt olíuskip frá Japan, sem sigldi samhliða líber- íska skipinu, en mistókst það. Eþíópía: Hungraðir flóttamenn þvingaðir til að yfirgefa hjálparbúðir Auk páfa undirrituðu utanrík- isráðherrar landanna tveggja, Dante Caputo frá Argentínu og Jaime del Valle frá Chile, samn- inginn. Jóhannes Páll páfi hóf afskipti af deilum ríkjanna árið 1979, en þá hafði nærri dregið til styrjald- ar milli þeirra. Samkomulag, sem felur í sér yfirráð Chile yfir eyjun- um Lennox, Picton og Nueva í sundinu, en takmarkar siglinga- rétt Chilemanna þar, tókst i nóv- Addis Ahaha, 2. maí. AP. HERMENN Eþíópíustjórnar þving- uðu 56 þúsund hungraða flótta- menn til að yfirgefa hjálparbúðir f Gondar-héraði fyrr í þessari viku. Þeir skipuðu fólkinu að reyna að koma sér í búðir í heimahéruðum sínum í Tigre og Wollo, að því er fulltrúar alþjóðlegra hjálparstofn- ana í Addis Ababa skýrðu frétta- mönnum frá í gær. Aðeins um tvö þúsund manns fengu að verða eftir í búðunum i I Ibnet í Gondar. Fólkið, sem rekið var á brott með vopnavaldi, fékk í fararnesti 15 kg af þurrmeti, sem | er jafnmikið og það hefur fengið á mánuði í Ibnet. Brottreksturinn hófst á sunnudag og lauk á þriðjudag, og var allt fólkið þá farið gangandi af stað. Engin skýring hefur verið gefin á þessari aðgerð yfirvalda, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem marxistastjórnin í Addis Ababa grípur til slíkra ráða. í nóvember í fyrra voru yfir 5.000 manns fluttir nauðugir frá hjálparbúð- um alþjóðastofnana í Bati og i hjálparbúðir, sem herinn setti á fót við Danakil-eyðimörkina, þar sem hinir brottfluttu áttu heim- kynni áður en þeir flúðu hung- ursneyðina. GENGI GJALDMIÐLA Dollar hækkar London, 2. raaí. AP. BJARTSÝNISLEGAR spár, sem birtar voru í dag um efnahags- bata í Bandaríkjunum, urðu til þess að dollar hækkaði í verði, er gjaldeyrismarkaðir í Evrópu opnuðu í dag eftir 1. maí-fríið. Gullverð var óstöðugt Gjaldeyrissalar sögðu doll- arann hafa svifið upp á við eft- ir þau ummæli Pauls Volcker, bandaríska seðlabankastjór- ans, að heildarþjóðarfram- leiðslan í Bandaríkjunum kynni að vaxa um 3% á þessu ári. Breska pundið féll niður í 1,2182 dollara I dag, en var 1,2210 við síðustu skráningu. Staða annarra helstu gjald- miðla gagnvart dollar var sem hér segir: Vestur-þýsk mörk 3,1625 (3,1435); svissneskir frankar 2,6636 (2,6365); fransk- ir frankar 9,6850 (9,5850); hol- lensk gyllini 3,5765 (3,5515); ft- alskar lírur 2.021,50 (2.007,00); kanad. dollarar 1,3740 (1,3686). AP/ Simamynd Sætishafar í stjórnmálaráði Kommúnistanokks Sovétríkjanna á svölum grafhýsis Leníns 1. maí. Gorbachev flokksleiðtogi er fiórði frá vinstri Þótti framkoma hans við hátíðahöld á Rauða torginu frjálsleg. Hátíðisdagur verkalýðsins: Lögreglan veitti stuðnings- mönnum Samstöðu mótspyrnu Varejá, Moskru, Bniasel, 2. nuí. AP. SfTUÐNINGSMENN Samstöðu, óháðu verka- lýðsfélaganna í Póllandi, fóru í mótmælagöng- ur í Varsjá og Gdansk á baráttudegi verkalýðs- ins og mótmæltu við það tækifæri að samtök þeirra skyldu gerð útlæg er herlög gengu í gildi. Stuðningsmenn Samstöðu í Gdansk reyndu að sameinast göngu hinna opinberu verkalýðssamtaka, en Iögreglumenn með brugðnar kylfur og táragassprengjur veittu mótspyrnu og komu í veg fyrir að af því gæti orðið. Einnig var sprautað vatni á Samstöðumenn. Stóðu átökin í hálfa aðra klukkustund. Um 15 þúsund Samstöðu- manna efndu til tveggja stunda friðsamlegr- ar mótmælagöngu i Varsjá, þar sem mót- mælt var m.a. verðhækkun á nauðsynjum og pólitískum fangelsunum. Lech Waiesa Ieiðtoga Samstöðu var mein- uð þátttaka í göngu sinna manna. Hundruð vígbúinna lögreglumanna mynduðu vegg á leið hans að göngunni. Tveir af helztu leið- togum Samstöðu, Jacek Kuron og Seweryn Jaworski, voru handteknir f sambandi við göngu Samstöðu í Varsjá. Tugþúsundir manna voru viðstaddar hátíðahöld á Rauðatorginu f Moskvu, þar sem Mikhail S. Gorbachev og sætishafar i stjórnmálaráðinu voru viðstaddir. Tekið var til þess að Gorbachev var brosmildur og veifaði til mannfjöldans ofan af grafhýsi Lenins. Minna var um að bornar væru myndir af Gorbachev, miðað við fyrri leið- toga. Úrhellisrigning var meðan athöfnin fór fram. Meðal áhorfenda var Ronald Reag- an, sonur Bandarfkjaforseta. Er hann á ferðalagi í Sovétrfkjunum. Áróðursspjöld, sem borin voru, beindust flest hver gegn vestrænum ríkjum. Órói í Chile Lögreglumenn, búnir til að mæta uppþot- um, brutu á bak aftur mótmælaaðgerðir f tilefni dagsins f Santiago og Concepcion. Sprautað var á mannfjöldann í Santiago og er fólk yfirgaf kaþólska messu f minningu verkamanna biðu þess bílar búnir öflugum vatnssprautum. Nítján menn a.m.k. voru handteknir. Gífurlegur fjöldi lögreglu- manna umkringdi mótmælafundi verka- lýðssamtaka. Fáir gengu í Frakklandi Lftil og léleg þátttaka var f aðgerðum frönsku verkalýðssamtakanna á degi verka- Iýðsins. Mikill áróður hafði verið rekinn fyrir þátttöku í mótmælagöngum. Vegna al- menns ótta með efnahagsaðgerðir stjórnar jafnaðarmanna var búist við fjölmenni. í París gengu aðeins tæplega fjögur þúsund manns í þremur aðskildum göngum, og þyk- ir það hverfandi miðað við að hundruð þús- unda manna gengu fyrir áratug. Þá stóðu verkalýðssamtökin sameiginlega að aðgerð- um, en svo var ekki nú. Ganga leyst upp í Nicaragua Lögreglumenn vopnaðir sovézkum rifflum af gerðinni AK-47 leystu upp mótmæla- göngu 500 verkamanna í höfuðborginni 1. maí. Hópurinn hugðist ganga í fylkingu eft- ir messu. Göngumenn gáfust upp við til- raunina er beint var að þeim byssustingjum. Höfðu þeir í frammi hróp og köll, sem sögð voru óhliðholl stjórn sandinista. Til átaka kom í Mexíkó er félagsmenn í óháðum verkalýðsfélögum reyndu að sam- einast göngu alþýðusamtakanna, sem styðja ríkisstjórnina. Lögregla sprengdi táragas- sprengjur og lokaði ýmsum götum til að hemja ólæti, sem brutust út. Fjöldi manns var handtekinn. Kínverjar voru í hátíðarskapi og minntu hátíðarhöld í tilefni dagsins öðru fremur á kjötkveðjuhátíð. Hermenn sýndu sig í nýj- um einkennisklæðnaði, sem þykir taka gamla pokalega klæðnaðinum fram. Nýja búningnum er ætlað að auka reisn her- manna og blása í þá baráttuþreki.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.