Morgunblaðið - 11.05.1985, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
Rafveita
SiglufjarÖar:
Undanþeg-
in gjöldum
Iðnaðarráðherra hefur lagt
fram stjórnarfrumvarp, sem set-
ur Skeiðsfossvirkjun, eign Raf-
veitu Siglufjarðar, við sama borð
skattalega og önnur orkufyrir-
tæki, þ.e. að fyrirtækið verði
undanþegið tekjuskatti, eigna-
skatti og stimpilgjöldum vegna
lána, sem virkjunin tekur, svo og
útsvari og aðstöðugjaldi. Hins-
vegar greiðir Skeiðsfossvirkjun
fasteignagjöld til viðkomandi
sveitarfélaga.
Stjórnarfrumvarp:
Hluta-
félag um
þörunga-
vinnslu
- kaup eða kaup-
leigusamningur
Iðnaöarráðherra hefur lagt fram
á þingi stjórnarfrumvarp, sem
heimilar ríkisstjórninni, ef sam-
þykkt verður, að semja við hlutafé-
lag, sem aðilar í A-Barðastrandar-
sýslu stofna, um kaup eða leigu á
eignum þörungavinnslunnar á
Reykhólum. Sú kvöð fylgir eignun-
um að þær verði nýttar til áfram-
haldandi þörungavinnslu á staðn-
um.
Heimilt er að lána kaupanda
andvirði eignanna til allt að 15
ára og má lánið vera víkjandi,
þannig að greiðslubyrði verði háð
afkomu hins nýja fyrirtækis.
Verði gerður leigusamningur um
eignir félagsins skal heimilt að
semja svo um að hluti leigunnar
gangi upp í kaupverð eignanna.
„Byggéastefna í bjórmálinu**:
Þrengist um
í pósthúsum
landsins
FerðaUngar hafa rétt til bjórkaupa en ekki heimasitjandi.
Hjörleifur Guttormsson (Abl.)
taldi nauðsynlegt að skoða betur
þann kafla bjórfrumvarpsins, sem
fjallaði um dreifingu vörunnar, þ.e.
að binda sölu einvörðungu við verzl-
anir ÁTVR. Hvernig eiga þeir, sem
búa fjarri stöðum með áfengisútsölu
að nálgast vöruna, spurði þingmað-
urinn? Er hér ekki verið að bæta
einum þættinum enn við þá sem fyr-
ir eru og mismuna fólki eftir búsetu
í sambandi við verð vöru og þjón-
ustu? Þegar þessi orð féllu kallaði
Guðmundur J. Guðmundsson (Abl.)
frammí fyrir ræðumanni: „Þing-
maðurinn er með byggðastefnu í
bjórmálinu."
Hjörleifur Guttormsson (Abl.)
sagði að heldur betur þrengdizt
um í pósthúsum landsins ef þau
ættu að vera viðskiptafarvegur
fyrir bjórinn í þeim sveitarfé-
lögum, sem hefðu ekki áfengisút-
sölu, en vara þessi gæti orðið mikil
að fyrirferð.
Hlutafélag innan Orkustofnunan
íslensk sérþekking
á erlendan markað
Iðnaðarráðherra hefur lagt fram
á Alþingi stjórnarfrumvarp, sem
heimilar stofnun hlutafélags, sem
lúta á stjórn Orkustofnunar og
bafa það hlutverk að koma þekk-
ingu, sem Orkustofnun ræður yfír
á sviði jarðhitamála, vatnsorku-
rannsókna og áætlunargerðar í
orkumálum, á markað erlendis.
Umsvif Orkustofnunar hafa
aukizt erlendis og ná til áhættu-
rekstrar. Þessvegna þykir rétt
að stofna hlutafélag um rekstur-
inn, þannig að ríkið takmarki
áhættu sína við framlagt hluta-
fé.
Jarðhitadeild Orkustofnunar
hefur í samvinnu við Virki hf.
boðið í rannsóknar- og ráðgjaf-
arverk erlendis á sviði jarðhita-
rannsókna og jarðhitarannsókna
f fjórum löndum: Norður-Jemen,
Kenýa, Grikklandi og Eþíópiu.
Með tilliti til þess að söluvara
þessa hlutafélags, sem um er
rætt, verður sérþekking og
reynsla sem til er í Orkustofnun,
þykir rétt að stjórn stofnunar-
innar fari jafnframt með stjórn
þess undir yfirstjórn ráðherra
orkumála, segir í greinargerð
með frumvarpinu.
Tölvuborð
kr. 4.990.00
Nýtízkuleg
bílaþvottastöð
Vid bjóðum forþvott, sápuþvott, 2-þátta bón og
þurrkun.
Stöðin getur tekið bíla sem eru allt að 225 cm á breidd
og 227 cm á hæð. Við gefum fólki kost á að fá nýtt
byltingarkennt efni, Poly-lack, boriö á bílinn meðan það
bíöur (20 mín. á bíl).
Poly-lack inniheldur acryl sem gefur bílnum geysifalleg-
an gljáa, skýrir litina og endist lengi.
í Þýzkalandi er þetta efni borið á alla Mercedes Benz
áöur en þeir eru afhentir.
Opnunartími: virka daga kl. 12—20 — helgar kl.
10—19.
Bílaþvottastöðin,
Bíldshöfða 8,
(við hliöina á Bifreiðaeftirlitinu).
Hann gagnrýni Olaf Þ. Þórðar-
son (F) harðlega fyrir „alvarlegar
aðdróttanir" f garð fréttamanna,
flutningsmanna bjórfrumvarpsins
og meðnefndarmanna hans f alls-
herjarnefnd (sjá þingsíðu Mbl. f
gær). Hann gagrnýndi dómsmála-
ráðherra fyrir heimild til „bjór-
líkhúsa", sem hann nefndi svo, og
forsætisráðherra fyrir tal um
væntanlegan gróða ríkissjóðs af
bjórsölu.
Hjörleifur sagði vandamál
tengd áfengisneyzlu mikil og sizt
ástæðu til að gera lítið úr þeim, en
staðreyndir væru: 1) að farmenn,
flugliðar og millilandafarþegar
flyttu bjór til landsins, 2) miklu
magni bjórs væri smyglað inn f
landið, 3) „bjórlíkhús" væru vfða,
4) ölgerðarefni í fjölda verzlana.
Hjörleifur kvað margt mæla með
því að leyfa innflutning og brugg-
un bjórs, en miklu skipti, hvern
veg framkvæmdin yrði.
Friójón Þórðarson (S) kvað
stjórnskipaða nefnd vinna að mót-
un opinberrar stefnu í áfengismál-
um. Markmið þeirrar stefnu ætti
að vera að draga úr áfengisneyzlu.
Bíða ætti niðurstööu þessarar
nefndar. Friðjón sagði reynslu
hvarvetna þar sem bjór væri til
staðar þá, að hann bættist við
aðra neyzlu, en dragi ekki úr notk-
un sterkari drykkja.
Skaðsemi áfengisneyzlu, sem
væri margvísleg, væri ævinlega f
hlutfalli við það heildarmagn
áfengis sem þjóðirnar neyttu.
Hann vitnaði til samþykkta ASÍ
og ÍSÍ gegn áfengisneyslu. Sala
bjórs kallaði óhjákvæmilega á
stóraukna löggæzlu.
Stefán Valgeirsson (F) kvað bjór
leiða til neyzlu sterkari drykkja.
Hann kvað notkun eiturlyfja yfir-
leitt byrja með áfengisneyzlu.
Þetta mættu þeir hugleiða, sem nú
vildu bæta bjór ofan á aðra áfeng-
isneyzlu, vitandi það, hvað í kjöl-
far fylgdi, bæði hjá einstaklingum
og samfélagi. Hann varaði við
áróðri þeirra, sem ábata hafa af
áfengisneyzlu. Stefán hafði ekki
lokið ræðu sinni þegar fundi var
slitið og umræðu enn frestað.
STUTTAR
þiníífréttir
Mál afgreidd
án yfirlestrar
- segir Svavar
Gestsson
• Svavar Gestsson, formaður
Alþýðubandalagsins, hélt þvf
fram í þingræðu í gær, er fjall-
að var um frumvarp að nýjum
þingskapalögum, að Alþingi af-
greiði á hverju ári tugi mála,
sem fjöldi þingmanna hafi aldr-
ei lesið yfir. Hann gagnrýndi
harðlega lök vinnubrögð f
nefndum þingsins og kvað
nauðsynlegt að setja í þingsköp-
um reglur um skil nefnda.
• Ingvar Gíslason, forseti
þingdeildarinnar, mælti fyrir
frumvarpinu, sem þegar hefur
hlotið afgreiðslu í efri deild.
Þingsfða Morgunblaðsins hefur
gert þessu frumvarpi fréttaleg
skil, en það miðar að því setja
þinginu virkari starfsramma og
setja skýrari mörk um tillögur
til þingsályktunar, fyrirspurnir
og umræður utan dagskrár, sem
nú þrengja mjög að meginverk-
efni þingsins, löggjafarstarfinu.