Morgunblaðið - 03.05.1985, Blaðsíða 64
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-02.00
FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Jónm Mekkín Jónsdóttlr og Mmgnns GuAnmson með þríburmnm. Jónm heldur i syninum en Mmgnús i dætrunum.
Ég sem keypti bara 12 bleiur
— sagði Jóna Mekkín Jónsdóttir frá Eskifirði þegar hún frétti að hún ætti von á þríburum
„OG ÉG sem keypti bmrm 12 bleiur vmr þmð fyrstm sem ég smgði þegmr ég
frétti mð ég ætti von i þríburum," smgði Jónm Mekkín Jónsdóttir fri
Eskifirði í smmtmli við blm. Morgunblmðsins í gær, en hún og Mmgnús
Guðnmson eiginmmður hennmr eignuðust tvær stúlkur og einn dreng í
fyrrmdmg.
„Ég var búin að fara þrisvar
sinnum í sónar á Neskaupstað og
þar sást bara eitt barn. Ég trúði
því auðvitað. Ég var orðin mjög
fyrirferðarmikil og var því send
suður 19. apríl. Ég fór í bæinn
með mömmu um morguninn og
keypti m.a. þessar 12 bleiur. Sið-
ar þann dag kom svo í ljós að
þetta voru þrjú börn, en ekki
eitt.“
— Og hvernig varð þér við?
„Nú eins og ég sagði áðan
komu áhyggjurnar af bleiunum
fyrst upp i hugann, en auðvitað
bregður manni ofboðslega. Ég
áttaði mig alls ekki á þessu strax
og varla fyrr en ég sá öll börnin."
— En hvernig tók Magnús
fréttunum?
„Ég var úti á sjó og fékk frétt-
irnar í gegnum talstöðina. Satt
að segja skildi ég hvorki upp né
niður í þessu. Eg hafði aldrei
gert ráð fyrir nema einu barni,“
sagði Magnús.
— Ætlar þú að halda áfram á
sjónum?
„Nei, ég ætlaði alltaf að hætta
á sjónum fyrir sumarið, m.a. til
þess að geta spilað fótbolta. Nú
er ekki víst að það verði tími til
þess, og þó.“
— Hvernig gekk svo að koma
þremur börnum í heiminn?
„Þau voru tekin með keisara-
skurði," sagði Jóna Mekkin.
„Þetta gekk fljótt fyrir sig og
eftir smá stund heyrði ég þrjú
börn gráta hraustlega. Þau
fæddust mánuði fyrir tímann, en
eru mjög stór. Strákurinn er
rúmar 10 merkur og 49 sm og
hann kom fyrstur. Sú sem kom
næst var tæpar 8 merkur og sú
yngsta var rúmar 7 merkur.
Stelpurnar eru báðar 43 sm og
mjög líkar. Strákurinn er ólíkur
þeim og ljósari yfirlitum. Þau
eru öll farin að drekka úr pela og
eru dugleg við það og svo er mér
sagt að það heyrist hátt í þeim.“
Þau Jóna Mekkín og Magnús
búa í 114 fm einbýlishúsi á Eski-
fírði. Húsið er gamalt og eru þau
að gera það upp.
Þeim hefur borist fjöldi blóma
og gjafa eftir að þríburarnir
fæddust. Verslunin Eskikjör
hefur t.d. boðið þeim ókeypis
barnamat í heilt ár.
Svo skemmtilega vildi til að
Ijósmóðirin sem tók á móti þrí-
burunum, Hanna Antoniusdótt-
ir, tók einnig á móti Jónu Mekk-
ín þegar hún fæddist.
Félagsmálaráðherra kynnir hertar reglur um skylduspamað ungs fólks:
Undanþágur ekki veittar
náms- og fjölskyldufólki
Húsnæðiskaupendur, einstæðir foreldrar og öryrkjar fái tfmabundnar undanþágur
Félagsmálaráðherra, Alexander
Stefánsson, lagði fyrir ríkisstjórnina
í gærmorgun drög að tveimur frum-
vörpum um húsnæðismál og voru
þau send þingflokkum stjórnar-
flokkanna í gær. Annað frumvarpið
varðar búseturétt en hitt er til breyt-
inga á lögum um skyldusparnað.
Gerir það itUL ráð fyrir, að sögn
félagsmálaráðherra, mjög hertum
jf. reglum um útborgun skyldusparnað-
ar, áður en 26 ára aldri er náð. Felld-
ur er niður réttur til endurgreiðslu
við hjúskap og við stofnun heimilis
og barnsfæðingu, en einstætt for-
eldri fær tímabundinn rétt til endur-
greiðslu. Þá er fellt niður að skóla-
fólk eigi rétt á endurgreiðslu, en
þeir sem flytja lögheimili til útlanda
fá heimild til endurgreiðslu. Þá
verður greiðsluhlutfall til skyldu-
sparnaðar lækkað úr 15% af launum
í 10%
Alexander Stefánsson segist
ætla að leggja fram á Alþingi nk.
mánudag frumvarp til laga um
greiðslujöfnuð lána til húsbyggj-
enda. Verður þar gert ráð fyrir að
unnt sé að sækja um greiðslujöfn-
uð allt frá árinu 1982.
Frumvarpið um skyldusparnað
gerir áfram ráð fyrir að öllum ein-
staklingum á aldrinum 16—25 ára
skuli skylt að leggja tii hiiðar af
launum sínum 10% af heildar-
launum eftir gildistöku frum-
varpsins. Reglur um undanþágur
eru mjög hertar eins og að framan
greinir. Undanþágur til endur-
greiðslu fyrir 26 ára aldur fá nú
aðeins þeir sem byggt hafa eða
keypt íbúð til eigin þarfa; einstæð-
ir foreldrar, samkvæmt vottorði
frá Tryggingastofnun ríkisins,
ennfremur þeir sem búa við ör-
orku, en undanþágur þessar eru
einvörðungu veittar til eins árs í
senn. Þá er felld niður heimild til
að veita undanþágu vegna þungr-
ar fjárhagsbyrðar, ennfremur er
undanþáguheimild vegna veikinda
eða slysa bundin því að þau hafi
haft í för með sér tekjulækkun eða
-missi.
Ríkisstjórnin samþykkti fyrir
sitt leyti að frumvörp þessi yrðu
lögð fyrir þingflokka stjórnarliðs-
ins. en Alexander Stefánsson
sagði í viðtali við Mbl., aö tillögur
þessar væru unnar af nefnd, sem
skipuð hefði verið til endurskoð-
unar á regium um Húsnæðismála-
stofnun.
Halldór Blöndal, alþingismaður
Sjálfstæðisflokki, á sæti í stefnu-
mörkunarnefnd stjórnarflokk-
anna um húsnæðismál. Hann
sagði í viðtali við Mbl., að frum-
vörpin um búseturétt og skyldu-
sparnað kæmu sér mjög á óvart
þar sem hann hefði ekki séð neitt
um þessi mál. Hann sagði enn-
fremur: „Eftir því sem ég bezt veit
eru ýmis ágreiningsmál í þessum
frumvörpum og ég vil taka fram
að það hefur alls ekki komiö til
tals í nefndinni að breyta reglum
um skyldusparnað.“ Halldór taldi
vÍ8t, að frumvörpum þessum yrði
vísað til stefnumörkunarnefndar
stjórnarflokkanna.
Auglýst
uppboð á
um 1400
bifreiðum
AIJGLÝST hafa verið nauðungar-
uppboð á hátt á annað þúsund bfl-
um af ýmsum stærðum og gerðum.
Uppboðin eiga að fara fram nk.
fimmtudag, 9. maí — en vafasamt
er að þar verði raunverulega boðnir
upp nema fáir tugir þessara bfla, að
því er Jónas Gústafsson uppboðs-
haldari við borgarfógetaembættið í
Reykjavík sagði í gær. Við lauslega
yfirferð taldist til að auglýstir væru
um 1400 bflar og vinnuvélar.
„í auglýsingu okkar eru til-
teknir allir þeir bílar, vélhjól og
vinnuvélar, sem beðið hefur verið
um uppboð á,“ sagði Jónas
Gústavsson. „Það er augljóst að
ekki verður hægt að ná til þeirra
allra en við viljum með þessari
auglýsingu láta menn vita, að það
er verið að rukka þá í fullri al-
vöru.“
Um flest uppboðin er beðið af
Gjaldheimtunni í Reykjavík og
þá vegna þess, að eigendur bíl-
anna standa ekki í skilum með
það sem keisaranum ber. Aðrir
kröfuhafar eru embætti tollstjór-
ans, ýmsir bankar og lánastofn-
anir, lögmenn og fyrirtæki.
„Þetta er í sjálfu sér ekkert
meira en venjulega," sagði Jónas,
„en við höfum yfirleitt ekki aug-
lýst uppboð á bílum, sem við telj-
um að ekki muni verða færðir til
sölu. Venjulegast eru setdir um
40 bílar á hverju uppboði, sem
þýðir að um 200 bílar eru seldir
þannig árlega."
Selur í
Elliöaánum
SELUR sást á sveimi ■ ósum Elliðaáa
síðdegis í gær og velta menn því fyrir
sér hvort lax sé þegar farinn að ganga
(árnar.
„Það var um sexleytið sem við
tókum eftir honum,“ sagði Jón
Ólafsson, starfsmaður Steypustöðv-
arinnar hf., sem ásamt félaga sín-
um, Lárusi Einarssyni, varð selsins
var úr bækistöðvum fyrirtækisins í
brekkunni austan við árnar norðan-
verðar. „Hann var þá kominn lang-
leiðina að brúnni og svamlaði þar á
sama stað í kortér eða svo. Hann
hvarf svo til sjávar — Iíklega þegar
fór að falla frá og straumur var
hvað mestur,“ sagði Jón.
„Hann hlýtur að hafa verið í ein- i
hverju og það væri ansi merkilegt ef
fiskur væri farinn að ganga I ána
þetta snemma vors. Mig grunar að
hann komi aftur með aðfallinu í
fyrramálið,“ sagði Jón Ólafsson.
Vætusamt
um helgina
ÚTLIT er fyrir að vætusamt verði
um mest allt landið um helgina.
Hjá Veðurstofu íslands fengust
þær upplýsingar að á morgun væri
von á suðaustlægri átt með dálit-
illi rigningu viða um sunnan- og
vestanvert. landið. Á sunnudag
verður austan- og norðaustan átt.
og liklegast léttir til sunnanlands.
Rigning eða slydduveður verður
híns vegar norðan- og austan-
lands.
I