Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985
Benz 190E árg. 1984
Til sölu nýinnfluttur Benz 190E árgerð 1984. Bíll-
inn er sjálfskiptur með vökvastýri, lituðu gleri,
central læsingu, góðu sanseruöu lakki, útvarpi og
kassettutæki. Litur metalgrænn. Verd 920.000,-
Stadgreitt 860.000,-
Upplýsingar hjá Bílasölunni Skeifan, sími 84848
og heimasími 41187 og 35035.
Ódýrar og pottþéttar
pakkningar í bílvélar
Vió eigum á lager pakkningar í ílestar
tegundir bílvéla - viðurkennd vara
sem notuð er aí mörgum biíreiðaíram-
leiðendum.
AMC, BMW, Buick, Chevrolet, Daihcrtsu,
Datsun, Dodge, Fiat, Ford, Land Rover,
Mazda, M. Benz, Mitsubishi, Moskvitch,
Opel, Perkins, Peugeot, Range Rover,
Renault, Saab, Scania, Subaru, Suzuki,
GUFUSTÝRIBÚNAÐUR
fyrir: fiskimjölsverksmiðjur,
frystihús, skelvinnslur og
rækjuverksmiðjur.
Danfoss IVT/IVF gufustýribúnaðurinn stýrirog heldur
réttu hitastigi ítönkum og kerjum, óháð rafmagni.
Ventlastærðir 15-50 mm. Stillisvið 10-140 °C.
= HÉÐINN =
VÉUAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-hJÓNUSTA
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Portúgal:
Freitos de Amaral með meira fylgi
en Mario Soares í skoðanakönnunum
— fráfall Mota Pinto
gæti reynzt
afdrifaríkt
Við því má búast að innan
portúgalska sósíaldemókrata-
flokksins PSD komi upp valda-
streita rétt eina ferðina enn, nó að
varaforsætisráðherra Carlos Mota
Pinto látnum. Varaformaður
flokksins og varnarmálaráðherra,
Rui Machete, hefur tekið við emb-
ættinu til bráðabirgða. Hins vegar
mátti af ýmsu merkja að hinn nýi
flokksformaður Joao Salgueiro
fyrrverandi fjármálaráöherra með
meiru ætlar sér án efa drjógan
hlut. Milli Salgueiro annars vegar
og Machete hins vegar hafa um
hríð verið ýmsar greinir, en Mota
Pinto hefur tekizt vonum framar
að lægja öldurnar.
Að honum gengnum er enn
vandi sem steðjar að Sósíal-
demókrataflokknum og þó að
andlát Mota Pinto hafi ekki vak-
ið viðlíka geðshræringu með
Portúgölum og þegar frægasti
stjórnmálamaður PSD, Frans-
isco Sa Carneiro fórst í flugslysi
í desember 1980 er ábyrgum
mönnum ljóst, að þetta getur
orðið enn til að auka á vanda
Portúgala sem virðist ganga
seint að leysa. Annað er einnig
til umræðu og það er hvernig
muni ganga samskipti Rui
Machete og Mario Soares for-
sætisráðherra; þótt Machete
þyki maður viðræðugóður og vís
hefur Soares þótt nokkuð einráð-
ur í stjórnunaraðgerðum.
Óánægja er innan PSD vegna
þess að þeim hefur ekki þótt
flokkurinn hafi haft þau áhrif f
stjórninni sem honum ber, þetta
gæti komið upp á yfirborðið þeg-
ar ekki nýtur við lengur hæg-
látrar kænsku Mota Pinto.
Fleira spinnst einnig inn í
málið og flækir það. Hvað sem
líður djarflegum yfirlýsingum
forsætisráðherrans Mario Soar-
es um að senn fari harkalegar
efnahagsráðstafanir að skila
árangri — þá verður ekki á móti
mælt að furðu tregur hefur
árangurinn verið og eru nú orðin
um það bil 2 ár frá valdatöku
stjórnar Soaresar. Soares er
vitaskuld virtasti og þekktasti
stjórnmálamaður Portúgals á al-
þjóðavettvangi og það velkist
enginn í vafa um að landar hans
virða hann og muna enn, að
hann barg Portúgal frá því að
falla undir kommúnískt stjórn-
arfar sumarið 1975. Hitt eiga
þeir erfiðara með að sætta sig
við að stöðugt séu gerðar nýjar
efnahagsráðstafanir, sem fela
meðal annars í sér verðhækkanir
og kaupmáttarskerðingu; ýtt er
undir framleiðslu og bætta
framleiðni og samt situr hinn
portúgalski almúgamaður enn
eftir með lægstu meðaltekjur í
Vestur-Evrópu.
Það bætist svo enn við alla
flækjuna að forsetakosningar
eru á næsta leyti, þ.e. í nóvember
í haust. Samkvæmt stjórnar-
skránni má Eanes forseti ekki
bjóða sig fram í þriðja skipti og
tveir frambjóðendur eru löngu
komnir i startholurnar, sjálfur
forsætisráðherrann Mario Soar-
es og Freitos de Amaral, fyrr-
verandi aðstoðarforsætisráð-
herra í AD-stjórninni og einnig
fyrrv. form. Miðdemókrata.
Þriðji frambjóðandinn sem er
volgur er Maria Pintassilgo, einn
Freitos de Amaral
Mario Soares
af utanþingsforsætisráðherrum
Eanesar þegar ekki gekk að
koma saman starfhæfri stjórn.
Mario Soares mun hafa haft
hug á því að Mota Pinto tæki við
sem forsætisráðherra innan tíð-
ar svo að hann gæti snúið sér að
kosningabaráttunni. Hvort þau
viðhorf breytast nú og tafir
verða á að Soares geti einbeitt
sér að því að draga úr heldur
óvinsælli ímynd meðal portú-
gölsku þjóðarinnar, er ekki kom-
ið á daginn. En samtímis þessu
fer Freitos de Amaral hamför-
um og sópar til sín fylgi og hefur
nú samkvæmt skoðanakönnun
meira fylgi en Soares. Þetta
fann ég einnig berlega í samtöl-
um við fólk þegar ég var í Portú-
gal á dögunum. „Við erum orðin
þreytt á að láta erlenda leiðtoga
segja okkur að kjósa Mario Soar-
es, af því að hann njóti virðingar
erlendis og hafi þjónað Portúgal
svo dyggilega að hann eigi skilið
að „fá“ að enda sem forseti...
Við viljum nýjan mann með
Maria Pintassilgo
Rui Machete
ferskar hugmyndir sem gæti lyft
þjóðernistilfinningu okkar og
stolti á hærra stig — og gefið
okkur gleði í stað lífsþreytu
Mario Soares."
Freitos de Amaral er einn
þriggja stofnenda Miðdemókrata
flokksins í Portúgal. Hann
stofnaði flokkinn ásamt þeim
Victor Sa Machado, fyrrverandi
utanríkisráðherra og iiú for-
stjóra Gulbenkian, og Amaro da
Costa, fyrrv. varnarmálaráð-
herra, sem fórst í sama slysi og
Sa Carneiro. De Amaral og fé-
lagar hans sýndu mikið hugrekki
því að flokkurinn var talinn
hægri flokkur og nánast skorinn
niður við trog við stjórnlaga-
þingskosningarnar 1975. Þeim
félögum tókst að komast á þing
og þremur til viðbótar og í næstu
kosningum á eftir og síðan smátt
og smátt hefur Miðdemókrötum
vaxið ásmegin. Það þótti ekki
hvað sízt að þakka forystu De
Amaral. Hann þykir frábær
ræðumaður og snjall mála-
fylgjumaður, hann hefur
yfirgripsmikla þekkingu á portú-
galskri sögu og hann hefur að
Portúgala dómi einstaka kímni-
gáfu og er raunar eftirlæti
skopteiknara. De Amaral dró sig
út úr starfi, formlega að minnsta
kosti, fyrir síðustu kosningar og
sneri sér að fræðistörfum.
Fljótlega tóku að heyrast þær
raddir að hann myndi ætla að
bjóða sig fram til forseta og það
var raunar Lucas Pires, eftir-
maður hans, sem skýrði form-
iega frá því í samtali við Mbl.
fyrir tveimur árum.
Fráfall Mota Pinto markar
kannski ekki eins djúp tilfinn-
ingaleg sár og dauði Fransciso
Sa Cameiro gerði á sínum tíma.
En pólitísk spor hans gætu orðið
því dýpri. Og kannski er Portú-
gölum farið eins og fleirum að
vita ekki alltaf hvað þeir hafa
átt fyrr en eftir að þeir hafa
misst það.