Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 20
20 MORCUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1985 Wagner-sjálfstýringar, komplett meö dælusettum 12 og 24 volt, kompás og fjarstýringum fram á dekk, ef óskaó er, fyrir allar stæröir fiskiskipa og allt niöur í smá trillur. Sjálf- stýringarnar eru traustar og öruggar og auöveldar í uppsetningu. Höfum einn- ig á lager flestar stæröir vökvastýrisvéla. Hagstætt verö og greiðsluskilmálar. Atlas hf Borgartún 24 — Sími 26755. Pósthólf 493, Reykjavik ^\uglýsinga- síminn er 2 24 80 HÁÞRÝSTI- VÖKVAKERFI SérhæfÓ þjónusta. Aóstoóum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. r ^ REGGIANA RIDU7TORI Drifbúnaður fyrirspilo.fl = HÉÐINN = VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260 LAGER-SÉRFANTANIR-WÓNUSTA Þakka innilega allan hlýhug og heiöur sem þiö vinir mínir sýnduö mér á 90 ára afmœli mínu 8. apríl sl. Guö blessi ykkur öll Rannveig Einarsdóttir, Hólmgarði 60. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS STOFNAOUR 1905 Innritun 1985—1986 Verslunardeild: Inntökuskilyröi: Grunnskólapróf. Nemendur skulu skila umsóknum ásamt afritum (ekki Ijósritum) af grunnskólaprófi sínu á skrif- stofu skólans, Grundarstíg 24, eigi síöar en 6. júní nk. kl. 4 e.h. • Skólinn tekur inn nemendur án tillits til búsetu þeirra. Lærdómsdeild: Inntökuskilyröi: Verslunarpóf með þýsku og tölvu- fræöi og 6,50 í aöaleinkunn. Umsóknarfrestur er til 7. júní. Umsóknareyöublöö fást á skrifstofu skólans. Sædýrasafniö er opiö aila daga frá kl. 10—19. Fáar sýningavikur. Einar Hákonarson myndlistarmaður: Ég er fyrst og fremst myndbyggingarmaður Einar Hákonarson efnir til myndlistarsýningar um þessar mundir að Gallerí Borg. Hann hefur sýnt margsinnis áður, bæði heima og erlendis, og hefur einnig verið virkur í samtökum listamanna, auk þess að hafa haft á hendi skólastjórn um skeið og tekið þátt í mótun borgarmálefna sem varaborgarfulltrúi. Blm. átti við hann stutt spjall í tilefni sýningar- innar. — Hvernig hefur aösóknin ver- ið? „Hún hefur verið svona sæmi- leg og t.d. allt öðruvísi en á Kjarvalsstöðum. Hérna er þetta svo miðsvæðis að fólk kemur kannski sem ætlaði ekkert að kíkja en leit við af því það gekk framhjá. Þetta er mikill kostur við að sýna í galleríi sem er svona miðsvæðis.“ — Hver eru aðalviðfangsefnin í verkunum þínum á þessari sýn- ingu? „Náttúran og fólk eins og áð- ur. Ég er fyrst og fremst mynd- byggingamaður þ.e.a.s. ég hef alltaf átt létt með að byggja upp myndirnar en litur hefur aftur á móti komið á eftir teikningunni svona í gegnum tíðina. Myndirn- ar mínar eru allar „figurativar" og ég held að þannig myndir fái fólk frekar til að hugsa en mynd- ir sem lifa í eigin heimi. Það er oft gaman að fallega samsettum litum, þó ekki séu t.d. myndir af mönnum að hlaupa, flýja, fiska o.s.frv., en þá er komið fram „litterert" inntak í myndinni. Annars er með þetta eins og aðrar listgreinar að smekkur manna er mismunandi og það getur tekið langan tíma fyrir fólk að njóta myndlistar. Það er með hana eins og aðrar list- greinar að menn þurfa að efla með sér þann þroska sem þarf til að geta notið hennar sem skyldi. Eg get ekki sagt að það séu neinar stökkbreytingar sem hafa átt sér stað hjá mér. Það er einna helst að litirnir séu orðnir dempaðri og það kemur eigin- lega af sjálfu sér. Ég vil kenna umhverfinu um það. Nú í augna- blikinu er frekar rólegt í kring- um mig sem leiðir af sér að lit- irnir verða blíðari." — Þú hefur gert eitthvað af myndum trúarlegs eðlis. Eru nokkrar slíkar á þessari sýningu? „Ékki núna en fyrst þú spyrð þá finnst mér þessi efni nátengd þ.e. listin og trúmál. Listin sækir einnig i fullkomnun sem maður veit ekki hver er. Fyrr á öldum voru kirkjan og listin samofin." — Vinnurðu venjulegan vinnu- dag frá 9 til 5 við að mála? „Kannski ekki frá 9 til 5, en ég vinn mjög reglulegan vinnudag og mála eiginlega hvern einasta dag og verð að gera það því þetta er atvinna mín.“ — Tekst þér að lifa af málara- listinni? „Síðan ég hætti að vera skóla- stjóri í Myndlista-og handíða- skólanum þá hefur mér tekist það. En það er kreppa í þjóðfé- laginu og auðvitað bitnar hún fyrst á svona hlutum. Málverk er það síðasta sem fólki dettur í hug að kaupa ef syrtir í álinn. Eg geri einnig töluvert af því að mála „portraitmyndir" eftir pöntunum, og í augnablikinu er ég að vinna að geysistórri mynd um réttlætið. — Hvemig finnst þér að mála andlitsmyndir eftir pöntun? „Þetta er auðvitað mjög ólíkt því sem ég er að gera í mínum eigin málverkum. Það getur oft verið mjög erfitt að ná svipnum á sumum en þetta er annars ágætt svona með.“ Sýning Einars stendur til 28. maí og er opin virka daga frá klukkan 12.00 til 18.00 og um helgar frá klukkan 14.00 til 18.00. Einar Hákonarson sýnir um þessar mundir í Gallerí Borg. Vorfagnaður skólabarna á Húsavík Húsavík, 21. maf. BARNASKÓLI Húsavíkur efndi til vorfagnaðar sl. fimmtudag uppstign- ingardag. Þar voru samankomin skólabörn, foreldrar þeirra, afar og ömmur við ýmsa leiki og óvænt skemmtiatriði (ranglega nú kallaðar uppákomur). Þarna báru bömin fram ýmsar veitingar með aðstoð foreldra og var þessi fagnaður fjölmennur og vel heppnaður. Fréttaritari Látiö oKkur vcria vaáninn Ryðva r na rska I i n n Sigtum 5 — Simi 194Q
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.