Morgunblaðið - 11.05.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR II. MAÍ 1985
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrsti
flutningsmaður bjórfrumvarpsins:
Ólafur með dylgjur
í skjóli þinghelgi
„ÉG STUNDA ekki umbods- eða eiga beinna fjárhagslegra hags-
heildverzlun. Mitt eina umboð er frá
fólkinu í landinu," sagði Jón Bald-
vin Hannibalsson, fyrsti flutnings-
maður bjórfrumvarpsins, er blm.
Mbl. spurði hann í gær hvað hann
vildi segja um þau orð sem Ólafur Þ.
Þérðarson lét falla á þingi í fyrradag
um hagsmuni ákveðinna þingmanna
varðandi bjórfrumvarpið, mútu-
þægni fréttamanna rfkisfjölmiðl-
anna o.fl.
Aðspurður hvort hann teldi að
þingmenn ættu hagsmuna að gæta
þegar bjórmálið væri annars veg-
ar, sagði Jón Baldvin: „Ekki svo
mér sé kunnugt um. Ásakanir
Ó'.afs voru þrenns konar. Hann
sakaði fréttamenn um að þiggja
mútur, þingmenn almennt um að
Fréttamenn mótmæla
aódróttunum þingmanns:
Rógur
ÓLAFIJR Þ. Þórðarson alþingismað-
ur hefur neitað að endurtaka utan
Alþingis þau orð sín, að það hvarfli
að mönnum vegna frétta af bjór-
neyslu landsmanna, að fréttamenn
ríkisfjölmiðlanna þiggi mútur. Ólaf-
ur lét þessi orð falla í umræðum um
bjórfrumvarpið á Alþingi í fyrradag.
Stjórn Félags fréttamanna, sem
í eru fréttamenn ríkisfjölmiðl-
anna, samþykkti í gær svohljóð-
andi ályktun:
„Stjórn Félags fréttamanna
mótmælir harðlega þeim aðdrótt-
unum Ólafs Þ. Þórðarsonar al-
þingismanns þegar hann segir að
það hvarfli að sér að fréttamenn
Ríkisútvarpsins þiggi mútur til að
draga upp glansmynd af bjór-
neyslu, væntanlega í þeim tilgangi
að stuðla að framgangi bjór-
frumvarpsins, sem nú er hart deilt
um á Alþingi.
Ólafi Þ. Þórðarsyni hefur verið
gefinn kostur á að endurtaka þessi
ummæli utan Alþingis, þar sem
hann þarf að standa við þau. Því
hefur hann hafnað.
Það er rógur að drótta að fólki
misferli í starfi án þess að finna
þeim orðum stað, hvort sem þau
eru látin falla á Alþingi eða ann-
ars staðar. í því ljósi verður að
skoða orð ólafs Þ. Þórðarsonar,"
segir í ályktun Félags frétta-
manna.
muna að gæta og flutningsmenn
um að vera umboðsmenn ónafn-
greindra aðila."
Jón Baldvin sagði að Ólafur
hefði farið með slíkar dylgjur í
skjóli þinghelgi, að hefði hann lát-
ið sömu orð falla utan þings hefði
legið í augum uppi að krafist yrði
rannsóknar, iafnvel farið í meið-
yrðamál við Olaf.
Ferming í
Grindavík-
urkirkju
Fenning í Grindavíkurkirkju,
sunnudaginn 12. maí, kl. 14.
Fermd verða:
Dagmar Björg Jóhannesdóttir,
Borgarhrauni 5.
Eydís Ármannsdóttir,
Teigi.
Erla Hjördts Ólafsdóttir,
Baðsvöllum 8.
Gerður Ólína Steinþórsdóttir,
Mánasundi 5.
Hjördís Guðmundsdóttir,
Efstahrauni 18.
Lilja Þórey Guðmundsdóttir,
Staðarhrauni 14.
Margrét Dögg Gylfadóttir,
Hraunbraut 1.
Rakel Erlingsdóttir,
Leynisbrún 5.
Sigríður Ragna Haraldsdóttir,
Víkurbraut 14.
Þorgerður Guðmundsdóttir,
Vesturbraut 15.
Þyrí Ásta Hafsteinsdóttir,
Mánagötu 19.
Elías Þór Pétursson,
Leynisbrún 13.
Eyjólfur Vilberg Gunnarsson,
Heiðarhrauni 10.
Garðar Sigurðsson,
Borgarhrauni 8.
Geirlaugur Blöndal Jónsson,
Efstahrauni 2.
Heimir Örn Hafsteinsson,
Mánagötu 19.
Hjalti Páll Sigurðsson,
Selsvöllum 1.
Hilmar Kjartansson,
Borgarhrauni 15.
Jóhann Þorgr. Hallgrímsson,
Heiðarhrauni 30Á.
Júlíus Magnús Sigurðsson,
Austurvegi 45.
Björg Örvar við eitt verka sinna.
• •
Björg Orvar sýnir
í Nýlistasafninu
BJÖRG Örvar heldur sýningu á mál-
verkum í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
dagana 10.—19. maf, en sýningin
opnauð föstudagskvöldið 10. maí.
Þetta er önnur einkasýning
Bjargar örvar hér á landi en síð-
astliði haust sýndi hún mónóþrykk
í Gallerf Borg. Björg nam við
Myndlista- og handfðaskólann árin
1976—80 og síðan við listadeild
Kaliforníuháskóla 1981—83.
Öll verkin á þessari sýningu eru
máluð með olíu og flestöll unnin á
þessu ári.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 16-22.
37
Morgunblaðið/Árni Sæberg
F.v. Guðvarður Gíslason, framkvæmdastjóri Gauks á Stöng, og Sigurþór Kristjánsson, Jónas Már Ragnarsson og
Þorvaldur Óskarsson kokkar, sem sjá um matreiðslu saltfiskréttanna.
Veitingahúsið Gaukur á Stöng:
Saltfiskvika hefst á sunniidag
Boðið verður upp á sérstakan saltfiskmatseðil auk hefðbundins matseðils
VEITINGAHÚSIÐ Gaukur á Stöng
hefur ákveðið að halda Saltfiskviku
dagana 12. til 19. maf.
Tilgangur með Saltfiskvikunni
er að vekja áhuga á hráefninu, en
fiskur hefur verið verkaður í salt
síðan land byggðist. fslendingar
eru þó aftarlega á merinni i mat-
reiðslu þessa hráefnis, því salt-
fiskur er yfirleitt alltaf borinn
fram soðinn með kartöflum og
floti hér á landi.
Saltfiskur hefur verið ein af að-
alútflutningsvörum íslendinga og
hafa suðrænar þjóðir náð mun
lengra en íslendingar í að mat-
reiða hann.
Gaukur á Stöng mun bjóða upp
á sérstakan matseðil í tilefni
Saltfiskvikunnar, auk hefðbund-
ins matseðils. í forrétt verður
hægt að velja um reyksoðinn
saltfisk með piparrótarsósu og
tarama-salat, sem er söltuð og
reykt þorskhrogn. Aðalréttirnir
verða fjórir: venjulegur íslenskur
saltfiskur með floti eða smjöri,
ofnbakaður saltfiskur, saltfiskur
með skinku, lauk, tómat o.fl. og
saltfiskur í tómat. Með þessu verð-
ur boðið upp á vín frá Portúgal.
Sölusamband íslenskra fisk-
framleiðenda hefur látið prenta
níu saltfiskuppskriftir og munu
þær liggja frammi á Saltfiskvik-
unni á Gauk á Stöng.
Skeljungur hf.:
Ný bensínstöð
við Vestur-
landsveg
OLÍUFÉLAGIÐ Skeljungur hf. opnaði
{ gær nýja bensínstöð við Vestur-
landsveg, rétt austan Höfðabakka.
I frétt frá Skeljungi hf. segir m.a.
að stöðvarhúsið sjálft sé tvídeilt,
reist á sambyggðum kjallara. 1 öðr-
um helmingi hússins er sjálf ben-
sínstöðin, en i hinum svokallaður
„akið-takið“ veitingastaður, þar sem
boðið er upp á ýmsa smárétti. Þar
verða einnig seldar vörur fyrir
ferðamenn o.fl. Verslunin er rekin af
Bæjarnesti og hefur verið ráðinn
matreiðslumeistari til að annast
starfsemi i eldhúsinu.
Allar bensindælur eru undir stóru
skyggni. Á stöðinni eru einnig rúm-
góð þvotta- og þurrkstæði og verður
hægt að fá ylvolgt vatn til bílaþvotta
þegar kólnar. Snjóbræðsla er í hluta
þvottastæðanna og einnig hefur ver-
ið komið fyrir háþrýstidælu.
Bæjarráð Húsavíkur
og sýslunefnd
Suður-Þingeyjarsýslu:
Gáfu peninga
til bókakaupa
BÆJARRÁÐ Húsavíkur og sýslu-
nefnd Suður-Þingeyjarsýslu komu
saman til funda hinn 30. apríl sl.
Á fundum þessum var samþykkt i
tilefni aldarafmælis Jónasar
Jónssonar frá Hriflu hinn 1. mai
að heiðra minningu hans með því
að gefa annars vegar Héraðsbóka-
safninu á Húsavík og hins vegar
Lestrarfélaginu í Kinn í Ljósa-
vatnshreppi peningafjárhæðir til
bókakaupa.
'SCI
Nýja bensínstöðin við Vestnrlandsveg. Morgunbl«ði6/Árni s«berg
Dregið í happdrætti
hjálparsveita skáta
DREGIÐ var í stórhappdrætti Hjálparsveita skáta fimmtudaginn 9.
maí. Upp komu eftirtalin vinningsnúmer:
Fiat Uno-bifreiðir.
0307-6105 4925-1807 6611-0346 7890-5018
1240-4883 5010-4907 6785-7178 8100-3971
3903-8587 5101-2526 6886-3880 9140-8368
4613-8708 5598-0136 7620-1846
Sharp Vc481 myndbandstæki 0065-0781 3071-8704 4288-2313 7619-7075
0396-1745 3096-5094 4802-9019 7623-4973
0502-4080 3367-8002 5434-2926 7882-0926
0846-2518 3375-5007 5912-4013 7949-4364
1146-0127 3451-3619 6113-3313 8048-0601
1789-8620 3585-7788 6320-3416 8123-9363
2605-2688 3910-2765 6527-9320 8515-3447
2910-3453 3922-4356 6779-5652 8764-6165
3056-4014 4089-6198 6933-0193 8842-9788
3066-6674 4117-2061 7614-7817 9999-0762
Sharp R 6200 örbylgjuofnar 0168-2911 3243-1658 5137-8059 7928-7539
0431-9656 3275-6549 5155-4906 8070-0032
0871-9209 3321-0051 5229-3553 8376-3248
0948-6992 4141-3107 5672-7159 9587-6021
1082-2483 4232-1273 5751-2822 9745-8243
1129-6963 4608-6392 6045-3837 9787-7505
1286-8650 4987-7617 6255-2484 9999-0759
2241-3864 5056-8768 6627-5205 9999-2160
3048-7818 5116-5918 6790-8953 9999-3382
3083-9935 5121-0204 7111-0877 9999-3403
(Birt án ábrrgáar)