Morgunblaðið - 11.05.1985, Side 6

Morgunblaðið - 11.05.1985, Side 6
6 MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAl 1985 ÚTVARP / S JÓN VARP Kvenrembu- svín Fimmtudagsleikritið nefndist „Kvöld í Hamborg" og ber þýðand- inn Kristín Bjarnadóttir vafalaust ábyrgð á þeirri nafngift. Var raunar þýðing Kristínar lipur og oft smellin, þannig man ég vart eftir skemmtilegri mannlýsingu en í eftirfarandi setningu: Maður- inn þinn var væskill. Hann minnti mig alltaf á sveittan ost (í hand- ritinu stóð reyndar ... skríðandi ost, en látum það liggja milli hluta). En sá er þarna tekur til orða nefnist Peter Andreas Hei- berg, sannsöguleg persóna frá 19. öld, víst þekktur rithöfundur og þjóðfélagsgagnrýnandi í Dana- veldi en ekki risti umbótavilji manns þessa nú djúpt, því þegar á hólminn er komið vill hann ekki sleppa hendinni af konu sinni Thomasine Heiberg, en sú frauka er náttúrlega frelsisdýrkandi og finnst reyndar fremur lágreist asklokið á hugarheimi Heibergs hins umbótasinnaða. Gengur verkið síðan út á frelsiskjaftæði konu þessarar sem náttúrlega hef- ur alltaf á réttu að standa og inná milli dynja innantómir frasar herra Heibergs, sem gefur sér jafnvel tíma til að ráðast á borg- arastéttina. Stagl Ég verð að segja alveg eins og er, að ég er orðinn hundleiður á þessu kvenfrelsisstagli, sem dynur á okkur karlmönnum ár og sið og alla tíð. Það er eins og ákveðinn hópur kvenna hafi breyst i frasa- maskínur, sem hafa það eitt að markmiði að niða niður hjóna- bandið og hefja hina alfrjálsu konu upp til skýjanna. Mér skilst að þessi moldvörpustarfsemi hafi breytt fjölda heimila i vighreiður þar sem linnir ekki deilum um hver eigi að vaska upp, hver að þvo úr kúkableijunum, hver að þurrka af, hver að steikja pylsurn- ar (eða hamborgarana), hver að pússa bingoggröndalpostulins- hundana o.s.frv., o.s.frv. Og það sem verra er að mér finnst eins og þessi fimmta kvennaherdeild sé nánast að ganga af öllu eðlilegu samlifi dauðu. Eða hvernig á fólk að njóta samlífs þegar i undir- djúpunum hrærast óleystar spurningar um hver eigi yfirleitt að gera hvað og hvað um AIDS þegar kvenfrelsiskonurnar eru orðnar svo alfrjálsar að þær hoppa bara uppí rúm hjá þeim sem þær elska í það og það skipt- ið? Það þarf ekki að diskútera frekar að konur og karlar taki sameiginiega í í lífsstríðinu. Slíkt er sjálfsagður hlutur en þegar annað kynið gengur nánast vopnað mannréttindayfirlýsingu Samein- uöu þjóðanna til móts vð hitt, þá fer Ijóminn af ævintýrinu. Formúluleikrit Ég ætla annars ekki að eyða fleiri orðum á þetta formúluleikrit Stig Dalager um hina alfullkomnu kvenfrelsiskonu Thomasinu Hei- berg og hið þröngsýna, smá- smugulega, siðblinda, smásálar- lega karlrembusvín Peter Andreas Heiberg sem Arnar Jónsson lék náttúrlega af stakri snilld. Þetta andlausa leikrit er samið sam- kvæmt forskrift hinna alfull- komnu, ástsjúku og frelsisleitandi kaffihúsakvenfrelsiskvenna, sem greinilega eru teknar að þrýsta sér inní úthlutunarnefndir lista- mannalauna. Það er synd að sjá á eftir glæsilegum frjálshuga karl- mönnum inní slíkar kvennaklíkur. Á slíkum samkundum geta konur og karlar ekki mæst á jafnréttis- grundvelli fremur en í harðsvíruð- um karlaklúbbum. ólafur M. Jóhannesson „Hér og nú“ — fréttaþáttur í vikulokin rásar 1 14.00 og ■■■■ Fréttaþáttur- 1 A 00 inn »Hér og nú“ — er á dagskrá í dag klukkan kennir þar ým- issa grasa að vanda. Þátt- urinn að þessu sinni er i umsjá fjögurra frétta- manna: Alberts Jónsson- ar, Kára Jónassonar, Þor- gríms Gestssonar og Mar- grétar Jónsdóttur. Albert sagði í samtali bið Mbl., að ætlunin væri að minnast loka heims- styrjaldarinnar. „M.a. tala ég við Þór Whitehead um þau mál, en hann er prófessor í sögu við Há- skóla íslands og hefur skrifað söguna „Ófriður í aðsigi“ ásamt fleiri bók- um. Kári Jónasson verður staddur í Grindavík í dag í tilefni lokadags vetrar- vertíðarinnar. Þorgrímur og Margrét ætla í ferð með fuglafræðingnum Ævari Pedersen. Fyrst fara þau niður að Tjörn- inni í Reykjavík og síðan á Álftanesið til að sjá hvaða tegundir fugla er að finna þar. Ég ætla að vera með stutt viðtal við einn forsvarsmanna átaks, sem er í gangi, „Birta fyrir blind börn“. íþróttapistill verður í þættinum vænt- anlega og síðan, ef timi vinnst til, verður fundið upp á fleiru. „I sambandi við heims- styrjöldina ætlum við að velta því fyrir okkur hvort Þjóðverjar hafi átt ein- hvern timann möguleika á sigri í styrjöldinni. Einnig ætlum við að spá í hvort veruleg hætta hafi verið á þýskri innrás i ísland. Síðar i þættinum mun ég svo taka fyrir hvort hætta sé á innrás hér, ef til ófriðar kæmi nú,“ sagði Albert Jónsson að lokum. „Mærin og sígauninn“ - bresk bíómynd frá 1970 ■i Bresk biómynd 10 frá 1970, „Mær- in og sígaun- inn“ (The Virgin and the Gvosv). er fvrri biómvnd sjónvarpsins i kvöld og hefst hún klukkan 21.10. Myndin er gerð eftir sögu D.H. Lawrence og i aðal- hlutverkum eru: Joanna Shimkus, Franco Nero, Honor Blackman, Mark Burns, Fay Compton og Maurice Denham. Kvikmyndahandbókin Mærín og sígauninn. Vvette prestsdóttir og sfgauninn: Joanna Shimkus og Franco Nero. okkar góða gefur mynd- inni þrjár og hálfa stjörnu, en hæst gefur bókin fjórar stjörnur. Myndin ætti því að vera vel þess virði að horfa á. Myndin greinir frá tveimur dætrum prests er snúa heim til föðurhúsa eftir námsdvöl i Frakk- landi. Yvette, önnur systr- anna, unir sér illa á heimaslóðum, og hún kýs sér sjálf vini, sem ekki eru föður hennar að skapi. Hún lætur engan segja sér fyrir verkum. Þýðandi myndarinnar er Ragna Ragnars. „Afgreitt mál“ — indversk bíómynd ■■ Sjónvarps- 45 áhorfendur fá ““ nú i kvöld að sjá indverska bíómynd, en lítið hefur sést af þarlend- um bíómyndum i íslenska sjónvarpinu í gegnum ár- in, en Indverjar eru mjög duglegir við framleiðslu mynda. Myndin, sem sýnd verð- ur i kvöld, nefnist „Af- greitt mál“ eða „Kharij“ á máli innfæddra og er hún n>jöK ný. eða frá árinu 1983. I aðalhlutverkum eru Anjan Dutt og Mam- ata Shanker. Leikstjóri er Mrinal Sen. Myndin snýst um ung hjón í Kalkútta er taka í þjónustu sina dreng sem fljótlega deyr. Rannsókn hefst til að kanna hvað valdið hafi dauða drengs- ins og hvort nokkur eigi sök á. Myndin lýsir ind- versku hversdagslífi og er jafnframt ádeila á þá barnaþrælkun, sem við- gengst á Indlandi. Þýðandi myndarinnar er Veturliði Guðnason. ÚTVARP LAUGARDAGUR 11. maí 7.00 Veöurlregnir. Fréttir. Bæn. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 7.20 Leikfimi. Tónleikar. 0.00 Fréttir. Oagskrá. Morg- unorð — Helgi Þorláksson talar. 8.15 Veðurfregnir. 8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tónleikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt. páttur Valdimars Gunnarssonar frá kvðldinu áður. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Úskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynnir. (10.00 Fréttir. 10.10 Veöur- fregnir.) Oskalög sjúklinga, frh. 11^0 Eitthvaö fyrir alla Sigurður Helgason stjórnar þætti fyrir börn. 12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til- kynningar. 12J0 Fréttir. 12.45 Veður- fregnir. Tilkynningar. Tónl- eikar. 14.00 Hér og nú Fréttaþáttur I vikulokin. 15.15 Listapopp — Gunnar Salvarsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 íslenskt mál Guðrún Kvaran flytur þátt- inn. 16.30 Bókaþáttur Umsjón: Njðröur P. Njarðvlk. 174)0 Fréttir á ensku 17.05 A óperusviðinu Umsjón: Leifur Þórarinsson. 18.15 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvðldsins. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19J5 Þetta er þátturinn Umsjón: örn Arnason og Sigurður Sigurjónsson. 16J0 Enska knattspyrnan. 17A5 Iþróttir. Umsjónarmaður Bjarni Fel- ixson. 19.25 Teiknimyndasyrpa. Betra er seint en aldrei, sov- ésk teiknimynd og Tvær sögur frá Kirjálalartdi, finnsk- ar teiknimyndir, þýðandi Kristln Mántylfl, sðgumaður Sigrún Edda Björnsdóttír. (Nordvision — Finnska sjón- varpið). 19.50 Fréftaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Hótel Tindastóll. Fjóröi þáttur. Breskur gamanmyndaflokk- ur I sex þáttum um sein- heppinn gestgjafa, starfslið 20.00 Útvarpssaga barnanna: Ragnheiöur Gyða Jónsdóttir les arabfskar sögur úr 1001 nótt I þýðingu Steingrlms Thorsteinssonar. 20.20 Harmonikuþáttur Umsjón: Sigurður Alfonsson. 20.50 .Verðfair Smásaga eftir Jórunni Olafsdóttur frá Sörlastöðum. Höfundur les. 11. mal hans og hótelgesti. Aðalhlutverk: John Gleese. Þýöandi Guðni Kolbeinsson. 21.10 Mærin og slgauninn. (The Virgin and the Gipsy). Bresk blómynd frá 1970, gerð ettir sögu eftir D.H. Lawrence. Lelkstjóri Christopher Miles. Aöalhlutverk: Joanna Shimkus, Franco Nero, Hon- or Blackman, Mark Burns, Fay Compton og Maurice Denham. Tvær prestsdætur snúa heim til fööurhúsa eftir námsdvöl ( Frakklandi. önnur þeirra, Yvette, unir illa hðftum og siöavendni á heimaslóðum. Hún velur sér vini, sem ekki eru föður hennar að skapi, 21.40 Kvöldtónleikar Þættir úr slgildum tónverk- um. 22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvðldsins. 22.35 Skyggnst inn I hugarh- eim og sögu Kenya. 2. þátt- ur. Skúli Svavarsson segir frá og leikur þarlenda tónlist. 23.15 „Zarzuela" og lætur engar tortölur hefta sig. Þýðandi Ragna Ragnars. 22.45 Afgreitt mál. (Kharij). Indversk blómynd fra 1983. Leikstjóri Mrinal Sen. Aöalhlutverk: Anjan Dutt og Mamata Shanker. Ung hjón I Kalkútta taka I þjónustu slna dreng sem snöggt verður um. Rannsókn er hafin til aö kanna hvaö valdið hafi dauöa drengsins og hvort nokkur eigi sök á honum. Myndin lýsir ind- versku hversdagsllfi og er jafnframt ádeila á þá barna- þrælkun sem viðgengst á Indlandi. Þýðandi Veturllöi Guðnason. 00.25 Dagskrárlok. Teresa Berganza og Ptacido Domingo syngja arlur úr spænskum sðngleikjum. Rafael Frúbeck de Burgos og Luis Garcia-Navarro stjórna hljómsveitin sem leika með. 24.00 Miönæturtónleikar Umsjón: Jón örn Marinóss- on. 00.50 Fréttir. Dagskrárlok. Næturútvarp frá rás 2 tll kl. 03.00. LAUGARDAGUR 11. maí 14.00—16.00 Léttur laugar- dagur Stjórnandi: Asgeir Tómas- son. 16.00—18.00 Milli mála Stjórnandi: Helgi Már Barða- son. Hlé. 24.00—00.45 Listapopp Endurtekinn þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 00.45—03.00 Næturvaktin Stjórnandi: Kristln Björg Þorsteinsdóttir. (Rásirnar samtengdar aö lokinni dagskrá rásar 1.) SJÓNVARP LAUGARDAGUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.