Morgunblaðið - 30.05.1985, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985
Oður maður elti fölk með hníf á lofti
AP/Sim&mynd
Maður nokkur gekk berserksgang í San Diego í dag og ógnaði fólki með vel brýndum hnífi. Er lögreglan kom á vettvang æstist
leikurinn og elti maðurinn lögregluþjóna um allt þar til að einn þeirra var svo hætt kominn, að hann skaut hnífamanninn til
bana í sjálfsvörn. Myndin er tekin af atvikinu, nokkrum augnablikum síðar lá maðurinn í götunni særður banasári.
Tyrkneskur sakbomingur fyrir rétti í Róm:
Viðurkennir að hafa
Agca fá byssuna
fyrir Agca vakti. „Hvers vegna
léstu hann fá byssuna?" spurði
saksóknarinn. „Ég var hræddur
við Agca,“ svaraði Bagci.
Ali Agca, sem er höfuðvitni
ákæruvaldsins og hefur þegar ver-
ið dæmdur í ævilangt fangelsi
fyrir banatilræðið, var ekki
viðstaddur vitnaleiðslurnar í dag.
Undanfarna tvo daga hefur hann
haldið því fram, að hann sé Krist-
ur endurborinn og ekki fengist til
að svara mikilvægum spurning-
um. í gær ákvað dómarinn því, að
Agca skyldi ekki hlýða á framburð
Bagci svo honum gæfist ekki færi
á að laga framburð sinn að vitn-
isburði sakborningsins.
Bangladesh:
Týndu 50 þúsund lífinu?
Greenpeace:
Vilja gera
Suðurskaut-
ið allt að
þjóðgarði
Lundúnum, 29. maí. AP.
Umhverfisverndarsamtökin,
Greenpeace, hafa tiikynnt að þau
séu að undirbúa mikinn leiðangur
til Suðurskautslandsins í septem-
ber á þessu ári. Fjórir félagar í
samtökunum munu stíga á land,
vélvirki, læknir, útvarpsmaður og
vísindamaður, og munu þeir dvelja
á Suðurskautinu næstu mánuðina.
Ætla Grænfriðungar að hafa þarna
mannskap árið um kring og er
hugmyndin að leggja með þessu
drög að því að Suðurskautið verði,
er fram líða stundir, alþjóðlegur
þjóðgarður.
Pete Wilkinson, einn af stjórn-
armönnum Greenpeace, sagði í
dag, að fjórmenningarnir myndu
lýsa Suðurskautið þjóðgarð er þeir
stigu þar á land. „Við getum ekki
horft upp á að þetta stórkostlega
land verði rifið og tætt í sundur og
skipt upp af hópi hagsmunaaðila,
þetta svæði á að friða fólki til un-
unar,“ sagði Wilkinson. Annar
stjórnarmaður Greenpeace, Roger
Wilson, sagði Suðurskautið „síð-
ustu óbyggðirnar". Wilkinson
sagðist búast við vandamálum og
togstreitu er Grænfriðungar stíga
á land, því hin og þessi lönd hafa
helgað sér svæði sem Grænfrið-
ungar viðurkenna ekki.
MoHkvu, 29. maí. AP.
Sovétleiðtoginn Mikhail S. Gorb-
achev tók í dag á móti ítalska for-
sætisráðherranum, Bettino Craxi, í
Kreml, að sögn Tass-fréttastofunn-
ar.
Ekki var vitað um efnisatriði
viðræðna þjóðarleiðtoganna.
Craxi kom til Moskvu í gær eftir
Veður
víða um heim
Læpst Hæst
Akureyri 5 asskýjaó
Amsterdam 12 24 heiðskírt
Aþena vantar
Barcelona 23 léttsk.
Beriín 13 20 skýjaó
Brflasel 5 20 heióskírt
Chicago 6 16 skýjaó
Dublin 11 17 heióskfrt
Feneyjar 25 heiðskírt
Frankfurt 14 21 rigning
Genf 13 21 rigning
Helsinki 13 22 heióskfrt
Hong Kong 25 27 skýjað
Jerúsalem 14 24 heiðskfrt
Kaupm.höfn 14 22 skýjað
Las Palmas 26 lóttsk.
Lissabon 11 22 heiðskfrt
London 9 19 heiðskfrt
Los Angeles 15 24 heiðskirt
Luxemborg 16 skýjaó
Malaga 22 skýjað
Mallorca 24 lóttsk.
Miami 26 28 skýjað
Montreal 3 13 heiðskfrt
Moskva 12 25 heiðskirt
New York 14 24 heiðskírt
Osló vantar
París 12 22 heiðskirt
Peking 16 25 skýjað
Reykjavík 5 skýjað
Rio de Janeiro 15 30 heiðskfrt
Römaborg 14 30 heiðskírt
Stokkhólmur 12 27 heiöskfrt
Sydney 15 21 skýjað
Tókýó vantar
Vínarborg 14 27 heiðskfrt
bórshöfn 8 skýjað
Craxi Gorbachev
viðkomu í Póllandi, og er þessi
ferð þáttur í viðleitni hans til að
auka áhrif Ítalíu á alþjóðavett-
vangi.
Á síðastliðnum sex mánuðum
hefur hann gert sér ferð til Ung-
verjalands og Austur-Þýskalands
og boðið heim austur-þýska þjóð-
arleiðtoganum, Erich Honecker.
Búist var við, að Craxi og Gorb-
achev mundu aðallega ræða sam-
skipti austurs og vesturs, en nú
eru samningaviðræður Bandaríkj-
anna og Sovétríkjanna að hefjast
að nýju í Genf.
látið
Róm, 29. maí. AP.
TYRKNESKUR sakborningur sagði
fyrir rétti í Róm í dag, að hann hefði
látið Mehmet Ali Agca, sem skaut á
Jóhannes Pál páfa í maí 1981, fá
byssuna, sem notuð var við verknað-
inn. Er þetta í fyrsta sinn, sem stað-
fest er opinberlega að Agca hafi ekki
verið einn að verki.
Sakborningurinn, Omar Bagci
að nafni, nefndi einnig nöfn fjög-
urra Tyrkja, sem kunna að tengj-
ast tilræðinu, en þeir hafa ekki
áður verið bendlaðir við málið.
Kvaðst Antonio Marini, saksókn-
ari, ætla að íhuga vitnisburð Bagci
áður en hann tæki afstöðu til þess
hvort mennirnir yrðu sóttir til
saka eða kallaðir fyrir réttinn.
Bagci sagðist hafa afhent Agca
byssuna á veitingahúsi í Mílanó
fjórum dögum áður en hann gerði
tilraun til að ráða páfa af dögum á
Péturstorginu í Róm. Bagci kvaðst
hins vegar ekki hafa vitað hvað
Dacca, 29. maí. AP.
Blaðið The Bangladesh Observer í
Dacca hefur í dag eftir ónafngrcind-
um heimildarmönnum hjá stjórn-
völdum og hjálparsamtökum í land-
inu, að fleiri en 50 þúsund manns
kunni að hafa týnt lífi í flóðunum við
suðurströnd landsins á laugardag.
Stjórnvöld sögðu hins vegar í
dag, að lík 1.400 manna hefðu
fundist og verið grafin.
Mikil áhersla er lögð á að finna
lík fórnarlamba flóðanna vegna
ótta um að ella kunni að verða
sjúkdómafaraldur. Eru herskip og
þyrlur notuð við leitina.
Geir Hallgrúnsson í opinberri heimsókn í Danmörku:
„Engin þjóð nákomnari
Dönum en íslendingar“
— sagði Uffe Ellemann-Jensen,
utanríkisráðherra Dana
Kaupmannahöfn, 29. maí. Frá Ib Björnbak, frétlaritara Mbl.
DANSKA sumarið skartaði sínu fegursta þegar Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra íslands, og kona hans, Erna Finnsdóttir, komu í gær í opinbera
heimsókn til Danmerkur. Mældist hitinn í forsælu 25 gráður og gróðurinn
er allur í miklum blóma. Var það haft á orði, að náttúran sjálf vildi á
þennan hátt endurspegla þá vináttu, sem er með gestunum og gestgjöfum
þeirra.
í gær ræddust þeir við í tvo
tíma, Geir Hallgrímsson og Uffe
Ellemann-Jensen, utanríkisráð-
herra Dana, og var umræðuefnið
aðallega sameiginleg hagsmuna-
mál landanna beggja. í gærkvöldi
hafi ríkisstjórnin boð inni fyrir
Geir Hallgrímsson og konu hans í
Eigtveds pakhus, gömlu húsi við
hliðina á utanríkisráðuneytinu,
sem breytt hefur verið í veit-
ingastað, og var Ellemann-Jensen
aðalræðumaðurinn. Sagði hann
þar, að engin önnur þjóð væri
Dönum nákomnari en íslend-
ingar. „Við erum vinir og banda-
menn og berum gagnkvæma virð-
ingu hvorir fyrir öðrum. Þjóðirn-
ar eru runnar af sömu rótum og
norræn menningararfleifð og
saga hafa sameinað þær í þúsund
ár,“ sagði Uffe Ellemann-Jensen,
sem einnig veik að mikilvægri
legu íslands í Norður-Atlantshafi
og því öryggi, sem fælist í sam-
starfinu við aðrar þjóðir.
Geir Hallgrímsson svaraði með
góðri ræðu, sem hann flutti
blaðalaust, og sagði, að vissulega
væri hann í opinberri heimsókn í
Danmörku en þó fyndist honum
sem hann hefði varla farið að
heiman, sér liði helst eins og
hann hefði farið að vitja ömmu
sinnar. „Þjóðirnar eru bundnar
sterkum böndum. I þau 500 ár,
sem þær voru í ríkjasambandi,
deildu þær með sér súru og sætu,
en síðan hefur sambandið eflst og
styrkst með hverju árinu sem líð-
ur.“
Dagskráin í heimsókn Geirs
Hallgrímssonar er nokkuð ströng
en í dag kom hann m.a. í hátíða-
sal Kaupmannahafnarháskóla og
á Gamla garð, gekk á fund Mar-
grétar drottningar, og sat síðan
veislu í Ráðhúsi Kaupmanna-
hafnar. Að henni lokinni var
blaðamannafundur og loks rædd-
ust þeir við, Geir Hallgrímsson
og Poul Schluter, forsætisráð-
herra.
Á morgun, fimmtudag, mun
Geir Hallgrímsson, fara til Árósa
og skoða þar m.a. Tónlistarhöll-
ina, Ráðhúsið, skrifstofur Jyll-
ands Posten, safnið „Gamla bæ-
inn“ og beykiskógana fyrir sunn-
an Árósa. Lýkur heimsókninni þá
um kvöldið en Geir Hallgrímsson
mun kveðja Danmörku á laugar-
dag.
Craxi ræðir við
Gorbachev í Kreml