Morgunblaðið - 11.05.1985, Page 23

Morgunblaðið - 11.05.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR Hi'MAl 1985 *’ 2jjfc Fuglaskoðunarferð siðferðislega og efnalega grunn, sem til þarf, til þess að takast á við hvern þann vanda sem skolast inn á lífsbrautina. Við viljum virkja allar þær þúsundir í land- inu sem finna til þegar barni er fórnað af mistökum. Við viljum virkja alla þá sem ekki sætta sig við að fleiri hundruð íslendinga fái ekki tækifæri til að sjá dagsins ljós á árinu 1985. Fóstureyðingum fjölgar sífellt. Á árinu 1983 var nær 700 íslendingum fórnað. Sam- kvæmt skýrslum voru yfir 90% þar af af félagslegum ástæðum, sem hefði mátt leysa með sam- stöðu og góðum vilja. Aðeins 5,2% voru af læknisfræðilegum ástæð- um. Lífsvon vill takast á við fóst- ureyðingavandann á mannúðleg- an, mannsæmandi og heilbrigðan hátt, því við vitum að á bak við hverja fóstureyðingu er vandamál, stundum mörg, sum stór, sem þarf að leysa i hinum mesta kærleik og af djúpstæðum skilningi. Við viljum virkja allar heil- brigðisstéttir landsins, þar með talda félagsfræðinga og ráðgjafa, sálfræðinga, presta, lögfræðinga, kennara og uppalendur alla, feður og mæður þessa lands. Við viljum virkja stjórnmálamenn þessa lands, að þeir séu sjálfum sér sam- kvæmir. Við viljum leita liðsinnis hjá kvennasamtökum landsins, sem hafa í gegnum tíðina lyft ótrúlegu Grettistaki, unnið þrek- virki fyrir sjúka og særða og fyrir litilmagnann i landinu. Mörg og glæst eru þau minnismerki sem konur þessa lands hafa þannig reist sér, bæði sýnileg og ósýnileg. Það voru konur sem upphaflega áttu frumkvæðið að öllu því starfi sem unnið var fyrir verðandi mæður og börn þessa lands. Allt var það unnið í sjálfboðavinnu, hinu opinbera að kostnaðarlausu. Og enn eru konur að vinna, þótt farvegurinn breytist með breytt- um tima er makmiðið hið sama. Að lokum vil ég vitna í orð þekkts blaðamanns og rithöfund- ar, Oriana Fallaci, í bókinni Bréf til barns, sem aldrei fæddist. Þar segir: „ ... Hvernig er hægt að segja að menn séu slys náttúrunn- ar ... “ og á öðrum stað: „... Að vera móðir er ekki starf. Það er ekki einu sinni skylda. Það eru að- eins ein af mörgum réttindum konunnar. Þú munt öskra þig hása á að sannfæra aðra um það. Og oft, næstum alltaf, muntu bíða lægri hlut. En þú mátt ekki láta hugfallast ... “ Þetta er rabb móður við barn sitt í móðurkviði. Við ætlum ekki að láta hugfall- ast. Þess vegna varð Lífsvon til. Við viljum ekki missa sjónar á lifs- og manngildi. Við viljum ekki verða andleg vélmenni. Við erum af holdi og blóði og finnum til. Við erum bræður og systur til að styðja hvert við annað. Verðugt verkefni á ári æskunnar. PX Pósthólf Lífsvonar er 5003, 125 Reykjavík. Félagsgjald fyrir árið 1985 er kr. 300,00. Það er einnig hægt að gerast styrktarfé- lagi eða ævifélagi eða á hvem annan hátt sem hentar að aðstoða, því okkur vantar allt nema vilj- ann. Almennur kynningarfundur verður haldinn 18. maí nk. í ís- lensku óperunni. Höfundur er forstöðumaður Fæð- ingarheimilis Reykjaríkur og for- maður Lífsronar. FERÐAFÉLAG íslands fer sína ár- legu fulgaskoðunarferð um Suður- nes og víðar á morgun, sunnudaginn 12. maí. Farið verður frá Umferð- armiðstöðinni, að austanverðu, kl. 10.00 árdegis. Farið verður í Hafnaberg, en það er eitt aðgengilegasta fugla- bjarg fyrir íbúa höfuðborgarsvæð- isins. Þar má sjá allar bjargfugla- tegundir landsins, að haftyrðlin- um undanskildum, sem aðeins er að finna í Grímsey. Af bjargbrún- inni sér til Eldeyjar. Á ströndinni milli Sandgerðis og Garðskagavita er einnig fjölbreytt fuglalíf. Fuglar, sem sjást á þessum slóð- um, hafa verið skrásettir frá því árið 1970 og fá þátttakendur ljós- ritaða skrá. Þar er hægt að merkja við þær tegundir sem sjást í ferðinni. Æskilegt er að hafa sjónauka meðferðis og fuglabók. (tlr rrétutilkjnniiigu) Hafnarfjarðarkirkja: Sunnudagaskólinn efnir til ökuferöar FARIÐ verður í ferðalag frá Hafnarfjarðar- kirkju á morgun, sunnudag, með þau börn sem þá koma í sunnudagaskólann. Lagt verður af stað kl. 10.30 og ekið með skólabílnum um ná- grennið. Komið verður við í Garðakirkju og Bessastaðakirkju. Með þessari ferð lýkur að sinni sunnudauaskóla kirkiunnar. (FrétutilkTnnini) Um helgina sýnum við RAPID sportarann sem hefur heldur betur „smellt í gegn“ að undanförnu. Raunar engin furða því þessi splunkunýi bíll er HORKUTOL A HALFVIRÐI JOFUR HF NYBYLAVEG! 2 KÓPAVOGI Nú koma allir að Rapid smellinn sunnudag kl. 13-17

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.