Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 64
LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Gátu ekki
greitt fyrir
veitta aðstoð
ÍSAFOLD, útgerð togarans Skjaldar
•3“>iglufirði, setti fram kröfu á hendur
útgerð sovéska flutningaskipsins
Konstantin OLsman.sk iv um greiðslu
fyrir veitta aðstoð við að ná sovéska
skipinu af strandstað við höfnina á
Siglufirði.
Erlingur óskarsson, bæjarfógeti
á Siglufirði, fór um borð í sovéska
skipið í gær og skýrði skipstjóra
frá kröfunni. Samkomulag varð
um, að heimila skipinu að sigla til
ísafjarðar, þar sem landa á rækju
meðan beðið er staðfestingar frá
réttum aðilum í Sovétríkjunum um
greiðslu fjárins. Skipið fór frá
Siglufirði áleiðis til ísafjarðar
klukkan sex í gær. Rætt hefur verið
um 700 þúsund króna greiðslu til
- Mafoldar.
Skipstjóri Konstantin náði ekki
sambandi við útgerð skipsins í
Murmansk né til Moskvu. Sovéska
sendiráðiö í Reykjavík treysti sér
ekki til að tryggja greiðsluna.
Verði ekki sett fram trygging
greiðslu á Isafirði verður málið
tekið fyrir í fógetarétti. Raunar er
önnur krafa á hendur Sovétmönn-
unum væntanleg, því smábáturinn
Dröfn skemmdist við björgunarað-
gerðir.
Hin fengsæla áhöfn Suðureyjarinnar. Sigurður Georgsson skipstjóri er lengst til vinstri.
Horgunbla&ið/Sigurgeir
Wsunan nat vjum, 10. mai.
Að fornri hefð er lokadag-
ur vetrarvertíðar á morgun,
11. maí, en í seinni tíð hafa
sjómenn miðað vertíðarlokin
við 15. maí. Ljóst er orðiö að
Suðurey VE 500 verður með
mestan afla á þessari vertíð
við hvorn lokadaginn, sem
miöað verður.
Siguröur á Suðurey aflakóngur
Sigurður Georgsson og skips-
höfn hans á Suðurey lönduðu í
fyrradag 48 tonnum og var þá
afli Suðureyjar frá áramótum
orðinn 1.319 tonn. Um 300 tonn-
um meira en næsti bátur er með.
Þeir á Suðurey munu síðan
landa á morgun, á sjálfan gamla
lokadaginn, eftir tveggja daga
túr austur í Bugtir. Megnið af
afla Suðureyjar í vetur hefur
verið góður þorskur. Er afla-
verðmæti þessara 1.319 tonna
tæplega 20 milljónir króna. Þessi
upphæð margfaldast við vinnslu
og útflutning þannig að það er
ekki svo lítið sem sjómennirnir
leggja til þjóðarframleiðslunnar
og afkomu landsmanna.
Sigurður Georgsson, skipstjori
á Suðurey, er 44 ára gamall
Vestmanneyingur og hefur að
baki langan og farsælan skip-
stjórnarferil. Hann varð meðal
annars aflakóngur á síðustu
vertíð. Þá aflaði Sigurður á Suð-
ureyna sína 1.435 tonna til 15.
maí.
hkj
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Boðar tíl verkfalls 17. maí
%véska skipið Konstantin
Oismanski á strandstao a Siglufirói.
SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur
boðaði í gær til verkfalls á bátum og
minni togurum frá og með klukkan
18.00 >7. ma næstkomandi. Nær
verkfallsboðumr ti* un> 300 sjó-
mann> » xkipum þa> a> 0 togur
um, Sjomem u ston: togumnun
innan félagsins sambvkMi nint yeg-
ar samningí, í mar/ Forystumenii
Sjómannaféiagsint íara «ran á sömi:
samninga og náðus> á Vestfjerðum
Litlar líkui eru taldar á pví ao samn
ingar náist Kristjár Kagnarsson
framkvæmdastjóri LfÚ, segir ekkí
I komi til greina að semja við Sjó-
I mannafélagið í þriðja sinn.
Guðmundur Hallvarðsson for-
maður Sjómannaféiagt; Reykja-
víkur. sagði í samtai; v i Morgui
biaðið. ar meginmái’ó vær ai ne,
Vanr krrtfunui un* iaunahækkanu1
; eí'tii' atartsaidri. Au öorr. Jeyti
: i'aeri íélagiii íram á samo konar
j samníngr. og náðsu heföu ú. Veaí-
l fjörðum. Einnig ceíáiz þeíi’ rétí, aó
i við söiu á ísfísfeií gámum eriendie
: kæmi emíanieg verö til Skipía.
Þetta væri erfitr og viökvæmv.
mál, en félagar í Sjómannafélag-
inu hefðu fyrir sér sérsamninga
um allt, iant og þeir ætluðu sér
ekk m’nna er aðriv
Rristiái Ragnarssor sagði aé
vtui.Mibröge Sjoniannaiétagsnífi
i /ær; meii ondemimi. Fni væv?
| komiii iram meo kröfui1, seni okki
| heföw séafc áöur í þessum viöræö-
| snm og æfclazfc íii þess, aö aamiö
L yröi viö þú í þriöja siot, eftir ae
| þeir hefði- fcwlvegÍE felft gerða
samninga. Þeim hefði verið svaraij
því, aö LÍÚ íreysfci sév ekki cxl aö
ganga að kröfum þeirra og koma
þannig aftan að þeim, sem áður
hefðu samþykkt gerða samninga í
þeirri trú, að þeir væru endanteg-
ir. Ríkisstjórnin hefð> beit.t; sér
fyrir vermegunr 'irbotun t,i(
i handa sjómönnun, r,i; ad greiði',
iyrir (ausií kjaradeihiaima, en ailfc
kæmi iyriv ekki.
j , Sjómannaféiag Reykjavíkui'
♦olldi slðustu geröa samninga írá
marzbyrjun, met 2C atkvæðun
í gegi 16.
Vætusamt
sunnanlands
Erlendir ferðamenn hafa verið
óvenju margir hérlendis í vetur og
síðustu daga hefur þeim enn fjölgað
á götunum. Ferðamaðurinn á
myndinni hefur gripið til þess ráðs
að setja yfirbreiðslu ofan á bakpok-
ann. Um helgina gæti orðið nauð-
syn á slíkum búnaði fyrir ferða-
menn í Reykjavík. Spáð er suðvest-
an- og sunnanátt á suðvesturhluta
landsins með úrkomu. Norðanlands
og austan má hins vegar búast við
mun betra veðri.
30 tilfelli hermannayeiki
greind hér — 5 dauðsföll
Bakteríunnar leitað f sumar, einkum í heitu vatni
HERMANNAVEIKI greindist í tæp-
lega 30 sjúklingum á Borgarspítalan-
um og Landspítalanum á tímabilinu
október 1983 til sama mánaðar á síð-
asta ári. Talið er að 5 manns hafi
látizt af völdum veikinnar á þessu
tímabili. Veikin greindist í sérstakri
rannsókn á lungnaveikisjúklingum,
en hermannaveiki er afbrigði af
hingnabólgu. f rannsókninni komu í
Ijós dæmi um sýkingu innan Land-
spítalans. Bakteríur, sem valda her-
mannaveiki, eru aðallega í vatni og
beitu og talið er að í hitaveituvatn-
inu hér á landi geti þessar bakteríur
dafnað betur en annars staðar.
Sigurður B. Þorsteinsson, læknir
við Landspítalann, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að þessi tilfelli
hefðu komið upp í rannsókn á
orsökum lungnabólgu á Landspít-
alanum á eins árs tímabili. Allir,
sem inn hefðu komið með lungna-
bólgu og þeir, sem sýkzt hefðu á
spítalanum, hefðu verið rannsak-
aðir mjög vel. Svipuð rannsókn
^»fði einnig verið gerð á svipuðum
tíma á Borgarspítalanum. Á Land-
spítalanum hefði orðið vart 18 til-
fella hermannaveiki hjá um 100
sjúklingum, en 9 tilfella á Borg-
arspítalanum hjá sama fjölda
sjúklinga. Blóðvatnssýni hefðu ver-
ið tekin hjá þessum sjúklingum og
þau send til Danmerkur og mæld
þar með tilliti til mótefna gegn
þeim bakteríum, sem yllu her-
mannaveikinni og hefðu niðurstöð-
ur verið að berast fram á þennan
dag. Það hefði komið læknum mjög
á óvart, að hermannaveikin virtist
önnur eða þriðja algengasta tegund
lungnabólgu á fslandi og ljóst væri,
að sjúklingar úr þeim hópi, sem
með veikina hefðu verið, hefðu lát-
izt. Ennfremur virtust einhverjir
hafa tekið veikina inni á Landspít-
alanum, sem vissulega væri mikið
úhyggjuefni.
Sigurður sagði, að hér væri að-
eins um mótefnamælingar að ræða,
en þær væru ekki eins örugg leið til
að greina sjúkdóminn og bakteríu-
ræktun. Hún hefði aðeins tekizt i
einu tilviki hérlendis. Þar væri um
að ræða sjúkling, sem sýkzt hefði
erlendis. Baktería af völdum inn-
lendrar sýkingar hefði aldrei rækt-
azt. f sumar yrði síðan hafin um-
fangsmikil leit af bakteríunni í um-
hverfinu, en þess mætti geta að
þessi baktería lifði fyrst og fremst
í vatni og kannski sérstaklega í
heitu vatni. Því gæti verið að í
hitaveitulandi eins og íslandi væri
meira af þessar bakteríu en gengur
og gerist í öðrum löndum.
Þessi baktería væri talsvert út-
breidd í umhverfinu og þeir, sem
líklegastir væru til þess að sýkjast
væru þeir, sem væru með eitthvað
veiklaðar varnir. Til dæmis fólk
með langvinna lungnasjúkdóma,
stórreykingafólk eða fólk liggjandi
inni á sjúkrahúsum með lítinn við-
námskraft af völdum veikinda. f
flestum tilfellum væri þó um ein-
stök dæmi veikinnar að ræða, ails
ekki væri hægt að tala um faraldur
hér á landi og því ekki mikil ástæða
til að örvænta, en alltaf annað
slagið kæmu upp stórir faraldrar
erlendis, sem sýktu fleiri en þá,
sem væru veikir fyrir. Þeir stöfuðu
þá <if einhverjum óvenjulegum að-
stæðum á viðkomandi stöðum,
hvort sem það væri hótel í Phila-
delphiu eða sjúkrahús í Englandi.
Fyrir heilbrigt fólk virtist sýk-
ingarhættan vera tiltölulega lítil.
Hermannaveiki kom fyrst upp í
Philadelphiu fyrir nokkrum árum á
fundi uppgjafa hermanna á hóteli
þar og létust allmargir þeirra.
Bakterían var þá talin hafa verið í
loftræstikerfi, en veikin hefur síð-
an verið kölluð hermannaveiki.
Fyrir skömmu kom upp faraldur á
sjúkrahúsi í Englandi.