Morgunblaðið - 03.05.1985, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 3. MAI ia35
45
Asbjöm Hildremyr heiðraður
fyrir þýðingar úr íslenzku
Á aðalfundi i Det Norske Sam-
laget 29. apríl sl. var Asbjörn
Hildremyr heiðraður með verð-
laununum úr Alfred Andersson-
Rysst-sjóðnum, kr. 2.500,- nkr.
Det Norske Samlaget er lang-
stærst þeirra forlaga sem gefa út
bækur á nýnorsku og skipar stjórn
ýmissa sjóða sem veita styrki og
verðlaun fyrir mikilvægt menn-
ingarstarf.
Verðlaunin frá Alfred Anders-
son-Rysst-sjóði eru veitt vegna mis-
munandi afreka hvert ár. Fyrir
árið 1985 eru þau veitt „persónu
sem hefur gert mikið til að efla
sambandið milli Noregs og ís-
lands, eða Noregs og Færeyja“, og
stjórn sjóðsins valdi Asbjörn
Hildremyr „vegna hins mikla
starfs sem hann hefur leyst af
höndum til að gera íslenskar og
færeyskar bókmenntir þekktar í
Noregi".
Asbjörn Hildremyr er fæddur í
Brattvogi á Sunnmæri 1932, en
eftir að Þjóðverjar gerðu innrás i
Noregi 1940 komst hann á flótta á
fiskibáti, ásamt foreldrum sínum
og systkinum, fyrst til Færeyja,
síðan til íslands, þar sem hann
dvaldi til stríðsloka. Um dvöl sína
hjá þessum frændþjóðum vestur i
hafinu hefur hann skrifað tvær
bækur, sem hafa komið út bæði i
Noregi og á íslandi: „Afdrep í
ofviðri" (Landet mellom hav og
himmel) frá Færeyjum, og „í her-
teknu landi“ (Vesta for krigen) frá
íslandi. Báðar bækurnar eru
þýddar á islensku af Guðmundi
Daníelssyni.
Fyrir rúmlega tveimur árum
fluttist Asbjörn Hildremyr til ís-
lands og settist að í Reykjavík.
Fyrsta þýðing hans á islenskri bók
kom út hjá Fonna Forlagi 1958.
Það var barnabók eftir Armann
Kr. Einarsson. Síðan þá hefur
hann þýtt nokkrar bækur eftir
þann höfund. Enn hefur hann þýtt
barnabækur eftir Stefán Jónsson,
Árna óla, Hjört Gislason, Hreiðar
og Jennu. Hann hefur þýtt þrjár
Asbjörn Hildremyr
skáldsögur af fullri lengd eftir
Guðmund Danielsson, eina skáld-
sögu eftir Njörð P. Njarðvík og
FRÁ OG með 4. maí nk. verður sú
breyting á leið 2, GRANDI-VOGAR,
að á kvöldin, laugardögum og helgi-
dögum verður endastöð vagnanna á
Suðurströnd neðan íþróttahúss Sel-
tirninga sunnan Nesvegar. Frá bið-
stöð á Granda verður ekið um Ána-
naust og Eiðsgranda að endastöð-
inni og sömu leið til baka, segir f
frétt frá SVR.
Leið 2 verður að öðru leyti óbreytt
eina eftir Ingimar Erlend Sigurðs-
son. Fyrir smásagnasafnið „Island
forteller", sem „Den norske
bokklubben“ gaf út, þýddi hann
sex smásögur, auk þess hefur
hann þýtt fjölda íslenskra smá-
sagna eftir ýmsa höfunda fyrir
blöð og tímarit.
Úr færeysku hefur hann þýtt
eina skáldsögu eftir Heðin Brú,
eina skáldsögu og eitt smásagna-
safn eftir Jens Pauli Heinesen,
barnabækur eftir Steinbjörn B.
Jacobsen, Karsten Hoydal, Martin
Jonsen og fleiri, auk þess allmörg
færeysk ljóð eftir yngri ljóðskáld
Færeyinga.
í heild eru komnar út um 30
íslenskar bækur á norsku í þýð-
ingu Asbjörns Hildremyrs, auk
nokkurra, sem hann hefur lokið
við að þýða, en liggja enn í hand-
riti.
og tímaáætlun sömuleiðis, nema
brottför í aukaferð frá Granda aust-
ur á bóginn fsrist aftur til kl. 19.00 í
stað 19.05.
Fyrsta ferð á kvöldin frá Suður-
strönd verður kl. 19.20 og síðasta kl.
23.50.
Fyrsta ferð á laugardögum frá
Suðurströnd verður kl. 06.50 og á
helgidögum kl. 09.50.
Vorhreinsun í Vesturbæ
ÁRLEG vorhreinsun í Vesturbs
Reykjavíkur fer fram á morgun,
laugardag. Hreinsuninni er tví-
skipt: í fyrsta lagi fara vélsópar
borgarinnar um götur og torg (svo
vissara er fyrir bfleigendur að fjar-
Isgja farartski sín af stsðum) og
svo verður hreinsað á lóðum og í
nágrenni húsa, að því er segir í
fréttatilkynningu frá íbúasamtök-
um Vesturbsjar.
Bílar frá borginni aka um
hverfið og taka rusl, sem fólk
safnar saman og skilur eftir í
plastpokum á gangstéttum.
Plastpokar til þeirra þarfa verða
afhentir í helstu söluturnum í
Vesturbænum.
Leið 2 á Eiðsgranda
Saga hermanns
(WCBS / TV)
“Ein mest umtalaöa kvikmynd ársins. Ég var límdur viö
tjaldið. Jewison, leikstjóri, hefur unniö stórkostlegt starf.
Af 10 mögulegum gef ég myndinni 9“.
(WABC / TV)
“Þetta er kvikmynd, sem allir veröa að sjá. Gæfum viö
einkunnir, fengi hún 10 plús !“.
(WNEW / TV)
“Kvikmynd Normans Jewison “Saga hermanns“ er
óvenjuleg og stórkostleg mynd, gerö eftir verðlaunaleik-
riti Charles Fuller. Myndinerhrikalegogfyndin .. .hress-
andi... meistarastykki“.
(Rex Reed, New York Post)
■ DORINT SUMARHÚSAz
ÞORPIDI ÞÝSKALANKM
Nýjasti áfangastaður Flugleiða og fjölskyldufólks á leið í sumarfrí er Dorint-sumarhúsaþorpið í nágrenni
Winterberg í Þýskalandi. Þetta eru söguslóðir Grimmsævintýranna. Sumarfrí í skógivöxnu og hæðóttu
umhverfi tV/nferöerg ereinnig ævintýri líkast. I grenndinni er Rínardalurinn og fjölmargar spennandi
borgir: Marburg, Kassel, Dusseldorf, Köln, Bonn, Koblenz, Mainz og Frankfurt. I Dorint-sumar-
húsaþorpinu eru í boði 4 stærðir íbúða og sumarhúsa. A svæðinu eru góð veitingahús, krá,
verslun, barnaheimili, sundlaug, sauna, Ijósaböð, tennisvellir, minigolf og keiluspil. Far-
þegar á leið í Dorint-sumarhúsaþorpið í Winterberg geta valið um að fljúga með Flugleið-
umtW Frankfurt eða Luxemborgar. Frankfurt: Rútuferðir til Winterberg. Aðeins
160 km akstursleið. Bílaleigubílar í boði, en þeir fást einnig afhentir í Winterberg.
Luxemborg: Þar eru bílaleigubílar til reiðu. Leiðin til Winterberg er fjöl-
breytt og skemmtileg. Dæmi um verð: Heildarverð fyrir4 mannafjöl-
skyldu í 2 vikur (flug, íbúð og rútuferðir frá og til Frankf) er kr. 72.608.'
en þá á eftir að draga frá afslátt vegna 2 barna (2-11 ára)
kr. 12.800.- Verðið samtals er kr. 59.808.- , eða kr. 14.952.
á mann. Flugvallar-
skattur er ekki
innifalinn.
FjöLskyldustemmning
dsöguslóðum
Grimmsœvintýra
Frekari
upplýsingar
um Dorint-
sumarhusaþorplð
I Wlnterherg velta
söiuskrlfstofur
Flugleiöa,
umboðsmenn og
ferðaskrlfstofumar