Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 24.05.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 17 í fljótapramma. Hafnaryfirvöld í Osaka sýndu skipi og áhöfn þess þann sóma að koma um borð i skipið og bjóða það sérstaklega velkomið til Japans. Færðu þau skipstjóra blómvönd og skipi og útgerð áletraðan skjöld til minn- ingar um komu skipsins til Osaka. Skipið hélt síðan til Kawasaki þar sem losað var það sem eftir var af farminum og síðan haldið til Dalian í Kína og lagst þar við ankeri 9. mars. Þar biðu þá um 150 skip eftir afgreiðslu. I höfnum sem slíkar aðstæður skapast er venjan að útflutningur fær for- gang. Engu að síður mátti ms Akranes bíða við ankeri i sjö daga. Lestun tók aðeins rúman sólar- hring og sigldi skipið þann 17. mars með um 6.000 tonn af magn- esite til Baltimore í Bandaríkjun- um og var siglt yfir Kyrrahafið. Á Kyrrahafi hreppti skipið stöðugan mótvind stóran hluta leiðarinnar og kom til Los Angeles þann 7. apríl til að taka olíu og vistir. Skipið hélt síðan af stað suður með vesturströnd Ameríku og kom skipið að Panamaskurðin- um 20. apríl. Mörg skip biðu að vestanverðu við skurðinn og var nokkur bið áð- ur en haldið var í gegnum skurð- inn, en sigling i gegn tekur 12—18 klst. eftir aðstæðum. Til Baltimore kom skipið 30. apríl og að losum lokinni var siglt til Lampert Point (Norfolk) til að lesta fullfermi af kolum til ís- lenska Járnblendifélagsins. Til ís- lands var síðan lagt af stað þann 3. maí með 7100 tonn af kolum og komið til Grundartanga 16. maí eða réttum fjórum mánuðum frá upphafi ferðarinnar frá Grund- artanga. Samtals sigldi skipið 27.614 sjó- mílur í þessari hringferð og strax að lokinni losun, sem stendur í um 30 klst. heldur skipið til Þorláks- hafnar þar sem það lestar full- fermi af vikri til Danmerkur á vegum Jarðefnaiðnaðar. Er það stærsti vikurfarmur sem fer frá íslandi með sama skipi. í áhöfn ms Akranc3 eru 18 manns, þar af tveir frá Akranesi. JG Varahlutir fyrir IH- búvélar og Farmall EINS og komið hefur fram í fréttum þá hefur International Harvester selt allar búvélaverksmiðjur sínar í Ameríku og Evrópu til fyrirtækisins Tenneco Inc. í Bandaríkjunum. Það verður því hætt að fram- leiða International Harvester- búvélar og Farmal-dráttarvélarn- ar. Sambandið hefur verið umboðs- maður fyrir International-búvélar í 58 ár og er mikil eftirsjá í þess- um góðu vélum sem hafa þjónað íslenskum landbúnaði svo vel og lengi. Búnaðardeild Sambandsins mun, að minnsta kosti út þetta ár, halda áfram að selja varahluti í þessar vélar og geta bændur og aðrir eigepdur þeirra áfram snúið sér til varahlutaverslunarinnar í Ármúla 3 með þau viðskipti. Þar er fyrirliggjandi mjög gott úrval af hvers konar varahlutum fyrir IH-búvélar svo og Farmal-drátt- arvélarnar. Tenneco Inc. á fyrirtæki sem heitir J.I. Case sem meðal annars rekur búvélaverksmiðjur. Case hefur nú yfirtekið flestar búvéla- verksmiðjur International Harv- ester og mun í framtíðinni vera ábyrgt fyrir að framleiða vara- hluti í búvélar sem framleiddar voru af International Harvester. International Harvester rekur áfram vörubílaverksmiðjur sínar, sem Sambandið er umboðsmaður fyrir. Þá mun sambandið áfram selja og þjóna International- þungavinnuvélunr. (Fréttatilkynniiu' fri Búnaðardeik’. SlS) Sýndi líkan af Vogunum árið 1950 HAGLEIKSMAÐURINN Guðmundur M. Jónsson sýndi nýlega líkan er hann hefur unnið af byggðinni í Vogum, eins og hún var árið 1950. Inni á líkaninu er komið fyrir auk allra íbúðarhúsa, fiskverkunarhúsum, útihúsum, girðingum og brunnum, og þannig mætti áfram telja. Árið 1982 sýndi Guðmundur lík- an er hann vann af byggðinni í Vogum og sýndi byggðina árið 1930. Á sýningunni nú voru einnig líkön af öllum íbúðarhúsum eins og þau voru árið 1930, auk þess líkön af flestum skólum í Vatns- leysustrandarhreppi. E.G. fRád Fresturinrf er a renna út ruR AF SKATTSKYLDUM TEKJUM AF ATVINNUREKSTRI Fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa tekjur af atvinnurekstri er nú heimilt að draga 40% frá skatt- skyldum tekjum til að leggja i fjárfestingarsjóð. Frádrátturinn er bundinn því skilyrði að helm- ingur fjárfestingarsjóðstillagsins sé lagður inn á bund- inn 6 mánaða reikning fyrir 1. júlí n.k. vegna tekna árs- ins 1984. Ef reikningsárið er annað en almanaksárið skal lagt inn á reikninginn innan 5 mánaða frá lokum reikningsárs. Innstæður á reikningunum eru verðtryggðar sam- kvæmt lánskjaravísitölu og bera sömu vexti og aðrir 6 mánaða reikningar. Reikningsinnstæðum má ráðstafa að loknum 6 mánaða binditíma, en innan 6 ára. Enn er hægt að njóta þeirra skattfríðinda sem að framan er lýst, við álagningu tekjuskatts og eignaskatts á árinu 1985 vegna tekna ársins 1984. Fresturinn að þessu sinni er til 1. júní n.k. Upplýsingar um stofnun fjárfestingarsjóðsreikninga eru veittar í sparisjóðsdeildum og hagdeild Landsbankans. LANDSBANKINN Græddur er geymdur eyrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.