Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 40
40 B MORQUNBLAÐjÐ, SUNNUDAGUR 2, JtJNÍ 1985 Fyrsta hugsunin að komast heill heim - segir Doug Scott sem staddur var hér á landi og hefur klifið fjöll í 30 ár Hann tilheyrir hippakynslóð- inni, er með hár niður á herðar og í meðallagi á vöxt. Það er eitthvað frumstætt í fari hans, hann svarar ákveðið og afdráttarlaust, er dá- lítið stuttur í spuna. Greinilega maður framkvæmda og hugrekkis enda kemur ýmislegt fram í sam- talinu sem ber þess vott. Við sitj- um á elstu krá Reykjavíkur, klukkan er fimm, og fáir á staðn- um. Það er fátt sem truflar, nema ef vera skyldi tónlistin, rödd spörfuglsins er áleitin og viðmæl- andi minn segist hafa tekið eftir auglýsingum um sýningar á söng- leiknum á Akureyri. Gestum fjölgar eftir því sem klukkuvís- arnir nálgast að mynda lóðrétt strik á skífunni, aðeins styttra i neðri endann, og bjórlíkið fer að streyma út i salinn. Einn gest- anna, reyndar þekktur maður i Reykjavíkurlífinu, virðist þó ekki hafa fylgst almennilega með þess- ari þróun líkhúsanna eins og bjórlíkisáhugamenn kalla þessa staði gjarnan, því hann er með flösku í beltinu upp á gamla móð- inri, sest niður með hávaða og lát- um sem lengi hafa fylgt útúr- drukknum íslendingum, og er leiddur út milli tveggja svart- klæddra lögregluþjóna áður en honum tekst að fá sér sopa úr flöskunni. Viðmælandinn heitir Doug Scott og er einn af fremstu fjall- göngugörpum heims. Hann hefur klifið fjöll í 30 ár, byrjaði á þessu 13 ára gamall ásamt skólafélögum í Nottingham 1954. Hann hefur tekið þátt í 19 leiðöngrum upp fjöll í Asíu, klifið nýjar og óþekkt- ar leiðir upp Chamlang, Kangch- ungtse, Pic Lennin, The Ogre, Kangchenjunga, Kusum Kang- urru, Nuptse, Shivling, og Shish- apangma. 1975 var hann fyrstur til að fara upp suðvesturhlið Ever- est og fór upp á topp ásamt félaga sínum, Dougal Haston, sem nú er látinn. „Flestir félaga minna eru látn- ir,“ segir hann um leið og hann tekur fram ljósmynd af Dougal Haston sem hann tók af honum uppi á Everest. Um stund bregður fyrir söknuði i svipnum og við spyrjum hvort dauði félaganna hafi ekki þau áhrif aö hann verði afhuga klettaklifri. „Nei.“ Svarið er afdráttarlaust og hann bætir við: „Ég gæti mín þeim mun betur. Þegar ég legg af stað í leiðangur er fyrsta hugsunin að komast heill MHm Dovgal beitún Haatom, félagi Scott, á tindi Mont Everest. Stórbrotið útsýni af tindi Mont Everest heim aftur.“ Hann er nýkominn úr kletta- klifri á Þingvöllum, fór þangað ásamt félögum Alpaklúbbsins þennan sama eftirmiðdag í sunn- lenskri rigningunni. „Það er ágæt- is æfing að klifra þarna, þetta er góður æfingarstaður, þó það hafi verið dálítið vont að klifra þarna núna í rigningunni." Hingað er hann kominn fyrir hálfgerða tilviljun, býr í næsta húsi við mann, sem verið hefur fararstjóri hér á landi í óbyggða- ferðum undanfarin sumur. Þetta er í annað sinn sem hann stígur Nauösynlegt þykir að hafa súrefniskúta með f fjallgönguna upp á Mont Everest Hér er Dougal Haston að hvfla sig og anda að sér súrefni. niður fæti hér á landi, kom í fyrra sinn sl. haust. Auk þess sem hann notar tækifærið og kannar íslensk fjöll og jökla flytur hann fyiir- lestra og er með myndasýningar úr leiðöngrum sínum. Scott er kletta- og fjallaklifrari að at- vinnu, hann hefur skrifað nokkrar bækur, m.a. eina kennslubók i klettaklifri og auk þess hefur hann kennt í fjöldamörg ár. Honum líst vel á það sem hann hefur séð af landinu, „þið hafið allt hér og þurfið ekki að leita annað". Scott hefur klifrað í öllum heimsálfum og því ferðast víða um heim og hann er spurður hvort honum finnist Island ef til vill bera af öðrum löndum? „Því meir sem ég hef ferðast, því minna finnst mér ég þekkja af heiminum, svo það er líklega best að vera bara heima hjá sér.“ — Er það ekki hálf leiðinleg niðurstaða fyrir mann sem hefur varið æfi sinni til að kanna ókunn- ar slóðir? „Nei, alls ekki. Ég veit þetta með vissu. Ég gæti ekki fullyrt þetta ef ég hefði ekki reynt það sjálfur." — Nú eru fjallgöngur og kletta- klifur erfitt og hættulegt sport. Hvað er svona spennandi við þetta? Hann hugsar sig um smá stund og svarar svo: „The whole thing þetta allt saman. Þetta er eitthvað í blóðinu, það er ólýsanleg tilfinn- ing að leggja af stað í leiðangur, vita ekkert hvað er framundan, hvar næsti svefnstaður er eða hvort hann sé fyrir hendi. Það kemur fyrir að við klifrum upp lóðréttan klettavegg í allt að viku og verðum að hengja upp hengi- rúm á tvo nagla, sem eru reknir í Doug Scott við fána Kínverjanna sem greinilega hafa verið á ferð. Myndin er af Dougal Haston klffa snarbratta brekkuna upp suðvesturhlið Mont Everest. Myndina tók Doug Scott.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.