Morgunblaðið - 30.05.1985, Page 43

Morgunblaðið - 30.05.1985, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985 43 undir lítið býli. Þar byggði hann stórt og mvndarlegt hús fyrir framtíðina. I það flutti Hjörleifur með fjölskyldu sína 1928. Býlið skírðu þau Sólvelli, ræktuðu tún og höfðu alltaf nokkrar ær, sem nægðu heimilinu og eina kú, græn- meti og jarðávextir var ræktað. Árið 1912 þegar Hjörleifur er 16 ára byrjar hann að vinna við fiski- mjölsverksmiðjuna á Sólbakka og vinnur þar nær óslitið meðan ein hver rekstur var þar framundir 1940. Nokkra vetur var hann þó í Reykjavík fyrir og eftir 1920. Eitthvað við vörubílaakstur en að- allega við pípulagnir. Við pípulagnir vann hann hjá föður Oskars Smith sem var pípu- lagningameistari. Störfuðu þeir feðgar lengi við þá iðn í Reykjavík. Mun faðir óskars hafa starfað við Sólbakkaverksmiðjuna og Óskar með honum þegar verið var að byggja upp verksmiðjuna. Þar kynntist Hjörleifur þeim. Með óskari og Hjörleifi tókst vinátta sem hélst meðan báðir lifðu. Löngu seinna starfaði Hjörleifur um tíma hjá Óskari. Þessi lærdómur Hjörleifs í iðngreininni varð til þess að hann annaðist alla pípulögn sem þurfti fyrir verksmiðjuna. Sveinspróf og réttindi sem pípulagningameistari fékk Hjörleifur 1939. Vann hann alltaf nokkuð við þau störf eftir að verksmiðjan hætti. Fjöldamörg ár var Hjörleifur verkstjóri við Sól- bakkaverksmiðjuna. Mikil umsvif, líf og fjör var á Sólbakka á þeim árum er síldar- bræðslan var þar í fullum gangi. Unnið var á vöktum dag og nótt yfir sumarið. Mikið um skipakom- ur og margt aðkomumanna. Eins var þegar bræðsla á karfa tók við eftir að síldin fór af vesturmiðun- um. Hjörleifur hafði gott skopskyn, hlýr maður og hress í bragði, hafði góða frásagnarhæfileika. Hann hafði oft frá ýmsu skemmtilegu að segja þegar hann kom heim af vöktunum. Þá var gaman sem barn að koma að Sólvöllum. Maö- ur hlustaði og horfði opinmynntur á þau undur sem voru að ske allt um kring. Eins var gaman að blanda geði við litlu frændsystkin- in. Hjörleifur var prýðilega hag- mæltur, góður íslenskumaður, vel lesinn og ágætlega ritfær. Eftir hann birtust nokkrar greinar i tímaritum. í hreppsnefnd Flateyrarhrepps var hann í tólf ár og í stjórn Sparisjóðs önfirðinga í fimmtán ár. Sigrún og Hjörleifur eignuðust sjö börn. Þau eru: Hjördís hús- mæðrakennari, nú kennari í ön- undarfirði; Ingibjörg húsmóðir á Isafirði; Ásdís skólast.m. í Kópa- vogi; Kristjana sjúkraliði í Voss í Noregi; Hringur fv. skipstjóri, nú framkvæmdastjóri á Rifi á Snæ- fellsnesi; Finnur Torfi lögfræðing- ur í Kópavogi, Örn skipstjóri á Hellissandi. Yngsti sonurinn, Örn, fór í fóst- ur til Bjarna skipstjóra á Akra- nesi, bróður Hjörleifs og Ástu Guðmundsdóttur konu hans, en þau voru barnlaus. öll eru börn þeirra þekkt fyrir verklagni, snyrtimennsku og framkvæmdasemi. Afkomendur þeirra hjóna eru orðnir fjölmarg- ir, fleiri en ég fæ tölu á komið. Það sannaðist hjá þessum hjón- um eins og fleirum á árum áður, að þar sem margt hafði verið fyrir var lengi hægt að bæta við. Sonardóttir Jónu, systur Sig- rúnar, Guðrún Ingibjörg Jóns- dóttir hjúkrunarfræðingur, kom til þeirra á öðru ári og átti hjá þeim skjól næstu átta eða níu ár- in. Að miklu leyti ólu þau upp tvo dóttursyni sína, þá Steinþór Tryggvason bónda á Kýrholti í Skagafirði og Má Kristinsson vél- stjóra á Dalvík. Við vorum þrjú systurbörn Sig- rúnar, alin upp hjá afa og ömmu á Veðrará. Jón Franklín af fyrra hjónabandi Jónu og við tvær syst- urnar, ég og Gróa. Öll dvöldum við á Sólvöllum á barnaskólaaldri hjá þeim Sigrúnu og Hjörleifi. Sóttum þá skóla á Flateyri, Jón í tvo vetur en við systurnar sinn veturinn hvor og nutum þar alls hins besta. Eigum við góðar og þakklátar minningar um þau í gegnum tíð- ina. Fyrstu árin eftir lát Sigrúnar var Hjörleifur á Sólvöllum á sumrin en hjá Ásdísi dóttur sinni og manni hennar Grétari Egils- syni í Kópavogi á vetrum. Hann þráði að vera á Sólvöllum þó einn væri. Hann hélt hús sjálfur, tók á móti gestum, annaðiast matseld, þrif og þvotta. Það hafði hann reyndar gert síðustu árin sem Sig- rún lifði. Þá var hún orðin sjúkl- ingur og átti orðið erfitt með að bera sig um. Annaðist Hjörleifur hana af mikilli snilld. Hann var einstaklega verklaginn og snyrti- legur hvort heldur var utanhúss eða innan. Það liggur við að maður finni ilminn af góðu brauðunum sem hann bakaði þegar maður hugsar um þetta. Það fór svo að hann varð að yf- irgefa Sólvelli og ástkæra fjörðinn sinn, þar sem hann hafði aiið allan sinn aldur. Það var sárt. Hann fann til þess alla tíð. Hjörleifur fékk heilablæðingu, snert af lömun, náði sér nokkuð um tíma en varð aldrei samur maður. Sólvelli seldi hann 1978 og flutti „suður“ eins og fleiri. Um tíma var hann á heimili Ásdísar og Grét- ars. Voru þau bæði honum góð. En að því kom að hann fór á Elli- heimilið að Ási í Hveragerði. Þar fór vel um hann og undi hann hag sínum nokkuð vel eftir ástæðum. Þegar heilsan leyfði ekki vist þar lengur fór hann á Grund. Síðasta árið var hann á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi. Þar andaðist hann. Þetta eru hreint skelfilegir mannflutningar úr heimabyggð fyrir þá sem þar þrá að vera. Eftir að Hjörleifur seldi býli sitt Sólvelli gaf hann af söluverð- inu, eina milljón króna, ellideild sjúkraskýlisins á Flateyri til minningar um konu sína Sigrúnu á Sólvöllum. Áttu peningarnir að vera fyrir herbergi í stofnuninni er bæri nafn hennar. Eitt sinn er ég kom til hans í Hveragerði sýndi hann mér teikningu sem hann hafði fengið listamann í Hvera- gerði til að gera. Var það smá skreyting með nafni sem átti að prýða herbergishurðina. Allt þetta segir meira en nokkur orð um hug þann sem hann bar til Sigrúnar sinnar og jafnframt heimahaganna. Hjörleifur var jarðsettur I Holtskirkjugarði við hlið Sigrúnar 20. nóvember sl., i fegursta vetr- arveðri. Fjörðurinn hans var fal- legur þann dag sem hann kom al- kominn heim. Nú er allt þetta fólk sem við áttum svo lengi samleið með horf- ið okkur héðan af jörð. Móður- systkinin, bæði Sigrún og Guð- mundur, sem lést hálfu ári síðar en Sigrún. Guðmundur var bæði ljúfur maður og traustur. Allur stóri föðursystkinahópur- inn, flest voru þau fædd fyrir eða um aldamótin. Þetta fólk var stórt í sniðum, geðríkt og hjartahlýtt, krafðist mikils bæði af sjálfu sér og öðrum, en fyrst og fremst af sjálfu sér. Byggðu hús og græddu jörð. Það skyldi ekki eftir sig í kjalsoginu skuldir handa næstu kynslóð. En eftir lét okkur bæði veraldleg og andleg verðmæti. Við varðveitum minniitgu þeirra og blessum landið sem þau gengu á. Guðrún I. Jónsdóttir /St7tUchael/ ,HEIMSFRÆG GÆÐAVARA" í-m frá i Marks & Spencer ' ££. ¥ FEGRIÐ BÆTIÐ OG SPARIÐ NIEÐ THORO er samheitl margs konar efna tll fegrunar, vlðhalds og endumýjunar stelnhúsa og annarra mannvlrkja. allt frá forvlnnu, sprunguvlðgerðum og vatnsþéttlngu, tll endanlegrar yflrborðs- meðhöndlunar. THORO-efnln eru úr fínmöluðum kvarts- stelnum, sementl og akrýlefnum, sem fýlla í holur og sprungur, þekia mann- vlrkln og verja gegn veðrun. Helstu kostlr THORO-efnanna eru: • Þau vatns- og rakaverja, án þess að hlndra útöndun veggjarlns. • Þau vatnsþétta steypu og annan steln og verja gegn frostskemmdum. • Hægt er að velja mismunandl áferð flatarins. • 8 lltlr fáanlegir. • Allt að 40% sparnaður. mlðað vlð hefðbundna notkun múrhúðunar og málnlngar. Fjölmörg glæsileg hús, ný og gömul, í elnkaelgn og oplnberrl elgu, bera thoro- efnunum fagurt vltnl. Fagmenn reiðubúnir tll þjónustu. steinprýöi hf. Stórhöfða 16,110 Reykjavík. Sími 83540 og 84780.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.