Morgunblaðið - 24.05.1985, Síða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1985
„Éj ie-lc venjule^a. Zoo kr. ■R/rir.-en þú
öleppar rne^ hálft gjald."
Ast er...
... að lána henni
sjónaukann á
kappreiðunum.
TM Reg. U.S. Pat. Off — all rights reserved
«1985 los Angeles Times Syndicate
Augnablik. Hvað er það sem ég
drekk er ég a-tla að gleyma öllu?
Er ekki smápláss fyrir mig?
HÖGNI HREKKVÍSI
„ HAKJM HE.FUK STÓfíFURÐUL BGA
KfMNlGÁFU
Nokkur orð um Njálu-
draum Hermanns Jónas-
sonar frá Þingeyrum
Þorkell Hjaltason skrifar:
Á þessu ári eru rétt 92 ár liðin
frá því að Hermann Jónasson
dreymdi þennan merkilega draum
um Njálu. Óhætt er að fullyrða að
Hermann er einn draumspakasti
Islendingur sem lifað hefur og
starfað hér á landi á þessari öld.
Er hann dreymdi Njáludrauminn
var hann skólastjóri Búnaðarskól-
ans að Hólum í Hjaltadal. Um
draumlíf sitt hefur Hermann ritað
merkilega bók er hann nefnir
„Dulrúnir" og kom hún út á árun-
um milli 1920 og 1930.
Um sannleiksgildi bókarinnar
þarf enginn að efast því draum-
arnir komu allir nákvæmlega
Hlustandi skrifar:
Kæri Velvakandi.
Nokkur orð vegna útvarpsefnis.
Nýlega hlustaði ég á þátt Bjargar
Einarsdóttur um íslenskar konur
og var hún að segja frá systrunum
Ingibjörgu og Marfu Claessen frá
Sauðárkróki. Um þessar konur
fram í vökunni eins og hann
dreymdi þá sofandi í rúmi sínu.
Hér á eftir er tekið atriði beint úr
Njáludraumnum:
„Draumamaðurinn sagði mér að
ég hefði miklar mætur á Njáls-
sögu og væri henni kunnugur.
Ennfremur sagði hann að ég
rengdi margt í henni og benti
hann á allmörg atriði, sem ég
hirði eigi að telja upp. En mig
vantaði að vita hvað væri hið
sanna. Þá tók hann það fram að ég
áliti sum atriði röng er rétt væri
skýrt frá í sögunni. Tók hann t.d.
fram að ég áliti að sagan hallaði
allmjög á Hallgerði langbrók, en
það væri að mestu rangt skoðað
hafði ég aldrei heyrt neitt, vissi
ekki að þær hefðu verið til. En
mér fannst lýsingin á þeim svo lif-
andi og skýrt dregin að ég sá þær
fyrir mér ljóslifandi. Áreiðanlega
er töluverður vandi að semja slík-
ar persónulýsingar og það er trúa
mín að þarna hafi snilldarlega
tekist.
hjá mér. Það var töframagn
brjálseminnar í augum hennar er
Iæsti þeim helfjötrum að þótt
hann vissi að hún réði sér Loka-
ráð gat hann þó ekki spornað á
móti því að ríða þegar í stað vest-
ur í Dali og láta Hrút drepa sig án
þess að „vígamaðurinn og ofstop-
inn“ veitti nokkra verulega vörn.
En eftir þetta var Hallgerður alla
æfi aldrei með fyllilega réttu eðli
og því virðist svo erfitt að skilja
hana.“
Á öðrum stað í draumnum segir
svo: „Höskuldur kom snemma
morguns á akurinn. Hann hafði
yfir sér skykkjuna Flosanaut.
Vopn sín bar hann í annarri hendi,
kornkippu í hinni. Þá spratt
Skarphéðinn undan garðinum og
mælti: „Nú skulum vér ljúka mál-
um vorum Höskuldur." „Vel er
það,“ svaraði Höskuldur, „og er ég
þessa tilbúinn." Tekur hann þá
vopn sín og börðust þeir djarflega
og var Höskuldur hinn vígfimasti.
Eigi skipti þó mörgum höggum áð-
ur en Skarphéðinn höggur í höfuð
Höskuldi með öxinni Rimmugýgi
svo að í heila stóð. Féll Höskuldur
þegar dauður niður. Þeir hittust
þá Njálssynir og Kári og Mörður.
Skarphéöinn lýsti viginu á hendur
sér. Þá mælti Mörður: „Nú skulum
vér allir særa Höskuld sínu sárinu
hver. Mun þeim þá þykja erfiðara
að leita hefndanna og verður þá
auðveldara að koma á sættum."
Þeir féllust á þetta og særðu Hös-
kuld fjórum djúpum sárum auk
banasársins er Skarphéðinn hafði
veitt honum. „Hér tel ég lokið
Höskulds sögu Hvítanessgoða eða
eigi er þörf að segja hana lengri,"
mælti draummaður minn.
Ég vil svo að lokum hvetja yngri
kynslóðina til þess að kynna sér
vel og lesa rækilega allan Njálu-
draum Hermanns. Hann er vel
þess virði og einnig er gaman að
bera hann saman við söguna því
draumurinn er í allmörgum atrið-
um öðruvísi en Njálssaga greinir
frá, eins og dæmin sýna, er hér
eru tilfærð.
Fimmtugasti þáttur Bjargar Einarsdóttur um ævi og störf íslenskra kvenna
var á dagskrá í byrjun maí sl. og í tilefni afmælisins fengu tæknimenn og
höfundur sér konfekt. Frá vinstri: Astvaldur Kristinsson, Magnús Hjáim-
arsson, Þórir Steingrímsson, Óskar Ingvarsson og Björg Einarsdóttir.
Lifandi lýsing
Aðdáendur erlendra hljómsveita
ættu að ganga í aðdáendaklúbba úti
Prince-aódáandi og útvarpshlust-
andi skrifar:
Kæri Velvakandi:
Það hafa komið hér fram óskir
um að stofna aðdáendaklúbb með
söngvaranum Prince. Ég vildi að-
eins koma með tillögu í þeim efn-
um. Ég held að það yrði alrangt að
hafa hann í Traffic. Maður sér
hvernig Duran Duran- og Wham-
aðdáendaklúbbarnir starfa. Þetta
er ekkert nema peningaplokk og
lítið sem aðdáendur fá fyrir sinn
snúð.
Bróðir minn er í Duran Duran-
aðdáendaklúbbnum og er mjög
óánægður. Ég held að best væri
fyrir Prince-aðdáendur, sem hafa
áhuga á að stofna klúbb, að gera
það þá með öðrum hætti eða
hreinlega ganga í aðdáendaklúbb
hans úti. Eg er t.d. í aðdáenda-
klúbbi Michael Jacksons í Amer-
íku og hef fengið heilmikið sent
þaðan gegn vægu verði t.d. sér-
staka plötu, sem Jackson bræður
tóku upp í heimastúdíói og á þeirri
plötu tala þeir beint til aðdáenda
sinna.
Ef einhverjir hafa áhuga á að
skrifa út og athuga málið, læt ég
hér fylgja með heimilisfang:
Prince and the Revolution at: P.O.
Box 858, Old Chelsea Station, New
York, N.Y. 10113.
Að lokum langar mig að biðja
gott útvarpsfólk á rás 2 að spila
meira með Prince. Það er undan-
tekning ef plötur hans eru spilað-
ar. Nýlega var gefin út plata með
honum — plata sem bókstaflega
hefur farið með ljóshraða um
bandariska vinsældalistann. Lög
af þessari plötu hafa varla heyrst
á rásinni þrátt fyrir fjölmarga að-
dáendur, sem biða spenntir eftir
að heyra lögin af henni.
Ég bið ekki um að fá Prince í
hverjum þætti heldur aðeins stað-
festingu á því að rásarmenn viti
hver Prince er.
Einnig mætti sjónvarpið sýna
meira með Prince. Það ætti að
vera hægt. Svona allra síðast
langar mig að þakka fyrir þáttinn
„Gullhálsinn", sem er á rás 2. Pét-
ur Steinn stendur sig vel þar og
hefur greinilega áhuga á efninu og
vona ég að hann haldi áfram á
sömu braut. Takk fyrir.