Morgunblaðið - 11.05.1985, Qupperneq 52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 11. MAÍ 1985
52
Mæðradagur á
morgun
Hvað er mæðradagurinn gamall?
Annan sunnudag maímánaðar ár hvert er nú haldið upp á mæðra-
daginn. Þá er annríki hjá blómasðlum, og börnin (einkum á dagheim-
ilum) útbúa litlar gjafir eða telja vasapeningana aftur og aftur til að
vita hvort nóg sé til fyrir litlum blómvendi fyrir mömmu.
Að því er bezt er vitað á mæðradagurinn upptök sín í Englandi, en
þar hefur fjórði sunnudagur í lönguföstu verið hátíðlegur haldinn
sem mæðradagur, eða Mr ' hering Sunday, allt frá árinu 1607. Þá var
það venja þar að böm. ,em bjuggu fjarri foreldrahúsum komu í
heimsókn þennan þriðja sunnudag fyrir páska svo öll fjölskyldan
gæti farið saman til kirkju.
Seint og síðar meir breiddist þessi siður út til nýlendna Breta og
þaðan til annarra landa. í Bandaríkjunum var dagsins fyrst minnst
árið 1905. Þar var það Anna nokkur Jarvis sem eftir lát móður sinnar
stakk upp á því að haldinn yrði sérstakur heiðursdagur fyrir allar
mæður, eða Mothers Day. Þessum sið hefur verið vel tekið víða um
heim, og frá árinu 1933 hefur það verið regla að halda upp á mæðra-
' daginn annan sunnudag í maí.
Þrátt fyrir nokkra eftirgrennslan tókst mér ekki að komast að því
hvenær mæðradagurinn var fyrst haldinn hér á landi, en vitneskja
um það væri vel þegin.
í tilefni dagsins ætla ég hér að birta tvær uppskriftir af mat, sem
ég held að hver og einn geti lagað. Höfða ég þá sérstaklega til yngri
kynslóðarinnar sem hefði ef til vill gaman af að gleðja mömmu á
deginum hennar og sleppa henni við matseldina. Verzlanir eru opnar
til kl. 4 í dag, svo það er engum vandkvæðum bundið að ná í hráefnið.
Munið eftir blómum og servíettum á borðið. Og svo af stað. Góða
skemmtun, og til hamingju með daginn mæður.
„Schnitzel"
Beinlausar sneiðar úr kálfa-, nauta- eða kindakjöti:
4 kjötsneiðar, um 150 gr. hver.
100 gr. hveiti,
1 egg,
3 mtsk. rasp,
2 mtsk. kókosmjöl,
3 mtsk. matarolía,
1 sítróna,
kryddjurtir eftir smekk,
lítill poki franskar kartöflur.
Kjötsneiðarnar barðar flatar, kryddaðar vel báðum megin, og þeim
síðan velt upp úr hveiti. Eggið hrært vel saman þar til freyðir, þá
hellt á disk og hveiti-stráðum kjötsneiðunum velt upp úr eggjahrær-
unni. Svo er kjötsneiðunum velt upp úr raspnum, sem kókosmjölinu
er blandað út í, og sneiðunum þrýst vel ofan í báðum megin. Olían
hituð á pönnu og sneiðarnar steiktar við miðlungs hita f um það bil 3
mínútur á hvorri hlið. Frönsku kartöflurnar meðhöndlaðar eins og
segir til á pokanum.
I » Sítrónan skorin í sneiðar og steinselju dreift yfír, síðan eru sítr-
ónusneiðarnar lagðar ofan á kjötið.
Salat er búið til úr einum litlum salathaus, 1 gulrót í sneiðum, eða
nokkrum radísum, 1 litlum söxuðum lauk, 2 mtsk. olíu, 1 mtsk. ediki,
salti og pipar. Öllu hrært saman í skál og aðeins kælt.
Eftirréttur:
Jarðarberjaís, Vi dós jarðarber (safínn látinn renna af, ekki notaður) 100
gr. flórsykur, safí úr einni sítrónu, lítið box jógúrt, 2 dl. rjómi.
Allt sett í skál og hrært rösklega saman. Látið í frysti í eina klukku-
stund.
Afmæliskveðja:
Einar Ólafs-
son sextugur
í dag er sextíu ára vinur minn
Einar ólafsson verzlunarmaður,
Borgarholtsbraut 51, Kópavogi. Á
þessum tímamótum þykir mér
rétt að líta til baka og fara laus-
lega yfir þann kafla ævinnar sem
að baki er við þessi tímamót um
leið og ég árna honum heilla og
þakka honum trygga samfylgd á
liðnum árum. Einar er í beinni og
óbeinni merkingu vormaður. Þeg-
ar fyrstu rótarsprotar vorsins eru
að boða komu sumarsins og yndis-
legasti árstíminn fer f hönd á
hann sinn afmælisdag.
Að Einari standa traustir ætt-
stofnar, en foreldrar Einars voru
hjónin Guðrún Björg Ingvarsdótt-
ir, Pálmasonar alþingismanns,
Ekru, Neskaupstað, og Olafur H.
Sveinsson, Ölafssonar alþingis-
manns, Firði í Mjóafirði. Frá fæð-
ingu til 10 ára aldurs dvelst Einar
með foreldrum sínum eystra við
umhyggju og mikið dálæti (hann
er einn 12 systkina), þá fluttu þau
búferlum til Reykjavíkur. Á leið-
inni þangað á skipi með viðkomu á
Hornafirði var drengnum komið
til sumardvalar. Hér varð að vísu
um lengri dvöl að ræða því hann
ílentist þar og átti þar heimili
meira og minna til 17 ára aldurs,
hjá þeim sæmdarhjónum Valgerði
Sigurðardóttur og Guðmundi
Jóelssyni að Hoffelli í Nesjum.
Oft hef ég heyrt Einar dásama
þann tíma og þær minningar sem
hann á frá þessum slóðum. Er
gaman að geta þess hér að fyrir
nokkrum árum fór Einar ásamt
fleirum, sem áttu til fósturs að
telja i Hoffelli, austur f Nes til að
endurbyggja einkakirkju óðalsins
með afkomendum þeirra Guð-
mundar og Valgerðar, til minn-
ingar um gott fólk og liðna tíð.
Þannig held ég að Einari hafi
fundist að best væru goldin fóst-
urlaunin.
Aftur lá leið Einars til Reykja-
víkur og f foreldrahús að nýju.
Hann hóf nám í Gagnfræðaskóla
Austurbæjar 1941 og lauk prófi
sem gagnfræðingur frá MR 1943.
Seinna lá leiðin í Loftskeytaskól-
ann. Burtfararprófi frá þeim skóla
lauk hann 1948. Ef horft er til
baka verður ljóst að það er fleira
sem gerðist þetta ár og ekki
ómarkvert, því að á þessu ári gerir
hann ævisamning við sína ágætu
eiginkonu, Hansínu Þorkelsdóttur,
Sigurðssonar, skipstjóra, Siglu-
firði, sem gefið hefur honum
trygga fylgd gegnum lífið síðan og
búið honum gott heimili. Börn
þeirra eru 10 talsins, 6 synir og
fjórar dætur þau 37 ár sem eru
síðan þau stofnuðu heimili hafa
þau lengst af átt heima í Kópavogi
eða frá 1954. Fyrst í leiguhúsnæði,
síðan fluttu þau í stórt einbýlishús
sem þau byggðu við Fífuhvamms-
veg en nú búa þau við Borgar-
holtsbraut svo sem fyrr er að vik-
ið. Þar er hátt til lofts og vítt til
veggja og umhverfi allt hið ákjós-
anlegasta.
Aldei hefur Einar farið dult
með stjórnmálaskoðanir sínar.
Hann telur sig vera framsóknar-
mann og hefur alla tíð dáð hug-
sjónastefnu samvinnuhreyfingar-
innar sem hefur að markmiði fé-
lagslega samhjálp og uppbyggingu
þeirra sem henni tengjast. Á
' Seoul^
Nýjung
á Islandi!
Kim og Tim bjóöa uppá 100 tegundir
frábærra austurlenskra rétta.
Höfum nú aftur hina Ijúffengu Kims stór-
borgara.
Sjáum um mat tyrir hvara konar •inkasamkvaami.
Kóreskur veitingastaöur
Síðumúla 3, •Imi 35708.
Hvítir mávar
10. sýningarvika
Nú sýnd í:
Regnboganum Reykjavík
Dalvíkurbíói Dalvík
Egilsbúð Norðfirði, og á næstunni á Egilsstöðum,
Eskifiröi, Reyðarfiröi, Fáskrúðsfiröi og Vopnafiröi.
Senn fer sýningum aö fækka í Reykjavík en fjölga á lands-
byggðinni.
Missið ekki af þessari einstöku mynd.
........Skínandi—
SUMARTÍMI
Frá 13. maí til 15. september veröa
skrifstofur okkar opnar frá 8.30 til 16.30.
TRVGGINGAMIÐSTODIN P
AÐALSTRÆTI 6-101 REYKJAVÍK - SÍMI 26466
■■I ———————
Miöaverö 190 kr.
r