Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir ÁGÚST ÁSGEIRSSON
Norska þinghúsið. Kosið verður til Stórþingsins í september nk., og benda skoðanakannanir til að stjórn
borgaralegu flokkanna haldi velli.
Kosningar í Noregi f haust:
Borgaraleg stjórn
heldur líklega velli
NORÐMENN ganga til þingkosninga í september. Nýjustu skoðana-
kannanir benda eindregið til þess að borgaraleg stjóm verði áfram við
völd eftir kosningar. Niðurstöður landsfunda stjórnmálaflokkanna í vor
ýta undir þá skoðun. En minnugir úrslita tveggja síðustu þingkosninga
veigra flokksleiðtogar sér við því að lýsa sigurlíkum fyrirfram.
Avorfundum borgaralegu
flokkanna kom greinilega í
ljós að stjórnarflokkarnir eru
nær hver öðrum nú en fyrir fjór-
um árum, og að stjórnarsam-
starfið mun halda áfram haldi
flokkarnir meirihluta sínum.
Ekki eru lengur fyrir hendi
ágreiningsefni, sem m.a. ollu
erfiðleikum við stjórnarmyndun
fyrir fjórum árum. Þá deildu
flokkarnir um stefnu í olíumál-
um, afstöðu til fóstureyðinga,
stefnu í öryggismálum og
skattamálum.
Skoðanakannanir að undan-
förnu gefa ótvírætt til kynna
hvert stefnir. Samkvæmt þeim á
Miðflokkurinn fylgisaukningu að
fagna, og Kristilegi þjóðarflokk-
urinn mun halda sínu. Staða
Hægri, stærsta stjórnarflokks-
ins, er traust. Framfaraflokkur-
inn, sem er lengst til hægri í
norskum stjórnmálum, hefur
misst þá fótfestu, sem hann
hafði. f síðustu kosningum hlaut
flokkurinn 4 þingsæti með því að
berjast fyrir stóreflingu land-
varna, afnámi skatta og félags-
legrar þjónustu.
Samkvæmt könnununum hef-
ur Verkamannaflokkurinn aukið
fylgi sitt frá síðustu kosningum,
en hins vegar hefur dregið úr
fylgi flokksins miðað við skoð-
anakannanir frá i fyrrahaust. í
september 1981 hlaut flokkurinn
37,6% atkvæða, en nú virðist
fyígi flokksins í kringum 40%.
Vantar talsvert á 43% fylgi, sem
færði flokknum þingmeirihluta.
Kosningabandalag
Það er einkum athyglisvert við
nýjustu kannanir á fylgi norsku
flokkanna, að þær eru mjög sam-
hljóða könnunum, sem gerðar
voru á sama tíma fyrir fjórum
árum, hálfu ári fyrir kosn-
ingarnar 1981. Kannanirnar
staðfesta að tveir flokkar eru af-
gerandi pólar í segulsviði
norskra stjórnmála, Hægri og
Verkamannaflokkurinn. Eftir
mikla hægribylgju hafa borg-
aralegu flokkarnir treyst sig í
sessi.
í kosningunum í haust er von
á því að einstakir flokkar myndi
með sér kosningabandalag, þar
sem ekki hefur náðst samstaða
um breytingar á kosningafyrir-
komulaginu. Einkum er talið að
bandalag kynni að styrkja mið-
flokkana, Kristilega þjóðar-
flokkinn og Miðflokkinn. Hvorki
Hægri né vinstriflokkarnir eru
yfir sig hrifnir af stofnun kosn-
ingabandalaga. Hins vegar eru
líkur á samstarfi stjórnarflokk-
anna í sumum kjördæmanna.
Ekki er búist við kosninga-
bandalagi Verkamannaflokksins
og Vinstriflokksins, m.a. vegna
ágreinings flokkanna í grund-
vallarmálum. Einnig óttast for-
ysta Verkamannaflokksins að
þeir sem eru hægra megin í
flokknum kynnu að segja skilið
við flokkinn ef blásið yrði til
bandalags við Vinstriflokkinn.
Kosningafyrirkomulagið er
mjög hagstætt stóru flokkunum.
Sú staðreynd að Verkamanna-
flokkurinn hlyti þingmeirihluta
með aðeins 43% kjörfylgi ergir
einkum fylgismenn borgaralegu
flokkanna. Reynt var að ná sam-
stöðu allra flokka um breytingar
á kosningafyrirkomulaginu er
leiða mundi til meiri jöfnuðar
milli fylgis og sætafjölda, en án
árangurs. Varð ofan á að heimil-
að var að stofna kosningabanda-
lag fleiri flokka við kosningarn-
ar í haust. Verkamannaflokkur-
inn setti síg þó á móti frumvarpi
þar að lútandi, sagði kosninga-
bandalög valda ruglingi og kjós-
endur myndu ekki vita hverjum
þeir væru að greiða atkvæði sitt.
Niðurstaðan varð sú að kjósandi
getur krafizt þess að atkvæði
hans nýtist aðeins þeim flokki
sem viðkomandi kaus.
Búist er við að kosningabar-
áttan komi til með að snúast um
efnahagsmál. Talsmenn Hægri
leggja áherzlu á að uppgangur
og efnahagsframfarir verði not-
aðar til að tryggja frekari vöxt.
Jafnaðarmannaflokkarnir í
stjórnarandstöðu telja að fyrst
og fremst verði kosið um hvort
og hvernig hið opinbera skuli
tryggja vöxt og viðgang velferð-
arþjóðfélagsins. Einnig verður
tekist á um atriði sem styttingu
vinnuvikunnar, lækkun eftir-
launaaldurs, og stöðu sýslna- og
sveitarstjórna. Barátta litlu
flokkanna mun líklega snúast
um byggðastefnu, umhverfis- og
menningarmál.
Uppgangur
Erik Norvik leiðtogi Hægri er
bjartsýnn. Hann segir meðul
stjórnarinnar tekin að virka og
þó ekki séu Norðmenn lausir við
öll efnahagsvandamál, þá sé
hagvöxtur nú meiri en nokkru
sinni frá 1977. Iðnaður sé á upp-
leið og atvinnuleysi fari minnk-
andi. Verðbólga sé komin niður
fyrir meðaltal OECD-ríkjanna,
sé 4,9%, miðað við 5,5% meðal-
tal. Árið 1981 hafi verið ókyrrð á
vinnumarkaði og samskiptaörð-
ugleikar við alþýðusamtökin
(LO). Ástandið sé öðru vísi í dag,
verkföll fátíðari og í fyrra hafi í
fyrsta sinn í sjö ár náðst kaup-
máttaraukning launa. Norvik
gagnrýnir kröfur Verkamanna-
flokksins um stóraukin umsvif
hins opinbera á ýmsum sviðum.
Hefði það í för með sér gífurleg-
ar skattahækkanir, að hans
sögn.
Gro Harlem Brundtland leið-
togi Verkamannaflokksins kveð-
ur efnahagsbata hafa hjálpað
stjórninni. Hún segir þó að þær
framfarir hafi ekki orðið, sem
stjórnarflokkarnir hrósa sér af.
Helzta hálmstrá hennar er að
ekki hafi orðið sú fjölgun á
sjúkrarými sem og meðan hún
var við völd. Verkamannaflokk-
urinn mun gera styttingu vinnu-
vikunnar að kosningamáli og
krefjast m.a. 6 stunda vinnu-
dags. Einnig að eftirlaunaaldur
verði lækkaður. Norvik telur
óhjákvæmilegt að vinnuvika
styttist, en það verði að gerast í
áföngum, svo röskun verði sem
minnst. Er hann á móti lækkun
eftirlaunaaldurs og skyndilegrar
vinnustyttingar, slíkt kefðist
launalækkunar.
Að þessu sinni munu varnar-
mál tæpast verða jafn ofarlega á
baugi og áður. Hafa stjórnar-
flokkarnir nálgast hver annann í
þeim efnum og samstaða um öll
grundvallaratriði stefnunnar.
Kosningabaráttan fer senn í
hönd og kemur þá betur í ljós
hvaða farveg flokkarnir kjósa
sér til að vinna traust kjósenda,
en kosið er í september.
Hcimild: Hurudstadsbladet
Dorchester-hótel í Lundúnum:
Soldáninn situr
uppi með Regent-
fyrirtækið
Lundúnum, 10. maf. AP.
ÁFRÝJUNARRÉTTUR í Lundúnum
synjaði í dag beiðni soldánsins í
Brunei, að fá að svipta fyrirtækið
Regent International Hotels rétti til
að reka hið virðulega Dorchester-
hótel í borginni, sem hann keypti í
janúar fyrir 43 milljónir sterlings-
punda (jafnvirði um 2,2 milljarða ísl.
króna).
Þegar soldáninn keypti hótelið
gerði hann samning við Regent-
fyrirtækið um, að það tæki að sér
reksturinn til fimmtán ára.
Starfsfólkið er mjög óánægt með
þennan samning og telur að virð-
ing hótelsins hafi orðið fyrir
hnekki. Starfsfólkið bendir á, að
þau hótel sem Regent rekur í Asíu
séu ekki í sama gæðaflokki og
Dorchester, og margs konar
stjórnunarleg mistök hafi verið
gerð á undanförnum vikum.
Penny Jolly, sem er talsmaður
soldánsins, segir að hann taki
mark á kvörtunum starfsfólksins
og hafi þess vegna óskað eftir því,
að nýir aðilar taki við rekstrinum.
Regent-fyrirtækið hefur hins veg-
ar ekki fallist á það.
Tískulínur kynntar
AP/Símamynd
Tískuhúsin í Evrópu og Bandarfkjunum eru sem óóast aó sýna nýju
línuna hvert fyrír sig og þá er ekki verið að tala um vor- og sumarti.sk-
una. Nei, fólk er þegar farið að draga þcr spjarir á sig. Nú er það haust-
og vetrartískan sem gildir og þeir sem enn eru að sýna þykja meira að
segja seinir til. Þessar myndir eru frá tískusýningu „Scaasi“ í New
York og við látum þcr tala sínu máli.
Næy-smátölva
sem þýðir 5000
orð á klukkustund
Tókýó, 10. nuí. AP.
JAPANSKA raftckjafyrirtckið
Toshiba hefur hannað nýja tegund
sem er sérhcfð í þýðingum. Snarar
tölva þessi enskri tungu yfir á jap-
önsku með rúmlega 90 prósent
nákvcmni. Hér er um smátölvu að
rcða, hina fyrstu sem nota má til
þýðinga svo fljótt og vel.
Kenichi Nori, talsmaður Tosh-
iba sagði fréttamönnum, að tölva
þessi gæti þýtt 5000 orð á hverri
klukkustund, sem væri að jafnaði
þriðjungur af þeim tíma sem van-
ur maður þyrfti til að þýða sama
orðafjölda. Sagði Nori að tölva
þessi myndi fyrst og fremst njóta
sín til að þýða tæknilega og vís-
indalega texta sem mikið nostur
þarf við.
Tölvu þessari fylgir allt, inn-
skriftarborð, skermur og útskrift-
artæki. Á skerminum má bæði sjá
enska textann og hina japönsku
þýðingu hlið við hlið. í heila tölv-
unnar er 130.000 orða minni og
30.000 orðatiltæki til reiðu fyrir
hinar ýmsu greinar. Þeir sem nota
tölvuna geta auk þess notað 50.000
orð til viðbótar án þess að rugla
gripinn í ríminu.
Nokkur önnur japönsk fyrirtæki
hafa hannað slíkar þýðingartölv-
ur, en allar eru þær miklu stærri
en Toshiba-tölvan. Aðeins er hægt
sem stendur að fá þýðingar úr
ensku, en verið er að hanna nýjar
með öðrum tungumálum. Umrædd
tölva kemur á markaðinn i des-
ember.
England:
Fleiri deyja úr
hermannaveikinni
London, 10. maí. AP.
KONA á áttrcðisaldri lést í dag úr
hermannaveikinni svokölluðu og eru
þá 32 látnir úr þessari veiki í borg-
inni Stafford í Mið-Englandi. Er far-
aldurinn sá versti, sem um getur
hvað þennan sjúkdóm áhrcrir.
Raunar hefur það aðeins verið
staðfest með sex hinna látnu, að
þeir hafi dáið af völdum her-
mannaveikinnar en talið er nærri
fullvíst, að hinir 26 hafi einnig
orðið henni að bráð enda einkenn-
in öll þau sömu. Mikil leit hefur
verið gerð að upptökum veikinnar
og leikur mönnum nú helst grunur
á, að veiran kunni að leynast í
kæliturnum orkuvers í borginni og
berast þaðan með loftinu um ná-
grennið, m.a. inn í sjúkrahúsið
skammt frá þar sem margir hafa
veikst.
í Stafford hafa 148 manns
veikst en veikinnar hefur einnig
orðið vart annars staðar. Um 200
manns fá hermannaveikina í
Bretlandi ár hvert og að jafnaði
verða um 20 að lúta í lægra haldi
fyrir henni.