Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 2

Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985 Flutningar til vamarliðsins: Tekjutap vegna Rainbow300 millj. ÍSLENSKU skipafélöRin, sem lengst af um 300 milljónum króna í tekjur af hafa annast flutwinga á vörum til á síðustu 12 mánuðum vegna sigl- varnarliðsins í Keflavík, hafa orðið inga á vegum bandaríska skipafé- Iðnaðarráðherra: Rétt að menn gera reikninga fyrir sérfræðiþjónustu SVERRIR Hermannsson iðnaðarráð- berra segist ekki geta daemt um rétt- mæti þeirra reikninga sem starfsmenn og nefndarmenn álviðraeðunefndar hafa gert iönaðarráðuneytinu. Hann segir hins vegar að menn þessir hafi unnið störf sín vel, og þetta hafi verið nauðsynjaverk. Sverrir segist telja að greiðslur til þessara manna hafi verið með svipuðum hætti og tíðkast hafi til manna í sömu störfum í tíð forvera hans á ráðherrastól, Hjörleifs Gutt- ormssonar. Hann bendir jafnframt á að engar greiðslur hafi verið inntar af hendi frá iðnaðarráðuneytinu. Fjármálaráðuneytið hafi móttekið reikninga og greitt þá. Albert Guðmundsson fjármála- ráðherra segir aftur á móti að frá þvi að hann tók við ráðherraembætti hafi aldrei einn einasti reikningur verið greiddur til nefndarmanna ál- viðræðunefndar eða starfsmanna hennar, öðruvísi en það hafi verið að beiðni iðnaðarráðherra. Sverrir Hermannsson var i gær spurður hvort hann teldi eðiilegt að nefndarmenn i álviðræðunefnd Vilja hefja yiðræður við VSÍ STJÓRN Verzlunarmannafélags Reykjavíkur samþykkti í gær að ganga til viðræðna við VSÍ með ákveðnum skilyrðum. Á fundi formanna landssam- banda Alþýðusambands íslands sem haldinn var í gær kom fram, að fundir þeirra landssambanda sem fjallað hafa um tilboð Vinnu- veitendasambands íslands hafa lýst yfir vilja til að hefja viðræður við VSÍ þar sem látið verði reyna á hvort samningar geti náðst. Rafiðnaðarsambandið kemur saman til fundar um tilboð VSl I dag. tækju laun sem slíkir, og jafnframt sérstök laun sem starfsmenn nefnd- arinnar: „Ef þeir vinna sérstök verk, sem þeir eru kannski sérfræðingar í, þá finnst mér rétt að þeir geri reikn- inga fyrir sérfræðiþjónustu sína.“ Hann sagði þegar hann var spurður hvort það væri ófrávíkjanleg regla að samþykkja alla reikninga sem bærust: „Nei, það er ekki svo, enda dreg ég í efa að allir reikningar hafi verið samþykktir, sem fram hafa verið lagðir.“ Sjá nánar forystugrein blaðsins á miðopnu í dag. lagsins Rainbow Navigation Inc., að sögn Þórðar Sverrissonar, fulltrúa framkvæmdastjóra Eimskipafélags íslands. Siglingar bandaríska félagsins hafa haft veruleg áhrif á afkomu íslensku skipafélaganna, að þvi er fram kom í samtölum við tals- menn þeirra í gær. Lýstu þeir miklum áhyggjum vegna þess hve seint gengi að fá skýr svör um hugsanlegar ráðstafanir banda- rískra yfirvalda í málinu en kváð- ust binda vonir við fyrirhugaðan fund Geirs Hallgrímssonar utan- ríkisráðherra og Georges Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í tengslum við utanríkisráðherra- fund NATO í Portúgal í næstu viku. Morgunblaðið spurði ólaf Eg- ilsson, skrifstofustjóra utanríkis- ráðuneytisins, hvort rétt væri að þar lægi tilbúið frumvarp til laga, sem bannaði siglingar erlendra vöruflutningaskipa hingað í skjóli útlendra einokunarlaga. Hann kvaðst ekki vilja tjá sig um hvaða ráðstafana íslensk stjórnvöld kynnu að grípa til. „Þetta er mjög alvarlegt mál fyrir íslensku skipa- félögin og ef ekki verður breyting á má búast við einhverjum mótað- gerðum," sagði hann. Nordfoto/Slmamynd Geir Hallgrímsson skoðaði sig um á Garði { Kaupmannahöfn í gærmorgun. F.v. Henrik Gade Jensen, hringjari á Garði, Geir Hallgrímsson, Leif Grane, garð- prófastur, og frú Erna Finnsdóttir, eiginkona utanríkisráðberra. Geir Hallgrímsson á blaðamannafundi f Kaupmannahöfn: Embættismannaviðræður um Rockall-kröfurnar Kaupmannahöfn, 29. maf. Fri Ib Bjornbak, frétUriUra Morgunblateins. GEIR Hallgrímsson, utanríkisráð- herra, sagði á blaðamannafundi í Kaupmannahöfn í dag, að ríkisstjórn íslands teldi nauðsynlegt að embætt- ismenn frá löndum þeim, sem gera kröfur til Rockall-klettsins á land- grunninu suður af Færeyjum, hittust og bæru saman bækur sínar. Sagði hann að það væri sjónarmið íslend- inga, að samningar um skiptingu Rockall-landgrunnsins yrðu að taka mið af því hvaða auðlindir þar er að finna. Utanríkisráðherra sagði, að af- staða Islendinga til kjarnorku- vopna væri hin sama og Dana og Norðmanna. Kjarnorkuvopn yrðu ekki staðsett á Islandi án sérstaks leyfis stjórnvalda og skip, sem flytja kjarnorkuvopn, fengju ekki að koma inn fyrir lögsögu lslands. Aftur á móti taldi ráðherrann ekki ástæðu til að kanna það sérstaklega í hvert og eitt skipti hvort skip frá ríkjum Atlantshafsbandalagsins flyttu kjarnorkuvopn. Geir Hallgrímsson var spurður um framkvæmdir á vegum Banda- ríkjahers á Islandi. Hann gerði grein fyrir byggingu tveggja nýrra ratsjárstöðva og áréttaði, að bygg- ing oliugeyma í Helguvík og fram- kvæmdir innan varnarstöðvarinnar í Keflavík breyttu engu um hlut- verk hennar. Ráðherra sagði að hann hefði átt gagnlegar viðræður við Uffe Elle- man-Jensen, utanrikisráðherra Dana, og hefði mörg málefni borið á góma, en einkum þó samskipti Is- lendinga og Dana, sem væru mjög góð. I morgun skoðaði Geir Hall- grímsson sig um á Garði, þar sem margir íslenskir stúdentar hafa dvalið, og gekk á fund Margrétar Danadrottningar. Á morgun, fimmtudag, fer ráðherrann til Jót- lands og skoðar þar m.a. söfn og nýju tónleikahöllina í Árósum. Sjá einnig: „Engin þjóð nákomn- ari Dönum en lslendingar“, á bls. 28. Þrír ritstjórar NT — Helgi Pétursson, Indriði G. Þor- steinsson og Magnús Bjarnfreðsson MAGNÚS Ólafason ritstjóri dagblaös- ins NT lætur af störfum nú um mán- aóamótin og hefur verið ákveðið að Helgi Pétursson fréttamaður taki við ritstjórn blaðsins á næstu dögum. Þeir Skoðanakönnun Hagvangs um fylgi flokkanna: Verulegt fylgistap kvennalistans EF GENGIÐ yrði til alþingiskosninga nú myndi Sjálfstæðisflokkurinn fá 41,2% atkva'óa þeirra, sem hafa tekið afstöðu, skv. niðurstöðu skoðanakönn- unar Hagvangs, sem gerð varð fyrr í þessum mánuði. Alþýðuflokkurinn fengi 2l,3%atkvæða skv. könnuninni, Alþýðubandalagið 12,2%, Framsóknarflokk- urinn 11,9% Samtök um kvennalista 7,4%og Bandalag jafnaðarmanna 5,4%. Flokkur mannsins fengi 0,6%atkvæða. Fjórflokkarnir svokölluðu hafa allir bætt við sig fylgi síðan Hag- vangur gerði skoðanakönnun f febrúar sl. og þeim hefur fækkað nokkuð, sem ekki taka afstöðu eða neita aö svara. Könnunin náði til alls landsins og voru 1.000 þátt- takendur átján ára og eldri valdir af handahófi úr þjóðskrá af Reiknistofnun Háskóla Islands að fengnu leyfi Hagstofunnar og Tölvunefndar. Samkvæmt könnuninni fengi Alþýðubandalagið nú 8,3% at- kvæða þeirra, sem spurðir voru en skv. könnun í febrúar hefði flokk- urinn þá fengið 6,6%. Alþýðu- flokkurinn fengi nú 14,4% en 12,6% í febrúar, Bandalag jafnað- armanna 3,6% en 3,7% í febrúar, Framsóknarflokkur 8% nú en 6,1% í febrúar, Samtök um kvennalista 5% nú en 6,9% í febrúar, Sjálfstæðisflokkurinn 27,2% en 24,8% í febrúar og Flokkur mannsins 0,4% en 0,8% I febrúar. 4% segjast ekki ætla að greiða atkvæði (3,4% í febrúar), 5,1% sögðust ætla að skila auðu (6,6%), 17,6% voru óákveðnir (21,6%) og 5,9% neituðu að svara (6,9%). Úrslit kosninganna vorið 1983 voru þau, að Álþýðubandalagið fékk 17,3% atkvæða og hefur fylgi þess verið sveiflukennt í skoðana- könnunum síðan, Alþýðuflokkur- inn fékk 11,7% og var fylgi hans síðan talsvert minna fram til febrúar sl. er það jókst skyndilega í yfir 20%, Bandalag jafnaðar- manna fékk 7,3% f kosningunum og hefur jafnan fengið lakari út- komu i skoðanakönnunum Hag- vangs. Framsóknarflokkurinn fékk 18,5% f kosningunum og hef- ur fylgi flokksins síðan minnkað jafnt og þétt þar til nú að skoð- anakönnunin bendir til að það hafi aukist um 2% frá því i febrúar, Samtök um kvennalista fengu 5,5% f kosningunum og hafa f skoðanakönnunum fengið um- talsvert meira fylgi þótt það virð- ist minna nú en í febrúar. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk 38,7% í kosningunum en fylgi flokksins varð mest skv. skoðanakönnun f apríl i fyrra en svo minnkaði það skv. könnunum fram f febrúar sl. Sfðan þá virðist flokkurinn hafa bætt við sig tæplega einu prósenti f fylgi miðað við þá, sem afstöðu taka í könnunum Hagvangs. Indriði G. Þorsteinsson fyrrum rit- stjóri Tímans og Magnús Bjarnfreðs- son verða svo einnig ritstjórar við blaðiö i júlí næstkomandi og að minnsta kosti til næstu áramóta, skv. upplýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér. Óvíst mun hvort þeir verða ritstjórar blaðsins til frambúðar ásamt Helga. Hákon Sigurgrfmsson, formaður stjórnar útgáfufélagsins Nútfmans hf., sagði í gær að hann hefði þá fyrr um daginn fallist á að Magnús léti af störfum um mánaðamótin. Ef nýr ritstjóri gæti ekki tekið við blaðinu þegar í stað gerði hann ráð fyrir að verða sjálfur skráður ábyrgð- armaður þess f millitfðinni. Morgunblaðið hafði I gærkvöldi samband við Indriða G. Þorsteinss- on vegna þessa máls, en hann kvaðst ekkert hafa um það að segja. Hvorki Hákon Sigurgrfmsson né Haukur Ingibergsson stjórnarmað- ur og framkvæmdastjóri Framsókn- arflokksins vildu staðfesta að þeir Magnús Bjarnfreðsson og Indriði G. Þorsteinsson yrðu ritstjórar blað- sins ásamt Helga Péturssyni. „Það hefur verið leitað til ýmissa manna um góð ráð varðandi rekstur blað- sins en þótt þessir tveir séu góðir flokksmenn hefur ekkert verið end- anlega ákveðið f þessu sambandi," sagði Haukur Ingibergsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.