Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 30.05.1985, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ-1985 49 Stjórn Félnga íslenskra snyrtifrcAinga (fri Wnstri): Margrét Guðmundsdótt- ^ ir, Katrín Þorkeladóttir, Ólðf Ingólfsdóttir, Guðrún Þorbjarnardóttir, Þórdís Lárusdóttir, Edda Farestveit, Inga Þyri Kjartansdóttir. Snyrtifræði nú löggilt iðngrein: Leisigeislatækni skapar vandamál FÉLAG íslenskra snyrtifrKÓinga (FÍSF) hélt nýlega blaðamannafund til þess að kynna þitttöku félagskvenna í Norðurlandaþingi snyrtifrsðinga í Noregi . Átta íslenskir snyrtifrsðingar sóttu þingið. Á þinginu komu upp miklar deilur vegna notkunar leisigeisla- tækja á snyrtistofum. Aðeins átta mánuðir eru síðan tækin voru tek- in í notkun í Noregi og þykir margt benda til þess að tækin séu gagnslítil. Alvarlegast er þó það að tækin eru í mörgum tilfellum í höndum þeirra sem litla eða enga þekkingu hafa til að bera til að nota þau. Þegar hefur komið upp eitt tilfelli í Noregi þar sem óvar- kárni við notkun leisigeislatækis á snyrtistofu olli blindu. Snyrti- fræði er nú nýlega orðin löggilt iðngrein á íslandi. Það mun m.a. hafa það í för með sér að öflugra eftirlit verður haft með snyrti- stofum. Leisigeislatækin eru fyrst og fremst notuð til þess að örva hár- vöxt á skalla og til þess að eyða hrukkum. Þau byggja á sömu lögmálum og gilda um nála- stunguaðferðina. Þrfr stórir inn- flytjendur bítast um markaðinn í Noregi enda stórar fjárhæðir f veði. Fullkomin tæki af þessari gerð myndu kosta allt að 500.000 kr. innflutt til Islands. Tækin hafa verið seld án allra skuldbindinga, og dæmi eru þess að fólk vinni með þau eftir að hafa farið á nám- skeið sem tekur einn eftirmiðdag. Tæki til meðferðar á húð eru ekki til hér á landi en tveir hárskerar hafa fest kaup á tækjum fyrir skallameðferð og nota þau. „Við viljum læra af reynslu Norðmanna," sagði Þórdfs Lárus- dóttir, formaður FÍSF, sem sótti þingið í Noregi. „Margir hafa þeg- ar sýnt áhuga á leisigeislatækjun- um og líður örugglega ekki á löngu áður en þau koma til íslands." Hún sagði að það væri vilji félags- ins að vakin væri athygli á þessum málum í tæka tíð. Félagið mun beita sér fyrir því að Hollustu- vernd rfkisins, Geislavarnir, og Rafmagnseftirlitið gangi frá regl- um um notkun tækjanna. Með auglýsingu Stjórnarráðsins frá 13. febrúar sl. er snyrtifræðin orðin löggilt iðngrein. Að sögn Ingu Þyri Kjartanssdóttur fram- kvæmdastjóra félagsins hafa snyrtifræðingar sett þetta hags- munamál mjög á oddinn á undan- förnum árum. „Snyrtifræðingar vinna með viðkvæmasta hluta lík- amans, húðina, og oft með efni sem mikla kunnáttu þarf til að nota,“ sagði Inga. Hún sagði að því miður hefði ástandið verið þannig að hver sem er gat sett upp snyrti- stofu og starfrækt, aðeins þurfti samþykki Heilbrigðiseftirlitsins. „Það má segja að einu kröfurnar sem gerðar voru hafi verið að lofthæð væri næg og vaskur á staðnum.”. Þetta mun nú breytast með tilkomu lögverndarinnar. Að mati félagsins munu um 300 manns standast kröfur og fá meistarabréf. Jafnframt verður tekin upp kennsla í greininni, en áður var snyrtifræði hluti af hár- greiðsluiðn. Mikil ásókn er í nám í greininni, sem enn er ekki á námskrá i neinum skóla hérlendis. Námstími verður þrjú ár, þar af fjórar annir í skóla. Auk snyrt- ingar verða námsgreinar m.a. líffærafræði, eðlis-, efna-, og lífeðlisfræði. Þess má geta að Noregur og ísland hafa ein Norð- urlandanna löggilt þessa iðngrein. /StTnichael/ „HEIMSFRÆG , GÆÐAVARA" FRA j Marks & Spencer Landgildisþing St. Georgsgildanna St. Georgsgildin á íslandi héldu Landsgildisþing hinn 4. maí sl. í Hafnarfirði. St. Georgsgildin eru nú orðin sex talsins. Tvö ný gildi, Straumur í Reykjavík og Blöndu- óssgildi, hafa bætzt í hópinn, en fyrir voru gildi í Reykjavík, Hafn- arfirði, Keflavík og á Ákureyri. Markmið St. Georgsgildanna á íslandi er að gera að veruleika kjörorðið; Eitt sinn skáti ávallt skáti; með því að vera tengiliður til eflingar sambandi milli skáta- hreyfingarinnar og eldri skáta. ■ Á Landsgildisþinginu voru lesn- ar og ræddar skýrslur landsgild- ismeistara og gjaldkera, einnig voru kynntar starfsskýrslur gild- anna og rætt um starfið framund- an. í stjórn landsgildisins fyrir tvö næstu ár voru kosin: Björn Stef- ánsson, Keflavík, landsgildis- meistari, Aðalgeir Pálsson, Akur- eyri, Elsa Kristinsdóttir, Hafnar- firði, Garðar Fenger, Reykjavík, Guðni Jónsson, Reykjavík, Hilmar Bjartmarz, Straumi, Rvk. og Jó- hanna Kristinsdóttir, Keflavík. (Fréttatilkynning.) * ÆrHfi > ÞÚKEMST ATINDINN Á LAUGARDAG Strax nú, á laugardag, fœrðu _ hœstu vexti Innlánsreiknings með Ábót á allt það fé sem þú leggur inn í vikunni. ABOT m A VEXTI GULLS ÍGILDI ÚTVEGSBANKINN AÐ HIKA ER SAMA OG AÐ TAPA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.