Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 4
4 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985 Norrænir fram- kvæmdastjórar flokka funda DAGANA 31. maí til 2. júní nk. verd- ur haldinn í Reykjavík á vegum SjálfsUeðisnokksins sameiginlegur fundur framkvæmdastjóra eftirtal- inna stjórnmálaflokka á Norftur- löndum: Det konservative Folke- parti í Danmörku, Samlingspartiet og Svenska Folkpartiet í Finnlandi, Höyre í Noregi, Moderata sam- lingspartiet í Svíþjóó, Folkeflokken í Færeyjum og Sjálfstæðisflokksins, segir í frétt frá Sjálfstæðisflokknum. Framkvæmdastjórar þessara flokka halda reglulega slíka fundi og er samvinna mikil á milli þeirra. Sjálfstæðisflokkurinn er þó ekki formlegur aðili að þessu samstarfi en framkvæmdastjóri flokksins hefur þó alloft tekið þátt í fundunum. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkur fundur er hald- inn hér á landi. Markús Einarsson Mikið járnrusl er m.a. að finna á Eldshöfðanum. í baksýn má sjá hhita Grafarvogar. MorRunblaðið/Júlfua fyrrv. forstöðu- maður látinn MARKÚS Einarsson, fyrrum forstöðu- maður vinnuhælisins á Litla-Hrauni, er látinn, 78 ára gamall. Hann fæddist á Selvöllum í Breiðuvík á Snæfellsnesi 5. nóvem- ber 1906, sonur hjónanna Guðrúnar Andrésdóttur og Einars Magnús- sonar bónda þar, er síðar bjuggu í Tungu í sömu sveit. Markús Einarsson Markús varð lögregluþjónn á Litla-Hrauni 1939 en fjórum árum síðar varð hann bústjóri hjá Sveini Björnssyni ríkisstjóra og síðar for- seta á Bessastöðum. Árið eftir lýð- veldisstofnunina fluttist hann til Ólafsvíkur og var framkvæmda- stjóri hraðfrystihússins þar til 1954. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og varð yfirverkstjóri hjá Tryggva Ófeigssyni á Kirkjusandi. Grettir L Jóhannsson Grettir L. Jóhanns- son látinn HINN 28. maí andaðist í Winnipeg í Kanada Grettir L Jóhannsson, fyrrum aðalræðismaður íslands. Hann gegndi rcðismannsstörfunum um langt árabil og auk þess mörgum trúnaðarstörfum fyrir íslenska aðila og stjórnvöld. Grettir varð 80 ára 11. febrúar sl. og hélt Þjóðræknisfélag íslendinga i Vesturheimi honum þá hóf og eftir- lifandi konu hans, Dorothy Jó- hannsson. Útför Grettis L. Jóhannssonar verður gerð frá Fyrstu lúthersku kirkjunni í Winnipeg á morgun, föstudaginn 31. maí. Frú Dorothy Jóhannsson býr í Apt. 802, 605 River Avenue, Winnip- eg, Manitoba, R3L OE7 Canada. Arið 1966 varð hann forstöðumað- ur á Litla-Hrauni og gegndi því starfi til ársins 1974 er hann fluttist aftur til Reykjavíkur. Síðustu ævi- árin bjó hann hjá syni sínum og fjölskyldu hans í Garðabæ. Konu sína, Soffíu Sigurðardóttur, ættaða af Héraði, missti Markús ár- ið 1973. Þau eignuðust einn son, Þorleif. Markús átti einnig annan son, Svavar heitinn Markússon íþróttamann. Fegrunarvika í Reykja- vík dagana 1.—9. júní f TILEFNI 200 ára afmælis Reykja- víkurborgar sem er á næsta ári, efnir Fegrunarnefnd Reykjavíkur til fegrun- arviku ■ höfuðborginni dagana 1. til 9. júní nk. Fegrunarvikan hefst með þvi að borgarráðsmenn koma saman í Öskjuhlíð á laugardag kl. 14 og hefja þar hreinsun. Tilgangurinn með þessu Ljósmynd/ÓL. K. Mag. Við undirskrift samningsins (frá vinstri): Ómar Kristjánsson framkvæmdastjóri Þýsk-íslenska hf., Sigrún Guðjónsdóttir, Horst H. Hoffmann framleiðslustjóri V&B, Ingi Karl Ingason aðstoðarframkvæmdastjóri og Guðmundur Þórðarson framkvæmdastjóri fjármáladeildar. Fyrir framan þau má sjá tillögur Sigrúnar að baðflísum. Sigrún Guðjóns- dóttir hannar flísar fyrir Villeroy & Boch ÞÝSKA fyrirtækiö Villeroy & Boch befur gert samning við Sigrúnu Guð- jónsdóttur keramiklistakonu um bönnun og skreytingar á flísum fyrir framleiðslu sína. Hún er fyrst nor- rænna listamanna til að vinna fyrir V&B og í tilefni undirskriftarinnar kom hingaö til lands hr. Horst H. Hoffmann framleiðslustjóri verksmiðjanna. „Við kynntum listakonuna fyrir forráðamönnum fyrirtækisins síðla síðasta sumars. Stuttu síðar óskaði V&B eftir að hún sendi inn nokkrar tillögur sem yrðu teknar til gaum- gæfilegrar athugunar," sagði ómar Kristjánsson framkvæmdarstjóri Þýsk-íslenska hf., sem er umboðsað- ili V&B á Islandi. Hann ásamt Guö- mundi Þórðarsyni framkvæmda- stjóra fjármáladeildar og Inga Karli Ingasyni aðstoðarframkvæmda- stjóra, hafa staðið að samningunum fyrir hönd Sigrúnar. „Ég er afar ánægð með árangur- inn,“ sagði Sigrún Guðjónsdóttir þegar blm. ræddi við hana. Svona tækifæri fær maður aðeins einu sinni á ævinni og þetta tekst ekki nema meö góðri samvinnu allra. Sérstaklega hlakka ég til að takast á við hönnunina, enda hef ég lítið fengist við hana undanfarin ár. Þetta verður mikil vinna en umfram allt skemmtileg." Fyrstu tillögurnar eru baðflísar og stendur til að kynna þær opin- berlega haustið 1986 á stærstu kera- miksýningu heims í Bologna á Ítalíu og stuttu síðar verða Þær settar á markað um allan heim. Einnig verða tillögurnar sýndar á alþjóð- legri vörusýningu í Frankfurt fyrri hluta árs 1987, fyrir utan að birtast í öllum auglýsingabæklingum fyrir- tækisins. Forráðamenn félagsins telja að einmitt núna sé rétti tíminn til að kynna list Sigrúnar á erlendri grund þar sem stílfærð verk líkt og hennar séu mjög vinsæl og mjúkar línur ráðandi. Horstmann sagði að samkeppnin væri gífurlega hörð meðal lista- manna að komast að hjá jafr. stóru og þekktu fyrirtæki og V&B og hönnuðir sem þar hafa starfað væru eftirsóttir um allan heim. „Nafn Rúnu á eftir að berast víða og því kann framtíðin að bera ýmislegt I skauti fyrir hana og jafnframt aðra íslenska listamenn því hér er um stórkostlega landkynningu að ræða.“ Það er orðið tímabært að íslend- ingar nýti sér að gott orð fer af þeim á erlendri grund og losi sig við minnimáttarkennd og ótta við að starfa með erlendum aðilum, sagði Ómar meðal annars. Þýsk-íslenska hf. hefur hug á að auka samstarf sitt við útlendinga og er samningur Sigrúnar aðeins upp- hafið. í hvenu þessi verkefni væru fólgin taldi Ómar of fljótt að segja til um, en þau snéru að því hvað fslendingar gætu selt útlendingum fleira en fisk og ull. átaki er að hvetja borgarbúa til þess að taka höndum saman um að fegra og snyrta borgina. Þá daga sem fegrunarvikan stendur yfir gefst fólki kostur á að hringja i Hafliða Jónsson, garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar og afla sér hvers kyns upplýsinga varðandi gróður og ræktun. Síma- tfminn verður auglýstur síðar. Þá munu starfsmenn Hreinsunardeild- ar borgarinnar veita borgarbúum hvers kyns aðstoð við hreingerningu þeirra. Munu þeir sjá um að fjar- lægja allt rusl sem safnað verður saman í borginni og aka þvf á haug- ana og ennfremur munu þeir láta mönnum í té poka undir rusl ef óskað er. Þá hefur ruslagámum verið komið fyrir á eftirtöldum stöðum í borg- inni: við Meistaravelli, Vatnsmýr- arveg neðan Miklatorgs, Grensás- veg, Kleppsveg við Dalbraut, Súðar- vog, Stekkjabakka, endann á Breið- holtsbraut og við Ársel við Rofabæ. Þá má geta þess að Reykjavíkurborg rekur lóðasjóð sem ætlað er að að- stoða húseigendur við frágang á lóð- um með þeim hætti, að fólk fær að láni efni frá Malbikunarstöð borg- arinnar, Grjótnámi og Pípugerð Reykjavíkur. Lán þessi eru til nokk- urra ára og skal sækja um þau á skrifstofu borgarverkfræðings. Skýrt var frá hinu fyrirhugaða átaki Fegrunarnefndarinnar á fundi með fréttamönnum í vikunni. Þar kom fram í máli Gerðar Steinþórs- dóttur, formanns nefndarinnar, að þeirri áskorun hefur nú verið beint til eigenda steypufyrirtækja, bygg- ingarvöruverslana, málningarverk- smiðja og annarra aöila sem bjóða vörur sem fólk þarf á að halda til fegrunar, snyrtingar og viðhalds mannvirkja og lóða, að þeir veiti sérstakan afslátt af vörum sínum I tilefni fegrunarvikunnar. Kvað Gerður það vera von nefnd- armanna og borgaryfirvalda að fegrunarvikan yrði upphafið að því að allir borgarbúar sameinuðust um að sýna borginni þann sóma sem hún ætti skilinn, því að hrein og snyrtileg yrði góð borg betri. Enn- fremur kom fram á fundinum að undanfarnar vikur hefur verið farið um alla borgina og hugað að frá- gangi og umgengni við hús og fyrir- tæki. Þar sem slíku hefur þótt ábótavant hefur þeim tilmælum verið beint til eigenda og (búa að úr verði bætt sem fyrst. Fréttamönnum var að síðustu boðið í ökuferð um borgina þar sem hugað var að frágangi og umgengni við hin ýmsu hús og fyrirtæki. Mjög víða var frágangurinn til mikillar fyrirmyndar. Á mörgum stöðum blasti hins vegar við við ófögur sjón; gömul bílhræ, járnarusl og spýtur á víð og dreif innan um falleg íbúð- arhús og snyrtilega garð.i. I.jósmynd/Bjarni Styrkþegarnir ásamt Pamelu Brement sendiherrafrú. Talið frá vinstri: Jón Snorri Sigurðsson gullsmiður, Pamela Brement og Svava Björg Einarsdóttir glerlista- kona. Styrkir veittir úr íslensk-ameríska listiðnaðarsjóðnum í GÆR voru veittir styrkir í annað sinn úr íslensk-ameríska listiðnaðar- sjóðnum (The Icelandic-American craft fund). Hann var stofnaður eftir bandarísku listiðnaðarsýninguna sem haldin var hér árið 1983 á Kjarvals- stöðum fyrir milligöngu amerisku sendiberrahjónanna á fslandi. Styrk- urinn felst i ókeypis dvöl á sumarnám- skeiðum sem haldin eru í einum fremsta listiðnaðarskóla Bandaríkj- anna Haystack í Main. Þangað koma færustu listamenn hver á sínu sviði og kenna yfir sumarmánuðina. 11 umsækjendur sóttu um styrk- ina, en fyrir valinu urðu Svafa Björg Einarsdóttir glerlistakona og Jón Snorri Sigurðsson gullsmiður. Hann hyggst kynna sér myndverk úr gulli, en Svafa ætlar að vinna úr heitu gleri. Þau dveljast í Bandaríkjunum í 3 vikur í júnímánuði. Dómnefnd skipa Torfi Jónsson, Þóra Krist- jánsdóttir og Aðalsteinn Ingólfsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.