Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985
Annir í Cannes
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aöstoöarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift-
argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö.
Forstjóra-
skipti í SÍS
Eftir skoðanakannanir inn-
an stjórnar og vangavelt-
ur innan og utan Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga (SÍS)
var loks komist að þeirri
niðurstöðu síðla kvölds á
þriðjudaginn að skipa þriggja
manna nefnd á vegum stjórnar
fyrirtækisins til að ræða það
við Guðjón B. Ólafsson, for-
stjóra fisksölufyrirtækis SÍS í
Bandaríkjunum, hvort hann
vildi taka við af Erlendi Ein-
arssyni, forstjóra SÍS, frá og
með 1. janúar 1987. Valur Arn-
þórsson, stjórnarformaður SÍS
og kaupfélagsstjóri á Akur-
eyri, er kom mjög til álita sem
forstjóri og naut raunar stuðn-
ings sex af níu í stjórn SÍS,
sagði í Morgunblaðsviðtali í
gær að hann teldi núverandi
starf sitt „skemmtilegra en að
vera forstjóri Sambandsins".
Jafnframt hefur Valur sagt, að
Guðjón B. Ólafsson eigi að
vera viðskiptalegur forstjóri.
Þegar á þarf að halda státar
SÍS sig af því að vera samtök
meira en 40.000 manna, að
vera félagsleg hreyfing og þar
með annað og meira en stór-
fyrirtæki sem rekið er á við-
skiptalegum grundvelli með
arðsemi að leiðarljósi og í póli-
tísku skjóli Framsóknarflokks-
ins. Vegna forstjóraskiptanna
hafa komið fram raddir um að
það ætti að vísa því máli til
þessa mikla fjölda, láta kjósa
um þá Guðjón B. Ólafsson og
Val Arnþórsson meðal félags-
manna í SÍS. Dregið skal í efa
að til þess komi nokkurn tíma,
af því að það er í raun æðsta.
stefna og markmið SÍS að
treysta stöðu sína í viðskiptum
og ráðning manna til að veita
forystu á því sviði fer ekki
fram í almennri atkvæða-
greiðslu meðal þúsunda
manna.
Átökin um eftirmann Er-
lends Einarssonar sýna, að það
er mikið fámennisvald í SÍS.
Við skoðanakönnun í stjórn
SÍS fékk Valur Arnþórsson
stuðning sex manna en Guðjón
B. Ólafsson þriggja, engu að
síður var Guðjón ráðinn. Skýr-
ingar Vals Arnþórssonar á því,
hvers vegna hann varð ekki við
óskum meirihluta stjórnar-
manna, eru ekki viðhlítandi.
Hafi hann verið búinn að lýsa
því yfir, að hann tæki
forstjórastarfið væri stjórnin
einhuga um það, afhenti hann
andstæðingum sínum neitun-
arvald. Ólíklegt er að jafn
reyndur félagsmálamaður hagi
sér þannig, en Valur hefði auð-
vitað getað útilokað eigið nafn
úr umræðum um forstjórasæt-
ið hefði hann viljað.
Hér skal því spáð, að sú
breyting verði á stjórnarhátt-
um í SÍS, að vald stjórnar-
formanns (Vals Arnþórssonar)
verði aukið; stjórnarformaður-
inn verði jafnsettur forstjór-
anum. Stjórnarformaður helgi
sig hinni félagslegu hlið en for-
stjóri viðskiptum. Stjórnarfor-
maðurinn verði eins konar
Suslov í lokuðu stjórnkerfi
SÍS. Verði þessi breyting gerð
yrði auðvelt að koma til móts
við óskir þeirra sem vilja aukið
lýðræði innan SÍS með því að
láta kjósa stjórnarformanninn
í almennri kosningu, þar með
fengi hann víðtækt umboð og
gæti boðið forstjóranum byrg-
inn í nafni hins mikla og
breiða fjölda.
Þessi átök öll um eftirmann
Erlends Einarssonar sýna, að
honum hefur á löngum ferli
sínum tekist á farsælan hátt
að skapa frið innan SÍS, halda
þannig á málum að jafnvægi
raskaðist ekki innan valda-
pýramídans. Öldur og órói
hafa hins vegar verið að magn-
ast í kringum stjórnar-
formanninn, Val Arnþórsson.
Ekki er ástæða til að ætla ann-
að en þeir Valur og Guðjón B.
Ólafsson nái samkomulagi og
Guðjón taki við af Erlendi.
Hitt er einkennilegt, að líða
skuli 18 mánuðir frá ráðningu
þar til hún tekur gildi. Auð-
vitað þarf allt að hafa sinn að-
draganda en svo langur um-
þóttunartími í stórfyrirtæki,
þar sem ekki er aðeins barist
um völd og áhrif á toppnum
heldur alls staðar í pýramíd-
anum, hefur í för með sér að
tómarúm myndast. Lægra
settir starfsmenn munu ókyrr-
ast en fá ekki tækifæri til að
vita vilja nýja forstjórans fyrr
en eftir eitt og hálft ár. Mun
stjórnarformaðurinn nota tím-
ann til að deila og drottna?
Þeir sem vilja auka áhrif sín
innan SÍS með lýðræðið á vör-
unum munu veita honum
stuðning til þess. í þeim flokki
eru alþýðubandalagsmenn
undir forystu Ólafs R. Gríms-
sonar.
Forstjóraskiptin í SÍS hafa
staðfest þá skoðun, að fyrir-
tækið sé auðhringur með
minnimáttarkennd gagnvart
eigin eðli og reynir því að
breiða yfir það með tali um fé-
lagslega gæsku sína og lýðræð-
isást.
eftir Ágúst
Guðmundsson
í fyrsta skipti sem ég kom til
Cannes var ég eins og hver annar
nesjamaður, vissi t.d. ekki að mað-
ur þyrfti að hafa sig talsvert í
frammi til þess að einhver tæki
eftir manni og léti svo lítið að
koma og sjá myndina manns. Á
síðustu stundu tókst að útvega
sýningartíma í litlum bíósal og
síðan útbjó ég lítið dreifibréf með
fyrirsögninni: „Small is beauti-
ful!“. Góðar konur frá Noregi og
Svíþjóð sögðu mér hverjum ég
ætti að bjóða og það var langur og
þreytandi dagur sem fór í að
ganga á öll hótelin og afhenda
dreifibréfið. Það tókst að vekja
forvitni fólks, enginn vissi við
hverju var að búast frá þessu fjar-
læga eylandi, og áður en vikan var
liðin var búið að ganga frá samn-
ingum við Þýskaland, Noreg og
Svíþjóð út af kvikmyndinni Land
og synir.
Það má segja að rétt eins og
heima á íslandi sé nýjabrumið
farið af íslensku kvikmyndunum í
augum erlendu kaupendanna.
Samt sem áður er greinilegur
áhugi ríkjandi á þessum sérstæða
vaxtarsprota í evrópskri kvik-
myndalist; nú þegar hafa tvær
kvikmyndahátíðir beðið um Gull-
sand þ.á m. kvikmyndahátíðin í
London sem ég hef miklar mætur
á og þar sem allar mínar fyrri
bíómyndir hafa verið sýndar.
Fleira er e.t.v. í uppsiglingu sem
erfitt er að fjölyrða um að svo
stöddu.
Kaup og sala
En hverjir koma svo til Cannes?
Því er fljótsvarað: þeir sem hafa
mynd að selja og svo þeir sem
vilja kaupa myndir. Cannes er
fyrst og fremst markaður þar sem
gríðarlegar upphæðir fara handa
á milli á furðu skömmum tíma. Að
vísu reynir stjórn hátíðarinnar að
hafa á öllu menningarlegan blæ og
ýmsir tilburðir eru hafðir í fram-
mi til að vekja athygli á svokölluð-
um listrænum myndum, en það
þarf ekki annað en að líta á list-
Hér fer á eftir tilboð það, sem
Vinnuveitendasamband íslands
lagði fram á fundi með forystu-
mönnum ASÍ og landssambanda í
gærmorgun.
TILLAGA AÐ KJARASAMN-
INGI milli Alþýðusambands ís-
lands vegna félaga, er beina aðild
eiga að sambandinu svo og Iðn-
nemasambands íslands og enn-
fremur Verkamannasambands ís-
lands, Sambands byggingamanna,
Landssambands iðnverkafólks,
Rafiðnaðarsambands íslands,
Málm- og skipasmiðasambands ís-
lands, Landssambands vörubíl-
stjóra vegna aðildarfélaga þeirra
svo og Verslunarmannafélags
Reykjavíkur og Landssambands
íslenskra verslunarmanna vegna
annarra félaga verslunarmanna
annars vegar og Vinnuveitenda-
sambands Islands vegna aðildar-
félaga þess og einstakra meðlima
hins vegar.
1. gr. Framlenging samninga.
Allir samningar ofangreindra
aðila framlengjast til 31. des. 1986
með þeim breytingum sem í samn-
ingi þessum felast.
2. gr. Launajöfnunarbætur.
ann yfir myndir sem valdar voru í
keppnina um Gullpálmann í ár til
að sjá að Mammon er með puttana
á pálmanum eins og svo mörgu
öðru. í rauninni er Cannes eins og
nokkurs konar útibú frá
Hollywood þessar tvær vikur sem
hátíðin stendur yfir.
Það er nefnilega engum blöðum
um það að fletta, hverjir ráða ríkj-
um í heimsmarkaðinum yfir
kvikmyndir. Kvikmyndaframleið-
andi einn frá Bretlandi orðaði það
sem svo í mín eyru, að MGM hefði
gert miklu meira til að auka áhrif
Bandaríkjanna erlendis heldur en
CIA, og það er erfitt að efast um
sannleiksgildi þess. Þeir hafa unn-
ið baráttuna um þriðja heiminn.
Þótt einstaka land vilji kaupa
vopn frá Rússlandi þá kaupir það
bíómyndir frá Ameríku.
Markaðsgildi hátíðarinnar sést
m.a. í því að frá íslandi var einn
kvikmyndastjóri og ein mynd
sýnd; hins vegar voru þar þrír ís-
lenskir bíóstjórar og gerðu samn-
inga um ýmsar myndir, langflest-
ar amerískar. Og ekki ætla ég að
fara að fjargviðrast út af því.
Kanar eru öðrum snjallari í að
gera skemmtimyndir og þeir
skammast sín ekkert fyrir að hafa
þá meginhugsjón að slá í gegn og
græða á því. Og út í hvern ætti ég
svo sem að fara að andskotast
þess vegna?
Keppnin
Ég hef aldrei áður gert mér eins
mikið far og nú um að sjá kvik-
myndir á hátíðinni (tíminn fer
gjarnan í viðræður við mismun-
andi mikilvægt fólk, að ógleymd-
um sólböðum og gómsætum dinn-
erum). Að vísu missti ég af júgó-
slavnesku myndinni sem hlaut
pálmann, enda var ég aðeins viku
á svæðinu.
Af þeim myndum sem ég sá
fannst mér Birdie hvað forvitni-
legust. Kvikmyndastjórinn er Al-
an Parker, sá sem gerði Bugsy
Malone, Fame, Midnight Express
og fleiri en leikararnir eru lítt
þekktir snillingar úr hópi yngri
manna í Bandaríkjunum. Rétt
eins og popplagið „19“, sem nú er
hvað vinsælast bendir á, fjallar
1. Þeir launþegar, sem taka laun
skv. 24. launaflokki eða lægri í
kjarnasamningi skulu fá sérstak-
ar launajöfnunarbætur. Launa-
jöfnunarbætur þessar skulu fram-
kvæmdar þannig, að öll störf skv.
launaflokkum 15.—24. skulu flytj-
ast upp um einn flokk, fyrst 1. júní
1985, og aftur um einn flokk hinn
1. september 1985.
2. Launajöfnunarbætur þessar
skulu engin áhrif hafa til hækkun-
ar á launum þeirra, er njóta betri
kjara en skv. lágmarksákvæðum
kjarasamninga um röðun starfa í
launaflokka kjarnasamnings og
starfsaldursþrep viðkomandi
flokks.
3. gr. Almennar launahækkanir.
Auk launajöfnunarbóta skv. 2.
gr. skulu allir kauptaxtar, samn-
ingsbundnar greiðslur og grunn-
tölur afkastahvetjandi launakerfa
hækka sem hér segir:
Hinn 1. júní 1985: um 5%
Hinn 1. sept. 1985: um 3%
Hinn 1. janúar 1986: um 5%
Hinn 1. júlí 1986: um 4%
Reiknitala í bónusvinnu í fisk-
vinnu og saumaskap skal vera sem
hér segir:
Hinn 1. júní 1985: 80 kr.
Hinn 1. sept. 1985: 84 kr.
Ágúst Guðmundsson
„En hverjir koma til
Cannes? Því er fljót-
svarað: þeir sem hafa
mynd að selja og svo
þeir sem vilja kaupa
myndir. Cannes er fyrst
og fremst markaður þar
sem gríðarlegar upp-
hæðir fara handa á milli
á furðu skömmum
tíma.“
Birdie öðrum þræði um það
hversu ungir stríðsmennirnir í Ví-
etnam voru og vefur vandræða-
skap í vaknandi kynlífi saman við
hrikalega lífsreynslu unglinganna
á vígvellinum. Að vísu byggist
myndin einum of mikið á talsvert
einhæfum symbólisma og á tíma-
bili í síðari hluta myndarinnar
hættir manni að finnast framferði
persónanna trúverðugt. En
kannski er þar komið það sem
hreif mig hvað mest: hversu langt
var hægt að komast og hversu
magnaðan boðskap unnt var að
setja fram með jafnankannalega
hugmynd í grunninn. Ég sé fyrir
mér fundina með peningamönnun-
um í Hollywood þar sem kvik-
myndastjórinn fór varfærnislega
yfir söguþráðinn:
Hinn 1. janúar 1986: 88 kr.
Hinn 1. júlí 1986: 92 kr.
4. gr. Verðlagsforsendur, opnunar-
ákvæði.
Samningur þessi byggist á eftir-
farandi spá um þróun vísitölu
framfærslukostnaðar m.v. 100 1.
febrúar 1984:
1. des. 1985: 150
1. júní 1986: 157
Verði vísitala framfærslukostn-
aðar meira en tveimur stigum
hærri en ofangreind spá gerir ráð
fyrir annaðhvort 1. desember 1985
eða 1. júní 1986 teljast forsendur
samningsins hafa brugðist. Við
þetta mat skal draga frá þá hækk-
un, er leiða kann af tekjuöflun rík-
issjóðs til að mæta kostnaði af
aukinni félagslegri þjónustu eða
aukinni fjáröflun til húsnæðis-
mála.
Bregðist forsendur skal taka til
athugunar hvort beinir skattar
hafa lækkað eða muni lækka hlut-
fallslega miðað við atvinnutekjur
eins og Þjóðhagsstofnun áætlar
þær. Hafi beinir skattar lækkað í
hlutfalli við ofangreinda viðmið-
un, skal meta ígildi lækkunarinn-
ar til launahækkunar á grundvelli
meðaltals af jaðarskatti allra
framteljenda. Sé launahækkunar-
Tillaga Vinnuveitendasambands íslands að kjarasamningi;
Samningar framleng
ist til ársloka 1986
— Laun hækki fjórum sinnum fram til 1. júlí 1986