Morgunblaðið - 11.05.1985, Síða 19

Morgunblaðið - 11.05.1985, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985 19 ala á. Hin fyrsta er sú, að vextir hafi einhliða verðbólguáhrif. Hag- fræðin hefur frá upphafi byggt á þeirri meginstaðreynd, að verð- myndun sé jöfnun höndum háð framboði og eftirspurn. Sumir fremur einsýnir hagfræðingar hafa haldið því fram, að veigamik- il svið séu undanþegin þessu lög- máli, einkum verðlagning iðnvara svo og vinnuaflsins, þ.e. ákvörðun kaupgjaldsins. Þarna ráði kostn- aður og geðþótti um afkomuna. Þessar hugmyndir eru nú mjög úr sér gengnar. Samkeppni reynist staðreynd, þótt í nokkru breyttri mynd sé. Verð og laun eru ákveðin með hliðsjón af markaði og að- haldi eftirspurnar og hrávöruverð breytist mjög með eftirspurn og er grundvöllur undir öðru verðlagi. Þannig reynist heildareftirspurn í þjóðarbúinu þrátt fyrir allt mestu ráðandi um verðlagsþróun. í frjálsu markaðshagkerfi ráða vextirnir hins vegar mestu um myndun virkrar heildareftir- spurnar, eða eru til marks um þenslu eða aðhald af öðrum rótum, svo sem frá ríkisfjármálum. Þetta kemur fram af ýmsum hagrann- sóknum, en skýrast þó af hinni al- mennu reynslu. Þannig komst verðbólga OECD-svæðisins niður í 4,9% á síðasta ári, hið lægsta frá 1972, þrátt fyrir einharða beitingu vaxta um árabil og raunvexti víð- ast um 6—8%. Það eru einmitt engilsaxnesku þjóðirnar, sem hafa haft forystu um þessa vaxtaþróun, þær sem Magni segir „kunnar fyrir gætna fjármálastjórn". Hins vegar hefur V-Þýzkaland haldið staðfastlega við stefnu hæfilegra raunvaxta um langt árabil, og hef- ur það eflt heilbrigða þróun pen- inga- og lánamála. Þessar þjóðir og flestar aðrar munu staðráðnar i því að snúa ekki aftur til neikvæðra raun- vaxta, hvað sem Magni segir, og munu hér eftir sem hingað til beita vöxtum til aðhalds þenslu og verðbólgu. Að nokkru er árangur- inn af þeirri stefnu ástæðan fyrir því, að ekki hefur þótt taka því að koma á formlegri verðtrggingu, enda þótt vöntun hennar hafi kostað óhóflega greiðslubyrði langra lána á tímum hárra nafn- vaxta. Þetta varð til þess að mark- aður langtímalána einkaaðila var í mikilli lægð, meðan vextir voru hæstir. Þörfin var þó viðurkennd, svo að Bretar hafa tekið upp til- raunir með verðtryggð skuldabréf, en þau hafa tíðkast mjög í Frakk- landi. Skýring þess, að ekki var lengra gengið, er einkum sú, að breytilegir vextir, eftir markaði nýlána hverju sinni, voru teknir upp, og á þeim opna markaði má endurfjármagna lán, sem rýrna við of háar vaxtagreiðslur. Verðfesta eða verðtrygging Þetta svarar að mestu annarri staðhæfingu Magna, að valið standi milli þess að stöðva verð- bólguna eða verðtryggja sparifé og lánsfé. Menn höguðu sér ára- tugum saman eins og svo væri, og gáfu eftir vexti og hluta höfuð- stóls. Menn færðu þessar fórnir á altari verðbólgunnar og töldu sig með því kaupa sér frið. Heimurinn er bara ekki þannig, Magni minn, að hægt sé einfaldlega að kaupa menn til að vera góðu börnin. Menn verða að sæta ábyrgð. Eftir iþetta áratuga stríð varð mönnum lloks ljóst, að besta vonin um stöð- ugt verðlag fælist i því að nema brott hagsmuni öflugustu þjóðfé- lagsaðilanna af verðbólgunni. Það er gert með verðtryggingu fjár- magns. Á þetta hafa ýmsir útlend- ingar bent í umtali um verðtrygg- inguna. Með því er einnig endur- reistur máttur vaxtatækisins til þess að hafa hemil á eftirspurn og þar með verðbólgu af þeirri rót. Eðlismunur launa og lána Að endingu skal vikið að megin- hugmynd Magna, að verðtrygging láne. og launa verði að haldast i helduv, annaö sé „óverjandi fé- lagslegt misrétti". Margir eru „Vinur minn Kristófer“??? sama sinnis, einkum launþegar, sem telja sig skulda umfram fjár- eignir. En hér villir formið sýn um þann veruleika sem að baki liggur. Lífskjör launþega sem heildar geta engan veginn farið eftir því, hvort laun eru verðtryggð að forminu til, heldur eftir fram- leiðsluafköstunum annars vegar og ýmsum skilyrðum verðmynd- unar að kaupgjaldinu gefnu hins vegar. Verðtrygging launa fær því aðeins staðist, að samið sé með náinni hliðsjón af þessum mörk- um, svo að verðbótaákvæðin verði ekki virk. Vísitölubæturnar geta í reynd ekki tryggt kaupmáttinn, heldur fela í sér þeim mun tíðari kauphækkanir. Verðlagið á hins vegar ætíð eftirleikinn á þeim tíma, þegar tekjunum á að ráð- stafa. Niðurstaðan er þannig fyrst og fremst hröðun verðbólgunnar, nema látið sé líðast, að þjóðin éti upp auð sinn, hvað alls ekki má verða. Launin eru í öllu falli tekjur, misháar að raungildi eftir atvik- um. Sparifé er hins vegar þegar áunninn fjárstofn. Verðtrygging hans færir eigandanum því engar tekjur til samanburðar við laun. Það er fyrst með raunvöxtum, að tekjur falla til. Það þarf því ósveigjanlega kröfu um óskerta raunvexti til þess að jafnast við svokallaða verðtryggingu launa. Hagsmunalega séð er verðtrygg- ing lána algerlega hliðstæð breyti- legum vöxtum á frjálsum mark- aði, að viðbættu því greiðsluhag- ræði fyrir lánþegann, að verðbótin fellur á höfuðstól og endurgreiðsl- ur haldast jafnar að raungildi, svo sem til var ætlast. Siðferðilega og réttarlega er slíkur samningur eðlilegur, þar sem eigandinn af- hendir fé sitt til langs tíma við ótryggar aðstæður og á allt sitt undir raungildi endurgreiðslunn- ar. Um kaupgjald er hins vegar stöðugt verið að endursemja með hliðsjón af breyttum aðstæðum. Því er haldið að launþegum, að þeir hafi skuldarahagsmuni. Á heildina litið er þetta rangt, og að mig grunar stundum haldið fram f vísvitandi blekkingarskyni. Að meðtalinni lifseyrissjóðaeign sinni eru launþegar verulegir nettólánveitendur, en atvinnurek- endur nettólánþegar. Launþegar hafa þannig ekki aðeins hagsmuni af hæsta kaupmætti launa, sem unnt er að tryggja, heldur og af þvi að geta sparað i peningalegu formi og varðveitt og ávaxtað það sparifé, sem þannig er til orðið. Höfundur er aöstoðarbankastjóri Seðlabanka íslands. — eftir Kristófer Má Kristinsson Formaður Alþýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson, vinsælasti maður landsins, ég sé enga ástæðu til að þakka þér tilskrifið vegna þess að þú svarar ekki þeim spurn- ingum sem ég beindi til þín. Ég vissi að það yrði þér létt verk að snúa út úr og ónýta umræðuna alla. Málið snýst bara ekki um það. Málið snýst um grundvallar atriði í pólitík tveggja stjórnmála- afla. Þegar þú segir að á Banda- lagi jafnaðarmanna og Alþýðu- flokki sé einungis blæbrigðamun- ur og gefur siðan i skyn að hann felist í því að ég hafi misskilið þingræðið og fatti ekki að þú sért maður dagsins þá er það útúr- snúningur. Ég hlýt að játa að „al- þýðuforingi" og „fjöldaleiðtogi", sem lætur eftir sér að tala niður til „væntanlegra skjólstæðinga*. sinna á þann hátt sem þú gerir, verður, að minu mati, aldrei lang- lífur sem slíkur. Ég nenni ekki að fara út i þá málefnalegu hrakn- inga að deila við þig um tittl- ingaskít en mig langar að gera ör- fáar athugasemdir. í Alþýðublaðinu ávarpar þú mig „vinur minn Kristófer“. Ég vissi ekki að á milli okkar væri vin- skapur af einu eða neinu tagi og mér er alsendis óljóst hvaðan hugmyndir þínar um „vináttu" okkar eru sprottnar. í Morgun- blaðinu erum við hins vegar orðnir bræður. Mér er ókunnugt um nokkur þess háttar vensl. Eg veit ekki til þess að við eigum bræðra- lag, huglægt eða hlutlægt, um nokkurn skapaðan hlut. Mér finnst að áður en fólk tengist venslaböndum af þessu tagi, hvort heldur er vinátta eða bræðralag, þá eigi að vera samkomulag um að það sé gagnkvæmt. Ég er ekki endilega að frábiðja mig þess háttar venslum við þig. Ég vissi bara ekki að þeim hefði verið kom- ið á. Þú segir, réttilega, að það sem sameini menn í stjórnmálaflokk- um séu „grundvallarsjónarmið — lífsskoðanir". Þannig er því og varið með BJ. Okkur er bara eng- an veginn ljóst hvers vegna okkar grundvallarsjónarmið og lífsskoð- „Ég veit ekki til þess að við eigum bræðralag, huglægt eða hlutlægt, um nokkurn skapaðan hlut. Mér fínnst að áður en fólk tengist vensla- böndum af þessu tagi, hvort heldur er vinátta eða bræðralag, þá eigi að vera samkomulag um að það sé gagnkvæmt.“ anir þurfa endilega að „útkljást í umræðu — eftir lýðræðislegum reglum' innan Alþýðuflokksins. Nú veist þú jafnvel og hver annar að það sem þú kallar að „útkljá í umræðu — eftir lýðræðislegum reglum" þýðir að skjóta ágreiningi undir atkvæði. Það er ekki okkr framtíðarsýn að stefnumál Bandalags jafnaðarmanna verði „svæfð" með „lýðræðislegum að- ferðum" á fundum hjá Alþýðu- flokknum. Reyndu nú að átta þig á því að Bandalag jafnaðarmanna er að- eins tveggja ára og við erum ÁKVEÐIÐ hefur verið að breyta skuttogaranum Arinbirni RE 54 í frystitogara og verður hafist handa við verkið í Stálvík í Garðabæ í lok júnímánaðar. Áætlað er að verkið taki 10—12 vikur og verður kostnað- ur á bilinu 23—25 milljónir króna eða 510—530 þúsund dollarar. Skipið verður gert út á karfa, rækju og grálúðu að loknum breytingum og aflinn seldur heil- frystur til Japans, að smárækju undanskilinni. Samið hefur verið við útflytjanda til þriggja ára og aflinn seldur FOB í dollurum. Magnús Gestsson, fram- kvæmdastjóri Sæfinns, sagði að við núverandi aðstæður væri úti- Kristófer Már Kristinsson sannfærð um að framtíðin sé okkar. Framtíð Alþýðuflokksins er hins vegar í þínum höndum og þar viljum við ekki vera vegna þess að þangað eigum við ekkert erindi. Bandalag jafnaðarmanna er til vegna þess að skoðanir okkar eru ekki „misskilningur“ heldur sannfæring og við viljum ekki ganga í björg, hvorki Alþýðu- flokksins né annarra. Aðeins að lokum. Sé það rétt hjá þér að þú hafir í þrjár vikur talað fyrir vinnustaðasamningum á námskeiðum Norðanlands, skrifað „ítarleg erindi um þetta í Sam- vinnuna á sinum tíma og ekki færri en 20—30 leiðara um þetta í Alþýðublaðinu" hljóta þá ekki að læðast að þér óþægilegar efasemd- ir um hæfni þína til að vinna fólk til fylgis, ekki við þig, heldur skoð- anir þínar? Höfundur er formaður landsnefnd- ar Bandalags jafnaðarmanna. lokað að reka skip á viðunandi hátt með því að landa ísfiski hér heima. Því væri farið út í þessar breytingar og áætlanir sýndu að með því að frysta aflann um borð mætti allt að þrefalda aflaverð- mæti, sem aftur skapaði skipinu rekstrargrundvöll. Arinbjörn RE 54 er smíðaður í Stálvík og lauk smíðinni árið 1978. Nú þegar eru fjórir frystitogarar gerðir út hérlendis, örvar, Akur- eyrin, Hólmadrangur, Siglfirðing- ur og Stakfell. Verið er að breyta Merkúr, Frera á Akureyri og Bjarna Bene- diktssyni í Þýzkalandi og búist er við að fleiri skip fylgi í kjölfarið. Arinbimi breytt í ftystiskip í Stálvík BILL SEM HÆFIR ÖLL Hann hetux sannad kostí sína vid islenskar adstœdur sem.- / kjörinn íjölskyldubíll / duglegui atvinnubíll / vinsæll bílaleigubíll / skemmtilegui spoitbíll Verö frá kr. 394.000 6 áia rydvamaiábyrgd 50 óra reynsla í bílainnílutningi og þjónustu IHIHEKLAHF Laugaveg. 170 172 Stm; 21240 VOLKSWAGEN GOLF PÝSKUR KOSTAGRIPUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.