Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
59
Þessir menn sitja inni fyrir trú sína. Alexei Kozorezov er babtisti og var dæmdur fyrir trú sína í fjórða skiptið. Hann
var dæmdur í eins árs þræikunarvinnu. Hin langa fangeisisvist hefur eyðiiagt heilsu hans. Nikolaj Baturin er
babtistaritari, dæradur í ágúst 1981 til fimm ára fangelsisvistar. Heilsa hans er mjög slæm og liggur hann í
sjúkradeild fangelsisins. Dmitri Minyakov er babtistaprestur, dæmdur í ágúst 1981 til fimm ára fangelsisvistar.
Hann liggur nú einnig í sjúkrahúsinu. Valeri Barinov er baptisti og dæmdur 1984 til tveggja og hálfs árs fangelsisvist-
ar, settur í geðsjúkrahús til lyfjameðferðar gegn eigin vilja. Heilsa hans er mjög slæm nú.
Höfum ábyrgð hvert gagnvart öðru
Einar Ingi Magnússon skrifar:
Kæri Velvakandi!
Daglegt líf kristinna manna í
Sovétríkjunum og öðrum Austur-
Evrópulöndum er líf erfiðleika á
erfiðleika ofan: mismunun á
vinnustöðum, barsmíðar í skólan-
um. Stór hópur er dæmdur til
fangelsisvistar i tvö, þrjú eða
fleiri ár. í Sovétrkjunum neyðist
fjölskyldan þá til að lifa undir
miklum þrýstingi og á í erfiðleik-
um þar sem það er refsivert að
veita fjárhagslega eða aðra aðstoð
til fjölskyldna refsifanga.
Biblían talar um að við séum öll
systkini þó við séum af ólikum
þjóðarbrotum. Þess vegna höfum
við mikla ábyrgð gagnvart hvort
öðru. Biblían segir að við eigum að
bera umhyggju fyrir hvort öðru og
sérstaklega þeim sem eiga erfitt á
einhvern hátt. „Haldið bróður-
kærleikanum lifandi. Hugsið um
þá sem sitja í fangelsi eins og þið
væruð samfangar þeirra. Hugsið
um þá sem illt líða þar sem þér
sjálfir eruð einnig með líkama.“
(Hebreabréfið 13: 1—3.)
Eitt af hinum mörgu fangelsum í Sovétríkjunum þar sem kristnir menn eru
lokaðir inni meðal afbrotamanna. Myndin er af fangelsi í Braneshti í Molda-
vien.
Er Sakadómur
Reykjavíkur sekur?
Kristinn Sigurðsson, .Vestur-
bergi 78, skrifar:
Kæri Velvakandi!
Alls konar ofbeldi hefur því
miður færst í vöxt: líkamsárásir,
nauðganir og morð hljóta að
valda kvíða og ugg hjá fólki. Ný-
lega var ungur maður stunginn
með hnífi, sem var ekkert annað
en morðvopn, og með skurðað-
gerð var hægt að bjarga lífi
mannsins. Árásarmaðurinn var
látinn laus strax næsta dag, því
Sakadómur Reykjavíkur taldi
ekki hægt að verða við sjálf-
sagðri kröfu RLR um gæslu-
varðhald.
Á almennum vinnustöðum var
þetta mikið rætt og allir gáttaðir
á Sakadómi Reykjavíkur. Menn
muna hroðalega líkamsárás á
starfsstúlku á Hótel Sögu. Menn
muna nauðganir við Hverfis-
götu. Menn muna lika að Saka-
dómur Reykjavíkur taldi heldur
ekki ástæðu í þessum málum að
halda árásarmönnunum inni. Nú
spyr ég, hvers vegna?
Rannsóknarlögreglan fer allt-
af fram á gæsluvarðhald, en
þessi Sakadómur Reykjavíkur er
allt að því hvati til glæpa.
Líkamsárásir hafa aukist og
eiga svo sannarlega lögregluyfir-
völd sök á því að víssu leyti, því
lögreglan sést Iítið á ferðinni.
Hvað lengi á þetta að ganga,
dómsmálaráðherra? Fólkið er
hrætt.
Bjórþambarar fá bjórvambir
S.Á. skrifar:
Velvakandi góður!
Mér er i minni, þó nú sé langt
um liðið, er leið mín lá til Belgíu
og ég kom til Ostende með skipi
yfir Ermarsund. Þetta var í des-
ember og farþegar fóru beint inn í
tollafgreiðsluna. Kalt var í veðri
og þarna inni sátu karlarnir eða
yögguðu kringum vel kyntan ofn.
Ég þurfti að bíða eftir samferða-
konu, sem tollararnir voru eitt-
hvað seinir til að afgreiöa, og fékk
að sitja á meðan í ylnum við ofn-
inn þarna í forsalnum. Það vakti
athygli mína hvað karlarnir voru
skrítnir í laginu, mér fannst þeir
vera eins og úttroðnir tunnusekk-
ir. Af hverju skyldu þeir allir vera
svona vambmiklir, hugsaði ég i
barnaskap mínum. En ég fékk
skýringu á því á sínum tíma:
Svona verða menn af bjórdrykkj-
unni, var mér sagt. Þeir sem þjóra
bjór, fá sínar bjórvambir. Þetta
rifjaðist upp fyrir mér nú, í öllum
áhuganum að pota bjórnum inn í
landið okkar, þó margir góðir og
gegnir menn spyrni við fótum og
bendi á þá annmarka, sem 'nætt er
við að fylgi í kjölfarið. Þeirra á
meðal eru ýmsir ágætir læknar,
sem gerst ættu að vita hvað við
blasir. En er það ekki svo að:
Nú má bræður búast við
að bjórínn fylli vambir.
Og þegar bjórinn þenur kvið
þið í fitu rambið.
Það er kannske ljótt að segja
það, en við liggur að ég óski þess
að ærlegar bjórvambir eigi eftir
að skreyta þá harðsnúnu islensku
áhugamenn bjórþambsins, sem nú
láta hæst.
ARGUS«D
Alhliða
slýribúnaöur
HEÐINN
SEUAVEGI 2, SÍMI 24260.
V
Microline182/192/193
Ný kynslóð
tölvuprentara!
Kostimir eru ótvíræöir:
• Þriöjungi minni og helmingi léttari en áöur.
• Miklu hljóðlátari en áöur.
• Fullkomlega aöhæföir IBM PC og sambæri-
legum tölvum.
• Tfengjast öllum tölvum.
• Prenta 160 stafi á sekúndu, skáletur og
gæðaletur.
• Notandi getur sjálfur hannaö eigin leturgeröir.
• Fullkomin varahluta- og viðhaldsþjónusta.
• Til á lager.
Nýjtmgamar koma alltaf fyrst frá MICROLINE.
Það er því engin furða aö
MICROLINE eru mest
seldu tölvuprentarar á íslandi.
ÍMÍKROl
Skeifunni 11 Sími 685610