Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 24. MAI 1985 Hvaðan komum við? Jón Á. Gissurarson, Sjafnargötu 9, skrifar: Þættirnir „Hvaðan komum við?“ — þættir Árna Björnssonar, þjóðfræðings, og Borgars Garð- arssonar, leikara, eru með miklum ágætum. Borgar opnar okkur innsýn í heim liðinna kynslóða með lát- bragði einu og tali, en notast hvorki við leiktjöld né muni. Þó verður allt amstur liðinna kyn- slóða ljóslifandi og minnisstætt. Einungis elstu Islendingar lifðu við þessi skilyrði og þó aðeins að hluta en heyrðu sér eldri menn og konur lýsa öðru, t.d þegar steinolíulampar leystu grútartýru af hólmi. Ég minnist gamlingja, sem töldu þau umskipti mestu byltingu á sinni ævi. Ég hefði talið til bóta að skjóta inn gömlum þjóðlífsmyndum svo sem úr Ferðabók Gaimards þess franska. Örlitlar athugasemdir: inn-nesjamenn sunnan Reykjavík- ur svo og allir Suðurnesjamenn segja inn í Reykjavík, en allir aðr- ir landsmenn segja suður í Reykjavík. Konur stóðu aftan við ær er þær mjólkuðu en ekki til hliðar þeim. Geta hefði mátt þess að fyrstu nyt í kvíum fékk smalinn í hvert mál sem hann drakk af skjólubarmi. Fræðslumyndasafn ríkisins ætti að fá þætti þessa til dreifingar í skólum. Þeir yrðu ungum börnum fræðsluauki um uppruna sinn og hollur samanburður á kjörum manna fyrri alda og líðandi stunda. Ekki spillir að þeir eru bráðskemmtilegir og hljóta að vera ódýrir enda litlu til þeirra kastað. Þessir hringdu . . Wham í sjónvarpið H.K. hringdi: Ég sá í Mbl. 22. maí að verið var að fara fram á við sjónvarpið að endursýna tónleikana með Duran Duran. Það er búið að sýna tónleikana tvisvar og finnst mér sjálfsagt að sjónvarpið sýni frekar tónleika með hljómsveit- inni Wham. Einnig kom í Mbl. um daginn heil síða með Duran Duran. Á ekki að birta eins um Wham? Hver týndi úlpu? Birna hringdi: Ég vinn í Borgarbókasafninu. Þriðjudaginn 14. maí komu inn í safniö drengir undir 12 ára aldri og tylltu sér við taflborð og sátu þar smástund. Einn þeirra gleymdi úlpunni sinni. Hún er grá og svört með hvítri rönd og er hér enn á safninu. Hægt er að vitja hennar á efri hæð Borgar- bókasafnsins. Boltaleikir bannaðir R. hringdi: Við fórum tvær vinkonur með börnin okkar í Laugardalsgarð- inn fyrir stuttu. Veðrið var Úr grasagarðinum í Laugardal. dásamlegt. Við settumst niður og fengum okkur kaffisopa og börnin hlupu glöð um á þessum stóru grasbölum, sem þarna eru. Við höfðum tekið með okkur lítinn bolta og fóru börnin í boltaleik. Vörðurinn benti okkur á að boltaleikir væru bannaðir. Þetta finnst okkur furðulegt, vægast sagt. Ef þetta hefðu verið strákar í fótbolta og látið illa, hefði verið skiljanlegt að vörðurinn hefði bannað það. Þarna voru í sól- skininu þetta síðdegi yfirfullar öskutunnur og drasl í kring. Nær hefði verið að vörðurinn hefði séð um að fjarlægja það í stað- inn fyrir að rífast út af einum litlum bolta. P.S. Gaman væri að vita hvort S.S., sem hringdi til ykkar 1. maí, væri karlmaður eða kona. Netagerðin Ingólfur hf., Vestmannaeyjum Til sölu Netageröin Ingólfur hf. í Vestmannaeyjum er til sölu. Fyrirtækiö er í fullum rekstri og næg verkefni framundan. Allar nánari uppl. veitir Ágúst Karlsson, bókhaldsskrifstofa, Vestmannaeyjum, sími 98-1217. SÍÖumúla33 símar81722 og 38125 Nytizkuleg bílaþvottastöð Viö bjóðum forþvott, sápuþvott, 2-þátta bón og þurrkun. Stöðin getur tekið bíla sem eru allt að 225 cm á breidd og 227 cm á hæð. Við gefum fólki kost á aö fá nýtt byltingarkennt efni, Poly-lack, borið á bílinn meöan þaö bíður (20 mín. á bíl). Poly-lack inniheldur acryl sem gefur bílnum geysifalleg- an gljáa, skýrir litina og endist lengi. í Þýzkalandi er þetta efni borið á alla Mercedes Benz áður en þeir eru afhentir. Opnunartími: virka daga kl. 12—20 — helgar kl. 10—19. Bílaþvottastöðin, Bíldshöfða 8, (við hliðina á Bifreiðaeftirlitinu). I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.