Morgunblaðið - 03.05.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, POSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
29
AP/Slmamynd
Unnið að viðgerð á tækjum um borð í geimferjunni Challenger, sem nú er á braut um jörðu. Ferðin befur gengið
að óskum þrátt fyrir smávægilegar truflanir og bilanir, að sögn talsmanna bandarísku geimvísindastofnunarinnar.
Apar þjást af geimveiki
tlouHton. 2. maf. AP.
Dýramatur og úrgangur flýtur enn í þyngdarleysinu í
geimferjunni Challenger þrátt fyrir tilraunir til að háfa
óhreinindin í plastpoka eða sjúga þau upp í ryksugur.
Hefur þetta m.a. truflað störf geimfaranna, þar sem
mikill tími hefur farið í að hreinsa upp eftir apana tvo
og 24 rottur, sem þjáðst hafa af geimveiki.
Að sögn talsmanna stjórnstöðvar bandarísku
geimvísindastofnunarinnar i Houston hafa tilraunir
heppnast vel og mikilvægum gögnum verið safnað.
Dýrin, sem veiktust, eru tekin að braggast. Búr
þeirra hafa reynst illa, og þegar verið var að skipta
um saurskálar vildi ekki betur til en svo að inni-
haldið fór til spillis og flaut um allt geimfarið. Tek-
ist hefur að hreinsa upp eftir dýrin að mestu.
Til greina kom að framlengja ferð Challenger til
að vinna upp tapaðan tíma, en fallið hefur verið frá
því. Vinna hefur gengið eins og bezt verður á kosið
við 12 tilraunaverkefni af 15. Eru aðstandendur
ferðarinnar mjög ánægðir með hversu vel tilraun-
irnar hafa gengið. Er lítið gert úr þeim örðugleik-
um, sem við hefur verið að stríða.
Hætta varð athugunum á efnafræði efri laga
gufuhvolfsins vegna bilunar í tækjabúnaði, sem til
þeirra var ætlaður. Framan af ferðinni störfuðu
tækin þó eðlilega og tilraunin misheppnaðist því
ekki.
Þá biluðu tæki til rannsókna í vökvafræði. Rann-
sóknin beindist að áhrifum þyngdarleysis á dropa-
gerð og lögun. Öll von er ekki úti enn þar sem
sleitula ust er unnið að því að gera við rannsóknar-
tækin.
Loks varð að hætta við ljósmyndun skýja milli
stjarna er lúga festist með þeim afleiðingum að ekki
reyndist unnt að koma myndavélinni á sinn stað.
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Lundúnir, Moskva
eða Marseille?
Lazern, Stmb, 2. maí. AP.
SKÁKSAMBÖND Bretlands, Frakklands og Sovétríkjanna hafa sótt um að
halda aukakeppni þá sem stórmeistararnir Garry Kasparov og Anatoly Karpov
verða að eiga með sér til að skera úr um hjá hvorum heimsmeistaratignin
fellur. Borgirnar sem skáksamböndin tilgreina eru Marseille, London og
Moskva. ,
Frakkarnir buðu langsamlega
hæstu verðlaunin, 615.400 dollara,
en verðlaunafé það sem greitt yrði
í Lundúnum og Moskvu reyndist
jafn hátt, 383.600 dollarar. Keppn-
isstaður verður ákveðinn fyrir lok
þessa mánaðar og mun Campo-
manes forseti Alþjóðaskáksam-
bandsins taka þá ákvörðun eftir að
hafa ráðfært sig við keppendurna.
Campomanes vildi ekki geta sér til
um keppnisstaðinn á þessu stigi, en
einn háttsettur embættismaður I
FIDE taldi líklegt, að meirihluti
ráðamanna i sambandinu væri
hlynntur Frakklandi eða Bretlandi
þar eð fyrri viðureign þeirra Kasp-
arovs og Karpovs fór fram f
Moskvu. Campomanes lét hætta
keppni sem frægt varð er staðan
var 5—3 fyrir Karpov, en Kasparov
var í mikilli sókn.
Spánn:
Sprengjur sprungu
á ferðamannaslóðum
Benidorm, Spáni, 2. nuu. AP.
SPRENGJUR sprungu í gærkvöldi
fyrir utan veitingahús í sumardval-
arbænum Benidorm við Mið-
jarðarhaf og á ströndinni í Valencia,
um % km norðar, að sögn lögregl-
unnar. Knginn meiddist og tjón varð
óverulegt.
Um kl. 21.15 á miðvikudags-
kvöld (19.15 að ísl. tíma) sprakk
sprengja sem komið hafði verið
fyrir undir pálmatré í garði veit-
ingahúss í Benidorm.
Lögreglan sagði, að sprengjan
hefði verið kraftlítil og aðeins
skemmt tréð.
Um tveimur klukkustundum
seinna sprakk lítil sprengja á E1
Saler—strönd í Valencia, skammt
frá hóteli sem þar er. Engin
meiðsl urðu á fólki og ekkert
eignatjón, að sögn lögreglu.
Lögreglan kvaðst gruna aðskiln-
aðarhreyfingu Baska, ETA, um að
hafa komið sprengjunum fyrir.
í síðustu viku tilkynnti ETA
spænskum fjölmiðlum, að hreyf-
ingin hygðist hefja herferð gegn
stofnunum, sem annast þjónustu
við ferðamenn á Miðjarðar-
hafsströndinni. Væri markmið
hreyfingarinnar „að fá spænsk
stjórnvöld til að skipta um skoðun
i málefnum Baskahéraðanna".
SÝNING Á HUGBÚNAÐI
FYRIR IBM S/36 OG S/38
7.0G 8. MAÍ ’85
10 FYRIRTÆKI SÝNA YFIR 50 KERFI
SÝNINGARSTAÐUR: SKAFTAHLÍÐ 24
OPIÐ KL. 9-18
Á þessari sýningu kynna 10 fyrirtæki yfir 50 mismunandi hug-
búnaðarkerfi fyrir IBM System/36 og IBM System/38. Ýmsar nýj-
ungar koma þar fram og að auki margbreytilegar lausnir á hinum
hefðbundnu, daglegu verkefnum sem unnin hafa verið í tölvum
um árabil.
Þetta er kjörinn vettvangur fyrir þá sem bera ábyrgð á tölvu-
vinnslu í fyrirtækjum til þess að öðlast yfirsýn yfir þá margvíslegu
möguleika sem nú bjóðast.
Ath. Sýningin er aðeins opin í tvo daga.
Skaftahlíð 24,105 Reykjavík.
Simi 91-27700.
Sýnendur: ALMENNA KERFISFRÆÐISTOFAN HF., FORRITUN SF., FRUM,
GÍSLI J. JOHNSEN TÖLVUBUNAÐUR SF., IBM A fSLANDI, KERFI HF.,
SKRIFSTOFUVÉLAR HF., OSPREY, REKSTRARTÆKNI SF., TÖLVUBANKINN.