Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
43
100 ára minning:
Pétur J. Hraun-
fjörð sjómaður
Fsddur 12. mai 1885
Dáinn 5. mars 1957
Heil öld — hvað er það, í huga
manns, gæti sköpun heimsins hafa
átt sér stað fyrir hundrað árum.
Svo ör hefur þróunin verið.
Faðir minn fæddist á Vala-
björgum í Helgafellssveit, heiðar-
býli langt frá byggðu bóli, og ekk-
ert til að vefja hvítvoðunginn i
annað en línskyrta af móðurinni,
sem var svo lasburða af langvar-
andi næringarskorti að hún
mjólkaði drengnum ekki og kýrin
geld. Það var því horfið að því ráði
að næra hann á kaplamjólk.
Foreldrar Péturs voru Jón Jó-
Kaffidrykkja
aldraðra í
Fríkirkju-
söfnuðinum
KVENFÉLAG Fríkirkjunnar hefur
ákveðið að helga um sinn 5. sunnu-
dag eftir páska öldruðu safnaðar-
fólki. í framhaldi af þvi býður Kven-
félagið öldruðu fríkirkjufólki til
kafHdrykkju í Oddfellowhúsinu við
Vonarstræti, óðara að lokinni messu
í Fríkirkjunni á morgun, sunnudag.
Guðþjónustan hefst kl. 14 og
mun Fríkirkjukórinn syngja undir
stjórn organista kirkjunnar, Pav-
els Smíd.
(flr frétutilkrnninpi)
hannesson f. 1844 á Berserkseyri i
Eyrarsveit og Guðlaug Bjarna-
dóttir f. 1853 í Hraunholtum í
Kolbeinsstaðahreppi. Árið eftir
eru þau komin að Horni i sömu
sveit. En flytja fljótlega þaðan og
eru komin í Hraunsfjörð árið 1888.
Þar bjuggu þau næstu 20 árin eða
til ársins 1908, að þau flytja að
Hallbjarnareyri í Eyrarsveit.
Snemma var Pétur lánaður í
smalamennsku og hjásetu, sem
matvinningur. Honum féll ekki
vistin og þótti betra að vera
svangur heima í Hraunsfirði en á
öðrum bæjum. Á ellefta ári var
hann settur til sjós á opnum
seglbát, var það harður skóli. Til
að byrja með skyldi hann vera
kokkur. Eldamennskan var fá-
brotin, en þó of flókin fyrir 10 ára
dreng, því hver vildi fá þann fisk
upp úr pottinum, sem hann hafði
lagt sér.
Þetta var upphafið á sjó-
mennsku Péturs J. Hraunfjörð,
sem átti eftir að vera næstu 30
árin og verða harðsótt með köfl-
um, því hann var þrekmaður mik-
ill og kappsamur, að hverju sem
hann gekk. Hann var bráðvel gef-
inn og lauk „meira fiskimanna-
prófi“, og var skipstjóri eftir það á
þilskipum við Breiðafjörð og víð-
ar, eftir því sem ástæður leyfðu.
Kona hans var Ásta Kristjáns-
dóttir f. 6/6 1891, d. 27/7 1980 (f. í
Stekkjartröð í Eyrarsveit), hún
var vel gefin, dugnaðarkona og
manni sínum góður lífsförunaut-
ur.
Af níu börnum þeirra hjóna
komust 7 til fullorðins ára, 6 eru á
Hfí.
Þau bjuggu víða og alltaf í
þurrabúð. Þegar Pétur var um fer-
tugt urðu miklar breytingar á
högum hans. Heilsan bilaði og nýr
þáttur hófst í lífi hans. Hann flyt-
ur til Reykjavíkur, en verka-
mannavinna var lítil og stopul.
Hann hafði verið í Sjómannafé-
laginu, en gerist nú félagi í Verka-
mannafélaginu Dagsbrún, og var
brátt í hópi þeirra er harðast
börðust og beittu sér fyrir því að
fá kjör verkamanna bætt á sem
flestum sviðum.
Pétur taldi Dagsbrún sérstakt
kjörbarn sem á allan hátt væri
skylt að standa saman um. Fljót-
lega komst hann því í trúnaðarráð
félagsins. Hann var í senn alvar-
legur, fastur fyrir og sérstæður,
sem og léttur i lund, kíminn og
félagslyndur, því sjaldan var svo
þröngt í búi um hag hans og heil-
brigði að hann væri ekki logandi
af ýmiss konar áhuga fyrir hinum
margbreytilegu velferðarmálum
sínum og samfélagsins.
í stjórnmálabaráttunni stóð
hann ævinlega yst til vinstri og
átti létt með að tala á fundum og
flytja mál sitt. Áhugamál sín
ræddi hann í ljósi sterkrar trúar á
hið góða i manninum, þrátt fyrir
það, að honum dyldist ekki sú var-
mennska sem viða kemur fram i
sambýli mannanna.
Réttlætiskennd hans og jafn-
réttishugsjón var afar rík, var þvi
mjög auðskilið að hann var vinur
og baráttumaður smælingjanna,
skilyrðislaust, hvernig sem á stóð.
f eðli sínu var Pétur trúhneigð-
ur og elskur að ljóðum, orti fjölda
Ijóða og visna, sem mörg bera
vitni um trúhneigð og mannvin-
áttu.
Eftirfarandi ljóð hans er í Snæ-
fellingaljóðum:
TOGARINN GYLLIR
Gyllir hrannir klýfur kaldar
knúinn sterku vélarafli.
Ört þó hvæsi froðufaldar,
fram hann þýtur móti skafli,
stefni þungu í stingur hroða,
stafna á milli glymja sköllin,
af sér hrindir báruboða,
byltast um hann ránarföllin.
Á honum sigla drengir djarfir,
draga gull úr Ægis haugum,
öðrum fremur þykja þarfir,
þroskans búnir sterkum taugum.
Þegar gjálp á brýtur borðum
brotsjóa í heiftaræði,
hægt, en föstum, ýtt er orðum:
Áfram, drengir, hrönn þó flæði.
Opið hús verður í (Jtkoti á Kjal-
arnesi í dag sunnudag milli kl.
15.00 og 17.00, ættarmót, og fyrir
þá sem vilja heiðra minningu
hans.
Hulda Pétursdóttir
Keflavíkurkirkja:
Vortónleikar
MÁNUDAGINN 13. maí verða vor-
tónleikar Tónlistarskólans í Kefla-
vík og Tónlistarfélagsins haldnir I
Keflavíkurkirkju og hefjast þeir
klukkan 20.30.
Nemendur skólans munu leika á
flest hljóðfæri sem kennt er á í
skólanum.
Jónas Þórir Þórisson organisti í
Kirkju óháða safnaðarins mun
leika Tokkötu og fúgu í d-moll eft-
ir J.S. Bach.
Skólaslit Tónlistarskólans verða
í sal skólans miðvikudaginn 15.
maí klukkan 17.
Kransai; kistuskreytingar
BORGARBLOMÍÐ
SKÍPHOLTÍ 35 SÍMh 32213
Hinn almenni
bænadagur
DÓMKIRKJAN: Bænadagsguös-
þjónusta kl. 11.00. Sr. Þórir
Stephensen prédikar og þjónar
fyrir altari ásamt sr. Hjalta Guö-
mundssyni. Sr. Þórir Stephen-
sen. Barnaguösþjónusta kl.
14.00. Kirkjuskólanum slitiö.
Börn úr skólanum aöstoöa. Sr.
Agnes M. Sigurðardóttir.
ÁRBÆJARPRESTAKALL:
Bænaguösþjónusta í Safnaöar-
heimili Árbæjarsóknar kl. 11.00
árd. Organleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guömundur Þorsteinsson.
ÁSPRESTAKALL: Sameiginleg
guösþjónusta Ás- og Laugarnes-
skóla í Laugarneskirkju kl. 14.00.
Báöir kirkjukórarnir syngja. Sr.
Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar
fyrir altari. sr. Árni Bergur Sigur-
björnsson prédikar. Sóknar-
nefndin.
BREIOHOLTSPREST AK ALL:
Messa í Breiöholtsskóla kl.
14.00. Sr. Lárus Halldórsson.
BÚST AÐAKIRK JA: Messa kl.
14.00. Prestur sr. Jón Bjarman.
Organieikari Guöni Þ. Guö-
mundsson. A uppstigningardag
veröur messa kl. 14.00. Handa-
vinnusýning eftir vetrarstarf aldr-
aöra verður eftir messuna svo og
kaffiveitingar. Sóknarnefndin.
DIGRANESPREST AKALL:
Guösþjónusta í Kópavogskirkju
kl. 14.00. Minnst 30 ára afmælis
kaupstaöarins. Sr. Árni Pálsson
prédikar. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson þjónar fyrir altari. Bæj-
arfulltrúar lesa ritingarorö. Sókn-
arnefndin.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guös-
þjónusta kl. 10.00. Sr. Lárus
Halldórsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Guösþjónusta kl. 11.00. (Ath.
breyttan tíma.) Sr. Hreinn HJart-
arson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Guösþjónusta kl. 14.00. Sr.
Þorsteinn Björnsson, fyrrv. frí-
kirkjuprestur, þjónar fyrir altari.
Fríkirkjukórinn syngur undir
stjórn organleikarans Pavel
Smid. Eftir messu er kaffi fyrir
aldraöa í Oddfellowhúsinu í boöi
Kvenfélags Fríkirkjunnar. Föstu-
daginn 17. maí er biblíulestur f
kirkjunni kl. 20.30. Allir velkomn-
ir. Bænastund í kirkjunni þriöju-
d„ miövikud., fimmtud. og
föstud. kl. 18.00 og stendur í
stundarfjóröung. Sr. Gunnar
Björnsson.
Guðspjall dagsins: Jóh. 16.:
Biðjið í Jesú nafni.
GRENSÁSKIRKJA: Messa kl.
11.00. (Ath. breyttan messu-
tíma.) Kaffisala Kvenfélagsins kl.
15.00. Biblíulestur þriöjudag 14.
maí kl. 20.30. A uppstigingardag
veröur kvöldvaka meö helgi-
stund fyrir aldraöa kl. 20.00. Sr.
Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugar-
dag: Félagsvist í safnaöarsai kl.
15.00. Sunnudag: Messa kl.
11.00. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Kirkja heyrnarlausra: Guösþjón-
usta kl. 14.00 í Hallgrímskirkju.
Sr. Miyako Þóröarson. Þriöju-
dag, fyrirbænaguösþjónusta kl.
10.30, beöiö fyrir sjúkum. Á upp-
stigningardag veröur messa kl.
11.00.
LANÐSPÍTALINN: Guösþjónusta
kl. 10.00. Sr. Ragnar Fjalar Lár-
usson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
11.00. Sr. Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Guös-
þjónusta kl. 14.00 í Kópavogs-
kirkju. Minnst 30 ára afmælis
kaupstaöarins. Sr. Þorbergur
Kristjánsson þjónar fyrir altari,
sr. Árni Pálsson prédikar. Bæj-
arfulltrúar lesa ritingarorö. Sókn-
arnefndin.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkjureið.
Á hinum almenna bænadegi
munu hestamenn koma á gæö-
ingum sínum til guösþjónustunn-
ar í Langholtskirkju kl. 11. Lista-
menn úr rööum þeirra, ingibjörg
Lárusdóttir, Lárus Sveinsson,
Gunnar Eyjólfsson, Klemens
Jónsson, Jón Sigurbjðrnsson og
Garöar Cortes munu aöstoöa
kór, organista og prest safnaöar-
ins viö helgihaldiö. Aöhald er
fyrir hestana og þeirra gætt.
Safnaöarstjórn.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dag: Guösþjónusta Hátúni 10B,
9. hæð kl. 11.00. Sunnudag:
Sameiginleg guösþjónusta As-
og Laugarnessókna í Laugarnes-
kirkju kl. 14.00. Sr. Árni Bergur
Sigurbjörnsson prédikar. Báöir
sóknarprestarnir þjóna fyrir alt-
ari, báöir kórar safnaöanna
syngja undir stjórn organistanna
Sigríöar Jónsdóttur og Kistjáns
Sigtrygssonar. Þriöjudag 14. maí
bænaguösþjónusta kl. 18.00 og
orgeltónleikar kl. 20.30 á vegum
Tónskóla þjóökirkjunnar. Friörik
Stefánsson, Gunnar Gunnarsson
og Sigríöur Jónsdóttir leika á
orgel kirkjunnar. Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Messa kl. 14.00.
Sr. Frank M. Halldórsson. Miö-
vikudag, fyrirbænamessa kl.
18.20. Sr. Frank M. Halldórsson.
Opið hús fyrir aldraöa þriöjudag
kl. 12—17 og verður þennan
mánuö á þríöjudögum.
SELJASÓKN. Guösþjónusta kl.
11.00 í ölduselsskóla. Fundur í
æskulýösfélaginu Sela þriöju-
dagskvöld 14. maí kl. 20.00 í
Tindaseli 3. Fyrirbænasamvera
Tindaseli 3 aö kvöldi uppstign-
ingardags kl. 20.30. Sóknar-
prestur.
SELTJARNARNESSÓKN: GuöS-
þjónusta kl. 11.00. Sr. Frank M.
Halldórsson.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Rúmhelga daga er lágmessa
kl. 18 nema á laugardögum, þá
kl. 14. í maímánuöi er lesin Rósa-
kransbæn eftir lágmessuna kl.
18 nema á fimmtudögum, þá
verður bænahald á þeim tíma.
MARÍUKIRKJA Breiöholti: Há-
messa kl. 11. Lágmessa mánu-
daga til föstudaga kl. 18.
HVlT ASUNNUKIRK JAN Ffla-
delfía: Almenn guösþjónusta kl.
20.
KFUM og KFUK, Amtmanns-
stig:: Samkoma kl. 20.30. Ræöu-
maöur Helgi Elíasson, útibús-
stjóri.
HJÁLPRÆDISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14.00. Útisamkoma
Lækjartorgi (ef veöur leyfir) kl.
16. Almenn samkoma kl. 20.30.
Anne Marie Reinholdtsen talar.
KAPELLA St. Jósefssystra
Garöabæ: Hámessa kl. 14.
VÍÐIST AÐASÓKN: Guösþjón-
usta kl. 11. Sr. Siguröur Helgi
Guömundsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: Ferö
sunnudagaskólans veröur á
sunnudag og lagt af staö frá
kirkjunni kl. 10.30. Guösþjóni'sta
kl. 14. Sr. Gunnþór Ingason.
FRÍKIRKJAN Hafnarfiröi: Vor-
ferö barnastarfsins verður farln í
dag, laugardag. Lagt af staö frá
kirkjunni kl. 13.30. Sunnudags-
guösþjónusta kl. 11. Ath. breytt-
an messutíma. Guörún Tómas-
dóttir syngur einsöng. Sr. Einar
Eyjólfsson.
KAPELLAN St. Jósefsspftala:
Hámessa kl. 10.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
INNRI-NJARDVÍKURKIRKJA:
Kirkjudagur Keflavíkursafnaöar.
Guösþjónusta kl. 14. Systra- og
bræöafélagiö annast kaffiveit-
ingar aö messu lokinni í Kirkju-
lundi. Rætt verður um israels-
ferðina. Fer nú hver aö veröa síö-
astur til aö tilk. þátttöku. Sókn-
arprestur.
GRINDAVÍKURKIRKJA: Ferm-
ingarguösþjónusta kl. 14. Sókn-
arprestur.
EYRARBAKKAKIRKJA: Ferm-
ingarmessa kl. 13.30. Sr. Úlfar
Guömundsson.
STRANDARKIRKJA: Messa kl.
14. Barnakór Þorlákshafnar
syngur undir stjórn organistans
Hilmars Arnars Agnarssonar. Sr.
Tómas Guömundsson.
HEILSUHÆLI NLFÍ, Hverageröi:
Messa kl. 11. Sr. Tómas Guö-
mundsson.
AKRANESKIRKJA: Messa kl.
10.30. Ath. breyttan messutíma.
Lagt veröur af staö í vorferö
sunnudagaskólans kl. 13 frá
kirkjunni. Sr. Björn Jónsson.
BORGARNESKIRKJA: Messa kl.
11. Sóknarpestur.