Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 28
28 fc MORGUNBLAÐIÐ, SWÍNUDAGCR 2. JÚNÍ 1985 Skeldýraframleiðendur ViÓ erum sérhæft fyrirtæki í vinnslu og sölu á skeldýrum og óskum eftir viöskiptum viö 2 til 3 framleiöendur á pillaóri rækju til afhendingar í verksmiöju okkar í Danmörku og beint til Englands. Ef þér getiö útvegaö rækju af stæröinni 150 til 300 stykki í pundi allt áriö, viljum viö gjarnan heyra frá yöur. Skaldyr specialister Vi er skaldyr specialister og soger 2—3 pillede rejer producent- er for leverancer til vores fabrik i Danmark og dlrekte til Eng- land. Hvis De er i stand til at levere rejer i sterrelsen 150—300 stk. per Ibs. gennem hele áret, herer vi gerne fra Dem. Lynn & Gibson (Holdings) Ltd., 112 Victoria Dock Road, Canning Town, London E16 1DA. Sími 1476-9013, telex 885511. SÝNING ÍBÚÐA íbúöirnar í 4. byggingaráfanga V.B. viö Sílakvísl 10—16 veröa til sýnis laugardaginn 1. júní og sunnudaginn 2. júní milli kl. 14 og 22. Stjórn verkamannabústaöa í Reykjavík. EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI © Fichtel & Sachs verksmiöjurn- ar vestur-þýsku eru leiðandi framleiðendur á gas- og olíufyllt- um höggdeyfum í allar helstu tegundir evrópskra og japanskra bifreiða. Hjá Fichtel & Sachs sitja gæðin í fyrirrúmi, enda nota Mercedes Benz, BMW, SAAB, Volvo og nær 40 aðrir vandfýsnir bifreiða- framleiðendur Sachs höggdeyfa í bifreiðar sínar. Eigum fyrirliggjandi höggdeyfa í algengustu gerðir evrópskra og japanskra fólksbíla. ÚTVEGUM MEÐ STUTTUM FYRIRVARA ALLA FÁANLEGA HÖGGDEYFA í FÓLKS-, VÖRU- OG LANGFERÐABIFREIÐAR. ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA FÁLKIN N FYRIR SACHS HÖGGDEYFA SACHS SUÐURLANDSBRAUT 8 SIMI 91-84670 Humarnum úr Garðari frá Grindavík landað. Grindavík Réttlátt að bátar af sömu stærð fái sama kvóta — segir Gestur Ragnarsson á Garðari frá Grindavík „Þetta er fyrsti róðurinn á hum- arrertíðinni,“ sagði Gestur Ragn- arsson skipstjóri á Garðari frá Grindavík, þar sem hann stóð og stjórnaði lönduninni úr bátnum. „Þetta er stór og fallegur humar, eins og alltaf er í vertíðarbyrjun. Síðan dregur úr. Við fengum 2,2 tonn í þessum róðri.“ „Hvað megið þið veiða mikið?" „Okkur var úthlutað 7,9 tonn- um.“ „Fæst ekki gott verð fyrir hurnar?" „Jú, við fáum 300 krónur fyrir kílóið og erum fimm á bátnum svo að við höfum sæmilegt út úr þessu enda veitir ekki af, því að vetrarvertíðin var léleg eins og í fyrra. Við vorum ekki með nema 370 tonn frá áramótum." „Hvernig finnst þér kvótakerf- ið gefast?" „Það er mjög ósanngjarnt eins og það er nú. Það er ekkert rétt- læti í því hvernig kvótinn er ákveðinn. Hornafjarðarbátarnir halda sínum humarkvóta ár eftir ár og þeirra kvóti er miklu meiri en okkar. Hann miðast við það sem þeir voru að fiska fyrir þremur eða fjórum árum.“ „Hvernig viltu láta úthluta kvóta?“ „Ég vil að bátar af sömu stærð fái sama kvóta. Það er engin sanngirni í öðru,“ sagði Gestur Ragnarsson. Morgunblaðið/Júllus Gestur Ragnarsson skipstjóri með fyrsta humarinn ú vertíðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.