Morgunblaðið - 05.06.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
3
Frfður flokkur unglinga, sem starfar rié gatnahreinsun ault annars
Stykkishólmur:
Nóg að starfa við
gatnahreinsunina
StykkÍHbólmi, 22. nui.
Hreinsun á götum og umhverfi fer
nú fram í Stykkishólmi þessa daga og
kjörorðið er „Allt hreint og fágað.“
Það er mikið verk að hreinsa göt-
urnar, því oft vill brenna við að um-
gangur fólksins sé ekki alveg upp á
það besta. Hvað skyldu t.d. margar
flöskur vera brotnar um alit land í
gangstéttunum og svo er nú ekki
alltaf verið að súta hvar umbúðirn-
ar lenda þegar menn fá sér prins
póló og slíkan varning. En það eru
glerbrotin sem eru haettuleg og ég
vil minna á að allir, bæði ungir og
gamlir, hafi það i huga, að henda
ekki gleri í götu; við sjáum aldrei
fyrir afleiðingar þess.
Skólanum er nú lokið hér og börn
og unglingar farnir að starfa á öðr-
um vettvangi og nú eru það ungl-
ingarnir sem komnir eru með sópa
og hjólbörur til að fjarlægja allt
rusl úr bænum. Safna því f hauga
og poka og svo kemur hreppsbíllinn
og sækir og fer með á haugana. Það
var hamagangur hjá börnunum
þegar fréttaritari Mbl. kom á vett-
vang og fékk þau til að stilla sér
upp og þá tók hann þessar myndir.
Stykkishólmshreppur hefir á
hverju ári haft unglingavinnu og
gefist vel.
Hertar kröfur á verð-
bréfamarkaðnum
— segir Gunnar H. Hálfdánarson framkvæmdastjóri
„Þad er alveg Ijóst að kröfur á verð-
bréfamarkaði hjá Fjárfestingafélag-
inu og öðrum verðbréfasölum verða
stórhertar og voru þær strangar
fyrir," sagði Gunnar H. Hálfdánar-
son, framkvæmdastjóri Fjárfestinga-
félagsins, þegar hann var spurður um
hvernig félagið hyggðist tryggja við-
skiptavini sína gegn folsuðum verð-
bréfum í framtíðinni.
„Verðbréfamarkaðurinn hefur
verið mjög traustur markaður til
þessa en ef fógetaembættið þinglýs-
ir skuld á eignir manna án þess að
bera undirskrift skuldabréfa saman
við undirskrift á afsali þá getur
ýmislegt farið að gerast. Ef til
dæmis maður, sem þarf að selja
íbúðina sína strax og fær gott kaup-
tilboð, kemst allt i einu að því að á
íbúðinni hvílir einhver skuld, sem
hann kannst ekkert við, þá verður
hann fyrir beinu fjárhagslegu tjóni
því það getur tekið langan tíma að
fá málið leiðrétt.
Við höfum og erum með mjög
strangar aðferðir til að vega og
meta hvert bréf, en þegar verð-
bréfamarkaðurinn er jafn stór og
hann er þá getur verið vandasamt
að sjá við öllum göllum en að sjálf-
sögðu er stefnt að því að útiloka þá
með öllu. Hinsvegar er þetta fyrsta
tilvik sem við vitum um og náð hef-
ur þessu stigi. Hingað til hefur
markaðurinn verið mjög öruggur.
Ég lít svo á að mál eins og þetta
komist alltaf upp í jafn litlu þjóð-
félagi og hér er, en að þetta skuli
geta gerst er auðvitað mjög alvar-
legt mál. Vandamálið er hinsvegar
ekki eingöngu bundið við verðbréfa-
markaðinn, það getur líka komið
upp hjá innlánsstofnunum. Þar eru
sömu möguleikar fyrir hendi,“ sagði
Gunnar að lokum.
Þú finnur ánægjuna í Fríklúbbsferö meö Útsýn.
J\RDl im V O ulOÖa DCví MÉk