Morgunblaðið - 24.05.1985, Síða 27

Morgunblaðið - 24.05.1985, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 27 Evrópsku flugfélögin: Skuldlaus um önnur áramót Rnuwel, 23. maí. AP. ÞAU 20 FÉLÖG, sem aðild eiga að Sambandi evrópskra flugfélaga, gera ráð fyrir, að hagnaðurinn í ár verði samtals 650 milljónir dollara, sá sami og í fyrra, en um 950 milljónir dollara á næsta ári. Kemur þetta fram í skýrslu, sem nýkomin er út frá sambandinu, sem skammstafað er AEA. í skýrslu sambandsins segir, að áriö 1984 hafi félögin 20 flutt 109 milljónir farþega og tvær milljónir tonna af vörum og að aukningin hafi verið hlutfalls- lega 5,5% og 15% frá árinu áður. í sérstakri skýrslu framkvæmda- stjórans, Karl-Heinz Neumeist- er, segir, að nú sé búist við, að fyrir árslok 1985 muni verða buið að greiða upp þær skuldir, sem safnast hafi saman á árunum eftir 1978. Árið 1982 voru þessar skuldir orðnar samtals rúmlega tveir milljarðar dollara. Á síðasta ári jukust flutningar á flestum flugleiðum, innan Evr- ópu um 8,5% og yfir Atlantshaf- ið um 7,7%. Á flugleiðum til Austurlanda fjær og til Ástralíu var aukningin rúmlega 5%. Víetnamar hrakt- ir frá Thailandi Bmngkok, Thmilaodi, 23. mti. AP. Víetnamska herliðið, sem fór inn í Suðaustur-Thailand snemma í þessum mánuði, hefur nú hörfað til baka til Kambódíu. A.m.k. 17 lík hafa fundist, þar sem herinn fór yfir, að sögn talsmanns thailenska flotans. Sakchai Kaewjinda aðmíráll kvað landgönguliða flotans hafa lokið við á laugardag að hrekja Víetnamana, sem voru 800—1000 að tölu, burt úr landinu. Kvað hann Víetnamana hafa lagt jarð- sprengjur áður en þeir yfirgáfu dvalarstaði sina i Trat-héraði, um 280 km suðaustur af Bang- kok. { aðgerðum þessum létu átta thailenskir hermenn lífið og 65 særðust, að sögn Sakchai. Hann kvað ástandið á landa- mærum Thailands og Kambódíu nú aftur með eðlilegum hætti. Filippseyjan Aquin-réttar- höldin hefjast aftur 17. júní Mmnila, Filippnejjum, 23. mmi. AP. Ákæruvaldið lauk í dag sönnunar- færslu í máli Fabians C. Ver, yfir- manns herráðs Filippseyja, og 25 annarra manna, sem ákærðir hafa verið fyrir morðið á stjórnarand- stöðuleiðtoganum Benigno Aquino. Ákveðið hefur verið að réttar- höld í málinu hefjist að nýju 17. júní, og munu varnaraðilar þá leiða fram vitni. Dómararnir, sem eru þrír, hafa gefið yfirsaksóknaranum, Manuel Herrera, frest til 3. júní til að skila formlega af sér þeim 200 sönnunargögnum, sem lögð hafa verið fram frá því að málaferlin hófust 22. febrúar. Kólumbus skip- stjóri á íslandsfari Frá Inguri (>uómundHHyni. SAtiAN um að Kristófer Kólumb- us hafi fengið staðfestar hugmynd- ir sínar um lönd í vestri er hann kom til íslands ungur að aldri og beyrði um landafundi Leifs heppna hefir skotið upp kollinum á ný og á áhrifameiri hátt en fyrr. Nýlega frumsýndi Columbia Broadcasting System sex klukkustunda þátt um æviferil Kólumbusar. f upphafi þáttarins er Kólumbus látinn vera skip- stjóri á íslandsfari. Skipverjar finna flak á reki og á því er lík af manni með svip Ásíumanna. Kólumbus er látinn segja: „Þetta er nákvæmlega lýsing Marko Polo á útliti Asíumanna." Þetta á að hafa sannfært Kólumbus um að það væru lönd í vestri og að það væru Asíulönd. Þegar Kólumbus kemur til íslands — i sjónvarpsættinum — hlustar hann á söguþul segja frá landa- fundum fslendinga i Ameríku. Ekki er þó Leifur heppni nefnd- ur, né Bjarni Herjólfsson, en sagnaþulurinn virðist tala á lat- ínu og frásögn hans er þýdd jafnóðum fyrir Kólumbus. Sjónvarpsþáttur þessi var auglýstur vel fyrir frumsýning- una, sem var skipt á tvö kvöld á Kristófer Kólumbus besta sjónvarpstíma, svo millj- ónir manna munu hafa horft á þáttinn á skjánum. Þátturinn er talin vera nákvæm ævisaga Kól- umbusar og eftir bestu heimild- um. Þátturinn var tekinn á Möltu og í Suður-Ameriku. Það er sagt, að IBM-tölvufé- lagið hafi greitt 12 milljónir dollara fyrir að hafa verið einka- stuðningsaðili að sjónvarpsþætt- inum. Volvo- þjónustuferö 1985 Eins og undanfarin ár veröa starfsmenn okkar (deildarstjórar varahluta- og þjónustudeilda) staddir hjá eftirtöldum umboðsaóilum sem hér segir: Selfossi Bifreiöaverkst. K.Á. himmtud. 23/5 kl. 10—12 Hvolsvelli Bifr. verkst. K.R. Fimmtud. 23/5 kl. 2—4 Akranesi Bifr.verkst. Guöj. og Ólafs Þriðjud. 28/5 kl. 11—2 Borgarnesi Bifr.verkst. B.T.B. Þriöjud. 28/5 kl. 3—6 Stykkishólmur Nýja Bílaveri Miövikud. 29/5 kl. 10— 12 Tálknafiröi Vélsmiöju Tálknafjarðar Fimmtud. 30/5 kl. 1—3 Bolungarvík Vélsmiöju Bolungarvíkur Föstud. 31/5 kl. 9—12 ísafiröi Bílaverkst. ísafjaröar Föstud. 31/5 kl.. 2—4 Suöurlandsbraut 16, sími 35200. Jakkaföt, stakir jakkar og blússur í miklu úrvali

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.