Morgunblaðið - 05.06.1985, Síða 1

Morgunblaðið - 05.06.1985, Síða 1
56 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 124. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afganistan: Sókn Rússa heldur áfram lnUmabad, PakwUn, 4. júní. AP. SOVÉSKI innrisarhorinn í Afganistan heldur áfram sókn sinni inn Kunardal, skammt frá landamærunum við Pakistan, en ekki fara fréttir af miklum átökum við skæruliða. Er haft eftir heimildum, að þeir hafi forðað sér upp í hálendið og bíði þar átekta meðan á mesta herhlaupinu stendur. Fallhlífahermenn og sérþjálfaðar sveitir Rauða hersins fara í farar- broddi inn Kunardal og hefur kom- ið til nokkurra átaka en ekki eins mikilla og við hefði mátt búast. Er Finnland: Vinstri- menn í minni- hluta HeUinki o* víknr, 4. júní. AP. VINSTRIH.OKKARNIR í Finnlandi hafa nú minna fylgi en þeir hafa nokkru sinni haft frá stríðslokum og þau umskipti hafa einnig orðið á stöðu einstakra flokka, að Sameiningar- flokkurinn (Hægriflokkurinn) fengi fleiri atkvæði en Jafnaðarmanna- flokkurinn ef kosið yrði nú. Kemur þetta fram í skoðanakönnun, sem birt var í dag. í könnuninni kemur fram, að vinstriflokkarnir, jafnaðarmenn og kommúnistar, hafa fylgi 34,7% kjosenda og hafa þeir ekki verið fylgisminni frá stríðslokum. Sam- einingarflokkurinn, sem hefur verið í stjórnarandstöðu í 20 ár, fengi 23,6% atkvæða ef nú yrði kosið en Jafnaðarmannaflokkurinn ekki nema 23,3%. Af stjórnmálum annars staðar á Norðurlöndum er það að frétta, að vinstriflokkarnir í Svíþjóð hafa nú meirihluta með þjóðinni samkvæmt skoðanakönnun og er það í fyrsta sinn í eitt ár. Jafnaðarmenn fengju 44,5% og kommúnistar það, sem á vantar meirihlutann. Hægriflokk- urinn sænski hefur einnig aukið fylgi sitt og fengi nú 30,5%. 1 Danmörku kemur fram í Gallup- könnun, að fylgi jafnaðarmanna hefur rýrnað á einum mánuði um 2%, úr 32,8% í 30,8%. Skoðana- könnun í Noregi bendir ekki til neinna breytinga á fylgi flokkanna, sem í mesta lagi rokkar til um einn hundraðshluta til eða frá. Portúgal: Stjórnarkreppa ástæðan sögð sú, að skæruliðar hafi flúið upp í fjöllin undan sprengju- regni Sovétmanna og ætli að bíða þar uns um hægist. Sovétmenn eru sagðir beita allt að 10.000 manns í sókninni, sem einnig á að koma til hjálpar einni deild úr stjórnarhern- um i bænum Barikot, en um hann hafa skæruliðar setið lengi. Kun- ardalur er mjög mikilvægur því að um hann liggur þjóðbraut milli Afganistans og Pakistans en Sovét- menn ætla augljóslega að reyna að loka landamærunum. Samtímis sókn Sovétmanna í Kunardal hafa átökin aukist í kringum Kabul og er haft eftir heimildum, að stórir flotar fail- byssuþyrlna geri stöðugar árásir á skæruliða í kringum borgina. Harð- ir bardagar eru einnig í Kandahar í suðurhluta landsins en þar hafa Sovétmenn gert loftárásir á þorp í hefndarskyni fyrir árásir skæruliða á rússneska hermenn. Sjá ennfremur forystu- grein á mióopnu. AP/Simamynd f sókn Sovétmanna gegn skæruliðum í Afganistan hefur sprengjum verið varpað úr sovéskum herflugvélum á þorp í Pakistan, m.a. þorpið Swir þar sem 12 íbúanna fórust og 31 særðist Einn þorpsbúa, pakistanskur hermaður, stendur hér hjá sprengju, sem ekki sprakk. Afdrifa- ríkur tann- dráttur Bonn, 4. júní. AP. TANNLÆKNIR nokkur í Bonn í Vestur-Þýskalandi var í gær dæmdur til að greiða einum sjúklinga sinna um 65 þús. ísl. kr. ■ bætur fyrir að hafa svipt hann allri „ánægju af kossum“ með tanndrætti fyrir þremur árum. Denis Ferrand, starfsmaður í franska sendiráðinu í Bonn, bar það fyrír réttinum, að þegar þar væri komið kynnum hans við konur, að hann reyndi að kyssa þær, fyndi hann „ýmist ekki fyrir neinu eða til brenn- andi sársauka" vegna þess, að einhverjir taugaendar hefðu skaddast við tanndráttinn. Ferrand, sem er 51 árs að aldri og fráskilinn, kvaðst hafa full- an hug á því að kvænast aftur en það væri þó tómt mál um að tala ef hann gæti ekki kysst konuefnið sitt. Dómstóllinn komst að þeirri niðurstöðu, að tannlæknirinn hefði farið rétt að við tann- dráttinn en hins vegar láðst að láta sjúklinginn vita um hugs- anlegar afleiðingar af honum. Stjórnvöld í Rúmeníu losa sig við þegnana Óæskilegt fólk svipt borgararéttindum og A-Þjóðverjar sjá um að koma því til Svíþjóðar og V-Þýskalands Stokkhólmi og Bonn, 4. júní. Frá frétUriUra MorgunbUAsinn og AP. S/ENSKA stjórnin hefur borið fram mjög harðorð mótmæli við Rúmeníu- stjórn vegna mikils fjölda ríkisfangs- lausra Rúmena, sem streyma nú til Svíþjóðar þar sem þeir biðja um land- vist Er hér ekki um venjulega flótta- menn að ræða, heldur fólk, sem rúm- ensk stjórnvöld hafa svipt borgara- réttindum, og Austur-Þjóðverjar sjá síðan um að koma til Svíþjóðar. Vest- ur-þýska stjórnin hefur einnig beðið sendiráð sitt í Búkarest í Rúmeníu að kanna hvernig stendur á auknum straumi Rúmena til Vestur-Þýska- lands að undanförnu. n. Portúgal, 4. júní. AP. LEIÐTOGAR Sósíaldemókrata- (lokksins í Portúgal ákváðu í dag að hætta samstarfinu við Sósíalista- flokkinn vegna ágreinings flokk- anna um efnahagsmál. Ekki er búist við, að sósialdemó- kratar dragi ráðherra sína úr stjórninni fyrr en undirritaður hefur verið samningur um inn- göngu Portúgala í Evrópubanda- lagið en það verður í næstu viku. Kemur nú til kasta Eanes, forseta, að ákveða framtíð stjórnarinnar, boða til nýrra kosninga, skipa stjórninni að sitja áfram til bráðabirgða eða skipa sjálfur nýja ráðherra um stundarsakir. Brúarsmíði lokið Faro-brýrnar milli Sjálands og Falsturs voru vígðar í gær og var það Margrét Danadrottning, sem klippti á borðann. Eru brýrnar mikið mannvirki, þriggja km langar samtals, og um þær munu fara 9.000 bflar á dag. Sjá „Faro-brýrnar opnaðar ... “ á bls. 24. Sendiherra Rúmena í Stokkhólmi var í gær kallaður í utanríkisráðu- neytið sænska þar sem því var mót- mælt harðlega, að rúmneskir borg- arar væru sviptir borgararéttind- um og síðan sendir vegabréfslausir úr Iandi. Á stuttum tíma hafa 130 Rúmenar, sem þannig er ástatt um, komið til Svíþjóðar. Samkvæmt samningum þurfa rúmenskir ríkis- borgarar ekki vegabréfsáritun til Svíþjóðar en þeir gilda að sjálf- sögðu ekki um ríkisfangslaust fólk. Var rúmenska sendiherranum tjáð, að framferði kommúnistastjórnar- innar í Rúmeníu stríddi gegn grundvallarmannréttindum og þess krafist, að þessu yrði hætt þegar í stað. Það eru Austur-Þjóðverjar, sem sjá um að koma Rúmenunum til Svíþjóðar með ferjunni til Trelle- borg, en þeir bíða þess nú, að sænska innflytjendastofnunin kom- ist að niðurstöðu í máli þeirra. Vestur-þýska stjórnin hefur beð- ið sendiráð sitt í Búkarest að at- huga hvernig stendur á auknum fólksstraumi frá Rúmeníu til Vestur-Þýskalands að undanförnu en þangað hefur fólkið komið í gegnum Austur-Þýskaland. V-Þjóð- verjar hafa leyft Rúmenum af þýskum ættum að setjast að í land- inu, 16.000 manns á síðasta ári, en hér er ekki um að ræða fólk, sem er af þýsku bergi brotið. Vestur-þýsku dagblöðin skýrðu einnig frá því í dag, að nú væri von á 900 manna hópi frá Rúmeníu, fólki, sem stjórn- völd vildu losa sig við af pólitískum ástæðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.