Morgunblaðið - 24.05.1985, Page 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
115. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sænskir bænd-
ur fjölmenntu í
mótmælagöngu
Stokkhólmi, 23. nuí. AP og frétUriUri Mbl.
EHTHVAÐ um 20.000 reiðra og óánægðra sænskra bænda dreif að frá
gervöllu landinu í dag og gengu þeir um götur Stokkhólms í mótmælaskyni
við stefnu stjórnar Olofs Palme í landbúnaðarmálum og nýsett verð á
landbúnaðarvörum sem tekur gildi 1. júlí næstkomandi.
Ýmislegt í stjórnarstefnunni
angrar bændur. Umrætt verð á
landbúnaðarvörum telja þeir til
dæmis vera allt of lágt og þeir
krefjast þess að fá meiri niður-
greiðslur og styrki til að vega upp
á móti háum bankavöxtum og tapi
af umframframleiðslu. Þá gagn-
rýna þeir ætlun stjórnvalda að
Eþíópía:
Gjafakornið
færir stjórn-
inni stórfé
BANDARÍSKA dagblaðið Christ-
ian Science Monitor segir, að
kommúnistastjórnin í Eþíópíu
hafi um 28 milljónir bandaríkja-
dala á ári (jafnvirði 1.165 millj-
óna íslenskra króna) í tekjur af
hafnargjöldum af þeim skipum,
sem flytja gjafakorn til hungur-
svæðanna í landinu.
Blaðið segir, að hafnargjöld i
Eþíópíu séu einhver hin hæstu
í Afríku. Fyrir hvert tonn af
korni, sem skip flytja til lands-
ins, verði þau að greiða jafn-
virði 525 íslenskra króna. Frá
því í desember hafi Banda-
ríkjamenn einir sent 400.000
tonn af korni til Eþíópíu og
greitt fyrir það í hafnargjöld
jafnvirði 210 milljóna ís-
lenskra króna.
Þá upplýsir blaðið, að þeir
sem flytja önnur matvæli og
hjálpargögn til Eþíópíu verði
einnig að greiða háar upphæðir
til stjórnvalda.
vilja setja framleiðslutakmörk á
ýmsar landbúnaðarvörur.
Sænsku bændasamtökin skipu-
lögðu mótmælaaðgerðirnar í dag
sem voru hinar mestu á vegum
bænda síðan árið 1914, er 32.000
bændur fóru í göngu til að for-
dæma stefnu stjórnarinnar í varn-
armálum. Talsmenn bænda sögðu
í dag, að yrði ekki breyting á
stefnu stjórnvalda í landbúnað-
armálum, myndi atvinnuleysi í
stéttinni stóraukast og ásjóna Sví-
þjóðar myndi gerbreytast er eyði-
býlum fjölgaði.
Bændur fjölmenntu sem sjá má.
Pressens Bild/Símamynd
Gífurlegir bardagar shita og PLO:
Samsæri um að ganga
frá Palestínumönnum
- segir Yasser Arafat leiðtogi PLO
tfeirul, 29. mai. Af.
GÍFURLEGIR bardagar geisuðu í og í kring um flóttamannabúðir Palestínu-
manna í Beirút í dag, fjórða daginn í röð. Þar hafa shitar úr „Amal“-fylking-
unni og trúbræður þeirra úr 6. herdeild líbanska stjórnarhersins umkringt
Palestínuskæruliða og er barist með oddi og egg. í búðunum er einnig míkill
fjöldi flóttamanna sem verða fyrir barðinu á stríðinu í ríkum mæli. Mannfall-
ið er gífurlegt, að minnsta kosti 46 manns féllu í dag og 258 særðust, þar með
hafa síðustu 4 daga 200 fallið og nærri 1200 særst. Þó eru öll kurl ekki komin
til grafar, því sjónarvottar segja tugi ef ekki hundruð líka liggja um allar
búðirnar, Rauði krossinn komist ekki að og enginn viti í raun hve margir hafí
fallið.
Haft var einnig eftir sjónarvott- I lega fram og skilji allt eftir í rúst-
um í dag, að shitarnir sæki skipu- | um. Þeir hafa þrengt hringinn um
PLO-liðana sem þó verjast með
öllum ráðum og hafa svarið að
berjast til síðasta blóðdropa.
Yasser Arafat, leiðtogi PLO, sagði
í Amman í Jórdaniu í dag, að mik-
ið samsæri væri í gangi, Amal og
Sýrlendingar hefðu gert leyni-
samkomulag við Israel um að þeir
fyrstnefndu myndu merja PLO í
Líbanon og njóta stuðnings hinna
hvorra tveggja við það. „Þeir vilja
koma í veg fyrir að við getum
herjað á Israela, það sannast á
gerðum þeirra. En það er annað og
meira að gerast, þarna er verið að
fremja þjóðarmorð," sagði Arafat.
í dag voru til moldar borin 32
fórnarlömb sprengingarinnar í
hinum kristna hluta Beirút í gær,
útförin var gerð frá kirkju sem er
í næstu götu við þá sem ódæðið
var framið í. Þúsundir manna
voru viðstaddir útförina og ríkti
mikil sorg, grátur og gnístran
tanna. Þrjú lík fundust í rústun-
um í dag og á þriðja tug manns er
enn saknað, allir taldir af. Fjöldi
hinna látnu voru börn og konur.
Fjöldi hinna særðu hljóta varan-
leg örkuml.
Nautið vann orustuna en ekki stríðið!
Þao dró til tíðinda a nauiaat' í Madrío nýverið e> nautabaninr Victo>
Mende», hugðisi haia í framm> frækileg tilþrit áhorfendum tii mikílla>
gleöi. En nautið reyndisi ekki eins máttfarið og Mende»; hugði þae brá
við nart er baninn skausi að þv> mee fleyg á lofti. stjakað honum !
fruntalega um koU og viðbeinsbraui hann
Samstöðuleiðtogi um réttarhöldin í Varsjá:
Nálgumst 21. öldina með
17. aldar stjórnarfari
Varejá. 23. maí. AP.
RÉTTARHÖLD hófust í dag yfír þremur af kunnustu leiðtogum Samstöðu í
Póllandi, samtaka verkalýðsfélaga sem stjórnvöld hafa bannað með lögum.
Sakborningarnir, Wladislav Frasyniuk. Bogdan Lis og Adatn Michnik, eru
sakaðir um að hafa hvati til óspekta og starfað fyrir ólögleg samtök Þeir eiga
yfír höfði sér allt að fímm ára fangelsi.
.lacek Tayior, aðaiverjandi þre- 1
menninganna. kvartað; mjög yfir i
framkvæme* réttarhaidanna: „Þau j
áttr aö vers opin aimenningi, er j
þae hefur ekki orðið raunin. Aðeins 1
sjö nánustu ættingjar og átta lög-
træðingai sakborninganna hafa 1
fengið að vera viðstödd. Sami eru I
60 sæti í réttarsalnum. Hin eru öii I
skipuð optnberum embættismönn-
um.“ sagð' Tayior. Meða' þeirra
sem hafa orðiö frá aö hverfa eru
nánir ættingjar sakborninganna,
tveir bandarískir stjórnarerindrek-
ar, aðstoðarbiskup frá Varsjá og
margir stuðningsmenn Samstöðu,
þeirra a meðai Jan Rulewski og
Andrzej Gwiazda, sem oft hafa
komist í kast víð yfirvöld vegna lið
veislu sinnar við Samstöðu. Þeiv
voru báðir handteknir ásamt 10
öðrum fyrir utan réttarhúsið og yf~
irheyrðir í tvær klukkustundir,
sleppt síðan.
Gwiazda sagði að með því að
hatá réttarhöldir iokuð sýndu
stjórnvöio besi hvaö hér væri á
I ferðinni: ,.Við nálgumsf 21. öldina,
I ei> biiun við 17. aldar stjórnkerfi,"
sagðí Gwiazda. Lech Waiesa, helsti
leiðtogi Samstöðu, vildi ekki tjá
sig, hann á að bera vitni á mánu-
dag.