Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 56
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Tillaga VSÍ um samning til ársloka 1986 kom verkalýðsforystunni á óvart: Gert er ráð fyrir 18—24 % kauphækkun á 13 mánuðum — hækkanir meiri en verkalýðsforingjar áttu von á TILLAGAN nm nýjan kjara-samning Vinnuveitendasambands íslands og aðild- arfélaga og -sambanda Alþýðusambands íslands, sem sett var fram á fundi forystumanna ASÍ og VSI í gærmorgun, virðist hafa komið forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar mjög á óvart Flestir hafa látið í Ijós áhuga á að eiga viðræður við VSf á grundvelli tillögunnar og sumir þeirra sögðu í gær, að í tillögunni fælust meirj kauphækkanir en þeir hefðu átt von á. Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ hefur ekki viljað tjá sig um efnisatriði tillögunnar. Hann sagðist teija að þegar liði nær næstu helgi ættu línur að vera farnar að skýrast Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands tslands — sem vill ekki ganga til samninga fyrr en í haust — sagði í gær að sér litist illa á tillögu at- vinnurekenda. „Hún er áferðarfall- eg en mér þykir gyllingin þunn,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. Varaformaður sam- bandsins, Karl Steinar Guðnason, sagði á hinn bóginn að hann teldi það „mikið ábyrgðarleysi að sitja aðgerðarlaus og ræða ekki mögu- lega kjarasamninga á meðan kaup- máttarhrapið heldur áfram". Framkvæmdastjórn VMSÍ ræðir tillöguna á fundi á þriðjudaginn. Tillagan gerir ráð fyrir að samið verði til ársloka 1986 og að kaup- taxtar hækki almennt um rúmlega 18% í fjórum áföngum á næstu þrettán mánuðum, frá 1. júní nk. til 1. júlí á næsta ár; Gert er ráð fyrir að taxtar fiskverkunarfólks, iðn- verkafólks og almenns verslunar- fólks og fleiri hækki nokkuð meira, eða um liðlega 24%. Ekki er gert ráð fyrir beinum kaupmáttartrygg- ingum í tillögunni en samkvæmt útreikningum Vinnuveitendasam- bandsins ætti kaupmáttur í ár að verða 99,9 stig ef samið yrði á grundvelli tillögunnar. Til saman- burðar, segir í útreikningum VSÍ, yrði kaupmáttur 95,8 stig ef engir samningar yrðu gerðir og 97,3 stig ef gerðir yrðu „verðbólgusamn- ingar“, þ.e. svipaðir samningar og í fyrrahaust. Með slíkum samning- um, segir VSl, yrði kaupmáttur 95,8 stig á næsta ári en 101,6 stig ef farið væri að tillögu Vinnuveit- endasambandsins. A sama hátt spáir VSÍ því, að verði farin sú leið, sem sambandið gerir nú tillögu um, verði verðbólga frá upphafi til loka næsta árs um 9% en 28% ef gerðir yrðu „verðbólgusamningar". Sam- bærilegar tölur fyrir þetta ár eru 23% og 30%. „Þessi tillaga er sett fram vegna þess að við sjáum fram á áfram- haldandi rýrnum kaupmáttar fram á haust,“ sagði Magnús Gunnars- son, framkvæmdastjóri VSÍ. „Slíkt getur ekki haft í för með sér annað en áframhaldandi ójafnvægi og ófrið á vinnumarkaði. Með þessari tillögu hækkar kaupmáttur á samn- ingstímanum um 10% frá því sem hann yrði lægstur á þessu ári miðað við óbreytt ástand. Við leggjum megináherslu á að við viljum snúa kaupmáttarþróuninni við, það er sameiginlegt hagsmunamál okkar og verkalýðshreyfingarinnar og að sjálfsögðu væri farsælast fyrir alla, að hægt væri að gera samning við verkalýðshreyfinguna í heild.“ Magnús sagði að með þessari til- lögu væri komið til móts við allar helstu kröfur verkalýðshreyfingar- innar: aukningu kaupmáttar, sér- stakar kjarabætur fyrir þá verst settu og tryggingu kaupmáttar. „Við höfum lagt spilin á borðið og erum ekki í neinum leik. Með þess- ari tillögu er stefnt að því að fá fast land undir fæturna í stað þess að velja það óöryggi, sem fylgir stöð- ugu jakahlaupi,“ sagði hann. — Er þessi tillaga úrslitakostur af hálfu Vinnuveitendasambands- ins? „í þessu samhengi tala menn ekki í úrslitakostum. Menn verða hins- vegar að gera sér grein fyrir að VSÍ hefur með frumkvæði sínu hafið þessar viðræður á mjög óvenju- legan hátt og þá verða menn að gera ráð fyrir að ekki taki við gamla samningaþófið, sem tæki langan tíma,“ sagði Magnús Gunn- arsson. Sjá nánar (jlboð Vinnuveitendaaam- bandsina á miAopnu, álit formanna stjórn- arflokkanna á bls. 2 og samtöl vift for- ystumenn í verkalýðshreyrinfDmni á bls. 4 og 10. Morgunblaðið/Sigurgeir Þeir Ingvar og Gunnar skipstjóri á Sæfaxa eru greinilega ánægðir með fyrstu veiðiferðina, sem sannarlega lofar góðu. Góður humarafli í lestinni. Vestmannaeyjar: Humarvertíð- in fer sérlega vel af stað Vestmannaeyjum, 23. maí. EIN vertíðin hefst þá annarri lýkur. Humarvertíðin hófst nú í byrjun þess- arar viku og fer hún sérlega vel af stað hjá Eyjabátum. Eru þess dæmi að minni bátar héðan hafi fengið allt að þriðjungi úthlutaðs kvóta { fyrstu vciðiferðinni sem stóð yfir í tvo daga. Voru fyrstu bátarnir að landa í gær og allir með góðan afla, frá þetta tæpu tonni minni bátarnir og allt uppí hálft annað tonn hjá þeim stærri. Hér er átt við slitinn humar að sjálfsögðu. Þetta þykir mönnum við sjávarsíðuna vera góð byrjun á vertíðinni og lofa góðu. Humarinn er þokkalega góður og fer rösklega helmingur aflans i stærsta flokk. 12 bátar héðan fengu úthlutað aflakvóta á humar og þyk- ir mörgum kvótinn vera rýr miðað við ýmsa aðra útgerðarstaði. Er þar nefnt sem dæmi að þeir fjórir bátar sem landa hér hjá einni fisk- vinnslustöðinni hafa samanlagt minni kvóta en meðalbátur á Hornafirði hefur. Heildarkvóti Eyjabátanna allra er tæplega 70 tonn af slitnum humri og hafa minni bátarnir þetta frá 3,5 tonn- um en mest er á bát rúm 10 tonn. Ef áfram veiðist jafn vel og fyrstu tvo dagana á vertíðinni verða karl- arnir ekki lengi að veiða upp í kvót- ann. — hkj. Kristján Sveinsson augnlæknir látinn KRISTJÁN Sveinsson augnlæknir, annar af tveimur Reykvíkingum sem hlotið hefur titílinn heiðursborgari Reykjavíkur, lézt í gær. Kristján var í hófi sem Elli- og hjúkrunarheimilið Grund heldur árlega 50 ára stúdent- um og eldri er hann hné niður örend- ur. Hann var 85 ára, fæddur 8. febrú- ar 1900. Kristján Sveinsson fæddist á Ríp í Hegranesi, sonur hjónanna Ingi- bjargar Jónasdóttur prests á Stað- arhrauni Guðmundssonar og Sveins \ prests á Ríp og síðar í Arnesi í Trékyllisvík Guðmundssonar. Kristján varð stúdent 1922 og lauk kandidatsprófi frá Háskóla íslands í læknisfræði vorið 1927. Eftir kandidatspróf sigldi hann til Dan- merkur og Þýzkalands, þar sem hann lagði stund á framhaldsnám í augnlækningum. Um skeið var ■» Kristján héraðslæknir á lands- byggðinni, síðast í Dalahéraöi, en frá 1932 eða í 53 ár rak hann augn- læknisstofu á sama stað, í Póst- hússtræti 17. Auk þess var hann dósent við læknadeild Háskóla ís- lands um 20 ára skeið. Kristján Sveinsson ritaði allmörg rit um augnlækningar. Hinn 20. febrúar 1975 sæmdi borgarstjórn Reykjavíkur Kristján Sveinsson með því að gera hann að heiðursborgara Reykjavíkur. Slíkan sóma hafði aðeins einn maður hlot- ið áður. séra Bjarni Jónssor vígslu- biskup. f afmælisgreír sem Páll Gíslasor læknir og forsetí borgar- stjórnar Reykjavíkur reit i Morgun blaöið i febrúar síðastliðnum sagði hann m.a.: „Þaó fer ekki tramhjá neinum, sem hefur kynnzt Kristjáni Sveinssyni iækni, að hann er sér- stakur mannkostamaður, sem hefur látið samborgara sína og samtíð njóta góðs af þessum miklu hæf- ileikum. Hafa þúsundir sjúklinga Viðrædur hér á landi um Varnar- liðsflutningana hans getað borið þess vitm og oftasr, án þess að hugsað sé náio um hvort endurgjald kæmi fyrir. Þeir err. margir. bæði yngri og etdri, sem hafa notið góðs af læknisþjónustr hans.‘: Eiginkona Kristjáns Sveinssonar, María Þorleifsdóttir, lést 1965. Þau eignuðust tvö börn, Kristján tann- lækni og Guðborgu bankastaris- mann. Bandarískur embættismaður ræddi við embætt- ismenn í gær og hittir utanríkisráðherra í dag YFIRMAÐUR N-Evrópudeildar bandanska utanríkisráðuneytisins, Wenich. kom hingað til lands í gærmorgun og átti viðræður við íslenzka embættismenn uir flutninga fyrir Varnarliðið. Sem kunnugt er yfirtóf bandarisk' fyrirtæk vörufluimngr skjölf bandariskre einokunariaga „Eg get ekkert sagt um hvað okkur fór á miili," sagði íng'/i S. ngvarssor. ráðuneytisstjóri, ? samtali við Morgunbiaðið í gær, þegas hanr? var spurður hvort Wenich hefði lagt fram nýjar til- lögur tii lausnar deilu íslenzkra fyrít ' arnarhðið á síðastliðm- ar i og bandarískra stjórnvaida. Wenich viidi ekkerr, segir um viðræður sínar við ístenzka emb • ættismenn, Fyrirhugac er að hann ræði ; dag við Geh Hall- grímsson, utanríkisráðherra. I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.