Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ1985 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aðstoóarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Að- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 25 kr. eintakið. „Húsnæðis- hneykslið“ IfeOsi Umsjónarmaöur Gísli Jónsson Margt og mikið hefur ver- ið skrifað um húsnæð- ismálin bæði hér í blaðnu og annars staðar að undanförnu. Sýnist þar sitt hverjum en flestir munu þó vera á einu máli um að í hið mesta óefni stefni og fólki sé að verða ofraun að koma sér þaki yfir höfuðið. í þætti sem nýlega birtist í sjónvarpinu þar sem rætt var um afkomu ellílífeyr- isþega vakti það mesta athygli að gamla fólkið sem átti íbúð eða húseign var mun betur sett en þeir sem þurfa að leigja, þrátt fyrir fasteigna- gjöld og aðrar kvaðir sem hús- eigendur þurfa að inna af hendi. Það er meginatriði eins og sést bezt á þessari stað- reynd, að fólk hér á landi geti búið í eigin húsnæði enda er það einhver mesta trygging þegar ellin færist yfir. Þeir sem ekki hafa gert sér grein fyrir þessu ættu að íhuga mál- ið frá sjónarmiði gamla fólks- ins sem nú á undir högg að sækja eins og kunnugt er. Það er sorglegt að heyra hvernig litlir fjármunir þess geta lent í húsaleiguhítinni ef ellilífeyris- þegar eru dæmdir til að leigja og greiða húsaleigu af þeim litla lífeyri og þeirri takmörk- uðu tekjutryggingu sem þeir búa við. Við eigum að stefna að því að sem flestir komi sér þaki yfir höfuðið, vinna á að því að veita mönnum hag- kvæm Ián í því skyni, það er þjóðhagslega mikilvægt. Allt tuðið um húsnæðismálin er til lítils meðan fólk er að kikna undan byrðinni. Það er þjóð- félagslega hagkvæmt að koma húsbyggjendum til aðstoðar. Það mun skila góðum arði þótt síðar verði. Hér á Alþingi að hafa forystu og í þessum efn- um eiga ráðherrar ekki sízt að þekkja sinn vitjunartíma. Þórarinn Eldjárn rithöfund- ur skrifaði athyglisverða grein sem hann nefnir Húsnæðis- hneykslið í Morgunblaðið 7. maí sl. og reifar þessi mál á opinskáan hátt. Hann telur að umræðurnar um lausn hús- næðisvandans undanfarið séu merkingarlausar með öllu og að aðferð stjórnvalda nú hafi verið hin sama og oft áður, þ.e. „að bíða, draga á langinn, taka öllu vinsamlega, skipa nefndir, kalla nefndirnar svo sam- starfshópa þegar þær fara að verða hlægilega margar. Þykj- ast vera að vinna að einhverju stórmerkilegu, lýsa yfir skiln- ingi og aftur skilningi, enda- lausum, alltumfaðmandi skilningi og vona svo í laumi að hreyfing fólksins koðni niður á meðan, að él eitt muni vera, að baráttuþrekið verði búið þegar fólk áttar sig loks á því að ekkert hefur gerzt og ekkert á að gerast og að það stóð aldrei til að neitt ætti að gerast," eins og skáldið kemst að orði. Þessi upptalning er raunar of skemmtileg til þess að þingmenn geti látið hana sem vind um eyru þjóta. Og Þórarinn Eldjárn bætir þessum athyglisverðu orðum (við sem vert er að koma ræki- lega á framfæri: „Ráðgjöf, viðbótarlán, greiðslujöfnun, eða hvaða nöfnum öðrum sem ríkisstjórnin hefur kosið að kalla dúsur sínar, allar hafa þær reynst næringarlausar með öllu þegar á reyndi, enda gírugur sá móðurmunnur sem í þær átti að tyggja. Eilíft argaþvarg og karp stjórnvalda og verkalýðs- hreyfingar um krónur og aura til og frá hefur staðið meira og minna í allan vetur, þær kjarabætur sem þar hafa verið til umræðu hafa allar verið sem algjör tittlingaskítur í samanburði við þá kjarabót sem fælist í því fyrir almenn- ing ef húsnæðismál væru hér með svipuðu sniði og tíðkast með siðmenntuðum þjóðum. En það hefur réttilega verið á það bent að mál eins og þetta á ekki að vera nein skiptimynt í samningamakki út í bæ. Það hlýtur að vera skylda Alþingis að koma þessum málum í mannsæmandi horf. Það var eftirtektarvert á baráttufundi húsnæðishreyf- ingarinnar í Háskólabíó ný- lega að þar talaði aðeins einn alþingismaður, Steingrímur Sigfússon. Hann var alveg stikkfrí og allur hans flokkur af því þeir voru svo óheppnir að vera ekki tilbúnir með til- lögur sínar fyrr en þeir voru ekki lengur í ríkisstjórn. Eft- irtektarverðust varð þó ræða hans, þegar hann tók að segja hvað eftir annað við fundar- menn, þið verðið að gera þetta og þið verðið að gera hitt. Víst er frumkvæði almennings mikilvægt, en Alþingi má ekki vera og getur ekki verið stikkfrí í stórkostlegum hags- muna- og réttlætismálum eins og þessu. Gott ef stjórnarskrá- in hefur ekki eitthvað að segja um skyldur Alþingismanna varðandi lagasetningu um þjóðþrifamál." Ef við erum viss um að eitthvað gerist bráðlega, segj- um við stundum að það sé ekki spurning um hvort heldur hve- nær það verði: Með þessu akst- urslagi er það ekki spurning um hvort, heldur hvenær hann verður fyrir stórslysi. Stund- um notum við í þessu sam- bandi hið danskættaða orð tímaspursmál, en ekki þykir það til fyrirmyndar: Það er aðeins tímaspursmál hvenær þessi óþverri berst hingað. Gætum við sagt tímaspurning í stað- inn? Hvorugt orðið finn ég í orðabókum. Auðvitað getum við haft þrjú orð í stað eins: spurning um tíma. Þessar vangaveltur eru fram komnar vegna bréfs frá Sel- tirningi sem síður vill láta nafns síns getið. Hann segir meðal annars: „Fyrir nokkru hraut úr penna mínum setningin: „það er aðeins tímaspursmál hve- nær þetta gerist." Þetta var ekki gott mál og hugðist ég því bæta úr því, en þá lenti ég í strandi. Eg fann satt að segja ekkert orð sem ég gat notað fyrir „tímaspursmál", þannig að hugsunin brenglaðist ekki. Mig langar því að biðja þig að fjalla um þetta í Mogga." * Enn segir sami Seltirningur: „Þegar ég var í skóla var rík áhersla lögð á það, að sagnirn- ar að þroskast og þróast væru eingöngu til í miðmynd. Þroski og þróun kæmi „innanfrá" og enginn þroskaði annan né þró- aði annað. Nú er hins vegar farið að „þróa“ hitt og þetta, t.d. hugmyndir. Er þetta hægt, Gísli!" Að svo stöddu ætla ég ekki að svara spurningunni beint, en hið sama var mér kennt í skóla sem bréfritara um þess- ar sagnir. Sjálfur hef ég mjög mismunandi tilfinningu að þessu leyti eftir því hvor sögn- in er. Mér finnst ekkert at- hugavert við það að einhver þroski annan, sem sé að sögnin að þroska sé notuð sem áhrifssögn í germynd. Fyrir löngu iærðist mér að nota lýs- ingarháttinn þroskandi sem lýsingarorð = þroskavænlegur, og þá hlýtur sögnin að geta stýrt falli. Mér finnst reyndar að sumt hafi þroskað mig. Þá finnst mér sögnin að þroska ein höfð um persónur. Sögnina að þróa hef ég hins vegar ekki notað sjálfur sem áhrifssögn í germynd, og mér finnst hún aðeins höfð um eitthvað annað en persónur, þegar menn eru teknir að nota hana svo, sbr. að þróa hug- myndir í bréfi Seltirnings. En litum í orðabækur. Þær eiga að kenna okkur hvernig málið hafi verið fyrr og síðar. ★ í orðabók yfir skáldamáiið forna, Lexicon poeticum, er að- eins önnur sögnin, að þróast; öll dæmin eru í miðmynd. Hún er talin merkja: skjóta rótum, þrífast, vaxa. í Hávamálum segir um óvitran mann, að hon- um þróist metnaður, ef hann eignast fjármuni eða konuást. í drápu um Guðmund byskup Arason segir, að hamingja þró- aðist honum, og í bardagalýs- ingum segir að sárin þróuðust. I orðabók Johans Fritzners eru báðar sagnirnar og aðeins í miðmynd. Þroskast er þýtt: „udvikle sig til Mands Mod- enhed", en þróast: „tiltage i Omfang eller Störrelse". Úr Fornmannasögum er tilfært: „Mun hón solgit hafa yrmling nökkurn lítinn ok mun sá hafa þróazt í kviði hennar." í Heil- agra manna sögum koma báð- ar sagnirnar fyrir í nábýli: „.. .svá sem hann tók at þrosk- ast, svá tók hann at þróast í háttum heilags siðferðis." í Blöndalsorðabók er þróast þýtt: „vokse, tiltage, udvikle sig, blomstre, florere", og svo kemur athyglisvert: þroska (ekki þroskast) er = þróa, þýtt á dönsku: Modne, udvikle sig. Þetta eru fyrstu orðabókar- dæmin sem ég finn um sagn- irnar í germynd. En dæmi eru ekki tilfærð, þar sem þær kæmu fyrir sem áhrifssagnir. í Orðabók Menningarsjóðs, nýjustu útgáfu, eru báðar sagnirnar gefnar í germynd og sem áhrifssagnir, athuga- semdalaust. Þróa er = þroska, efla, láta vaxa, auka og þroska = þróa, veita þroska. Þar er orðið þróun skilgreint: „fram- vinda, atburðarás; framför, ferli frá lægra stigi til æðra“. Eftir allt þetta verð ég víst að segja að „þetta sé hægt“, enda þótt ég noti ekki sjálfur sögnina að þróa sem áhrifs- sögn fremur en ég nota sögn- ina að stöðva án þess að láta hana stýra falli. Niðurstaða: Sagnirnar, sem bréfritari spurði um, voru áhrifslausar miðmyndarsagnir í fornu máli, en nú eru menn teknir að hafa báðar í germynd og láta þær stýra falli, þroska um persón- ur, en þróa um annað en per- sónur. Má vera ég fjalli betur um þetta innan skamms, en mig langar til að koma að bréfi frá Svend-Aage Malmberg í Hafnarfirði: ★ „Hin nýja ensk-íslenska orðabók Arnar og Örlygs eftir Sören Sörenson er í takt við tímann og segir m.a. frá AIDS (Aquired Immunodeficiency Syndrome), sem er þýtt áunnin ónæmisbæklun. Eg felli mig ekki við þessa löngu þýðingu með sínum jákvæðu og nei- kvæðu forskeytum og orðliðum á víxl. Reyndi ég því að finna einhverja íslenska skamm- stöfun sambærilega við AIDS, en öll sérhljóðin í áunnin Kostnaður við heilbrigðisþ. — eftirÓlafÖrn Arnarson Undanfarið hafa farið fram í Morgunblaðinu umræður um heil- brigðisþjónustuna í landinu. Það er athyglisvert að umræðan snýst ekki um gæði þjónustunnar. Flest- ir virðast sammála um, að sá árangur sem náðst hefur á undan- förnum árum og kemur fram t.d. í langlífi, lágum ungbarnadauða og útrýmingu landlægra sjúkdóma, sé með þvi sem best gerist í heim- inum. Að sjálfsögðu má ýmislegt finna og margt getur farið betur og að umbótum er stöðugt unnið. Augljóst er einnig, að almenning- ur í landinu gerir miklar kröfur til þessarar þjónustu og vill hafa hana svo sem best gerist meðal nálægra þjóða. Um slíkt vitna viðbrögð almennings, þegar til hans er leitað með stuðning við ákveðin verkefni, sbr. söfnun Krabbameinsfélags íslands til húsakaupa fyrir starfsemi sína og nú nýverið söfnun Lionsmanna til kaupa á línuhraðli. Við sem störf- um á sjúkrahúsum verðum einnig áþreifanlega varir við mikinn áhuga og velvilja, sem kemur fram í ómetanlegum stuðningi ótal einstaklinga og félaga við þessar stofnanir. Auðvitað er þessi þjónusta dýr. Hún krefst fjölda vel menntaðs starfsfólks, sem eyðir drjúgum hluta ævinnar til undirbúnings starfi sínu. Algengt er að sérfræð- ingur í læknisfræði sé orðinn 35—40 ára, þegar hann hefur lokið námi sínu, oftast erlendis, og kem- ur heim til starfa. Þjónustu til dæmis a sjúkrahúsum þarf að veita allan sólarhringinn alla daga ársins. Styttingu vinnutíma sem aðrar stofnanir hafa getað mætt með styttri opnunartíma hafa sjúkrahúsin orðið að mæta með fjölgun starfsfólks. Kostnað- ur þeirra hefur þvf aukist hraðar og meira en ýmissa annarra stofn- ana þjóðfélagsins. Nauðsynlegt er að búa sjúkrahús góðum tækjum til lækninga og rannsókna. Allur slíkur búnaður er dýr en þar á ofan hafa menn séð ástæðu til að leggja háa tolla og skatta á margt af því sem til þarf. Ofan á inn- kaupsverð leggjast í dag í mörgum tilvikum 30% tollur, 20% vöru- gjald og loks 24% söluskattur eða um 115% álögur á innkaupsverð. Það er því ljóst að heilbrigðiskerf- ið skilar til baka umtalsverðum hluta þess sem til þess er veitt. AUar nálægar þjóðir, sem hafa komið sér upp velferðarkerfi, hafa lent í samskonar vandamálum vegna mikils kostnaðar. Ýmsar „Rekstur heilbrigöis- þjónustunnar verður hins vegar aldrei byggð- ur á hugmyndafræði- legum grunni eingöngu hvorki frjálshyggju eða sósíalisma. Jafnvel Bandaríkjamenn viður- kenna nauðsyn sam- hjálpar á mörgum svið- um og má þar t.d. nefna Medicare, sem er trygg- ing á vegum ríkisins fyrir hina öldruðu, sem þurfa á sjúkrahúsvist að halda.“ leiðir hafa verið reyndar en eng- inn hefur enn fundið þá lausn að tLVggja öllum jafnan aðgang að heilbrigðiskerfinu án tillits til efnahags. í greinum sínum í Morgunblað- inu í byrjun mars sl., sem komu þessari umræðu af stað, leggur Ingólfur Sveinsson læknir áherslu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.