Morgunblaðið - 11.05.1985, Síða 31

Morgunblaðið - 11.05.1985, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1085 31 'mSfr -i 1 >v AP/Símamynd Við „grænu Iínuna“ íBeirút Stöðugir bardagar eru, að heita má, við hina svonefndu „grænu línu“, sem skihir að austur- og vesturhluta Beirútborgar í Líbanon. Í austur- hlutanum búa múhameðstrúarmenn, en kristnir menn i vesturhlutan- um. Myndin sýnir tvo herskáa múhameðstrúarmenn austan megin línunnar. Annar býr sig undir að skjóta úr sovéskri sprengjuvörpu, en hinn úr ríffli af gerðinni G-3. Rúmenar, sem reknir vora frá V-Þýskalandi: Ætluðu að sprengja upp útvarpsstöð Bonn, 10. maí. AP. ÞRÍR þeirra fimm rúmensku stjórnarerindreka, sem reknir voru frá Vestur- Þýskalandi í nóvember á síðasta ári, höfðu áformað að sprengja upp höfuð- stöðvar Útvarps frjálsrar Evrópu (Radio Free Europe) í Miinchen. Þetta kemur fram í skýrslu, sem innanríkisráðuneytið í Bonn sendi frá sér i gær. Upplýst er, að mennirnir, Constantin Ciobanu, Dan Mihoc og Ion Constantion, sem allir störfuðu við sendiráð Rúmeníu í Bonn, fengu skipanir um að koma fyrir sprengju i útvarpsstöðinni frá yfirboðurum sínum í Búkarest sumarið 1983. Jafnframt fengu þeir fyrirmæli um að ræna rúm- enskum flóttamanni í Vestur- Þýskalandi. Innanrikisráðuneytið í Bonn Sovétríkin: Dregið skal úr skrifræðinu innan kommúnistaflokksins Bréfadeild miðstjórnarinnar lögð niður MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, hefúr nú látið loka einni deildinni í hinu þunga og umfangsmikla bákni skrifræðisins, sem einkenn- ir miðstjórn kommúnistaflokksins, og jafnframt er talið, að önnur deild til viðbótar verði lögð niður. að það eigi að losa þær við skrif- finnskuna eftir föngum. Talið er, að um 150 manns hafi starfað við þessa deild, en eftirleiðis eiga um 10 starfsmenn almennu deildar- Þeirri deild, sem þegar hefur verið lögð niður, var komið á fót 1978 af Leonid Brezhnev i því skyni að taka við og svara bréfum bæði frá félögum í kommúnista- flokknum og frá almenningi. Konstantin Chernenko átti einnig mikinn þátt í þeirri hugmynd að koma þessari deild á laggirnar, en hann var þá hægri hönd Brezhnevs og yfirmaður hinnar almennu deildar miðstjórnar flokksins, sem hafði yfírumsjón með starfsemi þessarar nýju deildar. Chernenko lagði mikla áherzlu á — bæði áður en og eftir að hann var kjörinn leiðtogi Sovétríkj- anna — að bréf væru rétt samin. Hélt hann því fram, að það skipti miklu máli fyrir þá tegund af lýð- ræði, sem fyrir hendi væri í Sov- étríkjunum. En þessi skoðun fann greinilega ekki mikinn hljóm- grunn hjá nefnd einni, sem nú hefur nýlokið að kanna starfsemi þessarar deildar. Formaður þess- arar nefndar var Yegor Ligachov, skjólstæðingur Andropovs, sem i síðasta mánuði fékk sæti i stjórn- málaráðinu og er nú sennilega næstvoldugasti maðurinn innan flokksins. Bæði Ligachov-nefndin og Gorbachov virðast hafa talið, að þessi deild hafi aðeins leitt af sér ónauðsynlega skriffinnsku, ekki sizt sökum þess að mikið af starfi hennar fólst í þvi að senda bréf til baka til þeirra stofnana, sem sendu þau til hennar. Niðurlagning þessarar deildar er í samræmi við þá stefnu And- ropovs og siðan Gorbachevs, að ýmsar stofnanir flokksins eru orðnar allt of umfangsmiklar og Mikhail Gorbachev innar að taka að sér störf þeirra. Enda þótt breytingar á starfs- háttum miðstjórnar flokksins séu almennt ekki kunngerðar opin- berlega, þá er víst, að skýrt verð- ur frá þessari breytingu og að lit- ið verður á hana sem mikilvægan vott um viðhorf flokksforystunn- ar á þessu sviði. Þetta á eftir að vekja enn meiri eftirtekt, ef orð- rómur um fyrirhugaða lokun hinnar alþjóðlegu uppiýsinga- deildar miðstjórnarinnar reynist á rökum reistur, en það var einn- ig Brezhnev, sem kom þeirri deild áfót. Yfirmaður þeirrar deildar, Leonid Zamyatin, fyrrum sendi- herra og yfirmaður TASS, kom fram sem talsmaður Brezhnevs og Chernenkos í utanrfkismálum. Vitað er, að það starf að safna saman erlendum upplýsingum og flokka þær fyrir flokksforystuna, var innt af hendi af TASS fram til ársins 1978 og að sú stofnun gæti auðveldlega framkvæmt þetta starf á ný. fékk fregnir af þessum ráðagerð- um þegar háttsettur starfsmaður rúmensku leyniþjónustunnar flúði úr landi í fyrra. I framhaldi af því var Rúmenunum vísað úr landi. Talsmaður sendiráðs Rúmena í Bonn sagði í dag, að hann vildi ekkert segja um skýrsluna. „Við höfum áður visað þessum ásökun- um á bug,“ sagði hann við frétta- mann AP. Útvarp frjáls Evrópa sendir út fréttir og fréttaskýringar á mörg- um tungumálum til Austur- Evrópu, og systurstöðin Útvarp frelsi (Radio Liberty) sendir sams konar efni til Sovétríkjanna. Stjórnvöld i kommúnistarikjunum hafa margsinnis fordæmt rekstur þessara stöðva og hafa uppi búnað til að trufla útsendingar þeirra. Costa Rica styður ekki viðskipta- bannið Su Joaé, 10. nuf. AP. COSTA Rica styður ekki viðskipta- bann Bandarfkjanna á Nicaragua, að því er utanríkisráðherra landsins upplýsti í gær. í yfirlýsingu ráðherr- ans segir, að slfkur stuðningur bryti í bága við lög og truflaði tilraunir Contadora-ríkjanna til að finna fríð- samlega lausn á ágreiningsmálum í Mið-Ameríku. Ráðherrann bendir að auki á, að Costa Rica eigi aðild Efnahags- bandalagi Mið-Ameríku og hafi gert friðar- og vináttusamning við Nicaragua árið 1948, og þetta tvennt komi í veg fyrir, að unnt sé að styðja viðskiptabannið. Costa Rica, sem er gróið lýðræð- isríki, hefur lýst sig hlutlaust í deilum ríkjanna i Mið-Ameríku. Noregur: Nýjar fiski- mjölstöflur lofa góðu Osló, 10. mxi. Frá Jan Erik Laure, fréttar. MbL NORÐMENN eru að hefja fram- leiðslu á nýrri tegund fiskimjöls- tafia sem nefnast „nutab“. Er fyrirbærinu lýst sem „undralyfi" og þá einkum fyrirbyggjandi gegn ýmsum nútímasjúkdómum, eink- um hjartveiki. Það er fyrirtæki í Bergen sem hefur hafið framleiðslu á „nutab" og í fyrstu mun fyrir- tækið setja 50 milljónir taflna á Noregsmarkað og metta hann. Þá er verið að athuga markað- inn í Bandarikjunum, Japan og víðar, en hann er sagður góður. Tilraunir sem gerðar hafa verið sýna hvursu gott heilsu- fæði hér er á ferðinni, en efni „nutab" er aðeins fiskimjöl, bindiefni og svo „dill", sem er einkum notað til að gefa hverri töflu viðkunnanlega lykt. Fram- leiðendurnir í Bergen hugsa sér að framleiða 3 milljónir taflna í viku hverri þegar framleiðslan er komin í fullan gang. MATSEÐILL Tryggvagötu 22, sími 11556

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.