Morgunblaðið - 24.05.1985, Side 29

Morgunblaðið - 24.05.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 29 „Sko, svo verður hann ástfang- inn af gulum kanarífugli..." Ég hafði gaman af The Purple Rose of Cairo eftir Woodie Allen, en samt ekki nógu gaman til að ástæða sé til málalenginga. f þess- ari mynd birtist Woodie ekki sjálfur, og það er út af fyrir sig kostur, þó ekki væri nema af til- breytingunni sem i því felst, en stíllinn er auðþekkjanlegur og vissulega margt skondið að ske. Mér hefur fundist það megin- styrkur Woodies hvernig honum hefur tekist að kcrtleggja líf nú- tímafólks í stórborg, t.d. í mynd- unum Annie Hall og Manhattan, einhvern veginn verður viðfang- sefnið rýrara þegar komið er aftur á margumfjallaða krepputíma. Kvikmyndatökumaður Woodies er enn sem fyrr Gordon Willis, sem filmar svarthvíta búta úr „gam- alli“ ævintýravellu af umtalsverðu öryggi, og Mia Farrow leikur hér jafnvel enn betur en í Broadway Danny Rose. Ég varð fyrir vonbrigðum með Mishima, fannst einhvern veginn efniviðurinn kalla á magnaðri og afdráttarlausari útfærslu en boðið var upp á. Ramminn utan um verkið er frægt sjálfsmorð sögu- hetjunnar með harakiri og að- dragandi þess, en uppistaða verk- sins eru bútar úr skáldsögum Mis- hima, færðir í leikbúning. Bútum þessum er væntanlega ætlað að varpa Ijósi á ævilok skáldsins, en það ljós var einfaldlega ekki nógu bjart. Handritshöfundur og stjómandi er Paul Schrader, sem líklega er frægastur fyrir handrit- ið að Taxi Driver. Claude Chabrol sýndi ágæta glæpamynd, Poulet au Vinaigre, í gamla góða stílnum (sem meðal annars hafði greinileg áhrif á Morðsögu). Mynd þessi nær að vísu ekki upp á sama stall og bestu myndir höfundar síns, svo sem Le Boucher, Que la bete meure eða La femme infidele, en hlýtur samt að teljast meira en ánægjuleg af- þreying, og átti vafalaust erindi í keppnina. Sama verður væntan- lega ekki sagt um Pale Fire eftir Clint Eastwood, án þess að þar með sé sagt að hasarmyndin sú standi ekki fyrir sínu. Þarna leyfi ég mér að halda, án þess að geta sannað eitt né neitt, að Mammon eigi hlut að máli. Hátíðin vill um- fram allt ekki missa ameríska spóninn úr aski sínum. Að lokum er rétt að geta Grím- unnar, Mask, eftir Peter Bogdano- vich, mynd sem er í ætt við Fíla- manninn fræga og fjallar um ljónamann, dreng sem hefur sjald- gæfan sjúkdóm sem afmyndar höfuðiag og andlitsdrætti. Þarna var oftar en einu sinni farið yfir leyfileg væmnismörk, enda má segja sem svo að efniviðurinn kalli á slík brot. Reyndar fékkst ég ekki til að trúa því að sagan væri í einu og öllu sönn, jafnvel þó að móðir fyrirmyndarinnar væri í salnum og tæki við velútilátnum fagnað- arlátum í lok sýningar. Þar er reyndar komið að merkilegu um- ræðuefni: hversu nálægt raunveruleikanum er hægt að komast í kvikmynd sem hefur á sér öll einkenni draumaverksmiðj- unnar víðfrægu? Hvað er sann- leikur og hvað er skáldskapur? Og hvaöa máli skiptir sannleikurinn ef skáldskapurinn er hrífandi? Skiptir hann bara nokkru máli? Hvað sem um það má rífast var ég nokkuð sáttur við það að Cher skyldi fá verðlaun fyrir túlkun sína á móðurinni (þær sátu þarna saman og horðu á sig, tvær per- sónur að horfa á sig í líki einnar persónu ...) Öngþveiti Enn sem fyrr var allt of margt fólk á staðnum, ekki þverfótað fyrir frönskum túristum sem áttu þá ósk heitasta að fá að sjá kvik- myndastjörnu berum augum (og fengu mestmegnis að sjá fólk eins og mig í staðinn). Öll hótel voru yfirfull, allt á uppsprengdu verði að vanda, jafnt húsnæði sem fæði, en samt var það allt saman þess virði. Canneshátíðin er engri ann- arri lík og hún er ótvírætt sú mik- ilvægasta í veröldinni. Og það má líka finna ánægjuauka í öllu amr- íska skruminu, eins og t.d. þegar 25 flugvélar flugu yfir svæðið með auglýsingaborða til að vekja at- hygli á kvikmyndinni um jóla- sveininn (sem ég er sannfærður um að er léttvæg mynd og jafnvel léleg). Tilgangurinn er væntan- lega sá sami og hjá stúlkunni sem háttaði sig á gangstéttinni fyrir framan veitingastaðinn þar sem ég var að borða hádegisverð: að vekja á sér athygli. Og á því hafa þau báeði fullan rétt: jólasveinninn og sú bera. Og þá ekki síður ég sjálfur með dreifibréfin mín. Höfundur er krikmyndagerðar- maður og leikstjóri. ígildi skattalækkunar hlutfalls- lega meira en hækkun fram- færsluvísitölu umfram leyfileg frávik skal telja að samningarnir hafi aðlagast breyttum forsend- um. Hafi forsendur brugðist á ann- arri hvorri ofangreindra dagsetn- inga og samningarnir ekki aðlag- ast breyttum forsendum, skulu Alþýðusamband íslands og vinnu- veitendasamband íslands hafa frest fram til 29. sama mánaðar til að ná samkomulagi um úrbætur. Komi til slíkra samningavið- ræðna skal taka mið af breyttum efnahagslegum forsendum s.s. viðskiptakjörum, aflabrögðum og útflutningsframleiðslu. Náist ekki samkomulag um úr- bætur getur Alþýðusamband ís- lands sagt samningnum upp með eins mánaðar fyrirvara og koma þá ekki frekari launahækkanir skv. samningi þessum til fram- kvæmda. 5. gr. Gildistími. Samningur þessi gildir frá und- irskriftardegi, enda hafi samn- ingsaðilum borist tilkynning um staðfestingu innan þriggja vikna frá undirskrift. Hafi tilkynning ekki borist innan umrædds frests, öðlast samningurinn fyrst gildi frá staðfestingardegi. Samningur þessi gildir til 31. desember 1986 og er uppsegjanleg- ur miðað við þann dag af hálfu beggja aðila með eins mánaðar fyrirvara. Sé honum ekki sagt upp framlengist hann um þrjá mánuði í senn með sama uppsagnarfresti." AF ERLENDUM VETTVANGI eftir Guðm. Halldórsson Ógnarstjórn á Austur-Tímor INDÓNESÍSK yfirvöld á Austur-Tímor hafa staðið fyrir skyndiaftökum og fjöldahandtökum, ef trúa má skýrslu frá kaþólskum presti þar, Carlos Ximenes Belo. Gífurlegt og hörmulegt umrót á sér stað og þjóðin á þaö á hættu að henni verði útrýmt, segir hann. Hann segir að Indónesíuher standi fyrir stöðugum aðgerðum gegn miðstöðvum andspyrnu- hreyfingarinnar, að ungt fólk sé neytt til að ganga í hjálparsveit- ir og taka þátt í hernaðaraðgerð- um, að fjöldi bænda hafi verið handtekinn og að sú hætta vofi sífellt yfir að karlmenn í þorp- um, sem eru á bandi andspyrnu- hreyfingarinnar, verði líflátnir. Indónesar hafa lengi ráðið vesturhluta eyjunnar Tímor, sem getur orðið mikilvæg vegna olíu út af ströndinni. Austur- Tímor var portúgölsk nýlenda til 1975. Það ár ætluðu Portúgalar að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð nýlendunnar. En borgarastríð brauzt út milli stuðningsmanna Indónesa og Fretelin-hreyfingarinnar, sem er vinstrisinnuð og nýtur víð- tæks stuðnings meðal íbúanna, sem eru kaþólskir. Fretelin lýsti einhliða yfir sjálfstæði Austur-Tímor í nóv- ember 1975. Indónesar gerðu innrás í desember og stuðn- ingsmenn þeirra komu þingi á laggirnar á yfirráðasvæði sínu og lýstu yfir sameiningu við Indónesíu. Indónesar neituðu að leyfa er- lendum fulltrúum að koma til Austur-Tímor eftir innrásina, en samkvæmt upplýsingum flótta- manna, alþjóðlegra hjálpar- stofnana og kaþólsku kirkjunnar létust 150.000 manns af völdum styrjaldarátaka, hungurs og sjúkdóma á fyrstu árum stjórn- ar Indónesa. Indónesar hafa verið sakaðir um þjóðarmorð á A-Tímor. Þjáningar íbúanna hafa þótt minna á hörmungarnar í Kamb- ódíu. Sumir sögðu að 250.000 manns hefðu látizt í kjölfar innrásar- innar. Indónesískir hermenn eyðilögðu uppskeru svo að skæruliðar fengju ekki matvæli og margir dóu úr hungri. íbúar Austur-Tímor voru 650.000 um 1970. Portúgalar neituðu að viður- kenna innlimun Austur-Tímor í Indónesíu og sögðu að íbúarnir yrðu að fá að ráða framtíð sinni. Allsherjarþing SÞ samþykkti ályktun 1977 og neitaði að viður- kenna innlimunina, þar sem íbú- arnir hefðu ekki fengið eð neyta sjálfsákvörðunarréttar síns. Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri SÞ, hefur umboð frá Allsherjarþinginu til að stuðla að samkomulagi. Sendiherrar Indónesíu og Portúgals hjá SÞ hafa átt fundi um Austur-Tímor í New York síðan í júlí 1983. Portúgalar hafa ekki viljað að Fretelin taki þátt í viðræðunum, en de Cuellar hefur staðið í sambandi við hreyfing- una. Fretelin segir að Tímorbúar muni ekki sætta sig við tvíhliða samkomulag Portúgala og Indó- nesa, ef sjálfsákvörðunarréttur Tímorbúa verði ekki virtur. Fretelin óttast afstöðu Portú- gala. Portúgalar virðast orðnir leiðir á deilunni og telja að þeir geti lítil áhrif haft. Orðrómur hefur verið um að þeir vilji við- urkenna yfirráð Indónesa gegn því að Austur-Tímor fái sjálf- stjórn að nafninu til og að menn- ingar- og trúfrelsi verði tryggt. Indónesar lýstu því yfir 1983 að Austur-Tímorbúar hefðu neytt sjálfsákvörðunarréttar síns á frjálsan og lýðræðislegan hátt og að hvers konar umræður SÞ um Austur-Tímor jafngiltu afskiptum af innanríkismálum Indónesíu. Leynilegar friðarviðræður Fretelin og Indónesa fóru út um þúfur 1983. Lýst var yfir bráða- birgða-vopnahléi 23. marz 1983 og skæruliðar fengu að fara til þorpa sinna. Friður komst á og sveltandi íbúar Austur-Tímor gátu sáð í fyrsta skipti síðan 1975. En Indónesar vildu ekki leyfa þjóð- aratkvæði og vopnahléð fór út um þúfur. Skæruliðar Fretelin Fretelin sakaði Indónesa um að rjúfa vopnahléð í maí 1983 með því að fella tvo skæruliða- foringja og sjö skæruliða í fyrir- sát í þorpinu Ribeira de Laleia. Sendimaður Fretelin, Sahe Nir- iki, sem fór á fund Indónesa í júní, var handtekinn og myrtur. Indónesar sökuðu hins vegar Fretelin um að hafa rofið vopna- hléð þegar skæruliðar felldu 16 indónesíska hermenn í þorpinu Caralas í ágúst 1983. Að sögn flóttamanna myrtu indónesískir hermenn 200 til 300 borgara í hefndarskyni. Indónesar kvöddu 20.000 menn í herinn á Austur-Tímor og hófu mikla sókn til að útrýma Fretel- in í eitt skipti fyrir öll. Aðgerð- um átti að ljúka í desember, en enn er barizt. „Hermönnum hefur fjölgað að undanförnu og bardagar geisa annan eða þriðja hvern dag,“ sagði ónefndur flóttamaður í fyrrasumar. „Hermenn hafa brennt hús til ösku, 300 á einum stað. Réttarhöld fara oft fram og æ fleira fólki er varpað í fang- elsi. Portúgali nokkur var dæmdur til dauða fyrir að skrifa Fretelin." Hann sagði að indónesísku hermennirnir kæmu illa fram við Tímorbúa, tækju frá þeim matvæli og misþyrmdu þeim. í handbók indónesískra her- manna, sem var stolið, eru ráð- leggingar um hvernig bezt sé að hafa stjórn á íbúunum. Þar sem fjallað er um yfirheyrslur segir: „Ef beita þarf ofbeldi skal þess gætt að ekkert fólk sé ná- lægt og sjái hvað gerist. Forðizt að taka ljósmyndir, sem sýna pyntingar." Flóttamenn hafa sagt frá eyði- leggingum á landsbyggðinni, hungri. kóleru, blóðkreppusótt og fleiri sjúkdómum, pyntingum og mannáti, ofsóknum og frels- isskerðingu. Fólk, sem hefur verið grunað um að standa í sambandi við Fretelin, hefur verið stungið til bana eða barið í hel fyrir framan nágranna sína. Þúsundir indónesiskra borg- ara hafa flutzt til Austur-Tímor og gegna mikilvægustu störfum í stjórnkerfinu og viðskiptalífinu. Að Indónesum meðtöldum munu íbúar Austur-Tímor vera nú um 500.000. Tunga Timormanna er ekki notuð í skólum og portúgalska aðeins kennd í skóla kirkjunnar. Leitað hefur verið í skólum og nemendur yfirheyrðir. Flestum kirkjum hefur verið lokað. Prestar hafa verið ofsótt- ir. Á síðustu mánuðum hafa Indónesar skorið upp herör gegn hungri og fátækt, reynt að bæta lífskjörin og lokka skæruliða til byggða. Hungur virðist ekki lengur al- varlegt vandamál í bæjum. Alls hefur verið varið 258 milljónum dala til að reisa sjúkrahús og skóla, leggja vegi og efla land- bunað. í ár verður 60 millj. dala varið í sama skyni, 20% meira en 1984. Þessi viðleitni hefur borið nokkurn árangur. Indónesar hafa treyst yfirráð sin, en eiga enn í höggi við skæruliða. Vegið hefur verið að rótum menningar Tímorbúa og baráttan heldur áfram.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.