Morgunblaðið - 03.05.1985, Page 37
MORGUNBLAÐID, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
37
Þróunarfélag:
Dregið úr miðstýr-
ingu og sjálfstæði
atvinnulífsins aukið
- sagði Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðisflokksins
í G/ER FÓR fram framhald 1. umræAu í ncðri deild um þrjú stjórnar-
frumvörp: um þátttöku ríkisins í hlutafélagi til aö örva nýsköpun í atvinnu-
lífi, um Byggðastofnun og um Framkvæmdasjóð íslands. Þorsteinn Páls-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagði að með samþykkt frumvarpanna
væri verið að draga úr miðstýringu og auka sjálfstæði atvinnuveganna, þó
vissulega hefði mátt ganga íengra í þeim efnum, en um það náðist ekki
pólitísk samstaða.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins, gagn-
rýndi frumvörpin og taldi þau
ekki vera annað en andlitsbreyt-
ingu. Þær breytingar sem verið
er að boða eru lítilfjörlegar og
engin alvara á bak við þær.
Framkvæmdastofnun hefur ver-
ið skipt upp samkvæmt Parki-
sons-logmálinu í fernt. Stofnunin
er atvinnubótavinna fyrir félags-
fræðinga og viðskiptafræðinga
og margir starfsmenn hennar að-
eins áskrifendur af kaupinu sínu.
Frumvarpið um Byggðastofn-
un er sami grautur í sömu skál
og hefur engar breytingar í för
með sér. í ræðu sinni setti Jón
Baldvin fram efasemdir um að
Þróunarfélagið næði fram til-
gangi sínum. Kerfi, nefndir og
bákn framleiða ekki nýjar hug-
myndir. Það verður að afnema
pólitíska forsjá.
Þorsteinn Pálsson, lagði
áherslu á að verið væri að draga
úr miðstýringu, auka valddreif-
ingu og frelsi fyrirtækja. Fram-
kvæmdastofnun varð aldrei sú
valdamikla stofnun, sem Alþýðu-
bandalagið stefndi að, en engu að
síður er þar samankomið mikið
samþjappað vald. Hins vegar
náðist ekki pólitísk samstaða um
að ganga lengra, en gert er ráð
fyrir í stjórnarfrumvörpunum
þremur.
Með þróunarfélagi er verið að
koma á fót hlutafélagi, með
þátttöku ríkisins, en meirihluta-
aðild atvinnulífsins og hverfa frá
pólitískri miðstýringu. Það er
ekki verið að gefa forskrift að því
hvernig og að hverju hlutafélagið
skuli starfa, það gerir það sjálft,
þar koma ekki til opinberar til-
skipanir.
Þorsteinn Pálsson sagði að
margt hefði verið gert til að
draga úr miðstýringu atvinnu-
lífsins og nefndi sem dæmi aukið
frelsi í vaxtaákvörðunum síðast-
liðið sumar, breytingu á afurð-
alkánakerfinu og frumvarp til
Fíkniefnabrot:
Stórþyngdar
refsingar
- samkvæmt nýju frumvarpi
FRAM ER komið á Alþingi frum-
varp til breytinga á almennum hegn-
ingarlögum, sem gerir ráð fyrir að
„sama refsiramma sé fylgt fyrir al-
varleg fíkniefnabrot hér á landi og í
grannríkjunum", en þar hafa refs-
ingar við slíkum brotum verið
þyngdar mjög.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að í
stað orðanna „allt að 10 árum“ í
fyrri málsgrein 173. greinar lag-
laga um framleiðsluráð landbún-
aðarins, er liggur nú fyrir Al-
þingi.
Ellert B. Schram, Sjálfstæðis-
flokki, taldi að frumvörpin um
Framkvæmdasjóð og Þróunarfé-
lag væru til bóta, svo langt sem
þau næðu. Á hin bóginn verður
hlutverk og svigrúm Byggða-
stofnunar engu minna en Fram-
kvæmdastofnunar, sem hefur
verið misnotuð. Taldi þingmað-
urinn að í meginatriðum væri
farið út á hála braut.
Ólafur Þ. Þórðarson, Fram-
sóknarflokki, sagði að í Fram-
kvæmdastofnun færi fram góð
starfsemi. Benti hann á að meg-
inhluti óarðbærrar fjárfestingar
hefur farið fram í gegnum iðnað-
arráðuneytið, sem hefur ekki
verið almennilega stjórnað síðan
Ingólfur Jónsson, gengdi emb-
ætti ráðherra.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráherra, tók til máls og
svaraði nokkrum athugasemdum
sem fram höfðu komið. Sagði
hann að auðvitað yrði að hafa
arðsemi fjárfestinga í huga, en í
mörgum tilfellum er ekki hægt
að hafa hana sem mælikvarða.
Nokkrir þingmenn höfðu áður
rætt mjög um arðsemi fjárfest-
inga á lslandi, sérstaklega í
gegnum opinbera sjóði.
Ekki tókst að ljúka umræðun-
um, og var þeim frestað, en þá
voru þrír á mælendaskrá.
f önn hvunndagsins.
Áætlun um rannsókn-
ir á hvölum tilbúin
niMnci
llafrannsóknastofnun hefur ný-
lega skilað skýrslu um rannsóknar-
áætlun um rannsóknir á hvölum við
ísland og er nú að vinna að gerð
framkvæmdaáætlunar fyrir árin
1986—1989. Þessar upplýsingar
komu fram í svari sjávarútvegsráð-
herra við fyrirspurn frá Valdimar
Indriðasyni, SjálfsUeðisflokki, um
hvalveiðar og áframhald þeirra.
í febrúar 1983 samþykkti Al-
þingi að mótmæla ekki hvalveiði-
banni Alþjóðahvalveiðiráðsins og
gengur það bann í gildi 1986. Ver-
tíðin sem nú fer í hönd er því að
öllu óbreyttu sú síðasta. I máli
Valdimars Indriðasonar kom fram
að Hvalstöðin í Hvalfirði hefur
starfað í 38 ár og hafa um 200
manns starfað þar á sumrin. Benti
þingmaðurinn einnig á að hvalaaf-
urðir eru nálægt 2% af útflutningi
íslendinga.
anna (sbr. 1. grein laga nr.
64/1974) komi: allt að 16 árum eða
ævilangt".
f greinargerð segir m.a. að
„óhjákvæmilegt sé að dómi flutn-
ingsmanns að gera breytingar á
almennum hegningarlögum til
samræmis við þá þróun (sem orðin
er í grannríkjum) svo varnaðar-
áhrif refsinganna séu hin sömu
hér og annars staðar i nálægum
löndum".
Stuttar þingfréttÍK
7—8 % fjölgun er-
lendra ferðamanna
- Ferðakostnaður sjúklinga
Efling ferðaþjónustu
KRISTfN HALLDÓRSDÓTTIR
(Kvl.) hefur, ásamt fleiri þing-
mönnum, flutt tillögu til þings-
ályktunar, sem felur samgöngu-
ráðherra, ef samþykkt verður, að
láta kanna fyrir mitt þetta ár
„hversu mikið fjármagn þarf til
að kosta þær framkvæmdir sem
nauðsynlegar eru til að mæta
7—8% fjölgun erlendra ferða-
manna á ári, sem Ferðamálaráð
áætlar að muni verða“. Tillagan
gerir jafnframt ráð fyrir aukn-
um fjárveitingum til Ferðamála-
sjóðs, svo að hann „geti veitt lán
til nauðsynlegra framkvæmda í
samræmi við ofangreinda áætl-
un Ferðamálaráðs".
Ferðakostnaður sjúklinga
KJARTAN JÓHANNSSON (A)
flytur, ásamt þingmönnum úr
fjórum þingflokkum, frumvarp
til laga um að ferðakostnaður
sjúklinga með áætlunarbíl eða
samkvæmt kílómetragjaldi verði
greiddur að fullu þegar sjúkling-
ur þarfnast ítrekaðrar meðferð-
ar hjá lækni í sjúkrahúsi eða í
endurhæfingu, þótt vegalengd sé
skemmri en 15 km., enda séu
ferðir fleiri en 30 á 12 mánuðum.
f gildandi lögum er greiðsla
ferðakostnaðar bundin við 15 km
vegalengd hið skemmsta.
Vélstjóranám
Veturinn 1983—84 innrituðust
74 nemar til 1. stigs í Vélskóla
Islands, Reykjavík, en 67 út-
skrifuðust, 63 til 2. stigs, 62 út-
skrifuðust, 25 til 3. stigs og 12
útskrifuðust og 97 til 4. stigs en
92 útskrifuðust. Þetta kom fram
í svari Ragnhildar Helgadóttur
menntamálaráðherra til Skúla
Alexanderssonar (Abl.). Mun
færri nemar í vélskólum á Akur-
eyri og ísafirði. Engir nýir nem-
ar innrituðust í Vestmanneyjum
1983/84.
Norrænt samstarf 1984
Dreift hefur verið á Alþingi
skýrslu íslandsdeildar Norður-
landaráðs um norrænt samstarf
1984, sem fjallar m.a. um þing
Norðurlandaráðs I Stokkhólmi í
febrúar og marz 1984 og störf
fastanefnda ráðsins.