Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 59

Morgunblaðið - 30.05.1985, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 1985 59 Allt á nú ríkið að borga „Jafnréttissinni" skrifar: í Morgunblaðinu 28. apríl sl. spurði SS hver borgaði fæðingar- orlof kvenna, ríkið eða vinnuveit- endur. Ég spurðist fyrir um þetta í Tryggingastofnun ríkisins og var sagt að vinnuveitendur borguðu það ef konan væri í BSRB eða ynni í banka, en Tryggingastofnunin greiddi það í öðrum tilvikum. Þeg- ar talað er um fæðingarorlof kvenna er oft aðeins talað um kon- una sem er frá vinnu, en það gleymist hins vegar að í stað hennar (á meðan hún er í fæð- ingarorlofinu) þarf í flestum til- vikum að ráða annan starfsmann í jafnlangan tima og það tekur ákveðinn tíma að þjálfa hann upp. Ef kona sem vinnur í banka eða hjá ríkinu fer í fæðingarorlof þarf vinnuveitandinn því að borga tvö- föld laun, þ.e. bæði fyrir konuna sem er,í burtu og starfsmanninn sem vinnur verkið hennar. Vinnu- veitandi sem hefur margar konur á barneigna aldri á launaskrá get- ur þvi hugsanlega þurft að greiða fleiri starfsmönnum laun en í raun og veru vinna hjá honum hverju sinni. Þetta getur orðið talsverður aukakostnaður fyrir vinnuveitandann þegar dæmi eru um að konur hafi verið frá vinnu vegna sumarleyfis og barnsburðar eitthvað á annað ár, ýmist á hálf- um eða fullum launum. Hann greiðir þannig laun fyrir vinnu sem hann nýtur ekki. SS spurði í sama blaði hvers vegna ríkið borgaði ekki fyrir barnið hennar/hans á barnaheim- ili, svo að hún/hann gæti tekið að sér þá aukavinnu sem býðst. Allt á nú ríkið að borga. Það er eins og sumir haldi að ríkið sé gróðrar- stöð sem rækti peningaseðla með því að setja niður smápeninga á vorin og uppskeri seðla á haustin. í dálki Velvakanda sama dag spurði Ragna Jónsdóttir hvort ég hefði verið að beina orðum mfnum að hagsmunanefnd heimavinnandi húsmæðra sem hún segir að vinni á vegum Bandalags kvenna í Reykjavík, þegar ég skrifaði um ungu konurnar sem fyrir 1—2 ára- tugum áttu ekki nógu sterk orð til að lítilsvirða húsmóðurstarfið, en hömuðust nú við að benda á mik- ilvægi þess að mæður væru heima hjá börnum sínum. Ekki var það nú svo, enda veit ég ekki hvaða konur eru með Rögnu í þessari nefnd eða hvort einhver þeirra hefur áður gert lít- ið úr húsmóðurstarfinu opinber- lega, en ef þær hafa sett sér það takmark „að húsmóðurstarið verði aftur hafið til vegs og virðingar" eins og hún segir, óska ég þeim góðs gengis af heilum huga. En fróðlegt væri nú að heyra frá Rögnu eða stöllum hennar um það hvernig þær hyggjast ná þessu marki og hvað þær eru að gera í málinu. Einnig væri fróðlegt að heyra hvort í nefndinni sé kona sem er heimavinnandi húsmóðir eingöngu. Á ekki til orð yfir SS Lögreglustjóri spurður Þóra skrifar: Ég get ekki orða bundist yfir S.S. sem lét skoðun sína á heima- vinnandi húsmæðrum í ljós í Mbl. 1. maí sl. Er þetta öfund eða hvað? Mér er spurn, eru húsmæður með merki- spjald svo augljóst sé að þær geri ekkert nema að spóka sig eða er þeim ekki frjálst að nota góða veðrið eftir að hafa hreinsað hús- ið, eldað og gefið að borða og e.t.v. saumaskap. Til þess að geta keypt þessi dýru og fínu tæki, sem S.S. talar um, verða húsmæðurnar að komast í gegnum bæinn til að geta verslað inn. Hver borgar, spyr S.S. hefur hann eða hún haft aukaútgjöld af heimavinnandi húsmæðrum utan síns heimilis? Heimavinnandi húsmæður spara með því að senda börnin ekki á dagheimili. Borgin getur sparað því ekki þarf að reisa dagheimili ef börnin eru heima hjá mæðrum sínum. Það sparast áby88*le8a mikið á hverju heimili ef húsmóðirin er heimavinnandi auk þess sem borgin getur átt heilmikinn afgang. Ég veit ekki hverskonar kast þetta er hjá S.S. Kannski verið þreytt(ur) á að vera ekki heima- vinnandi. Getur ekki hver sem er valið sitt verkefni án þess að S.S. sé með nefið þar á milli? Jóhann Þórólfsson, Norðurbrún 1, skrifar: Mig langar að leggja nokkrar spurningar fyrir lögreglustjóra í sambandi við umferðina. Ég held að hún sé hvergi nógu góð, en vandi mun hvernig laga eigi. Sumir segja að aldrei sjáist lögregla á gatnamótum. Er þetta rétt? Sjálfur held ég þetta sé orð- um aukið að taka svo djúpt í ár- inni. En ég held að umferðin gangi ekki nógu vel vegna ónógrar lög- gæzlu, að lögreglan sé of litið á ferðinni. Hvað segir lögreglustjóri um það? Tökum Laugavegsumferðina. Sá sem ætlar Frakkastíg eða Bar- ónsstig niður á Skúlagötu. Hve- nær hleypa bílstjórar á Laugavegi þeim áfram? Sjaldan er það nema einn og einn maður, sem er kurteis og tillitssamur. Á ekki lögreglan að vera þarna í aðalumferðinni? Það kostar stórfé fyrir þá, sem eru í leigubíl, því alltaf heldur gjaldmælirinn áfram þó allt sé strand í umferðinni. Þessu þyrfti að kippa í lag. Þarf fleiri menn í lögregluna til að sjá um þetta. Hvað segir lögreglustjóri um það? Ég held þeir séu nógu margir, en þeir eru bara inni en sjást ekki úti. Þarf ekki lögreglustjóri að kippa þessu í lag? Mér dettur í, hug gamalt máltæki: Maður, líttu þér nær. Máske á það við þetta. NÝTT sFYRIRl 1985 Flymo Flymo L47 svifnökkvinn: Hljóðlátasta sláttuvélin á markaðnum Nýi Fiymo L47 bensínnökkvinn m/tvígengisvélina er bylting. Hann er: • Hljóöeinangraöur. • Hraövirkur. • Fisléttur. • Viöhaldsfríasta atvinnusláttu- vélin fyrir stærri grasfleti, 200 m2- 1000 m2. • Auövelt að leggja saman og hengja upp á vegg eftir notkun. • Meö stjórnbúnaö í handfanginu. • Verð frá aðeins kr. 17.900,- llátluwéla markaðuiinn Smiðjuvegur 30 E-gata, Kópavogur Sími 77066 J Microllne182/192/193 Ný kynslóð tölvuprentara! Kostimir eru ótviræöir: • Þriðjungi minni og helmingi léttari en áöur. • Miklu hljóölátari en áöur. • Fullkomlega aðhæföir IBM PC og sambæri- legum tölvum. • Tfengjast öllum tölvum. • Prenta 160 stafi á sekúndu, skáletur og gæðaletur. • Notandi getur sjálfur hannað eigin leturgeröir. • Fullkomin varahluta- og viöhaldsþjónusta. • Til á lager. Nýjungarnar koma alltaf fyrst frá MICROLINE. Það er því engin furöa að MICROLINE eru mest seldu tölvuprentarar á íslandi. ^mmmmm m mmmmmmmmmm^ IMÍKRCÍI SkeifunniH Sími 685610

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.