Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐID, FÓSTUDAGUR 24. MAÍ 1985
Hvað segja verkalýdsforingjar um tilboð vinnuveitenda?
Magnús L. Sveins-
son, formaður VR:
„Meginmáliö
að stöðva
frekara kaup-
máttarhrap“
„TILBOÐ vinnuveitenda er merki-
legt af tveimur ástædum. í fyrsta
lagi er það nýmæli að vinnuveitend-
ur eigi frumkvæði að því að bjóða
launahækkun og í öðru lagi tel ég að
tilboð þeirra gangi lengra en menn
gátu vænst þó ég geti ekki á þessu
stigi úttalað mig um hvað það þýði
nákvæmlega," sagði Magnús L
Sveinsson, formaður Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur, þegar
leitað var álits hans á tilboði Vinnu-
veitendasambands íslands til ASÍ.
„Ég fagna því að málið skuli
vera komið á þetta stig eftir að
hluti verkalýðsforingja hafði lýst
andstöðu við að farið yrði fram á
viðræður við vinnuveitendur en
vildu í staðinn halda að sér hönd-
um fram á haust,“ sagði Magnús.
„Ég hef verið eindregið þeirrar
skoðunar að verkalýðshreyfingin
ætti nú þegar að óska eftir við-
ræðum um samning sem komi í
veg fyrir frekara kaupmáttarhrap.
Ég lýsti þeirri skoðun minni eftir
formannafund ASÍ, í viðtali sem
birtist í Mbl. á þriðjudag, að það
væri mikill ábyrgðarhluti að óska
ekki eftir slíkum samningum þeg-
ar fyrirsjáanlegt væri að kaup-
mátturinn héldi áfram að hrapa
með hverjum degi sem líður.
Ég vona að vinnuveitendur séu
nú reiðubúnir til að gera samn-
inga við einstök verkalýðsfélög
eða sambönd, þó einhver félög vilji
halda að sér höndum og gera ekk-
ert fram á haustið. Aðalatriði
málsins nú er að stöðva nú þegar
frekara kaupmáttarhrap og gera
samninga sem að fela í sér trygg-
ingu fyrir þeim kaupmætti sem
stefnt er að með væntanlegum
samningum,“ sagði Magnús L.
Sveinsson.
Guðmundur J. Guð-
mundsson formaður
Verkamanna-^
sambandsins:
„Aferðar-
fallegt — en
gyllingin þunn“
„MÉR LÍST illa á þetU tilboð. Það
er áferðarfallegt en þunn á því gyll-
ingin,“ sagði Guðmundur J. Guð-
mundsson alþingismaður og formað-
ur Verkamannasambands íslands.
Guðmundur sagðist telja að sú
afstaða Verkamannasambands ís-
lands, sem fram hefði komið á
formannaráðstefnu Alþýðusam-
bandsins sl. mánudag, hefði
„hækkað þetta tilboð“ en með því
væri „verið að gera tillögu um
framlengingu kjaraskerðingarinn-
ar frá 1983 fram á árið 1987.
Hækkununum er það haganlega
fyrir komið, að það er treyst á að
verkalýðsfélögunum reynist erfitt
að hafna því. Ég gleðst hinsvegar
yfir hjartahlýju Vinnuveitenda-
sambandsins — hún er orðin svo
mikil, að þeir vilja helst semja
strax í næstu viku — en ég hefði
viljað fá þessa hjartahlýju fyrr“.
Á fundi forystumanna ASf og
VSf í gærmorgun, þar sem at-
vinnurekendur lögðu fram tillögu
sína, kvaðst Guðmundur hafa út-
skýrt afstöðu Verkamannasam-
bandsins til kjarasamninga nú í
vor. „Ég var ekki mættur þar á
samningafund,” sagði hann, „enda
hafði ég ekkert umboð til samn-
inga. Ég var mættur til að ræða
um viðhorf, sem fram komu á for-
mannaráðstefnu ASÍ, og hafði lof-
að félögum mínum í ASÍ að mæta
sjálfur til að skýra afstöðu
Verkamannasambandsins."
Hann sagðist ekki hafa haft
tækifæri til að kynna sér tillögu
VSÍ mjög rækilega en taldi að í
henni væru allar spár mjög
knappar og fyrirvarar of margir.
„Það vekur mesta athygli, að í
þessari tillögu eru engar kaup-
trygKÍngar eða vísitala. Það eru
tveir möguleikar á endurskoðun
samningsins en um leið væru
menn að afsala sér kauphækkun-
um og eftir 1. júlí á næsta ári eru
engar frekari kauphækkanir eða
kauptryggingar," sagði hann.
„Mér sýnist að samkvæmt þessari
tillögu hækki laun um 2—4% um-
fram verðhækkanir. Það er ekki
nóg.“
Jón Helgason,
formaður Einingar:
„Rétt að
reyna á þetta
strax“
„ÉG VAR einn af þeim innan Verka-
mannasambandsins sem vildu ein-
mitt láta reyna á samninga nú. Ég er
enn sömu skoðunar, tel rétt að láta
reyna á það strax við samningaborð-
ið hvort hægt er að ná viðunandi
samningum. Það er betra að ná slík-
um samningum nú en bíða með það
til haustsins," sagði Jón Helgason,
formaður Verkalýðsfélagsins Eining-
ar á Akureyri, þegar leitað var álits
hans á tilboði VSL
Jón taldi að nú ættu menn að
setjast niður og reyna að ná samn-
ingum. Hann sagði nauðsynlegt að
ná til baka þeim kaupmætti sem
tapast hefði og gera betur en al-
gert grundvallaratriði væri að
slíkir samningar væru tryggðir
þannig að stjórnvöld gætu ekki
tekið þá til baka með einu penna-
striki. „Hinsvegar tel ég að kaup-
hækkanir eins og samið var um í
haust séu verri en engar, og betra
að láta slíka samninga ógerða,"
sagði Jón.
Jón sagðist ekki hafa fengið
nógu góðar fregnir af tilboði VSÍ
til að geta rætt það í einstökum
atriðum. Hann sagði þó að það
hlyti að verða númer eitt að gera
sérstakt átak fyrir lægst launaða
fólkið, það er það fólk sem setið
hefði eftir á meðan ýmsir aðrir
hópar hefðu haft allt sitt á þurru
með launaskriði.
Kolbeinn Frið-
bjarnarson, for-
maður Vöku á
Siglufirði:
„Tilboð um
samninga
niður á við“
„EF ÞAÐ fylgdi verðtrygging á því
sem samið væri um væri þetta tilboð
allrar athygli vert En án verðtrygg-
ingar er það nákvæmlega jafn mikið
út í bláinn og samningarnir í nóv-
ember. Þetta held ég að hvert
mannsbarn skilji og þarfnist ekki út-
skýringa," sagði Kolbeinn Frið-
bjarnarson, formaður Verkalýðsfé-
lagsins Vöku á Siglufirði, þegar leit-
að var álits hans á tilboði vinnuveit-
enda.
„Mér finnst afar ótrúlegt að
ábyrgir aðílar eins og Vinnu-
veitendasambandið og Alþýðu-
sambandið fari að leika sama vit-
leysisleikinn aftur. öll þjóðin og
þeir sjálfir hafa vitað það siðan í
nóvember að ekkert þýðir að gera
slíka samninga. Nú er farið að tala
um slíkt aftur og jafnvel til lengri
tíma. Þetta er tómur skollaleikur,"
sagði Kolbeinn.
Kolbeinn sagðist ekki hafa séð
tilboðið en samkvæmt þeim fregn-
Morgunblaöið/ Júlíus
Frá fundinum í gærmorgun, þar sem forystumenn Vinnuveitendasambandsins kynntu forsetum Alþýðusambandsins
og formönnum landssamtaka þess tillögu að nýjum kjarasamningi aðila.
um sem hann hefði fengið fæli það
í sér 24% hækkun á 18 mánuðum
og minna á hærri taxtana. Núna
væri dýrtíðin 23% miðað við 12
mánaða tímabil og miðað við
sömu dýrtíð út samningstímann
þyrfti 30% kauphækkun bara til
að vega hana upp. Þessu fylgdi
hins vegar engin verðtrygging, að-
eins möguleikar til að ræða málin
á ákveðnum tímum, sem þýddi það
að hvert kaupmáttarþrep væri bú-
ið áður en til þess kæmi. „Þetta
eru því samningar niður á við, að
því gefnu að dýrtíð verði svipuð,“
sagði hann.
„Þessi leikur Vinnuveitenda-
sambandsins er sjálfsagt leikur í
tafli. Þeir eru að reyna að forðast
það að mæta okkur í september.
Þeir eru hræddir. Ég hef þó ekki
trú á að þeim takist það með þessu
tilboði," sagði Kolbeinn. Hann
sagði að ef VSÍ væri ekki tilbúið
til að ræða kaupmáttartryggingu
samhliða tilboði sínu væri ekkert
annað að gera en bíða til hausts-
ins.
Karvel Pálmason,
formaður Verka-
lýðs- og sjómanna-
félags Bolungar-
víkur:
Hlýtur að
breyta afstöðu
VMSÍ
„ÞAÐ átti auðvitað enginn von á
þessari stöðu í málunum," sagði
Karvel Fálmason alþingismaður og
formaður Verkalýðs- og sjómanna-
félags Bolungarvfkur um tillögu VSÍ.
„Við fyrstu sýn virðist þessi til-
laga vera umræðugrundvöllur i
stöðunni eins og hún er nú. Nú
hlýtur Verkamannasamband Is-
lands að endurskoða afstöðu sína
til málsins. Ég sé enga stöðu aðra
fyrir sambandið,“ sagði Karvel.
„Það er ekki hægt að segja enda-
laust: Ég vil ekki, ég vil ekki.“
Hann sagðist telja að tillaga
VSÍ yrði rædd gaumgæfilega á
framkvæmdastjórnarfundi Verka-
mannasambandsins á þriðjudag-
inn og að afstaða formannaráð-
stefnu sambandsins yrði tekin til
endurskoðunar. „Ég fæ ekki betur
séð en að boltinn sé nú hjá Verka-
mannasambandinu,“ sagði Karvel
Pálmason. „Afstaða þess hlýtur að
skipta verulegu máli, því innan
þess eru rúmlega 40% allra félaga
í Alþýðusambandi íslands."
Bjarni Jakobsson,
formaður Iðju:
„Verður að
skoða með
jákvæðu
hugarfari“
„JÁ, ÉG tel að skoða eigi þetta til-
boð þeirra gaumgæfilega og ekki
eigi að setja það frá sér án ræki-
legrar athugunar,“ sagði Bjarni
Jakobsson, formaöur Iðju, félags
verksmiðjufólks í Reykjavík, að-
spurður um hvort hann teldi tilboð
VSÍ raunhæfan grundvöll að nýjum
kjarasamningi aðila.
Bjarni sagðist ekki sjá annað en
í tilboðinu væri lögð áhersla á að
lægstu launin hækki mest, en
hækkunin færi ekki upp allan
launastigann. Það væri stórt skref
fram á við. Hann sagði að menn
hefðu enn ekki haft tækifæri til að
skoða tilboðið ofan í kjölinn og
bera saman bækur sínar en taldi
að framhaldið hlyti að verða það
að verkalýðsfélögin boði til funda
fyrr en seinna til að ræða tilboðið.
Síðan yrði gengið til samninga við
%'mm
Seltjarnarnes
- sjávarlód
180 fm einbýlishús á 1200 fm fallegri
sjávarlóö. 70 fm bílskúr. Telkn. og
uppl. á skrifstofunni.
Hæð í Laugarásnum
6 herb. 180 fm vönduö efri sérhaaö.
Glæsilegt útsýni. Bílskúr
Tómasarhagi - 3ja
85 fm snyrtileg og björt íbúð í kjallara.
Laus fljótlega. Bílskúrsróttur. Útb.
aöeins 1. millj.
Raðhús í smíðum
Hötum fengtö til sölu þrjú 200 fm raö-
hús á glæsilegum staö i Ártúnsholtinu.
Húsin afhendast frágengin aö utan
m. glerl en fokheid aö Innan. Innb.
bílskúr Fríöaö svsböI er sunnan hús-
anna. Teikn. og uppl. á skrifstofunni.
Húseignir v. Hverfisgötu
Byggingarréttur. Til sölu 400-500 tm
verslunar- og skrllstoluhúsnæöi vlö
Hverfisgötu m. byggingarréttl. (Samp.
teikn ). Teiknlngar og nánari uppl. á
skrifstofunni.
Ránargata - 4ra
90 fm íbúö í risl (lítlö undlr súö). Tvenn-
ar svalir Verö 1900 þús.
Engjasel - 4ra-5 hb.
117 fm góö endaíbúö á 3. hæö. Glæsi-
legt útsýní. Verð 2A millj.
Mávahlíð - sérhæö
130 fm neöri sérhæö i þribýtishúsi
ásamt bAskúr. Verö 3,2-3,3 miltj.
Við Álfheima - 4ra
Um 110 fm íbúö á 4. hasö. Laus nú
þegar. Verð míllj.
Hraunbær - 130 fm
5-6 herb. endaíbúð á 3. hæð. Gott út-
sýnl. Tvennar svalir. 4 svefnherb. Verð
2,6 millj.
Fellsmúli - 4ra-5 hb.
117 fm vðnduö íbúö á 2. hssö í Hreyfils-
blokkinni. Suöursvalir.
Viö Espigeröi - 4ra
130 fm vönduö íbúö á 7. hssö f ettlr-
sóttu háhýsi. Qööar Innréttlngar. Stér-
ar svalir.
Hulduland - 4ra
Ca. 110 fm góö íbúö á 2. hæö. Akveöin
sala. Verð 2,7 millj.
Efstihjalli - 4ra
116 fm góð íbúð á 1. hæö. Góð lóð.
Verð 2,4 miNj.
Krummahólar - 3ja
90 fm góö suöurfb. á 6. hasö ásamt
bilskýti. Stórar suóursvalir. Verö 1900
Þós.
Espigerði - 3ja
Um 100 fm góö íbúð á 4. haaö í eftir-
sóttu háhýsl. Verð 3,0 millj.
Njörvasund - 2ja
Samþykkt snotur ibúó á jarðhæó
Varð 1200 þús.
Kleppsvegur - 2ja
60 fm björt íbúö á 6. hæö ofarlega vlö
Kleppsveg í eínnl af þessum vinsælu
lyftublokkum. ibúöin snýr öll i suöur.
Verð 1600-1650 þús.
Arnarnes - lóðir
Höfum til sölu 2 veistaösettar lóölr vlö
Kríunes og Súlunes. öll gjöld greidd.
EicnamioLunm
ÞINGHOLTSSTRÆTI 3 SiMI 27711
Sölustjóri: Sverrir Kristinsson.
Þorleifur Guömundsson, sölum.
Unnsteinn Beck hrl., sími 12320.
Þörólfur Halldórsson, lögtr.
Vinnuveitendasambandið og
þyrfti það ekki endilega að vera í
samfloti.
„Okkur ber að skoða þetta tilboð
með jákvæðu hugarfari," sagði
Bjarni, „en ekki í gegn um pólitísk
gleraugu Alþýðubandalagsins,
minnug þess að verðbætur á Iaun
voru skertar fjórtán sinnum í
ráðherratíð Svavars Gestssonar,
núverandi formanns Alþýðu-
bandalagsins."
PAfTciGnainui
VITAfTIG 15,
f. 96020* 26065.
Vesturgata
2ja herb. íb. 65 fm á 2. hæð i
steinhúsi. Nýi. innr. Laus fljótl.
Verð 1450 þús.
Laugavegur
Einstakl.íb. 40 fm á 2. hæð. 2
herb. og eldhús. Verð 850 jaús.
Bollagata
2ja herb. samþykkt góö íb. 45 fm
íkj. Verð 1100 þús.
Kríuhólar
3ja herb. íb. á 3. hæð ca. 90 fm.
Verð 1600-1650 þús. Laus fljótl.
Hverfisgata
3ja-4ra herb. íb. 75 fm á 1. haað
í nýl. steinh. Verð 1650 þús.
Jörfabakki
4ra herb. falleg íb. 100 fm á 3.
hæö.Toppíb. Laus fljótl. Verð
2,1 millj.
Kríuhólar
3ja-4ra herb. íb. 110 fm á 2.
hæð. Falleg íb. auk bílsk. Verð
2,3 millj.
Fífusel
4ra berb. falleg íb. 110 fm á 2.
hasö auk bilskýlis. Verö 2,3 millj.
Blöndubakki
4ra herb. ib. 110 fm. Suðursv. +
herb. í kj. Verð 2.250 þús.
Æsufell
5-6 herb. íb. á 7. haað. 150 fm.
Frábært útsýni. Suðvestursv.
Verö 3 millj.
Reynimelur
4ra herb. íb. á 1. hæö 110 fm.
Vinkilsvalir. Laus strax. Verð 2,5
millj.
Framnesvegur
Raöhús á þrem hæðum 110 fm.
Skemmtilegf hús. Verð 2,5 millj.
Fljótasel
Endaraöhús á tveimur hæöum
170 fm. Harðviðarinnr. Bílskúrs-
rétfur. Sameign fullfrágengin.
Verð 3,6 millj.
Flúöasel
Glæsilegt raöhús 220 fm. Harð-
viöarinnr. Steyptur hringstigi
milli hæða. Verð 4150 þús.
Frostaskjól
Fallegt endaraöhús 265 fm auk
bflskúrs. HEtrðviðarinnr. Verö
5,5 millj.
Barrholt - Mos.
Glæsilegt einb.hús 150 fm auk
bdskúrs. Sóriega fallegar innr.
Ný teppi. Verð 4,1 millj.
Ásgarður
Endaraöhús 116 fm. Fallegur
garöur. Verð 2,3-2,4 millj.
Skoðum og verðmetum
samdægurs
Bergur Oliversson hdl.,
Gunnar Gunnarsson h»: 7741tt