Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAl 1985
29
Helmut Schmidt:
Andvígur aðild Evrópu
að geimvarnarrannsóknum
Bonn, 29. maí. AP.
HELMUT Schmidt, fyrrum kanslari
Vestur-Þýskalands, hefur lýst sig
andvígan því, ad stjórnin í Bonn taki
þátt í fyrirhuguðum geimvarnar-
rannsóknum Bandaríkjamanna.
Þetta kemur fram í bréfi, sem hann
ritaði Helmut Kohl, núverandi
kanslara, 23. maí sl.
f bréfinu segir Schmidt, að ef
Vestur-Þjóðverjar taki einir þjóða
í Evrópu þátt í rannsóknunum séu
þeir að „ógna samheldni" þeirra
GENGI
GJALDMIÐLA
Dollarinn
lækkaði
London, 29. maí. AP.
DOLLARINN lækkaði í verði í dag
gagnvart helstu gjaldmiðlum í Evr-
ópu, en gull hækkaði f verði.
í lok viðskipta í Tókýó fengust
251,70 yen fyrir dollar, en í gær
251,60 yen. í lok viðskipta í London
fengust 251,87 yen fyrir dollar.
Staða sterlingspunds gagnvart
dollar batnaði. Fékkst í dag 1,2642
dollar fyrir hvert pund, en í gær
1,2497.
Staða dollars gagnvart öðrum
helstu gjaldmiðlum var sem hér
segir: 3,0890 vestur-þýsk mörk (í
gær 3,1100); 2,6035 svissneskir
frankar (2,6160); 9,4440 franskir
frankar (9,4850); 3,4935 hollensk
gyllini (3,5115); 1.975,50 ítölsk líra
(1.982,50); 1,3815 kanadadollar
(1,3785).
Fyrir hverja gullúnsu fengust
316,50 dollarar, en í gær fengust
fyrir hana 310,25 dollarar.
Evrópuríkja, sem aðild eiga að
Atlantshafsbandalaginu.
Schmidt leggst einnig gegn
sameiginlegri aðild Evrópuþjóða
að geimvarnarrannsóknunum.
Hann segir, að þær stofni samn-
ingnum um varnarflaugar (ABM-
samningnum) í hættu, en sá sam-
ningur sé Evrópumönnum mjög
mikilvægur.
Kanslarinn fyrrverandi telur
eðlilegast, að Evrópuþjóðir eigi
Hclmuth Schmidt
með sér samstarf um tæknivæð-
ingu, enda hafi það skilað góðum
árangri, eins og t.d. Evrópska
geimferðastofnunin sé dæmi um.
Noregur:
Dæmdir fyrir
uppljóstranir
Ósló, 29. maí. AP.
SJÖ BLAÐAMENN við vinstrisinnað tímarit í Noregi vorn í
dag fundnir sekir um að hafa af ráðnum hug skaðað öryggi
þjóðarinnar með því að birta í ritinu hernaðarlegar upplýs-
ingar. Þeir voru hins vegar sýknaðir af ákæru um að hafa
reynt að koma þessum upplýsingum beint til erlends ríkis.
Ivar Johansen, ritstjóri tíma- til óskilorðsbundinnar fangavist-
ritsins „Ikkevold", var dæmdur
í fótspor Marco Polos
fyrir 105 þúsund krónur
Peking, 29. maí. AP.
ÍTALSKUR feróamála-
frömuöur, sem tókst á
hendur ferö frá Feneyjum
til Peking í því skyni aö
kanna, hvort ferðamenn
gætu fetað í fótspor
Marco Polos í frægri ferð
hans, kveóur leiöina lítiö
hafa breyst á sjö öldum.
„Ég held ég hafi séð
það sama og bar fyrir
augu Marco Polos, þó að
hann hafi farið ríðandi,
en ég í bíl,“ sagði ferða-
garpurinn, sem heitir
Beppe Tenti og er frá
Mílanó. „Fólkið er eins,
einkum í Tíbet, Indlandi
og Pakistan."
Ferðin tók 56 daga og
farnir voru 19.100 kíló-
metrar í níu löndum, þ.
á m. Júgóslavíu, Grikk-
landi, Tyrklandi, fran og
Nepal.
Maturinn var bestur í
Indlandi og besti vegur-
inn var sex akreina
hraðbraut í fran, þar
sem hægt var að komast
1.000 km á dag, sagði
Tenti.
Versti vegurinn á leið
Tentis og félaga hans
var á milli Lhasa í Tíbet
og Golmud í Qinghai-
héraði í Kína, en endur-
bætur stóðu yfir.
Erfiðast var að þreyja
fjögurra daga töf vegna
tollvörslu í íran og bíða
eftir lögreglu- og her-
fylgd um landið. Sex
daga þurfti að bíða í
r.
Pakistan til að fá fyl|
um Punjab, þar sem
alirnir kváðust hafa séö
„hermenn með 50 metra
millibili".
Þó að ferðalangarnir
lentu í margvíslegum
háska, urðu þeir aldrei
fyrir neinum meiri hátt-
ar óhöppum.
Þeir óku um brenn-
andi eyðimerkur í Pak-
istan og íran og mjökuð-
ust áfram í 30 sm djúp-
um snjó í Tíbet, að sögn
Tentis. En hann var sár
yfir að þeim skyldi ekki
vera leyft að aka síðasta
spottann, frá Lanzhou
til Peking. Kínverskir
ökumenn voru látnir
setjast undir stýri, en
íalirnir drifnir upp í
lest.
„Það hefur e.t.v. verið
gert af því að einhverjar
borgir á leiðinni eru lok-
aðar ferðamönnum,"
sagði Tenti.
„En í aðalatriðum var
þetta beinn og breiður
vegur, allt frá Feneyjum
til Peking," sagði Tenti,
„og ekki nokkur leið að
villast, þó að maður
hefði ekkert landakort-
ið.“
Ferðaskrifstofa Tent-
is ætlar að bjóða fólki
upp á 45 daga Marco
Polo-ferð í apríl á næsta
ári og mun hún kosta
um 2.500 dollara (um
105 þús. ísl. kr.).
ar í níu mánuði og gert að greiða
málskostnaðinn, um 45.000 ísl. kr.
Saksóknarinn hafði krafist þess,
að Ivar yrði dæmdur í þriggja ára
fangelsi. Hinir sex voru dæmdir í
skilorðsbundið fangelsi, frá
tveimur til sex mánaða, og til að
greiða um 4.200 ísl. kr. í sekt.
Rétturinn komst að þeirri
niðurstöðu, að blaðamennirnir
við „Ikkevold" hefðu viðað að sér
upplýsingum um starfsemi
norska sjóhersins á Andöya í
þeim tilgangi að ljóstra upp um
hana. Á Andöya er hlustunar-
búnaður til að fylgjast með kaf-
bátum og átti sú starfsemi að
fara leynt.
Enginn sakborninganna játaði
sekt sína og ætlar lögfræðingur
þeirra að áfrýja málinu til æðri
réttar.
ERLENT
r r “ir ' V
J"L jl Lriíz.
festing
fyrir létta og þunga hluti. ffiEKEEB hefur grip og hald.
ffiEBSjÍEIjE fæst í flestum byggingavöruverslunum.
I
!
Ólafur Kr. Guðmundsson
c/o Trévirki hf.
„Allir fagmenn hljóta að þekkja Thorsmans boltana og vita um þeirra festigetu, enda er Thorsmans nafnið
gæðamerki sem allir geta treyst."
Ef óskað er eftir sýnishornum af ofanskráðu efni frá Thorsmans þá góðfúslega fyllið út
þennan miða. Sýnishornin eru send án endurgjalds.
X
Nafn:
Heimilisfang:
Staður:
JOHAN RÖNNING HF