Morgunblaðið - 24.05.1985, Side 7

Morgunblaðið - 24.05.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 „Fegurðardrottning íslands 1985**: Stúlkurnar þrettán kynntar í kvöld Rod Stewart og Kelly Emberg gestir á krýningarhátíðinni á mánudagskvöldið STÚLKURNAR þrettán, sem keppa til úrslita um titlana Fegurðardrottn- ing íslands og Fegurðardrottning Reykjavíkur í ár, koma fram á kynn- ingarkvöldi fegurðarsamkeppninnar í veitingahúsinu Broadway í kvöld. Þar velja Ijósmyndarar Ljósmynda- fyrirsætu ársins 1985 og stúlkurnar sjálfar velja þá vinsælustu úr sínum hópi. Jafnframt verður gerð skoð- anakönnun meðal gesta um hug þeirra til sigurvegara í keppninni, að sögn Baldvins Jónssonar, uraboðs- manns keppninnar hérlendis. Fegurðardrottningarnar verða krýndar í Broadway á mánu- dagskvöldið og verður það breski rokksöngvarinn Rod Stewart, sem krýnir Fegurðardrottningu ís- lands. Stewart kemur hingað til lands á mánudag ásamt vinstúlku sinni, Kelly Emberg — sem mun Söngsveitin Fílharmónía 25 ára Um þessar mundir eru liðin 25 ár frá fyrstu tónleik- um Söngsveitarinnar Fflharmóníu. Afmelisins verður minnst með ýmsum hætti og fyrst og fremst með tónleikum þann 30. maí nk. í Háskólabíói. Á tónleik- unum flytur Söngsveitin oratóríuna Judas Maccabæus eftir G.F. Hándel með Sinfóníuhljómsveit íslands. Einsöngvarar eru Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sigríð- ur Ella Magnúsdóttir, Jón Þorsteinsson og Robert Becker. Stjórnandi er Guðmundur Emilsson. Þessir tónleikar eru jafnframt framlag Söng- sveitarinnar Fílharmóníu og Sinfóníuhljómsveit- arinnar til 300 ára afmælis G.F. Hándels, sem minnst er á þessu ári. Gefinn hefur verið út afmælisbæklingur í tilefni afmælis söngsveitarinnar. Þar er m.a. getið allra verka sem söngsveitin hefur flutt á starfsferli sín- um og ýmissa atriða í starfi og sögu söngsveitar- innar getið í máli og myndum. Starfi vetrarins lýkur með veglegu afmælishófi, sem haldið verður á Hótel Esju þ. 31. maí nk. Gamlir félagar eru minntir á tónleikana og einnig hvattir til að taka þátt i afmælishófinu. (Úr frétutilkjnninffu) Rod Stewart krýnir fegurðardrottn- ingu íslands. vera ein af tíu launahæstu sýn- ingarstúlkum Bandaríkjanna um þessar mundir — og fleiri kunn- ingjum. Rokkarinn fylgist með landsleik íslands og Skotlands á Laugardalsvellinum á þriðjudags- kvöldið en heldur síðan rakleiðis til Englands með einkaþotu. Kynningarskemmtunin hefst með borðhaldi kl. 19 í kvöld og verður dansað til kl. 03 að dagskrá lokinni. Stúlkurnar þrettán munu koma tvívegis fram, í baðfötum og í samkvæmiskjólum, sem flestir eru sérsaumaðir fyrir þetta kvöld. Af skemmtiatriðum á kynning- arkvöldinu má nefna að þau Ást- rós Gunnarsdóttir og Cornelius Carter dansa við „Stef um fegurð" eftir Gunnar Þórðarson, félagar úr Dansstúdíói Sóleyjar sýna nýj- an dans eftir Sóleyju Jóhannsdótt- ur, hljómsveitin Rikshaw kemur fram, sýnd verður nýjasta tíska og Björgvin Halldórsson syngur nokkur lög, sem Rod Stewart hef- _____________________________7_ ur gert vinsæl víða um heim, við undirleik hljómsveitar Gunnars Þórðarsonar. — Verð aðgöngu- miða á kynningarkvöldið er kr. 1.200 en inn á úrslitakeppnina á mánudagskvöldið kostar kr. 2.400. Uppselt er á þá skemmtun. Erlendir fjölmiðlar hafa sýnt keppninni talsverðan áhuga, eink- um vegna þess að Rod Stewart skuli koma hingað ásamt frk. Emberg til að krýna fegurðar- drottningu íslands á Broadway, að því er Baldvin Jónsson sagði í samtali við Mbl. Sjónvarpsmenn frá BBC, breska ríkisútvarpinu, munu væntanlega kvikmynda krýninguna og fleiri hafa óskað eftir myndum og fregnum $f at- burðinum. Bresk frei- gáta í Sundahöfn BRESKA freigátan ('leopatra verður í Sundahöfn í Reykjavík yfir hvíta- sunnuna, frá 24. til 27. maí. Síðdegis á laugardag frá klukkan 14 til 17 verður skipið opið almenningi til skoðunar. Cleopatra er 3200 lestir og um borð eru 267 manna áhöfn, þar af 17 foringjar undir stjórn R.T. Newmans, kafteins. Skipið var smíðað 1964 en endurnýjað 1975 meðal annars með Exocet-flug- skeytum. Cleopatra er sérstaklega vel búin til gagnkafbátaaðgerða og loftvarna. 1982 var skipið hið fyrsta í breska flotanum sem var búið nýju sónar-kerfi til kafbáta- leitar. Einkunnarorð freigátunnar Cleopötru eru „invicta ut olim“ eða „óbuguð að vanda". Forsalan er i Bonaparte Austurstræti í dag kl. 11.30—18.00 Miðasala á morgun Í Laugardal kl. 17—17 Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu ísland Skotland á Laugardalsvelli 28. maí kl. 19.00. Nú fara allir á völlinn og hvetja okkar menn í hörkubaráttu í jafnri keppni. Aðgöngumiðaverð: Stúka kr. 400, stæöi kr. 250, börn kr. 100 THIOIP ®°n|Mrte LoBft°i;.ka’ Smiðjan oa hotel Akureyri Einhvern tíma veröa öll úr SEIKO FLUGLEIDIR HB

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.