Morgunblaðið - 05.06.1985, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 1985
21
Allir af vilja gerðir
Það kom berlega í ljós nú að
Fáksmenn lögðu sig alla fram um
að vera með góða dagskrá á annan
í hvitasunnu og má segja að það
hafi tekist bærilega. Fannst
manni þó stundum þeir keyra
dagskrána of hratt áfram og segir
nú sjálfsagt einhver að aldrei sé
hægt að gera þessum blaða-
mönnum til geðs. En staðreyndin
var sú að fólk vildi gjarnan horfa
á hina glæstu gæðinga Fáks örlít-
ið meir en boðið var upp á. Hefði
mátt nota hina svokölluðu
Brekkubraut betur en gert var á
þann hátt að meðan verið var að
kynna einn flokk hefði mátt láta
þá sem áður voru kynntir vera á
ferð á brekkubrautinni í frjálsri
reið.
Kappreiðarnar gengu vel fyrir
sig. Ollum hestum í hverri grein
var riðið samtímis aftur fyrir
endamörk og síöan ræstur hver
riðill á fætur öðrum. Knapar og
umráðamenn hesta virtust ekki
alveg átta sig á hvernig átti að
standa að þessu þannig að ekki
náðist alveg nógu góður „rythmi"
eins og ágætur þulur, Hjalti
Pálsson, orðaði það en en þetta er
það sem koma skal. Einnig er vert
að nefna hinn þulinn, Guðmund
Birki Þorkelsson, sem var mjög
góður að þessu sinni og var að-
dáunarvert hvernig hann af-
greiddi krónískt hundavandamál
með lipurð og kurteisi og virtist
það gefa mun betri raun en
drápshótanir sem stundum hafa
verið viðhafðar á hestamótum af
ónefndum þul.
f heild var þetta gott mót, mikið
af góðum hestum, framkvæmd
mótsins með miklum ágætum og
gaman verður að berja þetta
mótssvæði augum þegar það verð-
ur fullbúið fyrir Fjórðungsmótið.
Minningarsjóður
Níelsar Dungals:
Fyrirlestur
í Hjúkrunar-
skólanum
FYRIRLESTUR verður haldinn
á vegum minningarsjóðs Níelsar
Dungal þriðjudaginn 11. júní 1985
kl. 13.00 í aðalkennslustofu
Hjúkrunarskóla íslands á Land-
spítalalóð.
Fyrirlesari verður prófessor
Hubert J. Wolfe við Tufts Uni-
versity Medical School, Boston,
Massachusettes. Hann fjallar um
efnið „The Localization of Onco-
gene Expression in Tissues by In
situ Hybridization and Immunocy-
tochemistry**.
Prófessor Wolfe hefur starfað
við meinafræðideild Tufts Uni-
versity og New England Medical
Center Hospital í Boston og er
mjög framarlega í rannsóknum á
þessu sviði. I fyrirlestrinum
verður farið inn á aðferðafræði
recombinant DNA og RNA og
lýst aðferðum við að staðsetja
oncogene og framleiðslu þeirra í
frumum með notkun monoclonal
mótefna.
Fyrirlesturinn verður sniðinn
jafnt fyrir þá sem stunda rann-
sóknir á sviðinu og þá sem
stunda sjúklinga.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
og er öllum heimill aðgangur.
Landsmálafélagið Vörður
Stjórnmálaástandlö
í þinglok
Landsmálafélagiö Vörö-
ur heldur fund um stjórn-
málaástandið í þinglok
fimmtudaginn 6. júní nk.
kl. 20.30 í Sjálfstæðis-
húsinu Valhöll viö Háa-
leitisbraut.
Framsögumenn veröa:
Þorsteinn Pálsson,
formaöur Sjálfstæöisflokksins
Friörik Sófusson,
varaformaöur Sjálfstæöis-
flokksins.
Stjórnin
Margra ára reynsla sannar gæði
þakmálningunar frá Málningu hf.
ÞOL er sérframleidd alkýðmálning,
sem innlend reynsla hefur
skipað í sérflokk vegna endingar
og nýtni.
ÞOL er framleitt í fjölbreyttu litaúrvali.
Handhægt litakort auðveldar
valið á réttum lit.
ÞOL tryggir þér fallegt útlit
og góða endingu.
ÞAKMÁLNING SEM ENDIST
málning'f