Morgunblaðið - 24.05.1985, Side 39

Morgunblaðið - 24.05.1985, Side 39
39 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1985 Minning: Jón Einarsson í Vestri-Garðsauka Það var Kristján á Felli, sem leiddi okkur saman á vordögum árið 1956, kempan með austrænu höfðingsbragði, mikilúðlegur, og röddin dökk og dálítið hrjúf, en þeim mun fegurri í söng. Eitthvað dró hann austur á bóginn eins og fleiri. Þar að auki þekkti hann nauðsyn þess, að sveitaprestur ætti góðan hest. Jón hafði brugðið sér frá, en Þorvaldar á Skúmsstöðum, móð- urbróður síns, hafði hann getið við Kristján. Var því brugðið á það ráð að finna Þorvald að máli. Og satt var orðið. Folar hans voru geðfelldir og einhver óskráð ævintýri í augum þeirra. Þó voru þeir svo sem ekkert hjá mannin- um sjálfum. Hávaxinn, en grann- holda, dökkur á brún og brá, ábúð- armikið yfirskegg, augun þó svipmest, dökk, fögur og einarð- leg, eins og óræðir brunnar, fullir harðra lífsrauna og mildrar, djúprar vizku, — lýstu þó þeim stálvilja sem öllu býður birginn. Hann kom til dyranna, eins og hann var búinn, alúðlegur og skrumlaus, þurfti engar kúnstir til að halda reisn sinni. Hún var þar, sem hann var. Og einsætt var, hversu hann hefði komið fyrir sjónir prúöbúinn á mannþingum. Margorður var hann ekki, en tal hans allt líkt því, sem lesa mátti úr augunum. Það var stór stund að vera gestur hans og líkast sögu eftir H.C. Andersen að sjá hann og heyra gæla við fola sína í hesthúsi. Þar varð öldurmannlegur höfðing- inn að barnagælu. Síðast fund- umst við af hendingu á Hellu. Ekki löngu síðar varð hann fyrir slysi og lét lífið af þeim meiðslum. Það voru döpur tíðindi. 1 fám orðum að segja, þá þótti mér mikið til þeirra frænda koma, beggja, þegar við fyrstu fundi. Jón fundum við í heimleið, og hvorug- um hefði ég gleymt, þótt ég hefði lítið séð til þeirra síðar. Ekki tók Jón svo mjög fast í hendi, en hann kvað þeim mun fastar að orði og sleppti öllum hégóma, og ekki síð- ur þótt prestur ætti í hlut. En það fannst á tali hans, að honum var umhugað, að presturinn yrði ekki fyrir prettum, og það eins, þótt hann kynni að vera auli á hesti. Það fór svo, að við Jón bundum með okkur kunningsskap, sem löngu var orðinn nokkuð sérstæð vinátta. Löngum lét hann að vísu svo, sem honum þætti lítils vert um erindi það, sem prestar væru að reka, en naumast held ég, að hann hafi nokkurn tima látið hjá líða að minnast á trú eða kristinn dóm, þegar fundum bar saman. Gjarna lét hann þess einnig getið, að hann hefði verið uppalinn við biblíufræði og trúrækni. Grunur minn er sá, að hann hafi haft meiri skömm á hræsni og yfir- drepsskap en sannri trú. Hins veg- ar þótti honum nokkur skemmtun í að storka málkunningjum og erta þá, sem einhvers staðar báru snöggan blett. Stundum þyrlaði hann upp nokkru moldviðri af þeim sökum, enda var lognmollan ætíð fjarri honum. Hann fór aldr- ei með veggjum, var skorinorður og talaði fullum rómi, sindrandi mælskur í samræðum, tungutakið ósvikið og íslenzkt, stundum nokk- uð hrjúft af ásetningi, — en aldrei hálfkveðnar setningar á vörum hans. Sjó hafði hann stundað framan af ævi og siglingar, — kvaðst hafa verið frábitinn búskap á þeim ár- um. Hygg ég, að hann hafi talið sjóinn bezta skóla sinn, og aldrei gat hann þess, að menntavegur hefði staðið honum opinn. Þó mun svo hafa verið. Auðsætt var aftur á móti, að sjómennskan hafði sett nokkurt mark á hann. Þá vini mat hann einna mest, er hann hafði kynnzt á sjó, hélt við þá tryggð og dáði hreysti þeirra og drengskap. Sjálfur mun Jón hafa verið hraustmenni á yngri árum. Mun hann hafa líkzt móðurfrændum sínum, vörpulegur á velli, fríður og svipmikill. Var ekki laust við, að yfirsvipur hans minnti á mynd Sæmundar Hólms af Sveini Páls- syni, lækni. Á mannfundum sóp- aði að honum. Þar kom um síðir, að hin ramma taug dró Jón heim til föðurtúna. Þau Sóley settust að í Garðsauka og hófu búskap þar. Og nú kemur að því, sem ósagt er og þó sannast Nýtt apótek í Breiðholti Nýtt apótek var opnað 17. maí sl. að Drafnarfelli 14—16 í Breiðholti III. Apótekinu hefur verið valið nafnið Lyfjaberg og er það »ótt í Eddukvæði, Fjölsvinsmál. Opnunartími apóteksins er frá klukkan 9.00 til 18.00 mánudags til föstudags. Við apótekið starfa tveir lyfjafræðingar auk aðstoð- arfólks. Stofnandi apóteksins er Guðmundur Steinsson lyfsali. Frá vinstri: Kristín G. Guðmunds- dóttir lyfjafræðingur, Ágústa Svans- dóttir í afgreiðslu, Guðmundur Steinsson lyfsali og eigandi apóteks- ins, Erna Kristjánsdóttir lyfjafræð- ingur og Guðfinna Benjamínsdóttir í afgreiðslu. Uorgunblaöið/Bjarni sagna. Jón reyndist flestum bænd- um ólíkur í samtíð sinni. Einhver skáldaæð eða sköpunargáfa var það ef til vill, sem olli því. Hann hóf að rækta íslenzkt gæðingakyn af méiri stórhug og dirfsku en gerðist, á þeim árum, er aðrir bændur tóku að drepa niður hross sín. Engan mann hef ég þekkt, sem hefði gleggra auga á eðli hrossa, né kynni betur að meta kosti þeirra að óreyndu. Frið hross, háreist, fasmikil, framsæk- in og framtakssöm voru hugsjón hans. Svo fjörvandur var hann, að þar þurfti allt að vera á yztu mörkum. Viðkvæmni, fjör og mik- ið næmi hlaut að fylgja slíku. Hross hans gátu því aldrei orðið við hvers manns hæfi. Þakkarskuld mín við Jón í Garðsauka er ógoldin. Ef til vill dreymdi okkur báða um bók. Hún hafði komið til orðs, — í hálfkær- ingi, eins og fleira. Héðan af verð- ur hún ekki skrifuð, — ekki með þeim hætti, sem ég hefði kosið. Hitt er mér ljóst, að ég á Jóni fleiri gleði- og dýrðarstundir að þakka en flestum mönnum mér óskyldum. Vinátta okkar varð mér að gæfu. Við fráfall hans varð ég vini fátækari. Sóleyju, börnum þeirra Jóns, og fjölskyldu allri sendum við hjónin samúðarkveðjur, þökkum marga góða stund í Garðsauka og biðjum þeim blessunar um alla framtíð. „Ég þakka fyrir." Guðm. Óli Ólafsson /StTJlichael / MIMSFRÆG GÆÐAVARA" FRÁ Marks & Spencer Við bjóðum fjölbreytt úrval D U US| I í ? STEINAVERKSMIÐJA: af gangstéttarhellum og Söluskrifstofa, sýningarsvæði skrautsteinum. Breiðhöfða 3, Skoðaðu sýningarsvæði okkar að Breiðhöfða 3 og fáðu þér bækling. 110 Reykjavík Sími: (91) 68 50 06 AMERÍKA POBTSMOUTH/NORFOLK City of Perth 31. maí Laxfoss 11. júní City of Perth 21. júni Bakkafoss 25. júni NEW YORK City of Perth 29. mai Laxfoss 10. júní City og Perth 24. júni Bakkafoss 24. júni HALIFAX Laxfoss 14. júní BRETLAND/MEGINLAND IMMINGHAM Eyrarfoss 26. mai Alafoss 2. júni Eyrarfoss 9. júni Alafoss 16. júní FEUXSTOWE Eyrarfoss 27. maí. Alafoss 3. júni Eyrarfoss 10. júní Alafoss 17. júní ANTWERPEN Eyrarfoss 28. mai Alafoss 4. júní Eyrarfoss 11. júni Álafoss 18. júní ROTTERDAM Eyrarfoss 29. mai Alafoss 5. júní Eyrarfoss 12. júní Alafoss 19. júni HAMBORG Eyrarfoss 30. mai Alafoss 6. júní Eyrarfoss 13. júni Álafoss 20. júni GARSTON Fjallfoss 3. júní USSABON Skeiðsfoss 13. júni PtNATAR Skeiösfoss 19. júní NORÐURLÖND/- EYSTRASALT BERGEN Reykjafoss 24. mai Skogafoss 31. mai Reykjafoss 7. júní Skogafoss 15. júní KRISTIANSANO Reykjafoss 27. maí Skógafoss 3. júní Reykjafoss 10. júní Skógafoss 17. júni MOSS Reykjafoss 27. mai Skogafoss 4. júni Reykjafoss 11. júni Skógafoss 81. júní HORSENS Reykjatoss 29. maí Reykjafoss 13. júnf GAUTABORG Reykjafoss 28. mai Skógafoss 5. júni Reykjafoss 12. júni Skógafoss 19. júní KAUPMANNAHÖFN Reykjafoss 30. mai Skógafoss 7. júni Reykjafoss 14. júni Skógafoss 20. júni HELSINGBORG Reykjafoss 31. mai Skógafoss 7. júni Reykjafoss 14. júní Skógafoss 21. júni HELSINKI Lagarfoss 14. júni GDYNIA Lagarfoss 17. júní ÞÓRSHÖFN Reykjafoss 3. júní Skógafoss 9. júni RIGA Lagarfoss 16. júni UMEÁ Lagarfoss 12. júni EIMSKIP

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.