Morgunblaðið - 11.05.1985, Síða 17

Morgunblaðið - 11.05.1985, Síða 17
MOftGWNBIiAPIÐ, flMTOMtDflOURHW MAl (M85 Hhiti Kópavogskaupstaöar árið 1956 — ári eftir að kaupstaðarréttindi fengust Nýleg mynd af Kópavogskaupstað. 'stendur austar á hálsinum en Digranesskóli. Af þessari upptaln- ingu sést að mikið hefur verið gert í þessum málum. Fyrirhugað er að hótel og veitingaskóli verði í Kópavogi. Sundlaug var tekin í notkun á Rútstúni í vesturbæ 1%7. Þetta er þó aðeins hluti af fyrirhugaðri byggingu. Þá eru uppi hugmyndir um sundlaug við íþróttahúsið Digranesi. Að mestu er lokið við byggingu Félagsheimilisins. Þar er auk bæj- arskrifstofanna Leikhús Kópa- vogs, en Leikfélag Kópavogs hefur oft starfaö með miklum blóma þrátt fyrir erfiða aðstöðu. Þá er i húsinu aðstaða fyrir félagsstarf aldraðra. 1972 tókust samningar við Reykjavíkurborg um að Hitaveita Reykjavíkur legði hitaveitu í Kópavog sem framkvæmt var á fáum árum, þetta tel ég vera eitt mesta happ fyrir Kópavogsbúa. Byggður hefur verið góður íþróttaleikvangur sunnan Fífu- hvammslækjar, það er grasvöllur með hitalögnum undir og yfir- breiðslu til að verjast að hann blotni um of. Þetta hefur gefið góða raun. Framkvæmdum er ekki lokið við leikvanginn, m.a. er eftir að ganga frá hlaupabrautum og fleiru. Malarvöllur er í vesturbæn- um og er hann flóðlýstur. Midbærinn 1971 var hafinn undirbúningur og siðan framkvæmdir við upp- byggingu miðbæjar í Kópavogi. Mikið er búið að framkvæma þó svo margt sé eftir. Þar eru íbúð- arhús og verslanir. Þá eru bíla- stæði á 2 hæðum undir íbúðunum. öryrkjabandalagið byggði þar stórhýsi. Kópavogsbær hefur rétt til að ráðstafa nokkrum íbúðum þar, hefur sú samvinna gengið Grillveizla í Vinnuskóla Kópavogs fyrir 3 árum. mjög vel. Á jarðhæð hússins er mötuneyti. Kópavogsbær gerir mikið fyrir aldraða ibúa auk þess, sem getið hefur verið eru einnig æfingar fyrir þá í íþróttahúsinu við Kársnesskóla. Þá er heilsugæslustöð á svæðinu með alhliða heilsugæslu og endur- hæfingastöð sem sjúkraþjálfarar reka. Bókasafniö og náttúru- fræðistofa Bókasafn Kópavogs var stofnað 1953, það var fyrst til húsa í Kópa- vogsskóla og síðan Félagsheimil- inu, en er nú í nýbyggingu í Fann- borginni. Safnið á nú 58 þúsund bindi. Margar góðar gjafir hafa safninu borist m.a. gáfu hjónin Valgerður Þórarinsdóttir og Stef- án A. Guðjónsson sl. haust safn- inu 7000 hæggengar hljómplötur með sígildri tónlist. Áformað er að kaupa öflug og góð hljómflutn- ingstæki, svo hægt verði i framtíð- inni að njóta sem best þessarar merku gjafar. Jón úr Vör var bókavörður allt frá stofnun safnsins til 1976. Þá réðst Hrafn Harðarson, bóka- safnsfræðingur að safninu. Bóka- safnið er tölvuvætt. Náttúrufræði- stofan er í kjallara hússins númer 12 við Digranesveg, þar er m.a. fullkomnasta safn skeldýra, sem til er á landinu, en það var keypt af Jóni Bogasyni. Lista- og menningar- sjóður, tónlistarmál Lista- og menningasjóður var stofnaður 1965 og er varið til hans 0,5% af útsvörum bæjarbúa. Sjóð- urinn hefur styrkt margþætta menningarstarfsemi í bænum, auk þess sem hann hefur keypt tals- vert af listaverkum. f umsjón stjórnar sjóðsins eru og tvær merkar gjafir sem bænum hafa verið gefnar, þar er um að ræða gjöf ættmenna hinnar merku listakonu Gerðar Helgadóttur, m.a. verk hennar og skissur að verkum, og í öðru lagi gaf sonur lista-hjónanna Barböru og Magn- úsar Árnasonar bænum verk þeirra, þetta eru stórmerkar gjaf- ir. Til stendur að byggja listasafn á miðbæjarsvæðinu í framtíðinni. Tónlistarskóli Kópavogs er víð- frægur. Hann er til húsa á mið- bæjarsvæðinu. Aðsókn að skólan- um hefur ávallt verið mikil og margir góðir tónlistarmenn hafa stundað nám þar. Skólastjóri hef- ur frá upphafi verið Fjölnir Stef- ánsson. Skólahljómsveit Kópavogs var stofnuð 1966, sveitin hefur um áraraðir gert garðinn frægan inn- an lands og utan. Hornaflokkur Kópavogs hefur starfað frá 1975 við góðan orðstír. Stjórnandi hef- |ur verið frá upphafi Björn Guð- mundsson. Söngkór Kársnesskóla hefur starfað með miklum ágætum og komið oft fram hér heima og er- lendis. Stjórnandi kórsins hefur frá upphafi verið Þórunn Björns- dóttir. Fleira mætti telja en verð- ur ekki gert. Strætisvagnar Kópavogs og samgöngumál Strætisvagnar Kópavogs tóku til starfa 1957. Landleiðir höfðu þá frá árinu 1951 annast ferðir um byggðina en Kópavogsbúar köll- uðu á aukna þjónustu. Starfsemi SVK jókst stöðugt með aukinni byggð. Nú ferðast 4—6000 manns með vögnunum daglega. Ekki verður svo skilið við samgöngumálefni og gatnagerðina án þess að geta um Hafnarfjarð- arveginn. Eftir 1960 var svo komið að hin mikla umferð um Hafnarfjarðar- veginn nánast skipti bænum í tvo hluta, sem verulegum erfiðleikum og hættum ollu. Vegalögin frá 1963 gerðu ráð fyrir því að fjöl- mennustu sveitarfélögin sæu að verulegum hluta um iagningu þjóðvegar um þéttbýli. Miðað við aðstöðuna hér í Kópavogi var þetta verkefni bænum algjörlega ofviða svo að viðunandi yrði til frambúðar. Þáverandi samgöngu- málaráðherra Ingólfur Jónsson gerði sér fljótt grein fyrir sérstöðu Kópavogs i þessu máli og reyndist okkur mjög vel. Nefnd á vegum bæjarstjórnar og ríkisins vann að lausn málsins og á fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir kosningarnar 1966 sam- þykkti hún það samkomulag, sem náðst hafði milli Kópavogs og ríkisins. Framkvæmdir hófust 1968 og tók Björn Einarsson að sér framkvæmdastjórn og leysti það verk af hendi með miklum sóma. Við fuiltrúar Kópavogs héldum því ávallt fram að við teldum að þessi framkvæmd yrði kostuð að mestu af ríkinu. Samgönguráðherrar sýndu þessu fullan skilning. Ég hef áður getið Ingólfs Jónssonar sem átti stærstan þáttinn í þessu máli. Þar næst vil ég nefna Hannibal Valdi- marsson og að lokum Björn Jóns- son, sem 1973 tók af skarið um að ríkið yfirtæki veginn aiveg. Þessi framkvæmd var á sinum tíma sér- stök þar sem brýr voru byggðar í stað gatnamóta eða hringtorgs. Þetta var erfiðasta málið sem ég vann að sem fulltrúi Kópavogs, en það var að mestu að tjaldabaki ef svo má að orði komast og verður ekki getið hér. Félagsleg þjónusta Þrátt fyrir að ávallt hafi verið í mörg horn að líta varðandi fram- kvæmdir hefur Kópavogur ávallt veitt mikla félagslega þjónustu. Félagsmálastofnun Kópavogs hef- ur orðið ýmsum öðrum sveitarfé- lögum fyrirmynd. Getið hefur ver- ið um málefni aldraðra, en þó til viðbótar má nefna að nú eru í und- irbúningi byggingar íbúða sem verða að hluta til eign bæjarins og standa einnig til boða öldruðu fólki til kaups. Mikil áhersla hefur verið lögð á byggingu dagvistarstofnana og eru 7 í bænum. 30 leiguíbúðir eru í eigu bæjarins. Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð er sjálfseignarstofnun, sem fé- lagasamtök í bænum beittu sér fyrir undir forystu Ásgeirs Jó- hannessonar. í kjallara bygg- ingarinnar er verndaður vinnu- staður. Bærinn hefur gengist fyrir byggingu verkamannabústaða. Félagslíf er mikið í bænum og mörg félög starfandi, sem hér verða ekki talin. Íþróttalíf er mik- ið. Norrænt samstarf Hjálmar ólafsson gekkst fyrir stofnun Norræna félagsins í Kópavogi 1962 og síðar að tekin yrði upp vinabæjasamskipti. Hjálmar var mikill áhugamaður um norrænt samstarf, sama má segja um þá bæjarstjóra sem síðar hafa verið hér, svo og bæjar- stjórnirnar. Vinabæir Kópavogs eru: Angm- assalik á Grænlandi, Klakksvík i Færeyjum, Mariehamn á Álands- eyjum, Norrköping í Svíþjóð, Odense í Danmörku, Tampere í Finnlandi og Þrándheimur í Nor- egi. Mikil samskipti hafa verið milli vinabæjanna á sviði íþrótta, hóp- ferða eldri og yngri, kynningar á bæjunum meðal skólanemenda, en þýðingarmest hlýtur að vera að æskulýður þessara bæja kynnist. Þá hafa verið haldin vinabæjamót þar sem fulltrúar bæjanna, nor- rænu félaganna og fleiri hittast, hafa skapast sterk persónutengsl í þessu sambandi. Ýmislegt Lengi vel var svo að Kópavogur var nánast svefnbær, fá atvinnu- tækifæri voru þá í byggðinni, þetta hefur breyst mikið. Nú er Kópavogur mikill iðnaðarbær. Þar er og fjölbreytt verslunar- og þjónustufyrirtæki. Bankar eru 5 með útibúum, þar er Sparisjóður Kópavogs elstur og er staðsettur á miðbæjarsvæðinu en útibú í aust- urbæ. Útvegsbankinn einnig stað- settur á miðbæjarsvæðinu, en einnig með útibú í austurbæ. Bún- aðarbankinn er í miðbænum. Áður fyrr þurftu Kópavogsbúar að sækja kirkju til Reykjavíkur, en 1952 var stofnað prestakall fyrir Bústaðahverfi og Kópavog og var séra Gunnar Árnason kjörinn prestur. 1964 varð Kópavogur sér prestakall og þjónaði séra Gunnar því þar til Kópavogi var skipt í 2 prestaköll austan og vestan Hafn- arfjarðarvegar. Þá voru kjörnir þeir séra Árni Pálsson í Kárs- nesprestakalli og séra Þorbergur Kristjánsson í Digranespresta- kalli. Eftir að Kópavogur fékk kaup- staðarréttindi var stofnað hér embætti bæjarfógeta. Sigurgeir Jónsson hæstaréttadómari var bæjarfógeti til 1979, en Ásgeir Pétursson síðan. Héraðslæknir var fyrst Brynj- úlfur Dagsson svo Kjartan Jó- hannsson og nú er Eyjólfur Þ. Haraldsson heilsugæslulæknir. íbúafjöldi Kópavogs var I stríðslok um 500, 1948 1.163, 1955 3.783 og 1. desember sl. 14.585. Núverandi bæjarstjórn skipa: Björn ólafsson, forseti, og Heið- rún Sverrisdóttir Alþýðubanda- lagi Guðmundur Oddsson og Rannveig Guðmundsdóttir, Al- þýðuflokki, Skúli Sigurgrímsson og Ragnar Snorri Magnússon, Framsóknarflokki, Richarð Björgvinsson, Bragi Michaelsson, Ásthildur Pétursdóttir, Guðni Stefánsson og Arnór Pálsson, Sjálfstæðisflokki. Bæjarstjóri er eins og áður er getið Kristján Guðmundsson. Þegar litið er yfir sögu síðustu áratuga, þá tel ég að Kópavogsbú- ar geti horft björtum augum til framtíðarinnar. Kópavogur er orðið öflugt sveitarfélag með dugmikla íbúa eins og jafnan hef- ur verið. Höfundur er fyrrvenndi alþingis- maður Sjálfsúeðisflokks í Reykja- neskjördæmi og rar jafnframt for- ystumaður flokksins í bæjarstjórn Kópavogs um langt árabil.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.